Ásbjörn hagnaðist um tugmilljónir 23. janúar 2010 05:00 Ásbjörn Óttarsson „Ég hef verið í rekstri í 25 ár og aldrei hefur opinber aðili eða birgir tapað einni krónu á mínum rekstri,“ segir Ásbjörn. Fyrirtækið gangi vel.
Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks í fjárlaganefnd Alþingis, greiddi sér og konu sinni 65 milljónir króna í arð frá útgerðarfélaginu Nesveri árið 2008. Hann var framkvæmdastjóri Nesvers og eini stjórnarmaður. Greint var frá því í DV að sama ár tapaði fyrirtækið 574 milljónum króna og eigið fé var neikvætt um 157 milljónir. Ásbjörn skýrir þetta með því að arðurinn hafi verið greiddur vegna hagnaðar ársins 2007. Árið 2007 voru hins vegar tuttugu milljónir greiddar í arð vegna ársins 2006, samkvæmt ársreikningi. Árið 2006 var fyrirtækið rekið með tapi. Spurður um þetta, segir Ásbjörn að greiðslurnar hafi verið reiknaðar í hlutfalli við eigið fé fyrirtækisins. En samkvæmt ársreikningi var eigið fé Nesvers neikvætt árið 2006 um rúmar 213 milljónir. Um þetta segist Ásbjörn ekki geta rætt af því að hann sé ekki með ársreikningana hjá sér. Þingmaðurinn getur Nesvers í hagsmunaskráningu á vef Alþingis, en skráir hlutverk sitt þar ekki sem tekjumyndandi starfsemi, unna samhliða þingmennsku. Ásbjörn komst á þing vorið 2009 og bendir á að hann hafi einungis haft tekjur af Nesveri fyrstu tvo mánuði ársins. Hann hafi því engar tekjur fengið, samhliða þingmennsku. Óvíst sé hvort hagnaður verði greiddur út í ár. - kóþ
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira