Innlent

Kaupþing gengur ekki að tilboði Björgólfsfeðga um niðurfellingu

Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar
Kaupþing hefur ákveðið að ganga ekki að tilboði Björgólfsfeðga um niðurfellingu á helming á 6 milljarða króna skuld þeirra við bankann. Málið er komið í innheimtuferli.

Samson, eignarhaldsfélag í eigu Björgólfsfeðga og þá Magnúsar Þorsteinssonar, keypti 45,8 prósenta hlut ríkisins í Landsbankanum í árslok 2002. Kaupverðið var þá 11,2 milljarðar króna.

Krafa Kaupþings á hendur þeim feðgum er tilkomin, m.a. vegna þessara kaupa. Upphaflega hljóðaði lánið upp á 3,4 milljarða króna en stendur í dag í tæpum 6 milljörðum með dráttarvöxtum og öðrum áföllnum kostnaði. Í byrjun júlí bárust fréttir af því að feðgarnir hefðu gert Kaupþingi tilboð um að greiða um fimmtíu prósent af skuldinni, eða þrjá milljarða, en þeir eru í persónulegri ábyrgð fyrir láninu.

Mikil reiði braust út og bárust Finni Sveinbjörnssyni bankastjóra Kaupþings og eiginkonu hans hótanir í kjölfarið. Í samtali við fréttastofu sagði Finnur að ákveðið hefði verið að ganga ekki að tilboði feðganna. Málið væri komið í úrvinnslu og innheimtuferli.

Þann 31. júlí sl. var Björgólfur Guðmundsson úrskurðaður gjaldþrota í héraðsdómi Reykjavíkur en það var stærsta gjaldþrot einstaklings hér á landi. Feðgarnir voru hinsvegar báðir í persónulegri ábyrgð og því verður að teljast líklegt að ábyrgðin falli alfarið á Björgólf Thor. Einu persónulegu eigur Björgólfs Thors hér á landi eru tvær húseignir í Reykjavík. Björgólfur á 50% eignarhlut á móti sambýliskonu sinni í Óðinsgötu 5. Húsið er 315 fermetrar og er fasteignamatið 57 milljónir króna. Hin húseignin er á Fjölnisvegi 3 og er 316 fermetrar. Fasteignamat þeirrar eignar er tæpar 55 milljónir.

Björgólfur á einnig félög hér á landi, s.s. Actavis og símafyrirtækið Nova. Það og fleiri félög eru í eigu Novator ehf sem er svo í eigu BeeTeeBee Limited. Það félag er skráð á bresku Jómfrúareyjunum og er, samkvæmt heimildum fréttastofu, eitt þeirra 400 aflandsfélaga sem ríkisskattstjóri hefur nú til skoðunar.

Þeir lögfræðingar sem fréttastofa hefur rætt við í dag segja að hægt yrði að ganga að þeim eignum sé Björgólfur Thor ekki borgunmaður fyrir skuldinni við Kaupþing. Slíkt sé þó oft miklum erfiðleikum háð. Þær upplýsingar fengust frá Novator að viðræður við Kaupþing um lausn á þessu máli hafi verið í gangi og menn hafi ekki fengið upplýsingar um að þeim væri lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×