Fleiri fréttir

Verksmiðjustjóri var lækkaður í tign - ekki rekinn

Haukur Jónsson var ekki sagt upp hjá fiskimjölsverksmiðjunni Eskju hf. eftir að sænskur fréttaskýringaþáttur tók við hann viðtal. Í tilkynningu frá Eskju segir að Haukur starfi hinsvegar ekki lengur sem verksmiðjustjóri, heldur undir nýjum yfirmanni.

Starfsfólk SPRON: Okkur var sagt upp í beinni

„Við erum ósátt við að viðskiptaráðherra hafi sagt okkur upp í beinni útsendingu,“ sagði formaður starfsmannafélags SPRON, Ólafur Már Svansson í dag. Starfsfólk bankans safnaðist saman á tilfinningaþrungnum fundi á Grand Hóteli í dag.

Prófkjör NV: Ásbjörn sigraði Einar

Nú er talningu lokið í prófkjöri sjálfstæðismanna í NV kjördæmi. Ásbjörn Óttarsson í Snæfellsbæ skaust í efsta sæti listans þegar síðustu atkvæði höfðu verið talin og telst því sigurvegari prófkjörsins, samkvæmt fréttavef Skessuhorns.is.

Sálfræðingar og áfallateymi á SPRON-fundi

Áfallateymi og sálfræðingar voru á fundi sem starfsmenn SPRON áttu með fjármálaráðuneytinu. Fundurinn hófst klukkan tvö eins og Vísir greindi frá fyrr í dag en honum er nú lokið. Fundurinn var haldinn á Grand Hótel.

Átta atkvæði á milli Einars og Ásbjörns

Einar K. Guðfinnsson, fyrrum sjávarútvegsráðherra vermir fyrsta sætið í hörðum prófkjörsslag í Norðvesturkjördæmi en meirihluti atkvæð hefur verið talinn, eða alls 2400 atkvæði.

Ármann ekki á þing

Þingmaðurinn Ármann Kr. Ólafsson mun ekki taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi en hann hafnaði í sjöunda sæti.

Kristján Þór í formanninn

Kristján Þór Júlíusson, fyrsti maður á lista í Norðausturkjördæmi, gefur kost á sér í formann Sjálfstæðisflokksins. Bjarni Beneditksson hefur þegar gefið út að hann sækist eftir formannsembættinu. Því verður þetta í fyrsta skiptið í átján ár sem barist verður um formannsembættið í Sjálfstæðisflokknum.

Verksmiðjustjóri rekinn vegna fréttaskýringaþáttar

„Ég hef ekkert um málið að segja," segir Haukur Jónsson fyrrverandi verksmiðjustjóri fiskimjölsverksmiðjunnar Eskju á Eskifirði en hann var rekinn úr starfi eftir að viðtal við hann birtist í sænskum fréttaskýringaþætti fyrir skömmu.

Vélsleðaslys: Þyrlu snúið við

Vésleðaslys varð norður í Öxarfirði rétt eftir hádegi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út en henni var snúið við eftir að læknir mat aðstæður að hennar væri ekki þörf.

Einar K Guðfinnsson efstur í prófkjöri

Talning í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NV kjördæmi hófst klukkan 9 í morgun. Nú er búið að telja 800 atkvæði eða um 27prósent samkvæmt fréttavefnum skessuhorn.is.

Stóreykur stuðning við sérstakan saksóknara

Fjármálaráðherrann, Steingrímur J. Sigfússon sagði í viðtali við Egil Helgason í Silfri Egils nú fyrr stundu að hann hygðist stórauka stuðning við embætti sérstaks saksóknara. Embættið hefur legiðundir gagnrýni um að vera fjársvelt og fáir sem starfa fyrir það en nú eru fjórir sem þar starfa. Frumvarp þess eðlis liggur fyrir inn á þingi að hans sögn.

Kristján Þór líklega í formannsframboð

Heimildarmenn Vísis innan úr Sjálfstæðisflokknum segja að þeir búist við þvi að Kristján Þór Júlíusson muni bjóða sig fram til formanns á Landsfundi flokksins um næstu helgi.

Súlukóngur styrkir Sjálfstæðisflokkinn

Súlukóngurinn Ásgeir Þór Davíðsson, eða Geiri á Goldfinger, eins og hann er iðullega kallaður, styrkti Sjálfstæðisflokkinn um þrjúhundruð þúsund krónur fyrir alþingiskosningarnar árið 2007. Það er hæsta mögulega upphæðin sem má gefa stjórnmálaflokki.

Kristján Þór hugsanlega í formannsslag

Sjálfstæðismaðurinn og þingmaður Norðausturkjördæmis, Kristján Þór Júlíusson hefur boðað til blaðamannafundar á Akureyri í dag þar sem hann mun kynna áform sín um forystukjör í Sjálfstæðisflokknum, eins og hann orðar það í tilkynningu.

Varar við rafvirkjum á barnalandi

Framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnurekanda í raf- og tölvuiðnaði, Ásbjörn R. Jóhannsson, varar við réttindalausum rafvirkjum sem auglýsa þjónustu sína á vefsvæðinu Barnaland.is, en grein um þetta mál ritar hann í Morgunblaðið í dag.

Fimm ára næstum drukknuð

Fimm ára stúlka var nær drukknuð í sundlauginni á Hellu síðdegis í gær en með snarræði tókst sundlaugagestum og starfsfólki laugarinnar að bjarga henni. Samkvæmt lögreglunni þá fannst stúlkan meðvitundarlaust á botni laugarinnar. Starfsfólk náði henni upp úr og tókst þeim að endurlífga stúlkuna.

Hellisheiðin fær

Búið er að opna Hellisheiðina eftir að þar var ófært, bæði vegna þriggja bíla áreksturs í gær, og óðveðurs.

Sjálfstæðisflokkur braut lög

Sjálfstæðisflokkur braut lög þegar hann veitti þrjú hundruð þúsund króna styrk frá Neyðarlínunni viðtöku. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir að honum hafi ekki verið kunnugt um að styrkveitingin væri lögbrot. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Segir viðbrögð vegna hvalveiði skaðleg þjóðinni

Fjármálaráðherra segir að viðbrögð bandarísku verslunarkeðjunnar Whole Foods Market við hvalveiðum Íslendinga sýni, að veiðarnar hafi skaðleg áhrif á hagsmuni þjóðarinnar. Meta þurfi hvort hvalveðum skuli haldið áfram.

Kostnaður einkaspítalans fellur ekki á skattborgara

Kostnaður við bráðaþjónustu myndi aldrei falla á íslenska ríkið segir hjúkrunarfræðingur hjá Salt sem hyggur á samstarf með Mayo Clinic í Reykjanesbæ. Hægt væri að hefja starfsemina í lok ársins.

Tekist á um sunnlenska orku

Sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi halda kjördæmisþing á Hótel Selfossi í dag og hófst þingið klukkan 13. Samkvæmt heimildum Sunnlendings.is hyggjast sjálfstæðismenn í Árnessýslu bera fram tillögu á þinginu þess efnis að virkjuð orka á Suðurlandi verði nýtt til atvinnuuppbyggingar á Suðurlandi en ekki annarsstaðar. Á þinginu mun kjörnefnd jafnframt kynna tillögu að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi vegna komandi kosninga til Alþingis.

Skíðasvæði víða opin

Skíðasvæðið á Siglufirði opnar klukkan tíu og verður opið til fjögur. Vindurinn er hægur og veðrið milt. Þá er skíðasvæðið í Tindastól einnig opið til kl 17 í dag.

Þriggja bíla árekstur á Hellisheiðinni

Færðin á hellisheiðinni snarversnaði nú síðdegis með skyndilegri snjókomu en fyrir tæplega hálftíma síðan varð þriggja bíla árekstur við Kambana.

Íslensk yfirvöld geta kyrrsett eignir á aflandseyjum

Í nýrri skýrslu sem Arnar Jensson, tengiliður Ríkislögreglustjóra við Europol, sendi frá sér í dag, kemur fram að íslensk yfirvöld séu nú í samstarfi við sérstaka skrifstofu Europol sem aðstoðar samstarfslöndin viða að hafa uppi á ávinningi afbrota, kyrrsetja/haldleggja hann og undibúa upptökukröfur.

Ungir Framsóknarmenn fengu styrk Valgerðar

„Þessu styrkur var fyrir norræna ráðstefnu ungs fólks sem Samband ungra Framsóknarmanna áttu aðild að, en styrkurinn var í gegnum þá," segir Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum utanríkisráðherra, en í skýrslu ríkisendurskoðunar um fjárframlög til stjórnmálaflokka kemur fram að utanríkisráðuneytið hafi styrkt Framsóknarflokkinn um nítíu þúsund krónur. Þá gegndi Valgerður stöðu utanríkisráðherra.

Aldís fannst látin

Aldís Westergren fannst látin í Langavatni í dag. Lögreglan og hjálparsveitir voru búnir að leita á svæðinu áður, en vegna betra færis þá fannst hún í dag.

Utanríkisráðherrann Valgerður styrkti eigin flokk

Utanríkisráðuneytið styrkti Framsóknarflokkinn um nítíu þúsund krónur árið 2006 samkvæmt gögnum Ríkisendurskoðunar um fjárframlög til stjórnmálaflokka. Þá var Framsóknarkonan Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra en hún gengdi því embætti frá 2006-2007.

Meðstjórnendur kosnir hjá VG

Kosning til meðstjórnanda á flokksþingi Vinstir grænna var að ljúka. Greidd voru 251 atkvæði og náðu eftirtaldir félagar kjöri sem aðalmenn í stjórn flokksins:

Neyðarlínan var í meirihlutaeigu ríkisins

Neyðarlínan var ekki orðinn opinbert hlutafélag þegar Sjáfstæðisflokkurinn falaðist eftir framlagi til flokksins en félagið var hinsvegar í meirihlutaeigu ríkisins.

Neyðarlínan styrkti Sjálfstæðisflokkinn

Opinbera hlutafélagið Neyðarlínan ohf greiddi Sjálfstæðisflokknum þrjúhundruð þúsund krónur í framlag til kosningabaráttu flokksins fyrir síðustu kosningar. Hámarks framlag til stjórnmálaafls eru þrjú hundruð þúsund krónur. Athygli vekur að ríkissjóður á 73,6 prósent í Neyðarlínunni, restin skiptist á milli Reykjavíkurborgar, Landsvirkjunnar og Orkuveitu Reykjavíkur.

Steingrímur endurkjörinn formaður

Steingrímur Jóhann Sigfússon var endurkjörinn sem formaður Vinstri grænna en hann hefur gegnt embættinu frá stofnun flokksins.

Grunaður um fíkniefnaakstur og þjófnað

Einn karlmaður var handtekinn á Suðurnesjum grunaður um lyfjaakstur í nótt. Lögreglan færði manninn á lögreglustöðina þar sem þvag- og blóðprufa voru teknar úr manninum. Í ljós kom að í bifreið mannsins mátti einnig finna þýfi.

Ekki fleiri mótmælafundir - í bili

Raddir fólksins, sem hafa staðið fyrir mótmælafundum á Austurvelli í allan vetur, eða síðan 11. október, boða hér með hlé á fundunum um óákveðinn tíma. Enginn fundur verður því á Austurvelli á morgun, laugardaginn 21. mars.

Sjálfstæðisflokkur og Samfylking ekki á leið í samstarf

Geir H. Haarde segir að langt sé í að Sjálfstæðisflokkur og Samfylking fari aftur saman í samstarf. Þetta kom fram í spjalli Geirs við Sölva Tryggvason á Skjá einum nú í kvöld. Geir sagðist biðjast afsökunar á öllum þeim mistökum sem hann hefur gert. Hann gæti hinsvegar ekki beðist afsökunar á mistökum annarra.

Samfylkingin stendur vel þrátt fyrir tap

Samfylkingin tapaði mest allra stjórnmálaflokka á árinu 2007 eða um 90 milljónum króna. Skúli Helgason fyrrum framkvæmdarstjóri flokksins segir tapið skiljanlegt þar sem rekstur stjórnmálaflokka sé nokkurskonar vertíðarbúskapur. Á kosningaári eyði flokkarnir en noti hin til þess að safna fé. Hann segir Samfylkinguna hafa náð að greiða allar sínar kosningaskuldir frá árinu áður sem sé einsdæmi.

Nauðsynlegt að dreifa áhættu af orkusölu

Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna telja ljóst af endurskoðunarskýrslu við ársreikning 2008 að nauðsynlegt sé að dreifa mun betur áhættu af orkusölu til stóriðju.

Varast skal pólitískar stöðuveitingar

Í skýrslu Endurreisnarnefndar Sjálfstæðisflokksins sem birt var í dag segir að flokknum hafi verið legið á hálsi að hafa staðið fyrir pólitískum stöðuveitingum. Því verði flokkurinn að taka af skarið og heita því og sjá til þess að opinberar stöðuveitingar verði ákveðnar á faglegum og hlutlægum grundvelli. Þá segir að Sjálfstæðisflokkurinn hefði átt að beita sér fyrir því að skera á tengsl stjórnmálaflokka, ríkisstofnana og viðskiptabanka.

Björgvin skipar efsta sætið í Suðurkjördæmi

Kjördæmisþing Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi samþykkti framboðslista sinn fyrir komandi kosningar til Alþingis á fundi sínum í kvöld. Björgvin G. Sigurðsson skipar efsta sæti listans en athygli vekur að Lúðvík Bergvinsson þingmaður er í tuttuguasta sæti listans. Á listanum eru jafn margar konur og karlar og hlutfall kynjanna er líka jafnt í 10 efstu stætunum og í þeim 10 neðstu.

Rætt um að krónubréf fari í mannvirkjagerð

Viðræður standa yfir við erlenda eigendur krónubréfa um að hluta þeirra verði umbreytt í fjárfestingar í orkuverum og samgöngumannvirkjum á Íslandi. Slíkir samningar gætu létt þrýstingi af krónunni og um leið stuðlað að umfangsmiklum framkvæmdum.

Ráðherra hefur spurningar um einkasjúkrahús

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra vill fá því svarað hvort íslenskir skattgreiðendur eigi að verða bakhjarl einkasjúkrahúss fyrir erlenda sjúklinga, sem áformað er á Suðurnesjum.

Sjá næstu 50 fréttir