Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Össur birtir ESB tillögu Tillögudrög Össurar Skarphéðinssonar sem kynnt voru á fundi forystumanna stjórnmálaflokkanna í gær og á fundum utanríkisráðherra með formönnum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og fulltrúa þinghóps Borgara-hreyfingarinnar í dag hafa verið birt á vef Utanríkisráðuneytisins. Nokkur leynd hefur hvílt yfir tillögunni og voru formenn flokkanna bundnir trúnaði. Össur sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að drögin yrðu hugsanlega opinberuð í dag. Það hefur nú verið gert. 14.5.2009 18:08
Fulltrúi AGS nágranni Hannesar Smárasonar Franek Rozwadowski sendifulltrúi Aljþóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hér á landi er nágranni Útrásarvíkingsins Hannesar Smárasonar á Fjölnisveginum í Reykjavík. Franek þessi leigir glæsivillu af Ingibjörgu Þórðardóttur formanns félags fasteignasala á Fjölnisvegi 8 en líkt og margir vita á Hannes hús númer 9 og 11 við sömu götu. 14.5.2009 17:53
Ökumaður í reykfylltum kannabisbíl sýknaður Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm héraðsdóms yfir karlmanni sem hafði verið ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ákæruvaldið taldi manninn hafa sýnt af sér saknæma og refsiverða háttsemi er hann ók bifreið í umrætt skipti eftir að hafa neytt fíkniefna með óbeinum reykingum nóttina fyrir hið meinta brot. Þá sat hann í lokaðri bifreið í allt að hálfa klukkustund á meðan aðrir, sem voru í bifreiðinni, neyttu þar kannabisefnis með reykingum. 14.5.2009 17:20
ESB-ályktun hugsanlega opinberuð í dag Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um aðildarviðræður við Evrópusambandið verður hugsanlega opinberuð í dag, en hún verður lögð fyrir Alþingi í næstu viku. Lítið ber á milli ríkisstjórnarinnar og framsóknarmanna í málinu. Þetta segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa furðað sig á því af hverju leynd ríki yfir þingsályktuninni. Össur segist ekki hafa viljað láta ályktunardrögin fara frá sér fyrr en að hafa rætt þau við forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna. 14.5.2009 17:12
Stjórnarformaður OR: Arðgreiðslan stendur „Við viljum borga eigendum okkar arð svo þeir geti sett peningin út í samfélagið," segir Guðlaugur Sverrisson stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur en trúnaðarmenn hennar hafa mótmælt harkalega 800 milljón króna arðgreiðslu á sama tíma og starfsmenn lækka í launum. 14.5.2009 16:52
Boðað til mótmæla við Alþingishúsið á morgun Facebook hópur undir yfirskriftinni „Veitum flóttamönnum skjóta og sanngjarna málsmeðferð!“ efnir til mótmæla við Alþingi á morgun, á meðan á þingsetningu stendur. Þingsetning hefst klukkan hálftvö. 14.5.2009 16:06
Borgarfulltrúar hjóla í vinnuna Borgarfulltrúarnir í Reykjavík taka fullan þátt í heilsu- og hvatningarátakinu Hjólað í vinnuna. Íþróttasamband Íslands stendur ásamt samstarfsaðilum fyrir Hjólað í vinnuna í sjötta sinn og er markmiðið að vekja athygli á hjólreiðum sem hagkvæmum samgöngumáta sem einnig styrkir heilsu og bætir borgarbrag. 14.5.2009 16:03
Þjórsárvirkjanir: Svandís neitar að staðfesta breytingar á skipulagi Svandís Svavarsdóttir, nýr umhverfisráðherra Vinstri grænna, neitar að staðfesta breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps. 14.5.2009 15:55
Arðgreiðslur ræddar á stjórnarfundi á morgun „Það er best að ég tjái mig ekki um þetta," sagði stjórnarmaður Orkuveitu Reykjavíkur, Kjartan Magnússon, um fyrirhugaðar arðgreiðslur til eiganda Orkuveitunnar upp á 800 milljónir. 14.5.2009 15:51
Kosningar og stjórnarmyndun trufluðu borgarstjórnarstörf Dagur B. Eggertsson segist hafa þurft að víkja störfum í borgarráði og fjölskyldulífi til hliðar vegna kosningabaráttunnar fyrir þingkosningarnar og stjórnarmyndunarviðræður. 14.5.2009 15:35
Öryggi barna verði tryggt þrátt fyrir kreppuna Mikilvægt er að hvergi verði slegið slöku við að tryggja öryggi barna ekki síst þegar íslenskt þjóðfélag á í efnahagslegri kreppu. Í slíku ástandi fjölgar oft á tíðum félagslegum vandamálum sem auka áhættu á að börn verði fyrir ofbeldi. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar samtakanna Blátt áfram sem haldinn var í gær. 14.5.2009 15:07
Krufningsskýrsla lögð fram í morðmáli Matsmaður gaf skýrslu og fór yfir tiltekin matsatriði sem varðar rannsókn réttarmeinafræðings í morðmáli sem kom upp í Grímsnesi í nóvember á síðasta ári. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. 14.5.2009 14:26
Samningur um framkvæmd legháls- og brjóstakrabbameinsleitar Í dag undirrituðu Krabbameinsfélags Íslands (KÍ), Heilsugæslustöðin á Akureyri (HAK) og Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA) samning sem felur í sér að framkvæmd legháls- og brjóstakrabbameinsleitar á Eyjafjarðarsvæðinu fari fram á FSA. Samningurinn gildir til ársloka 2013. Undirritunin fór fram á ársfundi Sjúkrahússins á Akureyri, að því er fram kemur í tilkynningu. 14.5.2009 14:20
Kannast ekki við óánægju starfsmanna vegna arðgreiðslna Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, kannast ekki við óánægju meðal starfsmanna fyrirtækisins um arðgreiðslur OR til eigenda. Hann segir að fyrirtækið hafi greitt eigendum sínum arð í mjög langan tíma og árlega, nokkuð óháð því hver útkoma fyrirtækisins hafi verið fjárhagslega. 14.5.2009 13:53
Sigmundur vildi frekar ræða herbergjaskipan en ESB Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, vildi heldur ræða herbergjaskipan þingflokka í húsakynnum Alþingis en þingsályktunartillögu um aðildarviðræður á fundi formanna stjórnarflokkanna og forystumanna stjórnarandstöðuflokkanna í gær. Þetta segir Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar. Hún segir að þetta hafi komið sér verulaga á óvart. 14.5.2009 13:49
Alþingi sett á morgun Þingmenn koma saman á morgun þegar 137. löggjafarþing Alþingis verður sett. Þingsetningin hefst með guðsþjónustu klukkan hálftvö í Dómkirkjunni. Kjörin verður nýr forseti og formenn fastanefnda. 14.5.2009 13:42
Árborg eyðir milljónum í Facebook bann Árborg mun taka lán upp á þrjár milljónir til kaupa á internetsíu sem er meðal annars ætlað að hefta aðgang starfsmanna að Facebook. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í gær. 14.5.2009 13:24
Vinna á Lyngdalsheiði hafin á ný Verktakafyrirtækið Klæðning hefur á ný hafið vinnu við Lyngdalsheiðarveg milli Þingvalla og Laugarvatns en verkið stöðvaðist í síðasta mánuði þegar Lýsing hirti vinnuvélarnar vegna skulda. Klæðningarmenn segjast hafa fullan hug á að klára veginn og stefna að því að hann verði tilbúinn fyrir umferð í haust og kominn með slitlag næsta vor. Bæði hafi þeir nú flutt eigin tæki á Lyngdalsheiðina og verið sé að semja við undirverktaka og tækjaleigur um fleiri vinnuvélar. 14.5.2009 13:10
Ótrúlega lág tilboð berast Vegagerðinni Örvænting virðist hafa gripið um sig meðal verktaka og verkfræðistofa. Vegagerðin fékk í vikunni tilboð í verk allt niður í 43 prósent af kostnaðaráætlun. 14.5.2009 11:45
Rýr tillaga um aðildarviðræður Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, segir að þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um aðildarviðræður við Evrópusambandið sé öllu rýrari en hún hafi átt von á. Hún vill að leynd um tillöguna verði aflétt sem fyrst. Þá telur hún líklegt að erfiðlega muni reynast að ná samstöðu um tillöguna vegna afstöðu Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. 14.5.2009 11:28
Ólafur Ragnar hittir ekki Dalai Lama Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta sem hefur verið í útlegð síðustu áratugina á Indlandi, mun heimsækja Ísland í fyrsta skipti í byrjun næsta mánaðar. Forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni gefst þó ekki kostur á að hitta leiðtogann þar sem Ólafur verður staddur á Kýpur ásamt tæplega tvöhundruð íslenskum íþróttamönnum sem taka þátt í smáþjóðaleikunum. 14.5.2009 10:56
Unglingur kýldi lögregluþjón Sextán ára piltur sló lögreglumann í andlitið fyrir utan heimili á Borgarnesi í ágúst á síðasta ári. Lögreglumaðurinn var við skyldustörf þegar pilturinn réðst á hann og sló af afli í andlitið hans. 14.5.2009 10:32
Árni Mathiesen rifjar upp dýralæknatakta Árni M. Mathiesen, fyrrverandi alþingismaður og fjármálaráðherra er kominn til starfa hjá Dýralækniþjónustu Suðurlands. Dagskráin á Selfossi segir að Árni sé í starfsþjálfun enda hafi hann ekki unnið við fagið í 20 ár. 14.5.2009 10:29
Hasshaus frá Borganesi sviptur ökuréttindum Tuttugu og fimm ára gamall Borgnesingur hefur verið dæmdur fyrir að aka ítrekað undir áhrifum ávana- og fíkniefna í Borgarnesi. Hann var reyndar einu sinni stöðvaður á Vestulandsveginum, þá á leiðinni til Borganess. 14.5.2009 10:22
Kynferðisfórnalamb stökk út úr bíl á ferð Nítján ára stúlka sem hefur kært nauðgun í Tryggvagötu stökk út úr leigubíl á ferð á Bústaðavegi eftir kynferðisbrotið. 14.5.2009 09:57
Rannsaka fjölmörg mál tengd kannabisræktun Von er á að ákvarðanir verði teknar um ákærur í kannabisræktunarmálum á næstunni, að sögn Karls Steinars Valssonar, hjá fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 14.5.2009 09:25
FÍA kvartar yfir fullgildingu flugskírteina Félag íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, hefur sent formlega kvörtun til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins vegna fullgildingar flugskírteina flugmanna frá ríkjum utan sambandsins. 14.5.2009 07:20
Sinubruni í Hafnarfirði í morgun Kveikt var í sinu í Hafnarfirði á sjötta tímanum í morgun. Snarráðir lögreglumenn náðu að slökkva eldinn áður en hann náði útbreiðslu en nú er grassvörðurinn mjög þurr. Auk þess var strekkingsvindur. Ekki er vitað hver kveikti í. 14.5.2009 07:18
Verkfræðistofur bjóða mikinn afslátt Verkfræðistofur eru tilbúnar að gefa mikinn afslátt til að fá verkefni, ef marka má tilboð sem Vegagerðin opnaði í gær, í eftirlit með byggingu nýrrar brúar á Hvítá í Árnessýslu. 14.5.2009 07:10
Einn tekinn með litaða díselolíu Jeppi, sem lögreglan á Selfossi stöðvaði við eftirlit í gærkvöldi, reyndist vera með litaða díselolíu sem er undanþegin vegskatti og því mun ódýrari en venjuleg díselolía. 14.5.2009 07:04
Um þúsund skjálftahús eru enn óbætt Enn á eftir að bæta um eitt þúsund hús eftir Suðurlandsskjálftann sem varð í fyrra. Alls hefur verið tilkynnt um tjón á um 3.600 húsum og er búið að bæta 2.665 þeirra. 14.5.2009 05:00
Ásakanir Ólafs harmaðar „Meirihluti umhverfis- og samgönguráðs harmar tilefnislausar ásakanir og fullyrðingar áheyrnarfulltrúa ráðsins í garð meirihlutans og einstaka kjörins borgarfulltrúa,“ segir í bókun sem lögð var fram á fundi ráðsins á þriðjudag í tilefni bókunar Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa um vinnubrögð vegna fyrirhugaðrar hesthúsabyggðar í Víðidal. 14.5.2009 04:30
Verður ekki nærður vakandi Mansri Hichem frá Alsír, sem hefur verið meira en tuttugu daga í hungurverkfalli í Reykjanesbæ, verður ekki neyddur til að nærast eða á annan hátt brotið á sjálfsákvörðunarrétti hans, meðan hann hefur meðvitund til að hafna aðstoðinni, segir Hera Ósk Einarsdóttir, félagsráðgjafi hjá Reykjanesbæ. 14.5.2009 04:00
Fangar peningalausir vegna verkefnaskorts Kreppan bitnar harkalega á föngum. Vinna hefur nánast lagst niður á Litla-Hrauni eftir að kreppan skall á og möguleikar fanga til að vinna sér inn peninga hafa dregist verulega saman. Fangarnir eru síður í stakk búnir til að framfleyta sjálfum sér. 14.5.2009 03:30
Yfir 3.200 sóttu um sumarstarf Yfir 3.200 manns sóttu um 49 sumarstörf hjá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í ár. Það er ríflega þreföldun frá því í fyrra, þegar umsóknirnar voru 1.007. 14.5.2009 03:00
Gunnar Bragi þingflokksformaður framsóknar Þingflokkur framsóknarmanna valdi á fundi sínum í dag Gunnar Braga Sveinsson sem formann þingflokksins. 13.5.2009 23:03
Eurovision kostar Rússa minnst fimm milljarða Það kostar Rússa minnst fimm milljarða króna að halda Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Moskvu. Keppnin í ár er sögð mun dýrari en þær sem haldnar hafa verið síðustu ár og ekki er talið að neinn beinn hagnaður verði af henni. 13.5.2009 19:29
Meintur nauðgari laus úr gæsluvarðhaldi Hætiréttur felldi úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir manni sem grunaður er um að hafa nauðgað stúlku í bíl við Tryggvagötu fyrr í mánuðinum. Stúlkan sakar manninn og bróður hans um að hafa nauðgað sér en hérðasdómur hafði úrskurðað manninn í gæsluvarðhald til 5.júní næstkomandi. 13.5.2009 19:15
Þingmenn þurfa ekki að hafa bindi Þingmenn þurfa framvegis ekki að vera með bindi eða slifsi í ræðustól á Alþingi. Nýir alþingismenn sátu á skólabekk í allan dag og kynntu sér starfsemina, siði og reglur. 13.5.2009 19:10
Fá lægri laun ef þeir endurráða sig Bankastjórar ríkisbankanna verða að gera það upp við sig hvort þeir verða endurráðnir á lægri launum en forsætisráðherra eða hætta. Tillögur ríkisstjórnarinnar um lægri laun hjá ríkinu ná ekki til forseta Íslands. 13.5.2009 18:27
Hröktust úr landi undan innheimtuhörku Ólafs Ragnars Hjón frá Akureyri, sem fluttu til Noregs fyrir fjórtán árum, segja að harðar innheimtuaðgerðir í fjármálaráðherratíð Ólafs Ragnars Grímssonar hafi orðið til þess að þau hröktust úr landi. Þau eru enn svo sár að þau ætla ekki að snúa aftur fyrr en Ólafur Ragnar fer á eftirlaun. 13.5.2009 18:13
Guðfríður Lilja nýr þingflokksformaður VG Á þingflokksfundi Vinstri grænna í dag var kjörin ný stjórn þingflokksins en í henni sitja formaður, varaformaður og ritari. Nýr formaður þingflokksins er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir en því starfi gegndi Jón Bjarnason áður sem nú er orðinn sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 13.5.2009 18:07
Lægsta tilboð 45,3% af kostnaðaráætlun Verkfræðistofur eru tilbúnar að gefa mikinn afslátt til að fá verkefni, ef marka má tilboð sem Vegagerðin opnaði í gær í eftirlit með byggingu nýrrar brúar á Hvítá í Árnessýslu. Lægsta boð reyndist aðeins 45,3 prósent af kostnaðaráætlun. 13.5.2009 17:11
Læknir segir flóttamanninn í ágætis ástandi „Maðurinn er í ágætis ástandi. Hann var ekkert lagður inn hér enda ekkert þörf á því," segir Sigurður Árnason, læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, um líðan Mansris Hichem, flóttamannsins sem segist ekki hafa neytt matar í þrjár vikur. 13.5.2009 16:55
Viðskiptaráðherra án aðstoðarmanns og upplýsingafulltrúa Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra starfar þessa dagana án aðstoðarmanns og upplýsingafulltrúa. Helga Valfells var aðstoðarmaður hans fyrir kosningar og Þorfinnur Ómarsson upplýsingafulltrúi en þau hafa bæði horfið á braut. 13.5.2009 16:24