Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þyrlan lenti með þær slösuðu í Reykjavík Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, lenti við Borgarspítalann um hálfþrjúleytið með tvær erlendar konur, sem slösuðust þegar bíll valt út af hringveginum á Breiðamerkursandi. 1.3.2009 14:53
Hugmyndir Framsóknar kosta 1200 milljarða Hugmyndir Framóknarflokksins um tuttugu prósenta niðurfærslu á öllum skuldum kosta 1200 milljarða króna. Þetta sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Steingrímur sagðist hafa minnisblað með þessum tölum og spurði hver ætti að borga brúsann. 1.3.2009 14:00
Seðlabankastjóri hefði átt að bregðast við ástandinu - ekki bara vara við því Jón Baldvin Hannibalsson segir að seðlabankastjóri hafi ekki bara átt að vara við efnahagsástandinu heldur hafi hann átt að bregðast við því. Ef hann hafi ekki haft tækifæri til þess hafi forsætisráðherra eða formenn ríkisstjórnarflokkanna að gera svo. Hann segir viðvaranirnar ekki hafa vantað því allt frá árinu 2006 hafi menn sagt að hættuástand væri framundan og það væri tímaspursmál hvenær kerfið myndi hrynja. Hann segist vera að bjóða sig fram til Alþingis út af evrópumálum. 1.3.2009 13:41
Þingmenn VG styðja ekki frumvarp um álver í Helguvík Þingmenn VG munu ekki styðja frumvarp Iðnaðarráðherra varðandi uppbyggingu álvers í Helguvík. Þetta kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Steingrímur sagði að umrætt frumvarp væri arfur fyrrverandi ríkisstjórnar og snéri að bindandi samningum iðnaðarráðherra. Hann sagði ekki liggja fyrir hvort þingmenn VG myndu greiða atkvæði gegn frumvarpinu eða sitja hjá. 1.3.2009 13:00
Sjálfstæðisflokkurinn: Stefnan brást ekki - heldur fólkið Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins hefur sent frá sér drög að skýrslu sem ber heitið, Hvað átti Sjálfstæðisflokkurinn að gera betur?. Þar kemur meðal annars fram að stjórnvöld og Seðlabankinn hafi brugðist of seint við mikilli stækkun bankakerfisins, nauðsynlegt hefði verið að auka varasjóðinn samhliða stækkun bankanna á þeim tíma sem lántökur í erlendri mynt á hæfilegum kjörum voru í boði, eða stemma stigu við stækkun bankanna. 1.3.2009 12:56
AGS hefur áhyggjur af vaxandi atvinnuleysi Vaxandi atvinnuleysi og tafir við endurreisn bankakerfisins eru meðal helstu áhyggjuefna sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem nú er stödd hér á landi. Þetta kemur fram í máli Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. Ráðherra segir að fulltrúar sjóðsins séu þó í meginatriðum sáttir við þann árangur sem náðst hefur hingað til. 1.3.2009 11:49
Gulldepluveiðar á nýjum fiskimiðum Íslenski fiskiskipaflotinn hefur nú uppgötvað ný fiskimið, um 170 mílur suður af Vestmannaeyjum. Þar eru nú fimm nótaveiðiskip á gulldepluveiðum, Huginn, Guðmundur, Júpíter, Sighvatur Bjarnason og Álfsey. 1.3.2009 11:24
Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir slasaða konu Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, er nú á leið austur í Skaftafellssýslur til móts við sjúkrabíl, sem er á leið frá Breiðamerkursandi með slasaða konu eftir bílslys. 1.3.2009 11:22
Hótanir um að hætta að selja íslenskan fisk Steingrímur J. Sigfússon fjármála-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að erlendir aðilar hafi hótað því að taka íslenskan fisk af markaði vegna hvalveiða þjóðarinnar. Hann segir erlenda sendiherra hafa komið á sinn fund með gögn og upplýsingar sem styðji þetta. Hann segir að nú síðast hafi bandaríkjamenn mótmælt hvalveiðum íslendinga. Steingrímur var gestur á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. 1.3.2009 11:09
Tuttugu ára afmæli bjórsins á Íslandi Í dag eru liðin tuttugu ár frá því að leyft var að selja bjór á Íslandi á ný. Bjórbannið svokallaða tók gildi 1. janúar árið 1912 og stóð til 1. mars 1989 eða í 77 ár. 1.3.2009 09:48
Jarðskjálfti undir Vatnajökli Jarðskjálfti af stærðinni 4,3 varð undir vestanverðum Vatnajökli upp úr klukkan hálfeitt í nótt. Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar hafði snörp jarðskjálftahrina hafist um fimmtán mínútum áður á sama stað. 1.3.2009 09:25
Handtekinn með vírklippur: Reyndi að brjótast inn á Litla-Hraun Tveir gistu fangageymslur lögregunnar á Selfossi. Annar mannanna var handtekinn fyrir utan fangelsið á Litla-Hrauni með vírklippur. Fangaverðir urðu mannsins varir í eftirlitsmyndavélakerfi fangelsins þar sem hann reyndi að klippa gat á girðinguna, sem honum tókst að einhverju leyti. Hann var síðan handtekinn í nágrenni fangelsins og settur í fangaklefa á Selfossi. 1.3.2009 09:17
Norðmenn auglýsa eftir íslenskum hjúkrunarfræðingum Stærsta atvinnumiðlun Noregs, Adecco, auglýsir eftir íslenskum hjúkrunarfræðingum í sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Þar er hjúkrunarfræðingum boðið á kynningarfund á Radisson SAS til að kynna sér málið frekar. Talað er um störf í Noregi í að minnsta kosti tvo mánuði. 28.2.2009 20:00
Danir hafna íslendingum um félagslegar bætur Bæjaryfirvöld í Danmörku eru í síauknum mæli byrjuð að hafna beiðnum Íslendinga um félagslegar bætur. Danir vísa í samninga Evrópska efnhagssvæðisins sem eru mun strangari en þeir samningar sem eru í gildi milli Norðurlandanna. Þrjú prófmál eru nú í gangi fyrir dönskum rétti. 28.2.2009 19:15
Hættir sem sveitastjóri Björn Ingimarsson, sveitastjóri Langanesbyggðar hefur náð samkomulagi við Hreppsnefnd Langanesbyggðar um að hann láti af störfum fyrir sveitarfélagið frá og með 1.mars. 28.2.2009 18:58
Eldur í nýbyggingu í Kópavogi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að nýbygginu við Hafnarbraut í Kópavogi fyrir stundu. Þar hafði komið upp smáræðis eldur en slökkviliðið þurfti að reykræsta bygginguna. 28.2.2009 18:54
Fokkervél Flugfélags Íslands flaug í gegnum gæsahóp Fokker flugvél Flugfélags Íslands dældaðist þegar hún flaug í gegnum gæsahóp yfir Öskjuhlíðinni í gær. Vélin lenti heilu á höldnu og engan sakaði. 28.2.2009 18:30
Norðmenn leiti ekki beint eftir starfsfólki hér á landi Eures atvinnumiðlanirnar á Íslandi og í Noregi hafa gert með sér heiðursmannasamkomulag, að ósk Landspítalans, um að ekki verði leitað beint eftir íslensku heilbrigðisstarfsfólki til starfa í Noregi, þó eftirspurnin þar sé mikil. 28.2.2009 18:30
Ótækt að bjóða fram óbreytta forystu Jón Baldvin Hannibalsson segir ótækt að Samfylkingin bjóði fram óbreytta forystu fyrir næstu kosningar. Hann hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns flokksins, gegn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. 28.2.2009 18:30
Íhugaði alvarlega að hætta í pólitík Ingibjörg Sólrún Gísladóttir íhugaði alvarlega að hætta í pólitík vegna veikinda sem hún hefur átt við að etja í fimm mánuði. Hún hyggst hins vegar sitja áfram sem formaður samfylkingarinnar en vill að Jóhanna Sigurðardóttir verði forsætisráðherraefni. 28.2.2009 18:30
Tæplega fimm hundruð mótmæltu Samkvæmt upplýsingum frá Herði Torfasyni voru tæplega fimm hundruð manns á Austurvelli á mótmælafundi Radda fólksins í dag. Þetta var mótmælafundur númer tuttugu og sjö. 28.2.2009 17:37
Guðjón Arnar fær mótframboð í formanninn Guðni Halldórsson 35 ára viðskiptalögfræðingur hefur ákveðið að gefa kost á sér til formennsku í Frjálslynda flokknum á landsþingi flokksins sem haldið verður í Stykkihsólmi dagana 13.-14. mars nk. Hann hefur einnig ákveðið að bjóða sig fram í efsta sætið í prófkjöri Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi sem fram fer vikuna 2.-8. mars nk. 28.2.2009 16:29
Ásta Ragnheiður keppir við strákana Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, gefur kost á sér í 4.sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar. Því er ljóst að hart verður barist um fjórða sætið en sá sem það hreppir mun skipa annað sætið í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna. Líkt og Vísir hefur greint frá sækjast þeir Mörður Árnason, Helgi Hjörvar og Skúli Helgason einnig eftir umræddu fjórða sæti. 28.2.2009 15:57
Sumarbústaðamorð: Litháarnir neita allir sök Litháarnir fjórir sem ákærðir voru eftir að maður fannst látinn í sumarbústaðarhverfi í Grímsnesi í október á síðasta ári, neita allir sök. Einn mannanna er ákærður fyrir stórfellda líkamsárás sem varð manninum að bana. Hinir þrír eru ákærðir fyrir að koma hinum látna ekki til aðstoðar. Mennirnir neituðu allir sök í Héraðsdómi Suðurlands í gær en aðalmeðferð í málinu fer fram 19.mars. 28.2.2009 15:37
103 í framboði hjá VG - nafnalisti Vinstri græn standa fyrir forvölum í öllum kjördæmum fyrir Alþingiskosningarnar 2009. Alls hafa 103 félagar gefið kost á sér og ljóst að aldrei hefur verið jafn mikill áhugi á að starfa með flokknum og nú. 28.2.2009 14:57
Mörður stefnir líka á fjórða sætið Mörður Árnason tekur þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík og óskar eftir kosningu í 4. sæti sem jafngildir öðru sæti á framboðslista í norður- eða suðurkjördæminu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Merði. Það er því ljóst að hann mun kljást við Helga Hjörvar og Skúla Helgason um 4.sæti listans. 28.2.2009 14:50
Fyrsti heyrnarlausi hjúkrunarfræðingurinn útskrifaður Brautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fór fram í Háskólabíói í dag en 367 kandídatar voru brautskráðir frá öllum deildum Háskóla Íslands að frátalinni Tannlæknadeild og Matvæla- og næringarfræðideild. Tvær heyrnarlausar konur brautskráðust frá HÍ í dag, þær Heiðdís Dögg Eiríksdóttir og Steinunn Lovísa Þorvaldsdóttir. 28.2.2009 14:02
Helgi í fjórða sætið Helgi Hjörvar þingmaður ætlar að gefa kost á sér í 4.sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Verði það niðurstaðan mun Helgi skipa annað sætið í öðru hvoru Reykjavíkrukjördæmanna í komandi kosningum. Helgi hafnaði í fimmta sæti í síðasta prófkjöri. Hann segir kröfuna um endunýjun verða að haldast í hendur við reynslu. 28.2.2009 13:06
Fer á móti Ingibjörgu í formanninn Jón Baldvin Hannibalsson ætlar að bjóða sig gegn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til formanns Samfylkingarinnar á komandi landsfundi flokksins. Hann hafði áður lýst því yfir að hann hyggðist bjóða sig fram ef Jóhanna Sigurðardóttir gerði það ekki. Hann stendur við þær yfirlýsingar og segist vera að fylgja kröfu Búsáhaldarbyltingarinnar um endurnýjun. 28.2.2009 11:56
Fjórar konur af tólf í framboði í Suðvesturkjördæmi Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi er nú liðinn og hefur kjörnefnd gengið frá framboðslista í kjördæminu. Tólf frambjóðendur eru í framboði, þar af fjórar konur. Prófkjörið fer fram 14.mars. 28.2.2009 11:38
Össur fer í þriðja sætið Össur Skarphéðinsson segist í samtali við fréttastofu ætla að bjóða sig fram í þriðja sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í ljósi nýjustu tíðinda úr flokknum. Hann segist styðja Jóhönnu og Ingibjörgu heilshugar. 28.2.2009 11:28
Ingibjörg áfram formaður- Jóhanna forsætisráðherraefni Á blaðamannafundi sem Samfylkingin í Reykjavík boðaði núna klukkan ellefu kom fram að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ætlar sér að vera áfram formaður flokksins. Hún mun hinsvegar ekki sækjast eftir fyrsta sætinu í prófkjöri flokksins. 28.2.2009 11:11
Leita eftir stuðningi við Ingibjörgu og Jóhönnu Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur blöðum verið dreift á fundi samfylkingarmanna sem nú stendur yfir í Reykjavík, þar sem óskað er eftir stuðningi við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Jóhönnu Sigurðardóttur. 28.2.2009 10:13
Aldísar enn leitað Lögreglan leitar enn að Aldísi Westergren sem saknað hefur verið síðan á þriðjudag. Björgunarsveitir Landsbjargar voru kallaðar til aðstoðar við leitina í gær og munu aðstoða aftur í dag. Leitað er á höfuðborgarsvæðinu. 28.2.2009 09:55
Kolfinna býður sig fram fyrir VG Kolfinna Baldvinsdóttir fjölmiðlakona, dóttir Jóns Baldvin Hannibalssonar og Bryndísar Schram, er meðal frambjóðenda í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Suðvestur-kjördæmi. Faðir hennar hefur hins vegar boðið sig fram á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík 28.2.2009 09:46
Endaði næstum í andarpollinum Ökumaður á Akureyri varð fyrir óhappi í nótt þegar hann missti stjórn á bifreið sinni. Að sögn lögreglu var hann á litlum hraða þegar hann missti vald á bílnum og endaði á tré rétt við hinn margfræga andarpoll í bænum. Ökumaðurinn slapp við meiðsli en snjór liggur yfir öllu og því nokkur hálka í bænum. Annars var nóttin róleg að sögn lögreglu fyrir utan smá pústra í miðbænum í nótt. 28.2.2009 09:39
Opið í Bláfjöllum í dag Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opnað núna klukkan tíu og þar verða lyftur í gangi til klukkan fimm síðdegis. Að sögn Magnúsar Árnasonar, framkvæmdastjóri skíðasvæða, er færið mjög gott. Hann segir frábært veður í Bláfjöllum og það spái góðu í dag. Frí skíðakennsla er í boði fyrir byrjendur við Bláfjallaskála milli klukkan ellefu og þrjú og einnig er boðið uppá brettakennslu. Það er hins vegar lokað í Skálafelli í dag. 28.2.2009 09:20
Forystukonur Samfylkingarinnar kynna framboðsmál flokksins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafa boðað til fundar með fréttamönnum á morgun klukkan 11. Í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni kemur fram að fundarefnið sé framboðsmál vegna þingkosninga í vor. Fundurinn verður haldinn í kosningamiðstöð Samfylkingarinnar á Skólabrú við Austurvöll. 27.2.2009 23:16
Hætt við sameiningu heilbrigðisstofnana á Vestfjörðum Fallið hefur verið frá sameiningu Helbrigðisstofnunar Vestfjarða og Heilbrigðisstofnunarinnar á Patreksfirði. Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, tilkynnti þetta í dag eftir að hafa rætt við sveitarstjórnarmenn á norðanverðum Vestfjörðum og framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Heilbrigðisráðherra heimsótti í gær og dag heilbrigðisstofnanir, starfsmenn þeirra, og sveitarstjórnarmenn í Vestlendingafjórðungi. 27.2.2009 21:55
Fimmtán gefa kost á sér hjá VG í Kraganum Fimmtán manns gefa kost á sér í forvali Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Suðvesturkjördæmi sem fer fram þann 14. mars næstkomandi. Þar af eru níu karlar og sex konur. Framboðsfrestur er útrunninn og nú er unnið að gerð kynningarbæklings um frambjóðendur. 27.2.2009 20:45
Bandarísk stjórnvöld gagnrýna fyrirhugaðar hvalveiðar Bandarísk stjórnvöld gagnrýna harðlega ákvörðun Íslendinga um að heimila veiðar á 150 langreyðum og 100 hrefnum í yfirlýsingu sem gefin var út í dag. Um þetta er fjallað á vef Nasdaq. Þar er sagt frá því að kvótinn hafi verið gefin út til fimm ára af fyrri ríkisstjórn. Í yfirlýsingunni er lýst efasemdum yfir því að langreyða- og hrefnustofnarnir þoli þessa ásókn. Þá er fullyrt að ákvörðunin muni grafa undan framtíðaráætlunum Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem Ísland á aðild að. 27.2.2009 20:31
Flestir vilja að Jóhanna leiði Samfylkinguna Mun fleiri vilja að Jóhanna Sigurðardóttir leiði Samfylkinguna í næstu kosningum en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar. 27.2.2009 18:30
Tveir á slysadeild eftir umferðaróhapp Að minnsta kosti fjögur umferðaróhöpp hafa orðið vegna hálku frá því klukkan níu í kvöld. Tveir menn voru fluttir á slysadeild eftir að bíll þeirra valt á Hafnafjarðarvegi rétt eftir klukkan níu í kvöld og stuttu eftir það varð bílvelta á Gullinbrú. Þá varð umferðaróhapp á Grensásvegi og jafnframt varð óhapp á Miklubraut þegar bíll rann til í hálku og fór á staur. 27.2.2009 23:09
Fimmtán samfylkingarmenn gefa kost á sér í Kraganum Fimmtán manns gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi kosningar. Þar af eru 7 konur og 8 karlar. Kosið verður á netinu dagana 12. -14. mars. Kosningin er bundin við félaga í Samfylkingunni og stuðningsmenn sem hafa skráð sig í síðasta lagi 10. mars klukkan sex. 27.2.2009 22:05
Björgunarsveitamenn leita Aldísar Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út til að gera formlega leit að 37 ára gamalli konu, Aldísi Westergren. 27.2.2009 19:30
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent