Fleiri fréttir

Þiggur ekki biðlaun ráðherra

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir sem í dag var kjörin forseti Alþingis mun ekki taka þriggja mánaða biðlaun ráðherra líkt og hún átti rétt á. Hún segir biðlaun fyrst og fremst ætluð þeim sem hætta í starfi og fá ekki sambærilegt starf. Hún sé nú orðin forseti Alþingis og muni því ekki þiggja biðlaunin. Ásta er mjög ánægð með nýja starfið sem hún segist ætla að sinna af sóma.

16 ára ökumaður endaði ofan í skurði með lögregluna á hælunum

Um klukkan tvö í dag barst lögreglu tilkynning um ofsaakstur fólksbifreiðar við Rauðavatn á leið austur. Nokkrar tilkynningar bárust síðar um bifreiðina þar sem henni væri ekið hratt og ógætilega framúr ökutækjum. Lögreglumenn sem voru við umferðareftirlit á Suðurlandsvegi í Ölfusi mættu bifreiðinni rétt austan við Hveragerði.

Drekaútboðið stórkostlegur áfangi

Tvær umsóknir bárust um sérleyfi til leitar og vinnslu á olíu og gasi á Drekasvæðinu áður en frestur rann út klukkan fjögur í dag. Orkumálastjóri segir þetta stórkostlegan áfanga að fá tvo trausta aðila, sem meti líkurnar á olíu það miklar á svæðinu að þeir séu tilbúnir að leggja háar fjárhæðir í verkefnið.

Miðbærinn fegraður í sjálfboðavinnu

Búið er að stofna samtök sjálfboðaliða sem vilja leggja sitt af mörkum til að fegra miðborgina. Andri Ólafsson hitti tvo sjálfboðaliða sem voru að klára prófin en buðu sig fram til að mála í góða veðrinu í dag.

Búist við að 14% landsmanna fari á vanskilaskrá

Fólk í vanskilum fer inn á vanskilaskrá sem getur þýtt snara breytingu á lífsstíl fólks. Búist er við að allt að 14% landsmanna verði komnir á vanskilaskrá þegar botninum verður náð.

Uppsögnin kostar fimmtán milljónir hið minnsta

Uppsögn Þorgeirs Eyjólfssonar á starfi forstjóra Lífeyrissjóðs verslunarmanna kostar sjóðinn fimmtán milljónir hið minnsta. Það tekur mánaðarlífeyrisgreiðslu 800 láglaunamanna að greiða fyrir starfslok hans.

Saksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins til Íslands

Saksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins, Luis Moreno-Ocampo, kom í heimsókn til Íslands í dag, föstudaginn 15. maí. Ocampo kemur hingað til lands í boði lagadeildar Háskólans í Reykjavík, en hann er heiðursgestur á alþjóðlegu málþingi lagadeildar, Domac og Landsnefndar um mannúðarrétt sem haldið verður í Háskólanum í Reykjavík á morgun, laugardaginn 16. maí.

Þingmenn úr Borgarahreyfingunni og VG mættu á Siðmenntarfund

Fjórir þingmenn mættu á hugvekju sem Jóhann Björnsson heimspekingur hélt á vegum Siðmenntar fyrir þingmenn sem kusu að vera ekki viðstaddir guðsþjónustu áður en guðsþjónusta hófst. Það voru Margrét Tryggvadóttir, Birgitta Jónsdóttir og Þór Saari, þingmenn Borgarahreyfingarinnar og Lilja Mósesdóttir þingmaður VG.

Aukaskattur lagður á starfsmenn Orkuveitunnar

Rafiðnaðarsambandið mótmælir fyrirætlunum stjórnar Orkuveitunnar um að greiða eigendum fyrirtækisins 800 milljónir í arð. Eigendurnir séu með þessu að leggja aukaskatt á starfsmenn Orkuveitunnar.

Dómsmálaráðuneytið rýmt

Mótmælendur streittust á móti þegar dómsmálaráðuneytið var rýmt klukkan fjögur í dag. Mótmælendur höfðu safnast saman í anddyri ráðuneytisins til þess að vekja athygli á málstað hælisleitandans Mansris Hichem, sem verið hefur í hungurverkfalli í rúmlega tuttugu daga.

Tveir handteknir á Akranesi vegna fíkniefnamáls

Lögreglan á Akranesi handtók síðdegis í gær tvo karlmenn á fertugsaldri eftir að fíkniefni og tæki til fíkniefnanotkunar fundust á heimil annars þeirra. Við leit fundust um 15 grömm af amfetamíni, tæp 5 grömm af kannabisefnum, nokkuð magn af íblöndunarefnum og tækjum til fíkniefnaneyslu.

Tvær umsóknir bárust í útboði á Drekasvæði

Tvær umsóknir bárust um sérleyfi til rannsóknar og vinnslu á olíu og gasi á Drekasvæðinu en frestur til þess að sækja um rann út klukkan fjögur í dag. Umsóknirnar verða opnaðar á Orkustofnun og nöfn umsækjenda kunngjörð næstkomandi mánudag klukkan tvö. Eins og fréttastofa hefur greint frá mun norska olíufélagið Sagex Petrolium í samtsarfi við íslenska félagsið Lindir Exploration vera með annað tilboðið.

Ásta kjörin forseti Alþingis

Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, var kjörin forseti Alþingis á fimmta tímanum í dag. Alls greiddu 59 þingmenn Ástu atkvæði sitt. Þrír greiddu ekki atkvæði og einn var fjarverandi. Ásta tók við fundarstjórn strax að því loknu. Ásta sagðist meta traustið mikils og að hún vænti góðs samstarfs við starfsfólk Alþingis.

Mótmælt í dómsmálaráðuneytinu

Um þrjátíu manns hafa tekið sér stöðu í anddyri dómsmálaráðuneytisins í Skuggasundi en fólkið mótmælir viðbrögðum stjórnvalda í málum Mansris Hichem, hælisleitandans sem hefur verið í mótmælasvelti í rúmlega tuttugu daga. Fólkið hrópar slagorð til stuðnings Hichem og fylgist lögregla með úr fjarlægð. Að sögn lögreglu hafa ekki verið gefin nein fyrirmæli um að fjarlægja fólkið en ráðuneytið lokar klukkan fjögur og þá kemur í ljós hvort fólkið yfirgefur húsið eða ekki.

Tillaga um launlækkun forstjóra LV var á umræðustigi

Kristinn Örn Jóhannesson formaður VR hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að tillaga um launlækkun hjá Þorgeiri Eyjólfssyni, forstjóra Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LV) hafi verið á umræðustigi en að ekki hafi verið búið að ákveða slíkt innan stjórnar VR.

Fluttur á slysadeild eftir bílslys á Suðurlandsvegi

Karlmaður var fluttur á slysadeild eftir að bifreið sem hann ók um Suðurlandsveg endaði utanvegar og hafnaði á hvolfi í skurði rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Maðurinn var með meðvitund en ekki er vitað nánar um líðan hans, að sögn lögreglu.

Lokað vegna veðurs í Pósthússtræti

Pósthússtræti í Reykjavík er lokað fyrir bílaumferð í dag, 15. maí, vegna veðurblíðu og verður meira eða minna lokað um helgina. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að betri aðstaða fyrir gangandi og hjólandi sé eitt af Grænu skrefunum í Reykjavík.

ESB málið gæti klofið þjóðina

„Enn eru hér alþingismenn sem kynntust því á yngri árum hvernig ágreiningur um tengslin við önnur ríki klauf þjóðina í herðar niður, sundraði samstöðu á örlagastundum," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, við setningu Alþingis í dag.

Styrkir Samfylkingarinnar birtir „innan skamms“

Samfylkingin mun fljótlega birta upplýsingar um fjárstyrki til aðildarfélaga og fulltrúaráða flokksins vegna ársins 2006. Endurskoðandi flokksins mun taka saman skýrslu sem gerð verður opinber innan skamms. Þetta segir Magnús Norðdahl, gjaldkeri flokksins.

Ferðaviðvörun til Mexíkóborgar aflétt

Viðbúnaðarstig vegna inflúensu A, sem áður var kölluð svínaflensan, er óbreytt hér á landi frá því sem verið hefur vegna þess að inflúensan hefur breiðst út til margra landa.

Þing sett í dag

Setning Alþingis hófst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálftvö. Á meðan henni stendur býður félagsskapurinn Siðmennt þeim þingmönnum, sem ekki sækja messuna að koma á Hótel Borg og hlíða á hugvekju um mikilvægi

Söngvarinn útskrifaður af gjörgæsludeild

Bandaríski tónlistarmaðurinn og söngvarinn Duncan McKnight sem féll úr glugga á Skólavörðustíg fyrir rúmri viku hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild. Hann liggur nú á heila- og taugaskurðdeild og er á batavegi að sögn læknis.

Skorar á fyrrverandi ráðherra að afsala sér biðlaunum

Birgitta Jónsdóttir þingmaður Borgarahreyfingarinnar skorar á þá fyrrverandi ráðherra sem rétt eiga á biðlaunum en sitja jafnframt á Alþingi, að afsala sér laununum. Á bloggsíðu sinni skrifar Birgitta í dag að það sé „einfaldlega siðlaust að þiggja þetta“ á meðan krafan í samfélaginu sé á þá leið að launþegar taki á sig launalækkanir. Ráðherrarnir fyrrverandi fá aukalega 335 þúsund krónur á mánuði fyrir að þiggja biðlaunin.

Þjóðhagslega hagkvæmt að skima fyrir brjóstakrabbameini

Það er að þjóðhagslega hagkvæmt að skima fyrir krabbameini í brjóstum, samkvæmt nýrri rannsókn sem unnin var við Háskóla Íslands. Hvert ár sem vinnst hjá konum vegna skimunar kostar þjóðfélagið innan við eina milljón króna.

Fyrrverandi fjármálastjóri Garðabæjar ákærður fyrir fjárdrátt

Alfreð Atlason, fyrrverandi fjármálastjóri hjá Garðabæ, hefur verið ákærður fyrir að hafa dregið sér rúmar 9 milljónir króna í starfi með því að millifæra fé af bankareikningum bæjarsjóðs yfir á bankareikninga félaga í sinni eigu eða sér tengdum.

Fundu merkan gullhring við Fornleifagröft

Mikið magn af gripum hefur komið fram við fornleifarannsókn umhverfis Þingvallakirkju, sem staðið hefur yfir að undanförnu, í tilefni af 150 ára afmæli kirkjunnar.

Vörukarfan lækkaði í Krónunni og Bónus

Á tímabilinu janúar til maí á þessu ári hækkaði vörukarfa ASÍ mest um 3,6% í Kaskó og í Nóatúni um 3,1%. Verð lækkaði um 2,6 í 10-11, 1,7% í Krónunni og 1,6% í Bónus. Hækkanir á hreinlætisvörum, drykkjavörum og ýmsum nýlenduvörum eru áberandi í flest öllum verslunum. Þetta kom fram í verðalagseftirliti ASÍ en mælingar voru gerðar í í verslunum í viku 3. og 19.

Guðbjartur formaður fjárlaganefndar

Samkvæmt heimildum fréttastofu verður gerð tillaga um að Guðbjartur Hannesson, fráfarandi forseti Alþingis og þingmaður Samfylkingarinnar, verði kjörinn nýr formaður fjárlaganefndar þegar þing kemur saman í dag. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, verður áfram formaður utanríkismálanefndar. Þá herma heimildir að lagt verði til að Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, taki við formennsku í efnahags- og skattanefnd.

Sérsveitin flytur á Miðnesheiði

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Ellisif Tinna Víðisdóttir, forstjóri Varnarmálastofnunar, hafa undirritað samning um afnot ríkislögreglustjóra að mannvirkjum á mannvirkjaskrá Atlantshafsbandalagsins.

Verulegur verðmunur á tannlæknaþjónustu

Verulegur verðmunur er á tannlæknaþjónustu fyrir börn á aldrinum 8-12 ára. Þetta sýnir könnun sem Neytendasamtökin gerðu. Þar kemur til dæmis fram að hæsta verð á svokölluðu áfangaeftirlit sé tæpar 4200 krónur en lægsta verð

Þyrlan sótti veikan mann að Laugafelli

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í nótt veikan mann að Laugafelli, norðan Hofsjökuls, og flutti hann á sjúkrahús í Reykjavík. Maðurinn var í hópi vélsleðamanna þegar hann fékk hastarlegt innanmein og að höfðu samráði við lækni var ákveðið að senda þyrlu eftir honum. Hann er enn á sjúkrahúsi en ekki í lífshættu.

Gróðurhúsalömpum enn stolið

Kannabisræktendur virðast ekki vera að leggja árar í bát þrátt fyrir að lögreglan uppræti eina ræktunina af annarri og hafi aldrei náð viðlíka árangri.

Alþingi sett í dag

Alþingi verður sett í klukkan hálftvö. Að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni mun aldursforseti þingsins, sem er Jóhanna Sigurðardóttir, stjórna kjöri kjörbréfanefndar en að því loknu verður þingfundi frestað til klukkan fjögur.

Mikil ásókn í sveitastörf

Mikil ásókn er í sveitastörf í sumar, ólíkt því sem verið hefur. Bændablaðið kannaði hvernig viðbrögð hafi verið við atvinnuauglýsingum bænda upp á síðkastið og kom þá í ljós að margfalt fleiri svöruðu auglýsingunum en undanfarin ár.

Bílvelta í Seljahverfi

Bíll valt í Seljahverfi í Reykjavík á sjötta tímanum í morgun. Tveir ölvaðir menn voru í bílnum og sluppu nær ómeiddir en bíllinn stórskemmdist.

Innbrotsþjófar gripnir glóðvolgir

Tveir þjófar voru gripnir glóðvolgir á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eru þeir nú á bak við lás og slá. Fyrst stóð lögreglan mann að verki þar sem hann var að stinga upp glugga á einbýlishúsi í Hólahverfi.

Aftur boðið í réttinn á enska boltann

„Ég vænti þess að nýtt útboð fyrir enska boltann fari í gang fljótlega, og við munum taka þátt í því. Við gerum okkur vonir um að halda sýningarréttinum á þessu vinsæla efni áfram, en á viðráðanlegum kjörum,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365.

Biðlistar í afplánun þrefaldast á sex árum

Fólki sem bíður eftir að komast í afplánun í fangelsum landsins hefur fjölgað úr 53 árið 2003 í 182 nú. Skýringin er þynging refsidóma, segir Páll Winkel fangelsismálastjóri. Meðalrefsitími hafi til dæmis lengst um þriðjung frá árinu 2006.

Fundinn

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsti í kvöld eftir Jóhannesi Sturlu Guðjónssyni en ekki hafði til hans spurst síðan kl.15:00 í dag en þá sást hann í Mosfellsbæ. Jóhannes er nú fundinn heill á húfi.

Lýst eftir 46 ára gömlum karlmanni

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóhannesi Sturlu Guðjónssyni en ekki hefur til hans spurst síðan kl.15:00 í dag en þá sást hann í Mosfellsbæ. Jóhannes er 46 ára gamall, meðal maður á vöxt, ca 180 cm hár, klæddur í gráa úlpu og með bláa hliðartösku.

Smuga á umferðarlögunum

Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm héraðsdóms Vesturlands yfir karlmanni sem ákærður var fyrir brot á umferðarlögum. Maðurinn var ákærður fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fyrir dómi sagðist hann hinsvegar hafa verið í bíl kvöldið áður en hann var stöðvaður þar sem hópur fólks reykti kannabisefni. Hann hafi ekki vitað að slíkt myndi leiða til þess að leifar af kannabis gætu mælst í þvagi hans daginn eftir. Sveinn Andri Sveinsson verjandi mannsins segir dóminn sérstakan en hann sé þó staðfesting á niðurstöðu héraðsdóms. Segja má að búið sé að finna smugu á umferðarlögunum.

Þurfti að slá lán fyrir tannviðgerð á dóttur sinni

Móðir fjögurra ára stúlku þurfti að greiða tæplega eitthundrað þúsund krónur fyrir tannviðgerð á dóttur sinni en fékk þriðjung endurgreiddan frá Tryggingastofnun. Hún þurfti að slá lán fyrir reikningnum og hefur enn ekki getað greitt það niður.

Sjá næstu 50 fréttir