Fleiri fréttir

Nýjar uppgötvanir tengdar blöðruhálskrabba

Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar ásamt vísindamönnum í Finnlandi, Hollandi, Bandaríkjunum og á Spáni, hafa fundið fjóra breytileika í erfðamengi mannsins, sem auka mjög líkur á krabbameini í blöðruhálskirtli, segir í tilkynningu frá Íslenskri erfðagreiningu.

Eldur í mannlausu húsi í Hvalfjarðarsveit

Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í mannlausu íbúðarhúsi í Nýhöfn í Hvalfjarðarsveit í gær. Slökkvilið frá Akranesi og Borgarbyggð voru kölluð á vettvang, en þegar þau komu, hafði eldurinn kafnað vegna súrefnisskorts.

Barentshafið fullt af þorski

Bráðabirgðaniðurstöður úr rannsóknum Norðmanna og Rússa í Barentshafi sýna að stofnar þorsks og ýsu eru í afar góðu ástandi. Þessar niðurstöður vekja athygli þar sem veiðin undanfarinn áratug hefur verið langt umfram ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknastofnunarinnar (ICES). Fiskifræðingar eru ekki sammála um hvort Íslendingar geti lært af þessari þróun í Barentshafinu.

Dansa þjóðdans undir berum himni

„Það er rosalega skemmtilegt að dansa svona undir berum himni. Þannig fáum við ferskt loft og holla útivist um leið og við dönsum,“ segir Jóhanna Harpa Agnarsdóttir. Jóhanna er ein af þeim sem hefur í sumar og síðasta sumar stigið dans á Miklatúni á hverju miðvikudagskvöldi.

Endurbyggja brunn

Verið er að leggja lokahönd á að gera gamla vatnsbólið á tóftasvæðinu suður af Egilsbraut í Þorlákshöfn sýnilegt. Að því er Barbara Guðnadóttir segir á vef sveitarfélagsins Ölfuss er brunnurinn hlaðinn og heill niður á um þriggja metra dýpi. Sjávarfalla gætir í brunninum.

Hlýtur að vera misskilningur

Velferðarsviði Reykjavíkurborgar er gert að skera niður rekstrarkostnað sinn um 5,76 prósent á þessu starfsári samkvæmt áætlun sem borgarstjóri lagði fram í borgarráði á fimmtudag. Bundinn kostnaður við fjárhagsaðstoð og leigubætur, sem áætlað er að verði um 3,2 milljarðar á árinu, er þar hins vegar ekki undanskilinn.

Gröndalshús verður gert upp og flutt

„Þetta hús skiptir miklu fyrir sögu Reykjavíkur. Það er þarft að heiðra minningu Benedikts Gröndal og alls sem hann stóð fyrir varðandi bókmenntir og vísindi, og eins hefur húsið mjög sérstaka þýðingu í byggingarsögulegu tilliti. Því er mjög ánægjulegt að húsinu verði gert hátt undir höfði,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri á menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar.

Guðlaugur Þór: Hundrað milljón króna sparnaður í súginn

Dæmi eru um að læknar á St. Jósefsspítali fái tugi milljóna króna í árslaun fyrir hlutastörf. Læknir á spítalanum gagnrýnir Ögmund Jónasson heilbrigðisráðherra harðlega fyrir að loka spítalanum hægt og hljótt með því að skrúfa fyrir fé til læknisverka.

Hafa fimm ár til að endurfjármagna 20 milljarða kvótaveð

Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa 5 ár til að endurfjármagna skuldabréf upp á tugi milljarða króna að öðrum kosti mun Seðlabanki Lúxemborgar selja bréfin hæstbjóðanda. Bréfin eru öll með veði í kvóta nokkurra stærstu útgerða landsins.

Snjólaust á Esjunni

Esjan er nú loks orðin snjólaus og er þetta níunda árið í röð sem það gerist. Síðasti skaflinn í suðurhlíðum Esjunnar, í Gunnlaugsskarði, bráðnaði í rigningartíðinni uppá síðkastið.

Bæjarstjóri vill gagnaver

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar gerir sér vonir um að umsvifamikil gagnaver rísi á auðum lóðum í bænum. Viðræður standa nú yfir við fyrirtækin Greenstone og Títan.

Borgarahreyfingin þingmannslaus - Þráinn áfram óháður

„Ég er búinn að gera honum ljóst að ég muni ekki breyta minni stöðu. Ég er ekki á leiðinni til baka og verð áfram óháður,“ segir þingmaðurinn Þráinn Bertelsson en formaður Borgarahreyfingarinnar ræddi við hann um helgina að snúa hugsanlega til baka sem þingmaður þeirra.

Rússar sármóðgaðir út í forseta Íslands

„[...] Við munum aðstoða Íslendinga. Eina vandamálið er að ákveðnir íslenskir stjórnmálamenn hafa verið tortryggnir í garð Rússa og viljað meina að við vildum aðstoða fjárhagslega til að fá afnot af Keflavíkurflugvelli eða nota okkur landið á annan hátt í pólitískum tilgangi. Að við myndum lána ykkur, en taka miklu meira í staðinn.“ segir Victor I. Tatarintsev í viðtali við Austurgluggann sem birtist á vef blaðsins í dag.

Segir St. Jósefsspítala lokað hægt og hljóðlega

Læknir við St. Jósefsspítala sakar Ögmund Jónasson heilbrigðisráðherra um að vera að loka spítalanum hægt og hljótt með því að skrúfa fyrir fé til læknisverka og segja upp fjórtán læknum. Hann spyr hvar eigi að sinna þeim þúsundum sjúklinga sem spítalinn hafi sinnt.

Ekið yfir liggjandi mann

Ekið var yfir liggjandi mann í bílageymslu við Smáratorg rétt upp úr klukkan tólf á hádegi. Samkvæmt lögreglu er ekki vitað nánar um málsatvik en svo virðist sem maðurinn hafi verið liggjandi þegar ekið var yfir hann.

Feginn að fjölmiðlastormi sé lokið

„Ríkisskattstjóri hefur áhuga á að keyra þetta forrit,“ segir tölvunarfræðingurinn Jón Jósef Bjarnason sem fann upp rel8 forritið sem sýnir krosseignatengsl á Íslandi á séstaklega skýran hátt.

Milljónamæringur eftir bensínstöðvarferð

Einn einstaklingur vann 35,5 milljónir í Lottó í gærkvöldi en happamiðann verslaði hann í Olís við Gullinbrú í Reykjavík. Miðinn var tíu raða sjálfvalsmiði með Jóker.

Braut rúðu og streittist á móti handtöku

Maður fékk að gista fangageymslur lögreglunnar í Vestmannaeyjum eftir að hafa brotið rúðu á skemmtistað. Maðurinn hafði hrint örðum manni með miklum krafti á útidyrahurð og brotnaði rúðan í kjölfarið.

Braut tönn á dansleik

Þrjár líkamsárásir áttu sér stað á Húsavík í nótt. Þar var blásið til mikils dansleiks að sögn lögreglu og mættu fjölmargir. Mikið var um pústra en í einu tilfellinu braut árásamaður tennur þess sem var sleginn. Lögreglan á Húsavík gerir ráð fyrir að það mál verði kært í dag.

Ógnuðu dyraverði með skrúfjárni

Tveir menn voru handteknir í miðborg Reykjavíkur í nótt eftir að hafa ógnað dyraverði með skrúfjárni. Mennirnir voru færðir í fangageymslur lögreglunnar og bíða þess að vera yfirheyrðir. Þá var einn maður sem þurfti að leita sér aðstoðar vegna fótbrots eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás. Árásarmaður er talinn hafa verið einn að verki.

Ökufantar stöðvaðir á Suðurnesjum

Lögreglan á Suðurnesjum greip einn ökumaður sem er grunaðu um ölvun við akstur í Grindavík í nótt. Hann er einnig grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Ríkisskattstjóri heimilar Jóni aðgang að gagnagrunni

Ríkisskattstjóri hefur heimilað aðgang Jóns Jósefs Bjarnasonar að gagnagrunni fyrirtækjaskráar en áður var lokað fyrir hann þar sem afstaða Persónuverndar til málsins lá ekki fyrir. Jón Jósef bjó til gagnagrunninn rel8 sem getur rakið flókin tengsl einstaklinga úr viðskiptalífinu. Það er fyrirtækið IT ráðgjafar- og hugbúnaðarþjónusta sem rekur forritið.

Harður árekstur á Suðurlandsveginum

Harður árekstur varð á Suðurlandsvegi nærri Elliðaá rétt upp úr klukkan fjögur í dag. Tveir fólksbílar skullu saman og endaði annar utanvegar.

Sakar ríkisstjórn um slöttólfshátt

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins í norðausturkjördæmi, Tryggvi Þór Herbertsson, gagnrýnir stjórnvöld harkalega vegna fréttar Fréttablaðsins í morgun um að Vinstri grænir hafi komið í veg fyrir að viljayfirlýsing vegna álvers á Bakka yrði framlengd.

Segist vera með hreina samvisku í sænskum spjallþætti

Fyrrum forsætisráðherrann Geir H. Haarde neitaði í gær að gangast við ábyrgð vegna bankahrunsins á Íslandi í viðtali í sænska skemmtiþættinum Skavlan. Spjallþátturinn Skavlan er sá vinsælasti í norsku og sænsku sjónvarpi en þáttastjórnandinn, Fredrik Skavlan gekk hart að Geir vegna fjármálahrunsins hér á landi. Geir sagðist vera með hreina samvisku.

Tveir stútar á Akureyri

Tveir einstaklingar voru teknir á Akureyri grunaðir um ölvunarakstur. Mennirnir voru stöðvaðir í hefðbundnu eftirliti þegar upp um þá komst.

Maður handtekinn nakinn í Skeifunni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók ungan mann um fjögur í nótt en hann var nakinn í verslun Hagkaups í Skeifunni. Maðurinn var til vandræða og því hringdi öryggisvörður á eftir aðstoð lögreglu. Þegar hún kom á vettvang var maðurinn búinn að færa sig í verslun Office 1 þar rétt hjá.

Stálu bílum og flatskjá af sofandi pari

Bíræfnir innbrotsþjófar fóru inn á heimili ungs pars í Hafnarfirði í fyrrinótt og höfðu meðal annars á brott með sér báða bíla þeirra á meðan fólkið var í fastasvefni.

Vill flugvöllinn til Keflavíkur

Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgöngunefndar Reykjavíkur, telur það lífsspursmál fyrir borgina að flugvöllurinn verði fluttur úr Vatnsmýri. Hann vill tengja flugvöll við borgina með lestarsamgöngum. „Ef við gerum það er ekkert því til fyrirstöðu að hafa flugvöllinn í Keflavík,“ segir Gísli Marteinn.

Seðlabankinn eykur eftirlit með höftum

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að styrkja eftirlit sitt með gjaldeyrishöftunum. „Það er verið að herða eftirlitið vegna þess að það hefur komið upp fjöldi vísbendinga um að það sé verið að fara í kringum höftin,“ segir Ingibjörg Guðbjartsdóttir, forstöðumaður gjaldeyriseftirlitsins.

VG kom í veg fyrir nýja viljayfirlýsingu

Tillaga iðnaðarráðherra um framlengingu viljayfirlýsingar vegna byggingar álvers á Bakka fékkst ekki afgreidd á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Vegna andstöðu ráðherra Vinstri grænna var tillagan ekki samþykkt heldur vísað til meðferðar í sérstakri ráðherranefnd um orkumál. Sú nefnd var sett á laggirnar á þriðjudag til að fjalla um málið og einnig þau verkefni á sviði orkumála sem tengjast Stöðugleikasáttmála ríkisstjórnarinnar og aðila á vinnumarkaði.

Lengri ábyrgð ekki ófrávíkjanleg krafa

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hitti sendiherra Breta og Hollendinga í gær og ræddi áframhald Icesave-málsins. Steingrímur segir hugmyndir þjóðanna vera fyrstu viðbrögð við samþykkt Alþingis. Málið sé í eðlilegum farvegi og aldrei hafi verið til umræðu að kalla þing saman núna, enda verði það sett 1. október. Frekari viðræður muni leiða í ljós hvort málið þurfi fyrir Alþingi á nýjan leik.

Tæplega 2.000 beiðnir teknar fyrir

Fyrirtökum nauðungarsölubeiðna einstaklinga hjá sýslumönnum fjölgaði um tæplega 25 prósent á fyrri hluta árs samanborið við sama tímabil í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu.

Íbúar andvígir vínveitingum

Fjöldi íbúa í nágrenni við verslunarmiðstöðina Grímsbæ í Fossvogi hefur mótmælt því að nýjum pitsustað þar í húsinu verði heimilt að vera með vínveitingar.

Búrið verði jólagjöfin í ár

„Við stefnum ótrauð á að fiskabúrið verði jólagjöfin í ár. Það vantar enn herslumuninn en við vonum að þetta gangi, og ætlum að láta þetta ganga," segir Einar Gunnar Guðmundsson, meðlimur í Mími, vináttufélagi Vesturbæjar. Söfnun fyrir nýju fiskabúri í anddyri Vesturbæjarlaugar, sem félagið hefur staðið fyrir undanfarið, lauk formlega í vikunni. Alls söfnuðust um 700.000 krónur.

AGS taldi álagspróf eftirlitsins strangt

Ýmsir aðilar sem fjölluðu um íslenska bankakerfið, meðal annars Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, töldu álagspróf Fjármálaeftirlitsins (FME) strangt. Þetta segir Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri FME, um það að rannsóknarnefnd Alþingis hafi álagsprófin nú til skoðunar.

Ofbeldi beitt til þess að ná breytingum í gegn

Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins segir að forsætisráðherra sé að búa til gjá milli stjórnarandstöðu og ríkisstjórnarinnar með orðum sínu í fréttum í kvöld. Þar sagði Jóhanna meðal annars að trúnaðarbrestur hefði orðiði þar á milli. Hann segir rangt að 800 milljarðar séu að falla á innistæðutryggingarsjóð þann 24.október eins og haldið hefur verið fram.

Segja smjörklípuaðferð forsætisráðherra hafa mistekist

Þegar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ber Sjálfstæðismönnum það á brýn að hafa rofið trúnað varðandi viðbrögð Breta og Hollendinga í Icesavemálinu, þá er hún trú gamla máltækinu, að betra sé að veifa röngu tré en öngvu. Ekkert getur verið fjær sanni en að Sjálfstæðisflokkurinn hafi rofið trúnað.

10 tonna gámi stolið í Hafnarfirði

Blár gámur sem stóð við Melabraut 17 (suðurbrautarmegin) í Hafnarfirði var stolið þaðan 1.júli síðastliðinn. Samkvæmt upplýsingum frá Rúnari Jóhannessyni sem auglýsir eftir gámnum er um 10 tonna gám að ræða og hefur þurft sérstakan gámabíl til að stela honum.

Sjá næstu 50 fréttir