Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tildrög banaslyssins enn í rannsókn Sú sem lést í banaslysinu í Langadal í Húnavatnssýslu síðastliðið föstudagskvöld hét Margrét Jósefsdóttir til heimilis að Vesturgili 12, Akureyri. Hún var 50 ára og lætur eftir sig eiginmann og uppkomin börn. Tildrög slyssins eru enn í rannsókn. 16.8.2009 18:19
Ástþór: Egill Helgason vanhæfur til að starfa á RÚV Þáttastjórnandinn og stjórnmálaskýrandinn Egill Helgason er vanhæfur til að starfa á Ríkissjónvarpinu, að mati Ástþórs Magnússonar. Egill var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þar sagðist Egill hafa greitt Borgarahreyfingunni atkvæði sitt í kosningunum í vor. 16.8.2009 17:24
Verðlaunahundurinn Larry fundinn Bandaríski púðlu- og verðlaunahundurinn Larry sem týndist síðastliðið fimmtudagskvöld við Rockville á Suðurnesjum er fundinn. 16.8.2009 17:47
Þung umferð til Reykjavíkur Umferð hefur gengið vel það sem af er degi en þyngist eftir því sem líður á, sérstaklega til Reykjavíkur. Lögreglan í Borgarnesi segir að allt hafi gengið sinn vanagang og engin umferðaróhöpp hafi komið upp á. Veður sé gott og ökumenn ekki að drífa sig. 16.8.2009 17:03
Karl fundinn 16 ára gamall drengur, Karl Sigtryggsson, sem lögreglan á Selfossi lýsti eftir í dag er fundinn. Karl skilaði sér heilu og höldnu en hann fór að heim á miðvikudag og ekki hafði spurst til hans frá því á föstudag. 16.8.2009 16:36
Kyrrsetning eigna rædd í þingnefnd Rýmri heimildir til eignakyrrsetningar verða til umræðu í efnahags- og skattanefnd Alþingis á morgun. Ríkisstjórn samþykkti nýverið frumvarp Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, um auknar heimildir skattrannsóknarstjóra til kyrrsetningar eigna. 16.8.2009 15:57
Sóttvarnalæknir mælir ekki með lokunum vegna svínaflensunnar Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, mælir ekki með lokunum vegna svínaflensunnar. Þegar fréttastofa náði tali af Haraldi hafði hann ekki heyrt af leikskólanum Aðalþingi í Kópavogi og fjallað var um á Vísi fyrr í dag. Sex af 19 starfsmönnum leikskólans hafa verið frá vinnu síðustu daga en grunur leikur á að fjórir þeirra séu með svínaflensu. 16.8.2009 14:29
Lögreglan lýsir eftir Karli Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Karli Sigtryggssyni fæddum árið 1993. Hann fór að heiman á miðvikudag í síðustu viku, en ekki hefur spurst til hans frá því á föstudag. Hann var þá á Selfossi. 16.8.2009 13:28
Ók inn í verslun á Ísafirði Ökumaður ók fyrir mistök jeppabifreið sinni inn í verslunina Hamraborg á Ísafirði á föstudag. Við glugga verslunarinnar sátu ferðamenn að snæðingi. Frá þessu er greint á fréttavefnum BB.is. 16.8.2009 13:19
Leikskóla hugsanlega lokað vegna svínaflensu Sex af 19 starfsmönnum leikskólans Aðalþings í Kópavogi hafa verið frá vinnu síðustu daga. Grunur leikur á að fjórir þeirra séu með svínaflensu. 16.8.2009 12:05
Sextán milljónum ríkari Það var heppinn áskrifandi sem var einn með allar tölurnar réttar í Lottóinu í gærkvöldi og fær vinningshafinn tæplega 16 milljónir króna í sinn hlut. 16.8.2009 11:07
Útilokar ekki að semja þurfi á nýjan leik Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, útilokar ekki að Íslendingar þurfi að semja á nýjan leik við Breta og Hollendinga um Icesave reikninga Landsbankans. Hún telur að viðbrögð þeirra við þeim breytingartillögum sem fjárlaganefnd samþykkti í fyrrinótt geta orðið með þeim hætti að semja þurfi upp á nýtt. Lilja er ánægð með niðurstöðu fjárlaganefndar, en hún hefur verið í hópi þeirra þingmanna VG sem hvað harðast hafa gagnrýnt hafa Icesave samninganna. 16.8.2009 10:43
Meirihlutaálitið fínpússað Önnur umræða um Icesave frumvarpið fer að öllum líkindum fram á Alþingi á þriðjudag eða miðvikudag. Fjárlaganefnd afgreiddi frumvarpið fyrir sitt leyti í fyrrinótt en um helgina er unnið að fínpússun á meirihlutaálitinu. 16.8.2009 10:01
GSM á Íslandi 15 ára í dag Í dag eru 15 ár frá því að Póstur og Sími tók GSM kerfið í notkun hér á landi í fyrsta sinn og um leið hófst bylting í fjarskiptamálum Íslendinga. Virkum GSM númerum hefur heldur betur fjölgað síðastliðin 15 ár. Fyrsta árið voru þau rúmlega 2100 en í dag eru á fjórða hundrað þúsund virk númer á Íslandi. 16.8.2009 09:51
Fjórar líkamsárásir í miðbænum Fjögur líkamsárásarmál í miðbæ Reykjavíkur komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Að sögn varðstjóra voru árásirnar allar minniháttar en tveir gistu fangageymslur í tengslum við þær. Þá stöðvaði lögreglan sex ökumenn sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum áfengis og voru tveir þeirra vistaðir í fangaklefum í nótt. 16.8.2009 09:25
Tekinn fyrir ofsaakstur í Hveradalabrekku Karlmaður á þrítugsaldri var staðinn að ofsaakstri í Hveradalabrekku í grennd við Skíðaskálann eftir miðnætti í nótt. Maðurinn mældist á 183 kílómetra hraða og var hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða eftir að hafa verið færður á lögreglustöðina á Selfossi. 16.8.2009 08:51
Brasilíski glæpamaðurinn sækir um hæli á Íslandi Brasilíumaður sem handtekinn var á Leifsstöð fyrir helgi og er eftirlýstur fyrir margvíslega glæpi í heimlandi sínu, ætlar að fara fram á pólitískt hæli á Íslandi. Hann segist óttast um líf sitt í Brasilíu og biðlar til íslenskra stjórnvalda að sýna máli sýnu skilning. 15.8.2009 18:37
Ósammála um hvort fyrirvararnir kalli á nýja samninga Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að afgreiðsla fjárlaganefndar á Icesave frumvarpinu kalli á nýjar viðræður við Breta og Hollendinga. Forsætis- og fjármálaráðherra eru þessu ekki sammála en segja þó að auðvitað verði að útskýra fyrirvarana fyrir viðsemjendum Íslendinga. 15.8.2009 19:17
Icesave á dagskrá Alþingis í næstu viku Um leið og nefndarálit verða tilbúin hefst umræða um þær breytingartillögur sem fram eru komnar við frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagins. Þetta segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. 15.8.2009 17:26
Vegurinn um Langadal opnaður Búið er að opna veginn um Langadal, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Veginum var lokað í morgun. Farþegi í flutningabifreið lést þegar bifreiðin fór út af veginum í gærkvöldi. 15.8.2009 15:58
Fyrirvararnir kalla ekki á viðræður um nýtt samkomulag Þær breytingartillögur sem meirihluti fjárlaganefndar Alþingis samþykkti í nótt varðandi Icesave samkomulagið kalla ekki á viðræður um nýtt samkomulag við Breta og Hollendinga, að mati Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. 15.8.2009 15:15
Risavaxið gagnaver hefði mikil jákvæð áhrif Risavaxið gagnaver á Blönduósi myndi hafa heilmikil jákvæð áhrif fyrir bæjarfélagið, landshlutann sem og í endurreisn Íslands, að mati Arnars Þórs Sævarssonar, bæjarstjóra á Blönduósi. Hann segir sig og aðra forystumenn í bæjarfélaginu stíga varlega til jarðar í málinu. „Við lítum ekki svo á að þetta sé í hendi.“ 15.8.2009 14:13
Ætlar ekki að segja af sér þingmennsku Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, ætlar ekki að segja af sér þingmennsku vegna umhyggju við Þráin Bertelsson eða stjórnarmenn hreyfingarinnar. 15.8.2009 12:53
Höskuldur: Ekki komið til móts við framsóknarmenn Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd, segir að það hafi alltaf verið vilji hjá flokknum að reyna að ná fram þverpólitískri sátt í Icesave málinu. Hins vegar hafi ekki verið komið til móts við flokkinn og því hafi farið sem fór. Allir flokkar nema Framsóknarflokkurinn styðja breytingatillögur meirihluta fjárlaganefndar vegna Icesave. 15.8.2009 12:09
Þór Saari sáttur með niðurstöðuna „Við lögðum fram margvíslegar breytingartillögur og fengum þær allar inn. Þess vegna erum við með. Annað hefði verið óheiðarlegt,“ segir Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, um breytingartillögur fjárlaganefndar við frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins. Álitið var afgreitt út úr nefndinni í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks. 15.8.2009 11:28
Formaður Þjóðveldisflokksins vill ekki að Ísland gangi í ESB Högni Hoydal, formaður Þjóðveldisflokksins í Færeyjum, vill ekki að Ísland gangi í ESB. „Það er von okkar að Ísland fari ekki inn, að sjálfsögðu. Við vonum það ennþá þó það sé erfitt að sjá það miðað við núverandi stöðu,“ segir formaðurinn í viðtali við Fréttablaðið í dag. 15.8.2009 11:00
Allt að 3000 manns á Gaddastaðaflötum Allt að 3000 manns eru á sumarhátíðinni á Gaddastaðaflötum við Hellu. Nóttin gekk vel og engin meiriháttar mál komu upp, að sögn lögreglu. 15.8.2009 10:52
Vegurinn um Langadal lokaður vegna banaslyssins Vegurinn um Langadal verður lokaður fram að hádegi, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Farþegi í flutningabifreið lést þegar bifreiðin fór út af veginum í gærkvöldi. Ökumaður bifreiðarinnar var fluttur með sjúkrabíl til Akureyrar. Ekki er vitað um tildrög slyssins. 15.8.2009 10:21
Happadrýgst fyrir Alþingi að samþykkja Icesave „Mín niðurstaða felur hvorki í sér þá skoðun að samið hafi verið af sér eða að afrek hafi verið unnið í Icesave-samningum,“ segir Gauti B. Eggertsson, hagfræðingur við Seðlabankann í New York, í grein í Fréttablaðinu í dag. Happadrýgst sé fyrir Alþingi að samþykkja frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave. 15.8.2009 09:41
Samkomulag í höfn Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins var afgreitt út úr fjárlaganefnd Alþingis klukkan tvö í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks, líkt og greint var frá hér á Vísi í morgun. 15.8.2009 09:17
Fjórir stútar teknir Lögregla stöðvaði för fjögurra ökumanna í nótt sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna. Tvo í Reykjavík og tvo á Ísafirði. Að öðru leyti virðist nóttin víðast hvar hafa verið róleg. Lögreglan í Vestmanneyjum, á Húsavík og á Akureyri hafði sérstaklega orð á því að nóttin hefði verið óvenju róleg. 15.8.2009 09:06
Svíður að stjórnvöld styðji ekki lögreglu „Kostirnir í stöðunni eru fáir, og enginn góður. Við teljum að við höfum valið þann besta, því að öðrum kosti hefðum við þurft að mæta niðurskurðarkröfu með beinum uppsögnum,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins. 15.8.2009 09:00
Forræðisdeila: Heldur til Bandaríkjanna í dag Borghildur Guðmundsdóttir, sem hefur verið gert að fara til Bandaríkjanna með syni sína tvo, heldur af stað með þá til Bandaríkjanna í dag. Hún mun eiga fund strax á mánudaginn með lögfræðingi sem hún hefur fengið þar í landi. 15.8.2009 07:30
Ríkisútgjöld aukast á sama tíma og tekjurnar minnka Ríkisútgjöld jukust um 31 prósent á tímabilinu janúar til júní á þessu ári miðað við árið í fyrra. Nema gjöldin 259 milljörðum og hækka um 61 milljarð. Tekjur ríkissjóðs drógust á sama tíma saman um tæp tíu prósent. Áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir að innheimtar tekjur yrðu 219 milljarðar króna en þær voru 205 milljarðar þegar uppi var staðið. Þetta kemur fram í tilkynningu fjármálaráðuneytisins í fyrradag. 15.8.2009 07:00
Merkingar eðlilegar á litlum markaði Það er óraunhæft að leggja af forverðmerkingar á kjötvöru, segir Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands (SS). „Það er gríðarleg samkeppni á milli verslana eins og sjá má í auglýsingum alla daga." 15.8.2009 07:00
Samkomulag um Icesave Samkomulag náðist í fjárlaganefnd Alþingis um fyrirvara vegna Icesave samninganna á þriðja tímanum í nótt. Allir flokkar nema Framsóknarflokkurinn standa að samkomulaginu, eftir því sem fréttastofa RÚV fullyrðir. 15.8.2009 06:14
Spár um atvinnuleysi ganga eftir „Það jákvæða sem er að frétta af vinnumarkaði er að atvinnuleysi á meðal námsmanna varð minna en við óttuðumst,“ segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysi í júlí var átta prósent sem jafngildir því að 13.756 manns hafi að jafnaði verið án atvinnu. 15.8.2009 06:00
Drekasvæði í Öskjuhlíð Olíumengun í jarðvegi mun tefja setningu nýs grunnskóla Hjallastefnunnar í Öskjuhlíð, segir Margrét Pála Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar. 15.8.2009 05:45
Jökla kemur veiðimönnum á óvart enn á ný Það kom leigutökum við Jöklu skemmtilega á óvart þegar lax veiddist langt upp í Jökuldal úr hliðará Jöklu. Hingað til hefur ríkt óvissa um hvort Jökla væri laxgeng upp dalinn vegna þess að um marga erfiða fossa og flúðir er að fara fyrir fiskinn á leið sinni upp ána. 15.8.2009 05:00
Lögreglan fékk 300 þúsund Lögreglumál Bankastjórn Seðlabanka Íslands styrkti í janúar starfsmannafélag lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um 300 þúsund krónur. Með þessu vildu bankastjórar þakka lögreglumönnum sem tókust á við mótmælendur í anddyri bankans í mótmælum fyrr í vetur. 15.8.2009 04:00
Skora á Margréti Tryggvadóttur að kalla inn varamann á þingi Stjórn Borgarahreyfingarinnar beinir þeim tilmælum til Margrétar Tryggvadóttur að hún kalli til varamann sinn á þingi og íhugi stöðu sína sem þingmaður Borgarahreyfingarinnar. 14.8.2009 23:52
Lést þegar flutningabifreið fór út af þjóðveginum Farþegi í flutningabifreið lést þegar bifreiðin fór út af þjóðveginum í Langadal á áttunda tímanum í kvöld. Ökumaður bifreiðarinnar var fluttur með sjúkrabifreið til Akureyrar. Ekki er vitað um meiðsli hans að svo stöddu en þau eru ekki talin alvarleg. 14.8.2009 23:39
Sigmundur Davíð: Skjalið sem lak ekki það sama og ég sá Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir skjalið um fyrirvara við Icesave samninginn sem lekið var á heimasíðu Egils Helgasonar á Eyjunni í gærkvöldi og síðan birtist í Morgunblaðinu ekki vera skjalið sem hann sá í gærkvöldi. 14.8.2009 20:45
Blaðamenn mótmæla afskiptum stjórnvalda Um 200 írakskir blaðamenn, rithöfundar og útgefendur mótmæltu í dag vaxandi ríkisafskiptum af starfi þeirra. Sumir blaðamannanna segja að lögsóknum á hendur þeim sem rannsaka öryggismál og spillingu hafi fjölgað, að því er fréttastofa breska ríkisútvarpsins greinir frá. 14.8.2009 23:04
Agnes: Áfellisdómur yfir íslensku kerfi „Ég hefði haldið að rannsóknaraðilar að bankahruni hefðu öðrum og þýðingarmeiri hlutum að sinna heldur en að reyna að koma í veg fyrir það að upplýsingum sem varða allan almenning kæmust á framfæri almennings," segir Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu. 14.8.2009 21:41