Fleiri fréttir

Aðhyllist ekki pólitík reykfylltra bakherbergja - hættur í framsókn

Rithöfundurinn Þráinn Bertelsson segist ekki aðhyllast pólitík reykfylltra bakherbergja og hefur ákveðið að draga framboð sitt fyrir Framsóknarflokkinn sinn til baka. Hann er einnig búinn að segja sig úr flokknum. Þráinn ætlaði að bjóða sig fram í prófkjöri í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar en nú er hefur komið í ljós að stilla á upp lista í kjördæminum.

Hættir við formannsframboð hjá frjálslyndum

Guðrún María Óskarsdóttir hefur ákveðið að draga framboð sitt til formanns í Frjálslynda flokknum til baka af persónulegum ástæðum. Guðrún hafði lýst því yfir að hún hygðist bjóða sig fram til formanns fyrir skömmu.

Listamaður vill á lista VG

Árni Björn Guðjónsson býður sig fram á lista VG í Reykjavik suður eða norður í kosningunum 25 april2009. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Árna í kvöld.

Sækist ekki eftir endurkjöri - vill sjá uppstokkun

Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar, sækist ekki eftir endurkjöri í komandi kosningum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Gunnari nú í kvöld. Hann segir atburði síðustu mánaða og vikna kalla fram uppgjör í stjórnmálum og víðtæka umræðu um uppstokkun og aukið lýðræði.

Engum alikálfi slátrað á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins

Jón Magnússon sem verið hefur utan flokka eftir að hann sagði skilið við Frjálslynda flokkinn gekk í dag til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann segir engum alikálfi hafa verið slátrað á þingflokksfundi í dag þegar endurkoma hans var tilkynnt en Jón var áður varaþingmaður flokksins.

Bjóða fram aðstoð í Icesave deilu

InDefence hópurinn fagnar umræðum á Alþingi Íslendinga um þá ákvörðun bresku ríkisstjórnarinnar um að beita hryðjuverkalögum gegn Íslendingum þann 8. október 2008. Þessi afdrifaríka aðför að íslensku samfélagi kom okkur gersamlega í opna skjöldu og breytti erfiðri stöðu í efnahagslegt hrun.

Býður borginni samgöngumiðstöð

Samgönguráðherra býður borgarstjóra nýja samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli sem framlag til atvinnusköpunar og hvetur til þess að sett verði í fluggír og framkvæmdir hefjist á árinu.

Margrét býður sig fram í 3.sæti hjá VG

Margrét Pétursdóttir verkakona býður sig fram í 3. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs í Suðvesturkjördæmi. Margrét er 42 ára Hafnfirðingur og hefur tekið þátt í bæjarmálum í Hafnarfirði frá síðustu sveitarstjórnarkosningum. Hún hefur setið í lýðræðis- og jafnréttisnefnd fyrir VG þar í bæ og setið í kjördæmastjórn Kragans og í flokksráði.

Skaða þjóðarhagsmuni vegna andúðar á stóriðju

Fyrrverandi og núverandi umhverfisráðherra voru sakaðir á Alþingi í dag um að skaða hagsmuni Íslands vegna andúðar á álverum með því að reyna ekki að viðhalda íslenska undanþáguákvæðinu í væntanlegum loftlagssáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Björn Jörundur: „Ég er miður mín“

Björn Jörundur Friðbjörsson tónlistarmaður segist hafa gert mistök þegar hann átti viðskipti við dæmdan fíkniefnasala fyrir tæpu ári síðan. Hann segir þetta ekki eiga við í dag og vonar að fólk sjái í gegnum fingur sér því lífið sé ekki alltaf eins frá degi til dags. Fíkniefnalögreglan hleraði fjögur símtöl sem Björn átti við fíkniefnasala sem dæmdur var héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Jón Magnússon genginn í Sjálfstæðisflokkinn

Jón Magnússon, sem kosinn var á þing fyrir Frjálslynda flokkinn, er genginn til liðs við Sjálfstæðisflokkinn á ný. Þetta var tilkynnt á þingflokksfundi sjálfstæðismanna síðdegis.

Nova styður Björn Jörund

Liv Bergþórsóttir forstjóri farsímafyrirtækisins Nova segir að fyrirtækið styðji Björn Jörund Friðbjörnsson í því að feta rétta braut í lífinu. Fyrirtækið harmar einnig að hann hafi flækst inn í mál sem þetta.

Sprengjugengið leikur lausum hala á laugardaginn

Efnafræðingar við Háskóla Íslands, sem ganga undir nafninu Sprengjugengið, munu verða með efnafræðisýningu á heimsmælikvarða í Háskólabíó á næstkomandi laugardag þann 21. febrúar.

Dómur endurbirtur: Nafn Björns Jörundar fjarlægt

Dómurinn yfir Þorvarði Davíð Ólafssyni hefur verið birtur aftur á vefsíðu Héraðsdóms Reykjavíkur, en hann var fjarlægður af vefnum fyrr í dag. Í dómnum mátti lesa nákvæmt endurrit samtals Björns Jörundar Friðbjörnssonar við Þorvarð sem fíkniefnadeild lögreglunnar hleraði.

Eiturefnaleki í Grindavík

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu vinnur nú að sýnatöku úr eiturefnagámi í Grindavík. Ekki er vitað hvaða eiturefni eru í gámnum en það rýkur töluvert úr efnunum að sögn slökkviliðsins í Grindavík.

Bubbi í áfalli vegna Björns

Bubbi Morthens er í áfalli eftir að hann heyrði af tengslum Björns Jörundar Friðbjörnssonar við fíkniefnasalann Þorvarð Davíð Ólafsson. Í morgun féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir Þorvarði þar sem fram kom að Björn Jörundur hafi átti í einhverskonar viðskiptum við hann.

Skiptar skoðanir um kynjahlutföll innan Samfylkingar

Fulltrúaráð Samfylkingarinnar í Reykjavík hafnaði tillögu um að kjósa þyrfti jafnan hlut kynjanna í prófkjöri. Tillagan var lögð fyrir á fundi sl. mánudag. Sama dag sendi Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félagsmálaráðherra og samfylkingarkona bréf til forsvarsmanna stjórnmálaflokkanna með tilmælum um að tryggja jafnræði kynjanna við uppröðun á listum fyrir komandi alþingiskosningar.

Sorgleg ákvörðun græns ráðherra

Árni Finnsson formaður Náttúrverndarsamtaka Íslands segir það sorglegt fyrir Vinstri græna að fyrsta ákvörðun formanns flokksins í stóli sjávarútvegsráðherra sé að leyfa veiðar á hval í stórum stíl.

Framleiðendur Idols: Mál Björns Jörundar til skoðunar

„Við erum með málið til skoðunar," segir Þór Freysson framleiðandi Idolsins varðandi mál Björns Jörundar Friðbjörnssonar sem flæktist inn í fíkniefnadóm sem féll yfir kókaínsala fyrr í dag. Í dómsorði mátti lesa endurrit af símtali Björns Jörundar við Þorvarð Davíð Ólafsson, sem var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir fíkniefnasölu, líkamsárásir og vopnalagabrot.

Borgarbúar hvattir til að ganga að göflunum

Skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu um hugmyndaleit um leiðir til að gæða gafla miðborgarinnar lífi. Skipulagsstjóra hefur verið falið að undirbúa hugmyndaleitina meðal almennings og er ætlunin að finna leiðir til að gæða gafla miðborgarinnar lífi.

Ætlar ekki að afturkalla ákvörðun um auknar hvalveiðar

Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra tilkynnti í dag að ákvörðun um hvalveiðar sem tekin var af fyrirrennara hans verði ekki afturkölluð á yfirstandandi ári. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem hann hélt í dag.

Dómur yfir kókaínsala hvarf

Dómur sem féll yfir Þorvarði Davíði Ólafssyni og birtist á vef héraðsdóma datt út af vefnum. Eins og Vísir greindi frá þá mátti finna þar endurrit af samtölum Þorvarðar við einstaklinga og þar á meðal Idoldómarann Björn Jörund Friðbjörnsson.

108 óku of hratt á Miklubraut á einum klukkutíma

Brot 108 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, að Rauðarárstíg. „Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 971 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11 prósent, of hratt eða yfir afskiptahraða,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.

Skráðum umferðarslysum fækkar milli ára

Skráðum umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði talsvert árið 2008 miðað við árið 2007. Þetta kemur fram í ársskýrslu umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en um bráðabirgðatölur er að ræða.

15 þúsund vinnustundir á hálendinu

Sjálfboðaliðar björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar létu í té rúmlega 15.000 vinnustundir í aðstoð við ferðalanga á hálendinu sl. sumar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem gerð hefur verið um verkefnið Björgunarsveitir á hálendinu.

Idoldómari flæktur í kókaínmál

Fíkniefnasalinn Þorvarður Davíð Ólafsson var dæmdur í átján mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tvær líkamsárásir og fíkniefnasölu. Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hljóðritaði samtöl Þorvarðs við viðskiptavini sína og eru þau birt óritskoðuð í dómnum.

Seðlabankastjórum verður fækkað í einn

„Ég á ekki von á að það verði breyting á þeim grundvallaratriðum frumvarpsins að fækka seðlabankastjórum úr þremur í einn og koma á fót peningastefnunefnd," segir Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis.

Ekki ástæða til að gera meira í ummælum forsetans

Formaður utanríkismálanefndar Alþingis, Árni Þór Sigurðsson, telur ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna ummæla forsetans í þýskum fjölmiðlum um að innistæður sparifjáreigenda þar í landi hjá Kaupþingi séu tapaðar. Nefndin fundaði um málið í morgun og fór yfir skýrslu frá forsetaembættinu um málið.

Tapaði meiðyrðamáli vegna meintra rassskella

Reykjavíkurborg og aðstoðarskólastjóri Vinnuskóla Reykjavíkur voru sýknuð af meiðyrðarkröfu rúmlega fimmtugs manns vegna uppsagnarbréfs í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Maðurinn hafði verið sakaður um kynferðislega áreitni sem leiðbeinandi í vinnuskólanum árið 2005. Þá var því haldið fram að hann hafi átt til að snerta stúlkur á óæskilegum stöðum til þess að koma þeim af stað til vinnu, til að mynda með því að rassskella þær. Þá var hann jafnframt sakaður um að hafa ýtt undir rassinn á nokkrum stúlknanna þar sem þær voru að klifra á Ásmundarsafni í fræðsluferð sumarið 2003.

Ráðherra vill reglur sem tryggja jöfn kynjahlutföll á framboðslistum

„Brýnt er að stjórnmálaflokkarnir móti sér reglur er tryggi að hlutur kynjanna á framboðslistum verði sem jafnastur, ekki síst í þeim sætum sem gera má ráð fyrir að skili frambjóðendum inn á þing, segir í bréfi sem Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félagsmálaráðherra hefur sent formönnum stjórnmálaflokkanna vegna komandi þingkosninga.

Lögreglan stöðvaði kannabisræktun

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust allnokkrar kannabisplöntur. Þá var jafnframt lagt hald á gróðurhúsalampa.

Friðarsúlan lýsir á afmæli Yoko

Kveikt verður á friðarsúlunni í Viðey um sólsetur í dag og mun hún lýsa til morguns. Tilefnið mun vera 76 ára afmælisdagur listakonunnar og friðarsinnans Yoko Ono, sem færði Íslendingum friðarsúluna að gjöf haustið 2007.

Ólína vill forystusæti í norðvesturkjördæmi

Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur og fyrrverandi skólameistari hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað tveggja forystusæta Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar.

Haukur sækist eftir fjórða sæti í Kraganum

Haukur Þór Hauksson, viðskiptafræðingur í Garðabæ, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Mun hann sækjast eftir 4. sæti framboðslistans.

Einn á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur

Einn maður slasaðist og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild, þegar þrír bílar lentu í árekstri í flughálku, rétt ofan við Kamba á Suðurlandsvegi um klukkan hálfátta í morgun. Aðrir meiddust minna. Nánari tildrög liggja ekki fyrir en hálkan virðist hafa komið ökumönnunum í opna skjöldu.

Berserkir á fíkniefnum fóru ránshendi um Akranes

Tveir ungir menn undir áhrifum fíkniefna gengu berserksgang á Akranesi í nótt. Þeir brutu rúður í bílum, vinnuvélum og atvinnuhúsum og brutust svo inn í vinnuskúr. Þar stálu þeir ýmsu lauslegu og voru með það í stórum ruslapokum þegar lögregla hafði hendur í hári þeirra.

Haldið sofandi eftir gassprenginguna

Ungi maðurinn, sem brenndist alvarlega í gassprengingu í gömlu íbúðarhúsi á Akureyri í gærmorgun, var í gær fluttur á sjúkrahús í Reykjavík þar sem honum er haldið sofandi. Hann hefur ekki verið yfirheyrður þannig að málsatvik liggja ekki fyrir. Tuttugu og sex gaskútar reyndust vera í húsinu og eru þeir að líkindum allir þýfi. Talið er að húsið sé ónýtt.

Kjarnfóður lækkar í verði

Stærstu innflytjendur kjarnfóðurs til landsins, Bústólpi og Lífland, hafa lækkað verð á kjarnfóðri um tvö til fimm prósent. Bændur segja þetta kærkomin tíðindi sem slái aðeins á þörf fyrir hækkun á landbúnaðarafurðum.

Töluverð umræða um afnám eftirlaunalaga

Töluverð umræða varð um afnám eftirlaunalaganna sem Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra mælti fyrir á Alþingi í gærkvöldi. Samkvæmt því eiga æðstu embættismenn og Alþingismenn að njóta sömu eftirlaunakjara og aðrir opinberir starfsmenn, en ekki forréttinda eins og núna.

Íbúðaverð enn á niðurleið

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um 3,2 prósent á þremur mánuðum í krónum talið, en mun meira ef hliðsjón er höfð af verðbólgunni í landinu.

Ekki frumvarp um að reka mig segir Davíð

Ný lög um Seðlabankann ættu ekki að verða til þess að starf bankastjóra yrði auglýst, segja sitjandi bankastjórar. Þeir gagnrýna mjög seðlabankafrumvarpið.

Hélt að hætt hefði verið við framsóknarboð Óskars

Svandís Svavarsdóttir oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn segist hafa gert athugasemdir í forsætisnefnd við fyrirhugaða móttöku Óskars Bergssonar fyrir sveitastjórnarfulltrúa framsóknarflokksins. Hún lét hinsvegar ekki bóka neitt um málið og hélt að af mótökunni yrði ekki. Aðspurð um svipaða móttöku sem hennar flokkur hélt árið 2004 segist Svandís ekki hafa átt sæti í borgarstjórn á þeim tíma en segir að skerpa þurfi á reglum um móttökur á vegum borgarinnar.

Sjá næstu 50 fréttir