Björgunarsveitir kallaðar út vegna sjósundkappa Valur Grettisson skrifar 17. ágúst 2009 10:42 Drangeyjarsund.
Allar björgunarsveitir í Skagafirði voru kallaðar út á laugardaginn eftir að tilkynning barst til lögreglunnar um að sjósundkappi hefði horfið í miðju Drangeyjarsundi. Þetta kom fram á Feykir.is. Sjósundkappinn reyndist vera enginn annar en Benedikt Lafleur sem meðal annars spreytti sig á sjósundi í Ermasundinu með mistækum árangri þó. Það var fylgdarlið Benedikts sem tilkynnti hvarf hans til lögreglunnar á Sauðárkróki. Lögreglan hafði samband við Landsbjörgu sem ræsti út allar björgunarsveitir í Skagafirðinum sem undirbjuggu umfangsmikla leit að sjósundkappanum. Leitin var síðan afturkölluð fimmtán mínútum síðar en þá fannst Benedikt aftur. Í viðtali við Feykir.is þá segist Benedikt aldrei hafa upplifað sig eins og hann hefði verið í hættu. Með Benedikti var Sarah-Jane Emily Caird, synti með honum Drangeyjarsundið. Aðspurður hvað gerðist þennan dag útskýrði Benedikt: „Það sem gerðist var það að Sarah var á undan mér og þeir voru að fylgja henni eftir. Þegar þeir síðan líta aftur eftir mér hafði ég misst sundhetturnar og var því ekki sýnilegur í sjónum. Ég var þarna að synda í miklum straumum og þegar ég lendi í því þá syndi ég mikið í kafi og því er erfiðara að sjá mig í sjónum. Þeir hafa því orðið eitthvað hræddir og kallað út björgunarlið. Ég var hins vegar aldrei í neinni hættu." Benedikt er gríðarlega reynslumikill sjósundkappi enda reyndi hann að synda Ermasundið þrisvar sinnum. Honum tókst það aldrei. Þá hefur Benedikt einnig reynt að synda Drangeyjarsund áður en hætt við. Lesa má greinina á Feykir með því að smella hér.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Innlent Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Fleiri fréttir Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Sjá meira