Fleiri fréttir

Hjólhýsi langt utan bæjarins

Mikill mannfjöldi er kominn á Dalvík vegna fiskidagsins mikla sem er á Dalvík um helgina. Um 2.000 manns eru þegar komnir, að sögn lögreglunnar á Dalvík, og er búist við nokkrum þúsundum til viðbótar um helgina. Öll tjaldsvæði eru löngu full og eru hjól- og fellihýsi komin út fyrir bæjarmörkin, samkvæmt lögreglunni.

Þingkonur mæta ekki á átakafund Borgarahreyfingarinnar

Þingkona Borgarahreyfingarinnar, Margrét Tryggvadóttir, mætti ekki á átakafund Borgarahreyfingarinnar sem stendur nú yfir. Hún er því annar þingmaður flokksins sem ekki mætir. Áður hafði Birgitta Jónsdóttir boðað forföll þar sem hún fékk ekki pössun.

Fékk ekki barnapössun og kemst ekki á átakafund

„Kæru félagar, Vegna þess hve fyrirfarinn var stuttur sé ég mér ekki fært á að mæta í kvöld en ég hef ekki aðgang að pössun í kvöld og vil helst ekki taka son minn með á átakafund.“

Steingrímur J.:Þetta er harður heimur

„Þetta er harður heimur,“ sagði fjármálaráðherrann, Steingrímur J. Sigfússon, í viðtali við Kastljós í kvöld spurður út í raunverulegar seinkanir á fyrirtöku málefnis Ísland hjá Aljóðgjaldeyrissjóðnum. Aðspurður hvort ástæðan væri Icesave svaraði Steingrímur einfaldlega: „Já.“

Hústökumenn komnir með nýtt heimili

Stjórnleysingjar eru búnir að taka yfir nýtt hús en áður voru þeir á Vatnsstíg 4 sem hefur verið kveikt tvisvar í undanfarna daga. Nú er hústökufólk búið að hertaka gult einbýlishús ofarlega á Skólavörðustígnum, við hliðina á Krambúðinni.

Björgunarsveit sótti slasaðan hestamann

Á sjötta tímanum í dag var Björgunarsveitin Dalvík kölluð út vegna hestamanns sem féll af baki og slasaðist þegar hann var í hópferð hestamanna í botni Svarfaðardals samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörg.

Harður árekstur í Ártúnsbrekku

Harður þriggja bíla árekstur varð í Ártúnsbrekku rétt fyrir klukkan fimm. Tveir menn voru fluttir með minniháttar meiðsl á slysadeild. Lögreglan segir að gera megi ráð fyrir einhverjum umferðartöfum þarna næstu mínúturnar.

Loftfimleikar yfir Vatnsleysuströnd

Fjölskyldudagur verður haldinn í Vogum á Vatnsleysuströnd á laugardaginn. Óhætt er að segja að dagskráin sé fjölbreytt en hún hefst með dorgveiðikeppni á smábátabryggjunni klukkan 9:30.

Aftur eldur í Vatnsstíg 4

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Vatnsstíg 4 í dag vegna elds í anddyri hússins. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. All nokkrar skemmdir hlutust af þegar kveikt var í þessu sama húsi á föstudagskvöld. Húsið hefur staðið mannlaust um skeið en lögreglan var nokkrum sinnum kvödd þangað í vor þegar hústökumenn reyndu að taka sér bólfestu í því.

Íslendingar styðja heyrnarlausa Namibíumenn

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra á Íslandi ætlar að styðja við bakið á stjórnvöldum í Namibíu við stofnun og starfrækslu sambærilegrar stofnunar þar í landi. Undanfarin ár hefur Samskiptamiðstöðin unnið á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands við að bæta kennslu heyrnarlausra í Namibíu með áherslu á táknmál og þjálfun táknmálstúlka, segir í tilkynningu til fjölmiðla.

Kúrðu á kamrinum vegna óveðurs

Veður að Fjallabaki var með versta móti í nótt og hafði björgunarsveitin Suðurnes í nógu að snúast við að aðstoða fólk á hálendinu.

Fimm ára með svínaflensu

Fimm ára gamalt barn hefur greinst með H1N1 inflúensuna, eftir því sem fram kemur í upplýsingum frá Sóttvarnarlækni. Samkvæmt sömu upplýsingum voru ný inflúensutilfelli A(H1N1) staðfest hjá níu manns síðustu tvo sólarhringa og heildarfjöldi staðfestra tilfella er því samtals 63. Fólkið sem er nýgreint er á aldrinum 5 - 27 ára með búsetu

Rabe ekki höfuðpaur í Papeyjarmálinu

Það tókst ekki að sýna fram á að Peter Rabe hefði skipulagt innflutning á fíkniefnum í svokölluðu Papeyjarmáli, segir lögmaður hans. Rabe hlaut 10 ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann var handtekinn ásamt fimm Íslendingum í apríl síðastliðnum fyrir smygl á 109 kílóum af fíkniefnum.

Ríkislögreglustjóri vill sex lögreglustjóra á landinu

Ég get tekið undir þá skoðun að nýframkomin hugmynd þriggja manna starfshóps dómsmálaráðherra um einn lögreglustjóra yfir landinu öllu er afar róttæk, segir Haraldur Jóhannessen ríkislögreglustjóri við fyrirspurn Vísis. Dómsmálaráðherra kynnti hugmynd starfshópsins fyrir lögreglustjórum í síðustu viku.

Vegagerðarmenn áttu fótum sínum fjör að launa

Fjórir vegagerðarmenn, sem voru að laga vegaskemmdir á Óshlíðarvegi á tíunda tímanum í morgun, eftir mikið grjóthrun þar í nótt, áttu fótum sínum fjör að launa þegar grjót tók að hrynja á ný.

Hús Hreiðars Más málað rautt í nótt

Rauðri málningu var í nótt skvett á heimili Hreiðars Más Sigurðssonar fyrrverandi forstjóra hjá Kaupþingi. Þegar myndatökumann Stöðvar 2 bar að garði voru iðnaðarmenn í óða önn að þvo málninguna af húsinu. Hús Hreiðars er eitt af mörgum sem fengið hefur svipaða meðferð á síðustu vikum og síðast í gær gerðu umhverfissinnar svipaða árás á hús Rannveigar Rist forstjóra álversins í Straumsvík.

Ferðamenn staðnir að utanvegaakstri

Björgunarsveitarmenn, sem staðsettir eru á hálendinu í sumar, stóðu í gærkvöldi erlenda ferðamenn að utanvegaakstri, þar sem hann er stranglega bannaður. Þegar var haft samband við lögregluna á Húsavík og ferðaskrifstofuna, sem útlendingarnir tengjast, og hefur lögreglan nú málið til rannsóknar.

Sluppu vel úr bílveltu

Fimm manns sluppu ótrúlega lítið meiddir, að sögn lögreglu, eftir að jeppi, sem fólkið var í, valt í Öxnadalnum skammt frá Akureyri um kvöldmatarleitið í gærkvöldi. Jeppinn, sem dró stórt hjólhýsi, var að fara fram úr örðum bíl, sem dró stóra kerru.

Kílóverð á fiski aldrei verið hærra

Meðalverð á íslenskum fiskmörkuðum í síðasa mánuði var hátt í 219 krónur fyrir kílóið, sem er það hæsta sem það hefur orðið í sögu fiskmarkaðanna hér á landi til þessa, samkvæmt upplýsingum Reiknistofu fiskmarkaðanna.

Hestakerra olli töfum á umferð

Töluverðar tafir urðu á þjóðvegi eitt sunnan við Blönduós í gærkvöldi, þegar hestakerra valt aftan úr bíl, sem dró hana. Við það snérist bíllinn þversum á veginum og truflaði umferð í báðar áttir þartil lögregla og björgunarmenn höfðu athafnað sig á vettvangi. Engin hestur var í kerrunni og er verið að kanna hvað olli því að hún valt.

Enn brotist inn í borginni

Brotist var inn í fyrirtæki við Skipholt í Reykjavík í nótt, auk þess inn í tvo bíla og inn í hótelherbergi í miðborginni. Dvalargesturinn var ekki í herberginu.

Í ham á Háteigsvegi

Ofurölvi maður var handtekinn á Háteigsveginum í Reykjavík undir morgun eftir að hann hafði gengið berserksgang og brotið framrúður í fjórum mannlausum bílum við götuna. Þjófavarnakerfi bílanna fóru í gang og vöktu vöktu íbúa við götuna með látum, sem sáu hvers kyns var og kölluðu á lögreglu.

Tíu þúsund gætu flúið land

Allt að tíu þúsund manns gætu flutt úr landi á næstu árum umfram þá sem flytjast til landsins vegna kreppunnar að mati Stefáns Ólafssonar, prófessors í félagsfræði við Háskóla Íslands. Þetta byggir hann á samanburði við fólksflutninga vegna efnahagsþrenginga á 10. áratugnum og spám um atvinnuleysi. Aukin skuldabyrði gæti orðið til þess að enn fleiri flyttu úr landi.

Blóðtaka en ekki reiðarslag

„Þetta eru góðar ábendingar og stjórnvöld verða að hafa þær í huga,“ segir Guðmundur Jónsson, prófessor í hagsögu við Háskóla Íslands, um skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um Icesave-skuldbindingarnar. Þar kemur fram að skuldabyrði landsmanna myndi þyngjast ef fólk flýr land í stórum stíl.

Össur verðmætasta félagið í Kauphöllinni

Össur hf. er verðmætast þeirra fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöllinni. Markaðsvirði hlutabréfa Össurar nam rúmum 48 milljörðum króna um mánaðamótin. Næst í stærð er Marel en markaðsvirði þess nemur rúmum 31 milljarði króna. Markaðsvirði Færeyjabanka er rúmir 29 milljarðar. Samanlagt markaðsvirði skráðra félaga í Kauphöllinni var 192 milljarðar um mánaðamót.

Skiptist ekki á orðum við samflokksmenn

„Á sunnudeginum eftir kosninguna héldum við fund þar sem ýmislegt kom fram. Þremenningarnir vöruðu meðal annars við því að Hollendingar hótuðu að standa í vegi fyrir aðildarumsókn ef ekki yrði skrifað undir Icesave, og þeim finnst tilgangurinn helga meðalið í kosningu sinni. Margir innan hreyfingarinnar eru ósammála þeim í því,“ segir Herbert Sveinbjörnsson, formaður Borgarahreyfingarinnar.

Steingrímur J. flytur Hólaræðu

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra flytur hátíðarræðu á Hólahátíð í ár. Hátíðin fer fram helgina 14.-16. ágúst.

Enginn tímarammi um afnám haftanna

Svein Harald Øygard seðlabankastjóri segist vonast til þess að búið verði að aflétta gjaldeyrishöftum af landinu að fullu eftir tvö til þrjú ár. Hann segist sjálfur ætla að gera hvað hann getur til að aðstæður skapist til þess. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Seðlabankanum í gær þar sem áætlun um afnám haftanna var kynnt.

Fækkar í röðum skrifstofufólks

Innan við fimm prósent félagsmanna í VR skilgreina sig sem skrifstofufólk samkvæmt nýrri launakönnun félagsins. Fyrir fimm árum töldust rúm tíu prósent félagsmanna til skrifstofufólks.

Meiri bílaumferð í júlí en í fyrra

Umferð var meiri í júlímánuði en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt tölum frá Vegagerðinni. Heildaraukning í akstri milli ára er rúm sjö prósent. Vegagerðin mælir umferð á sextán stöðum víðs vegar um landið. Mælt er á þremur stöðum á Suðurlandi, Vesturlandi og Austurlandi, fimm stöðum á Norðurlandi og tveimur á höfuðborgarsvæðinu.

Enn rík óánægja með Icesave

Ekkert samkomulag er í höfn á meðal stjórnarflokkanna um afgreiðslu frumvarps um ríkis­ábyrgð vegna Icesave-samninganna. Heimildir Fréttablaðsins herma að frétt Ríkisútvarpsins í gær um hið gagnstæða hafi farið illa í andstæðinga samningsins í röðum stjórnarliða.

Landsmenn sækja í Lónið

Þeim Íslendingum fjölgar sem sækja heim Bláa lónið. Heimsóknum Íslendinga í Lónið fjölgaði um 26 prósent í júlí sé miðað við sama mánuði í fyrra. Alls fóru 73.800 manns í Bláa lónið í júlí.

Þórður sinnir sérverkefnum

Embætti fiskistofustjóra hefur verið auglýst laust til umsóknar frá 1. september. Skipunartími er fimm ár.

Klædd lerki, kopar og torfi

Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs við Skriðuklaustur í Fljótsdal verður klædd lerki, kopar og torfi.

Fleiri útlendingar á hótelunum

Gistinóttum á hótelum í júní fækkaði um fimm prósent á milli ára. Voru þær 147.900 í júní í ár en 155.800 í sama mánuði í fyrra. Fækkun varð víðast hvar á landinu en fjölgun á Suðurlandi.

Tvö til þrjú ár í fullt haftaleysi

Íslendingar geta verið lausir við gjaldeyrishöft eftir tvö til þrjú ár, að mati Sveins Haralds Øygard seðlabankastjóra. Lausleg áætlun um afnám haftanna var kynnt í gær.

Tryggingastofnun rukkar látinn föður útvarpsmanns

„Mér finnst þetta óþægilegt og skammarlegt," segir útvarpsmaðurinn Þorgeir Ástvaldsson en honum barst bréf frá Tryggingastofnun þar sem faðir hans er krafinn um endurgreiðslu á upp á tæpar 60 þúsund krónur. Faðir hans var 85 ára þegar hann lést í mars á síðasta ári. Því er Þorgeir undrandi enda hefur faðir hans verið látinn í eitt og hálft ár.

Útlán Kaupþings „ógeðfelld“ og „ferleg“

Ógeðfellt og ferlegt eru orð sem stjórnandi lífeyrissjóðs notar til að lýsa útlánum Kaupþings til stærstu eigenda sinna. Formaður Landssamtaka lífeyrissjóða segir það varla geta talist eðlilegt hvað eigendur fengu mikið að láni í bankanum.

Icesave fer ekki óbreytt í gegnum þingið

Það er engin sátt um það á alþingi að frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave skuldbindinga við Hollendinga og Breta fari óbreytt í gegnum þingið. Sumir stjórnarliðar eru ekki sáttir við núverandi texta og leita samkomulags við stjórnarandstæðinga um fyrirvara, sem meirihluti Alþingis geti sætt sig við.

Slasaður maður í Esjunni

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út klukkan 16:30 vegna manns sem hrasaði á Svínaskarðsvegi í Esju og meiddist á fæti.

Lánabók Kaupþings til rannsóknar hjá skattstjóra

Ríkisskattsstjóri segir ólíklegt að skattayfirvöld hér á landi hefðu fengið sambærilegar upplýsingar við rannsókn mála eins og komu fram í lánayfirliti Kaupþings sem lekið var á netið. Ítarleg rannsókn standi yfir og ný framkomin gögn verði tekin til rannsóknar.

Sjá næstu 50 fréttir