Fleiri fréttir

Bakraddirnar syngja þjóðlög

Þeir sem sungu bakraddir hjá Jóhönnu Guðrúnu syngja nú þjóðlög á Austurvelli á meðan allir bíða spenntir eftir Jóhönnu. Fremstur í flokki fer Friðrik Ómar sem áður hefur tekið þátt í

Sigurhátíðin hafin

Sigurhátíð til heiðurs Jóhönnu Guðrúnu og föruneyti er hafin með pompi og prakt á Austurvelli. Mörg hundruð manns eru mætt til þess að fylgjast með.

Björgunarsveitin ávallt viðbúin

Meðlimir í Björgunarsveitinni Suðurnes, sem voru á leið heim af landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem haldið var á Akureyri um helgina, óku fram á bílveltu rétt sunnan við Staðarskála í Hrútafirði um klukkan hálf fimm í dag.

Nasa gerir við geimsjónauka

Geimfarar eru nú að laga geimsjónaukann Hubbert. Þeir eru að koma fyrir nýrri linsu og öðrum aukahlutum. Andvirði þessara aukahluta eru 88 milljónir dollara.

Dagur vill sátt við stéttarfélög vegna arðgreiðslna

Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, vill sátt við stéttarfélögin sem hafa gagnrýnt stjórn Orkuveitunnar fyrir 800 milljón króna arðgreiðslu á sama tíma og starfsfólk þarf að gangast undir launalækkun.

Jóhönnu fagnað á Austurvelli síðdegis

Fagnaður verður á Austuvelli klukkan 17:30 í dag. Reykjavíkurborg í samvinnu við RÚV undirbýr fagnaðarfundinn fyrir Jóhönnu og félaga hennar í íslensku sveitinni.

Forsætisráðherra hringdi í nöfnu sína

Þrjátíu og fjögur lönd af fjörtíu og tveimur sem greiddu atkvæði í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í gærkvöldi, gáfu íslenska laginu stig og tryggðu Jóhönnu Guðrúnu þannig annað sætið í keppninni. Forsætisráðherra hringdi í nöfnu sína í gærkvöldi og óskaði henni til hamingju og forsetahjónin sendu henni og fylgdarliði hamingjuóskir sínar.

Is it true? vinsælasta lagið í Svíþjóð

Framlag Íslendinga í Eurovision, Is it true? er í fyrsta sæti á netlistanum Itunes í Svíþjóð og í öðru sæti á sama lista í Finnlandi. Það þýðir að lagið er oftast halað niður á netinu í viðkomandi löndum.

Útvarpsstjóri: Jóhanna er ljósið í myrkrinu

„Sigurganga hennar var eins mikil og ríkisútvarpið þoldi," segir Útvarpsstjórinn Páll Magnússon sem er himin lifandi yfir góðu gengi Jóhönnu Guðrúnar og förneytis í Euorovison í gærkvöldi.

Forsetahjónin sendu hamingjuóskir

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sendi í gærkvöldi hamingjuóskir til Jóhönnu Guðrúnar, höfundi og flytjendum íslenska lagsins hamingjuóskir frá sér og Dorrit.

Beltislausir í Grindavík

Tveir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í gærkvöldi á Suðurnesjum. Einn á Garðveginum en hann mældist á 116 kílómetra hraða á klukkustund. þar sem hámarkshraðinn er 90 kílómetra hraða.

Ökufantur á methraða

Ökumaður var stöðvaður á Hellisheiðinni klukkan ellefu í gærkvöldi en hann reyndist aka á tæplega 200 kílómetra hraða. Þegar lögreglan mældi hraða mannsins var hann á 194 kílómetra hraða.

Hvar er Jón?

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóni Helga Lindusyni. Ekki er vitað hvar hann hefur haldið sig síðan síðast liðinn miðvikudag er hann strauk frá Götusmiðjunni.

Ísland náði öðru sæti

Íslendingar náðu öðru sæti í Júróvisjón. Það er í annað skiptið sem við náum þeim glæsilega árangri. Keppnin var æsispennandi, Aserbadjian keppti við okkur en hlaut ósigur í þeirri keppni þegar síðasta þjóðin, Noregur, gaf þeim 10 stig en Jóhönnu Guðrúnu tólf.

Hanna Birna víkur sér undan svörum

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, neitar að tjá sig um arðgreiðslu Orkuveitunnar til Reykjavíkurborgar. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir að þetta sé ekki eina erfiða málið þar sem hún víkur sér undan svörum.

ASÍ vinnur að siðareglum

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að unnið sé að því á fullu að móta skýrar reglur um daglegan rekstur lífeyrissjóða og sérstaklega hvað varðar boðsferðir lífeyrissjóðamanna.

Forstjóri Símans sakar Landsbankann um lögbrot

Forstjóri Símans sakar ríkisbankann Landsbankann um lögbrot í fyrirhuguðum nauðasamningum við Teymi, sem á meðal annars Vodafone. Hann segir skattborgara eiga að taka á sig 30 milljarða króna vegna glannalegra mistaka stjórnenda Teymis. Forstjóri Teymis hafnar því að röð mistaka hafi verið gerð hjá félaginu.

Rútan komin í leitirnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann rútu sem var stolið upp á Höfða í nótt. Rútan fannst um hádegisbilið skammt frá þaðan sem henni var upprunalega stolið.

Rauði Krossinn fær mannréttindaverðlaun

Rauði Krossinn hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar í dag en þau eru veitt þeim einstaklingum, félagssamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa.

List á Austurvelli í blíðskapaveðri

Mikið eru um að vera á Listahátíð í Reykjavík í dag, laugardaginn 16. maí. Búist er við að fjöldi fólks muni leggja leið sína í miðbæinn í sól og blíðu að sjá meðal annars áströlsku götulistamennina. Ókeypis aðgangur er á alla þessa viðburði sem hér eru taldir:

Njörður til bjargar

Björgunarskip og bátar Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Sandgerði, Suðurnesjum og Vogum voru kallaðir út rétt fyrir klukkan 11 í morgun þegar tilkynnt var um tvo menn í sjónum um 500 metra frá landi við Vogastapa.

Stálu rútu í nótt

Lögreglan leitar nú að 51 manna hvítri Scania rútu sem var stolið í nótt frá fyrirtækinu Bílar og Fólk. Fyrirtækið er með aðsetur á Krókhálsi en þangað brutu þjófar sér leið inn í nótt og stálu margvísislegum hlutum og svo heilli farþegarútu.

Rjómablíða á öllu landinu

Það verður hlýtt og milt veður í dag samkvæmt upplýsingum sem finna má á heimasíðu Veðurstofunnar en hitinn fer mest upp í 16 stig síðdegis við Hvanneyri. Íbúar höfuðborgarsvæðisins geta svo dregið fram sólbekkina því búast má við að hitinn verði fimmtán stig.

Banaslys við Fáskrúðsfjörð

Einn maður lést og annar var fluttur á sjúkrahús eftir að bifreið fór út af veginum í Sunnanverður botni Fáskrúðsfjarðar. Það er lögreglan á Eskifirði sem rannsakar málið. Frekari upplýsinga um slysið er ekki að fá fyrr en síðdegis í dag.

Grímuklæddir innbrotsþjófar

Fjórir grímuklæddir menn brutust inn í íbúð í Innri-Njarðvík rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi.

Sérsveitamaður gómar ökufant

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði ökumann á Reykjanesbrautinni sem ók á 177 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði eru 90 kílómetrar á klukkustund.

Friðlýsingin sögð á skjön við Natóaðild

Í stjórnarsáttmálanum er kveðið á um að Ísland verði friðlýst fyrir kjarnorkuvopnum. Tillaga um slíkt hefur oftsinnis verið lögð fram á þingi en aldrei hlotið nægan stuðning.

Fjórir nýir þingmenn formenn

Nýr forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, kallaði eftir tilnefningu allra flokka í vinnuhóp til að endurskoða starf þingsins í ræðu sinni á Alþingi í gær. „Við viljum vinna áfram í því að gera Alþingi að fjölskylduvænum vinnustað, til að vinnulag verði eins og hjá öðrum í þjóðfélaginu,“ segir Ásta Ragnheiður.

Á hrakhólum með bát

Síðastliðin tvö og hálft ár ár hafa þau Þorsteinn Máni Árnason og María Sigurjónsdóttir unnið að smíði þrjátíu tonna báts í atvinnuhúsnæði í Brákarey í Borgarnesi. Deila þeirra við Borgarbyggð, sem á húsnæðið, hefur sett alla þá vinnu í uppnám. Að óbreyttu eiga þau að fjarlægja bátinn út úr húsinu 1. júní næstkomandi.

Augljós mismunun hjá ríkisbönkunum

„Tillögur um stórkostlega fyrirgreiðslu ríkisbanka gagnvart einum aðila á markaði felur augljóslega í sér mismunun gagnvart öðrum,“ skrifar Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Fann upp hundaþvottavél

Frakkinn Romain Jarry er búinn að finna upp hundaþvottavél sem hefur slegið í gegn í heimabæ hans, St. Max. Jarry, sem er rúmlega þrítugt athafnaskáld, er að reyna að kynna nýjungina fyrir Bretum.

Eldur í Suðurhólum - heimilisfólkið flúði

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að blokk við Suðurhóla í Breiðholti fyrir stundu. Þar hafði komið upp eldur í íbúð og þurfti heimilisfólkið að flýja út úr íbúðinni. Að sögn varðstjóra var stigagangurinn rýmdur en búið er að slökkva eldinn. Nú er verið að reykræsta íbúðina en um töluverðan eld var að ræða.

Þiggur ekki biðlaun ráðherra

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir sem í dag var kjörin forseti Alþingis mun ekki taka þriggja mánaða biðlaun ráðherra líkt og hún átti rétt á. Hún segir biðlaun fyrst og fremst ætluð þeim sem hætta í starfi og fá ekki sambærilegt starf. Hún sé nú orðin forseti Alþingis og muni því ekki þiggja biðlaunin. Ásta er mjög ánægð með nýja starfið sem hún segist ætla að sinna af sóma.

16 ára ökumaður endaði ofan í skurði með lögregluna á hælunum

Um klukkan tvö í dag barst lögreglu tilkynning um ofsaakstur fólksbifreiðar við Rauðavatn á leið austur. Nokkrar tilkynningar bárust síðar um bifreiðina þar sem henni væri ekið hratt og ógætilega framúr ökutækjum. Lögreglumenn sem voru við umferðareftirlit á Suðurlandsvegi í Ölfusi mættu bifreiðinni rétt austan við Hveragerði.

Drekaútboðið stórkostlegur áfangi

Tvær umsóknir bárust um sérleyfi til leitar og vinnslu á olíu og gasi á Drekasvæðinu áður en frestur rann út klukkan fjögur í dag. Orkumálastjóri segir þetta stórkostlegan áfanga að fá tvo trausta aðila, sem meti líkurnar á olíu það miklar á svæðinu að þeir séu tilbúnir að leggja háar fjárhæðir í verkefnið.

Miðbærinn fegraður í sjálfboðavinnu

Búið er að stofna samtök sjálfboðaliða sem vilja leggja sitt af mörkum til að fegra miðborgina. Andri Ólafsson hitti tvo sjálfboðaliða sem voru að klára prófin en buðu sig fram til að mála í góða veðrinu í dag.

Sjá næstu 50 fréttir