Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Viðbótarorkan komi úr Búðarhálsvirkjun Tekin hefur verið ákvörðun um að hefja fyrri hluta endurbóta á álveri Rio Tinto Alcan í Straumsvík með það fyrir augum að nýta megi meira rafmagn en nú er gert. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næstu vikum. Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, segir viðræður við Landsvirkjun um endurnýjun á raforkusamningi verksmiðjunnar, auk viðbótarorku fyrir straumhækkunarverkefnið, á lokastigi. 22.1.2010 06:00
Lítill hópur hátekjufólks greiðir þriðjung Aðeins 0,3 prósent af tekjum ríkisins af skatti á laun einstaklinga kemur frá fólki sem fellur í fyrsta skattþrepið í nýju þrepaskiptu skattkerfi sem innleitt var um áramót. Langsamlega stærstur hluti íslenskra launamanna fellur í annað skattþrepið. Þeir 11 þúsund einstaklingar sem falla í þriðja skattþrepið greiða samanlagt tæpan þriðjung af tekjuskatti einstaklinga. 22.1.2010 05:30
Eyddu minnst tólf milljónum árið 2005 Þrír borgarfulltrúar, sem eru frambjóðendur Sjálfstæðisflokks í yfirstandandi prófkjöri til borgarstjórnar, skiluðu ekki upplýsingum um styrki vegna prófkjörs fyrir kosningar 2006, til Ríkisendurskoðunar fyrir síðustu áramót. Þeir hafa fallist á að segja blaðinu hver kostnaðurinn var. 22.1.2010 05:00
Staða mála Íslands óbreytt hjá AGS „Staðan í málefnum Íslands er óbreytt," sagði Caroline Atkinson, framkvæmdastjóri ytri samskipta Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á reglubundnum blaðamannafundi sjóðsins í gær, en þeir fara fram hálfsmánaðarlega. 22.1.2010 04:30
Íslandsbanki vill of mikið fyrir olíufélag Verðhugmyndir Íslandsbanka á 49 prósenta hlut í Skeljungi þykja í hærri kantinum. 22.1.2010 04:00
Kröfur í bú Björgólfs 101 milljarður Heildarfjárhæð lýstra krafna í þrotabú Björgólfs Guðmundssonar er rúmlega 101 milljarður króna. Langstærstur hluti þeirra, eða um 70 milljarðar, er frá Landsbankanum vegna persónulegra ábyrgða Björgólfs. 22.1.2010 04:00
Leitar lóðar niður við höfn Fyrirtækið Glacier Water leitar nú lóðar við Hafnarfjarðarhöfn. Það hefur augastað á lóð við Hvaleyrarhöfn sem Lýsing er með í höndunum og er í viðræðum um kaup á henni. Lóðin er úr þrotabúi. Þar hyggst fyrirtækið reisa átöppunarverksmiðju fyrir vatn, þar sem um fimmtíu störf gætu orðið til. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir að samningur liggi fyrir við fyrirtækið um að tryggja því vatn í átöppunarverksmiðjuna. Fyrsta skrefið sé að fyrirtækið tryggi sér lóð. Gangi það eftir gætu hjólin snúist nokkuð hratt. Hugmyndir séu uppi um frekari verkefni, jafnvel tvískipta verksmiðju sem mundi skapa fleiri störf. 22.1.2010 03:00
Skrifstofa þings kaus að kæra fyrir aðför Ríkissaksóknari segist ekki hafa heimild til að láta mál niður falla þar sem sjö manns hafa særst í átökum. Hann bendir á að kæran gegn ellefu manns, sem réðust inn í Alþingishúsið með þeim afleiðingum að lögreglumenn og fleiri særðust, komi til sín eftir rannsókn lögreglu á kæru skrifstofustjóra Alþingis. Það hafi verið Alþingi sem ákvað að kæra samkvæmt 100. grein hegningarlaga, sem kveður á um eins árs lágmarksfangelsisvist, verði hin ákærðu dæmd sek. 22.1.2010 02:30
Jótlandspósturinn birtir skopmynd af forseta Íslands Jótlandspósturinn birti í dag skopmynd af Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands. Á myndinni, sem fylgir með fréttinni, má sjá Ólaf Ragnar sitja á hesti sem sparkar jakkafataklæddum forsvarsmönnum Hollands og Bretlands. 21.1.2010 23:13
Bæjarstjóri Vestmannaeyja: „Látið okkur í friði, það er okkar eina bón“ Bæjarstjóri Vestmannaeyja, Elliði Vignisson, segir það einu bón þeirra, sem að sjávarútveginum koma, að ríkisstjórnin láti þau í friði. 21.1.2010 21:15
Blóðugur niðurskurður á RÚV: Elín Hirst meðal þeirra sem var sagt upp Fréttakonunni Elínu Hirst og dagskrágerðarkonunum Þóru Tómasdóttur, Elsu Maríu Jakobsdóttur og Jóhönnu Vilhjálmsdóttur, hefur verið sagt upp störfum hjá RÚV. Þeim var tilkynnt um uppsagnirnar í dag en þær verða tilkynntar formlega á morgun samkvæmt heimildum Vísis. 21.1.2010 19:16
Björgunarsveitir eltast við þakplötur og vinnuskúra Í dag og í kvöld hafa björgunarsveitir víða verið kallaðar út vegna óveðursins sem gengur yfir landið. 21.1.2010 22:37
Sakar minnihlutann um að taka undir ávítta gagnrýni Ólafs F. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, sakar minnihluta borgarstjórnar, Samfylkinguna og VG, um að taka óbeint undir málflutning borgarfulltrúans Ólafs F. Magnússonar, með því að sitja hjá þegar vantrauststillögu Ólafs var vísað frá á borgarstjórnarfundi í vikunni. 21.1.2010 21:42
Heppnir Frakkar Tveir franskir ferðamenn sluppu ótrúlega vel frá umferðaóhappinu á Grindavíkurveginum nú fyrr í kvöld þegar vörubifreið með tengivagn valt við Seltjörn samkvæmt lögreglunni á Suðurnesjum. 21.1.2010 21:21
Seldi atvinnuhúsnæði langt undir fasteignavirði Landsbankinn seldi atvinnuhúsnæði á Grensásvegi á yfir fjörutíu prósenta lægra verði en húsið var keypt á fyrir þremur árum. Fermetrinn var seldur á tæpar 50 þúsund krónur. Hrakvirði segir löggiltur fasteignasali, en ekki óeðlilegt í þessu ástandi. 21.1.2010 20:13
Vörubifreið valt á Grindavíkurvegi Vörubifreið með tengivagn valt fyrir skömmu á Grindavíkurvegi við Seltjörn samkvæmt lögreglunni á Suðurnesjum en þar er aftakaveður. 21.1.2010 20:10
Borga mörg hundruð milljónir í leigu en eiga autt húsnæði Á sama tíma og Reykjavíkurborg greiðir mörg hundruð milljónir króna á ári í leigu fyrir skrifstofuhúsnæði stendur húsnæði í eigu borgarinnar tómt og ónotað. 21.1.2010 18:45
Engin svör frá Bretum og Hollendingum Engin svör hafa borist frá Bretum og Hollendingum um hvort hægt verði að taka upp nýjar samningaviðræður um Icesave. Ríkisstjórnin fundaði með stjórnarandstöðunni nú síðdegis án niðurstöðu. Höskuldur Kári Schram var í Stjórnarráðshúsinu. 21.1.2010 18:43
Björgunarsveitin kölluð út vegna Officeraklúbbsins Björgunarsveitin Suðurnes verið kölluð út vegna foks við Officeraklúbbinn á vallarsvæðinu í Keflavík. Þar hefur allnokkurt tjón orðið á þaki hússins. 21.1.2010 17:41
Óveður á Reykjanesbrautinni Vegfarendur eru varaði við miklu hvassviðri á Suðurlandi, undir Eyjafjöllum, Hafnarfjalli, Kjalanesi og á Reykjanesbraut. 21.1.2010 17:39
Herjólfur þurfti aðstoð í aftakaveðri - myndir Herjólfur kom til Vestmannaeyja klukkutíma of seint í dag en vindhraði var svo mikill að kalla þurfti lóðsinn til aðstoðar. Herjólfur átti í mestu vandræðum með að leggjast að bryggju en samkvæmt fréttaritara fréttastofunnar, Gísla Óskarssyni, var vindurinn slíkur að lóðsinn þurfti til þess að leggja Herjólfi. 21.1.2010 17:15
Dæmdur í ársfangelsi fyrir amfetamínsmygl Hæstiréttur staðfesti í dag eins árs fangelsisdóm yfir pólskum karlmanni sem ákærður var fyrir að smygla inn tæpu kílói af amfetamíni til landsins. 21.1.2010 16:36
Lögðu hald á 90 kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 90 kannabisplöntur og var megnið af þeim á lokastigi ræktunar. 21.1.2010 15:32
Fjölmenni á baráttufundi í Vestmannaeyjum Fjölmenni er mætt á baráttufund í Höllinni í Vestmannaeyjum vegna baráttufundar gegn kvótafyrningarleið ríkisstjórnarinnar. 21.1.2010 20:36
Jóhanna: Þjóðin líti til íslenska landsliðsins Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, telur að þjóðin þyrfti að líta til landsliðsins í handbolta um fyrirmyndir í vörn og sókn í atvinnu- og efnahagsmálum á næstu árum. Þetta kom fram í ávarpi sem hún flutti á Selfossi í tengslum við verkefnið 20/20 Sóknaráætlun sem ætlað er að draga fram styrkleika og sóknarfæri landsmanna og gera tillögur og áætlanir á grunni þeirra. Markmiðið með áætluninni er að tryggja að Ísland verið eitt af 10 samkeppnishæfustu löndum heims árið 2020. tryggja að Ísland verið eitt af 10 samkeppnishæfustu löndum heims árið 2020. 21.1.2010 16:38
Samninganefndin á byrjunarreit „Vinna samninganefndarinnar er á byrjunarstigi ef svo má segja. Bæði aðal samninganefndin og einstakir samningahópar hafa verið að undirbúa sig og viða að sér upplýsingum,“ segir Árni Þór Sigurðsson, formaður starfshóps utanríkismálanefndar um Evrópumál. Starfshópurinn fundaði í dag með forystumönnum samninganefndar Íslands vegna fyrirhugaðra aðildarviðræðna við Evrópusambandið. 21.1.2010 16:34
Ríkisstjórn fundar með stjórnarandstöðu Leiðtogar ríkisstjórnar hafa boðað fulltrúa stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi til fundar klukkan hálffimm í dag. Samkvæmt heimildum Vísis verður þar farið yfir stöðu mála varðandi Icesave. 21.1.2010 16:15
Hart tekist á um REI-málið Hart var tekist um einn anga REI-málsins svokallaða á fundi borgarráðs í dag þegar fjallað var um fyrirspurn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, forseta borgarstjórnar, til innri endurskoðanda borgarinnar varðandi kaup á filippseysku ríkisreknu orkufyrirtæki. Meira en tvö ár eru síðan að ólga í kringum málefni tengd REI, útrásar- og dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, leiddi til þess að fyrri meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sprakk. 21.1.2010 15:47
Frambjóðandi býður ókeypis í strætó Dofri Hermannsson varaborgarfulltrúi ætlar að bjóða fólki ókeypis í strætó, leið 6, sem fer frá Hlemmi klukkan sjö mínútur yfir eitt á laugardaginn. Tilgangurinn er sá að kynna fólki hugmyndir sínar um tilraunaverkefnið Frístundastrætó í Grafarvogi. 21.1.2010 15:29
Björgunarsveitin í viðbragðsstöðu í Vestmannaeyjum Björgunarsveitin í Vestmannaeyjum er komin í viðbragðsstöðu vegna óveðurs þar. Lögreglan segir að það sé að bæta í vind og því vilji menn vera við öllu búnir. 21.1.2010 14:29
Lenti í mikilli ókyrrð - farþegum boðin áfallahjálp Flugvél Flugfélags Íslands sem var á leið frá Ísafirði, eftir að hafa hætt við lendingu þar, lenti í mikilli ókyrrð þegar flogið var uppúr Skutulsfirðinum. Farþegum var boðin áfallahjálp þegar vélin lenti á Reykjavíkurflugvelli. 21.1.2010 14:26
Óbreytt líðan eftir rörasprengjuslys Líðan mannsins sem lenti í alvarlegu rörasprengjuslys í Hveragerði fyrir tveimur dögum síðan er óbreytt, segir deildarlæknir á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Maðurinn er sofandi í öndunarvél. 21.1.2010 14:17
Þorsteinn hættur hjá Landsvirkjun Landvirkjun og Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi fyrirtæksins, hafa gert samkomulag um að hann láti af störfum, en hann hefur starfað hjá Landsvirkjun undanfarin 18 ár. 21.1.2010 14:13
Óveður undir Eyjafjöllum Vegagerðin varar vegfarendur við miklu hvassviðri á Suðurlandi og Reykjanesi. Um miðjan dag í dag gæti verið varasamt að vera á ferð undir Hafnarfjalli, á Kjalanesi, á Reykjanesbraut og undir Eyjafjöllum en þar er óveður, að fram kemur í tilkynningu. 21.1.2010 14:07
Íslenska sveitin lendir skömmu eftir miðnætti Áætlað er að íslenska rústabjörgunarsveitin lendi á Keflavíkurflugvelli um klukkan 00:30 í nótt en það er nokkuð seinna en áætlað var. Fyrri áætlarnir gerðu ráð fyrir að sveitin kæmi til landsins seinnipartinn í dag og síðar var ráðgert að hún myndi lenda í Keflavík í kvöld. 21.1.2010 13:49
Ríkissaksóknari hefur ekki ákæruvald í efnahagsbrotamálum Ríkissaksóknari segist ekki hafa ákæruvald í efnahagsbrotamálum og furðar sig á öllu tali um ranga forgangsröðun í tengslum við ákæruna gegn fólki sem mótmælti við Alþingishúsið í desember 2008. Hörður Torfason, tónlistarmaður og mótmælandi, er einn þeirra sem hefur gagnrýnt Ríkissaksóknara. 21.1.2010 12:54
Hörður Torfa: Ákærurnar eins og olía á eld Hörður Torfason einn af upphafsmönnum Búsáhaldabyltingarinnar segir símann hafa verið rauðglóandi í morgun eftir að fréttir bárust af því að mótmælendurnir níu yrðu ákærðir. Hann segir forgangsröðun Ríkissaksóknara kolranga. 21.1.2010 12:13
Eiginmaður ráðherra ekki verjandi í málinu Sigurmar Kristján Albertsson, hæstaréttarlögmaður og eiginmaður Álfheiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra, er ekki verjandi í máli gegn níu mönnum sem ákærðir eru vegna mótmæla í Alþingishúsinu fyrir ári síðan. 21.1.2010 11:39
Símasambandslaust víða á Reykjanesi Vegna eldingar sem laust niður í fjarskiptavirki í Reykjanesbæ í gær eru um tólf- til þrettánhundruð heimili þar símasambandslaus. Strax í morgun var hafist handa við að færa notendur á milli stöðva en samkvæmt upplýsingum frá Símanum er það seinlegt verk. Einnig er unnið að viðgerð á símstöðinni. Ekki er hægt að segja til um hvenær símasamband verður komið á. 21.1.2010 11:21
Ræddu bráðnun íss og hækkun sjávarborðs Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti í vikunni fund með forseta Maldíveyja, Mohamed Nasheed, í Abu Dhabi og ræddu samstarf þessara tveggja eyþjóða, en báðir sóttu Heimsþing hreinnar orku sem þar var haldið. 21.1.2010 11:18
Ekki alvarlega slösuð Kona sem var farþegi í jeppa sem lenti í árekstri á Suðurlandsvegi í morgun er ekki talin alvarlega slösuð, að sögn lögreglu. Búið er að opna fyrir umferð á slysstað. 21.1.2010 10:54
Mótmælendur tóku sér frest til að lýsa afstöðu sinni Fólkið sem ákært hefur verið vegna mótmæla í Alþingishúsinu fyrir ári síðan og mætti fyrir rétt í dag tók sér allt frest til þess að lýsa afstöðu sinni til ákærunnar þegar þingfesting fór fram í málinu. Tveir hinna ákærðu mættu hinsvegar ekki fyrir dóminn. Næst verður þingað í málinu þann 9. febrúar næstkomandi og þá þurfa sakborningar að lýsa yfir sekt eða sakleysi sínu. 21.1.2010 10:09
Neslistinn með prófkjör Bæjarmálafélag Seltjarnarness efnir til prófkjörs vegna vals frambjóðenda á Neslistann fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí samkvæmt ákvörðun félagsfundar í nóvember. Prófkjörið fer fram 20. febrúar næstkomandi og rennur framboðsfrestur út á hádegi mánudaginn 1. febrúar. 21.1.2010 10:06
Stormur í aðsigi Veðurstofa Íslands vekur athygli á því að nú er stormur í aðsigi. Eftir hádegi verður austan 20-28 metrar á sekúndu Suð- og Suðvestanlands og hviður við fjöll á því svæði víða yfir 40 metrar á sekúndu. Einnig verður vætusamt og búist er við mikilli rigningu Suðaustanlands í kvöld. Norðanlands verður heldur hægari vindur, en þó hvasst. 21.1.2010 09:47
Dalabyggð styrkir íbúa á Haítí Byggðarráð Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum í gær að veita 100 þúsund krónu styrk til hjálparstarfs vegna þeirra hörmunga sem íbúar á Haítí ganga nú í gegnum. Rauða kross Íslands verður falið að ráðstafa styrknum. 21.1.2010 09:40