Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Efins um rannsókn Seðlabanka „Ég ætla strax á morgun [í dag] að hafa samband við Steingrím J. Sigfússon og fara yfir þetta með honum. Það er ekkert leyndarmál að ein af ástæðum þess hversu veikt við stöndum núna er þetta þekkingarleysi á vanskilum heimila, sem er í stofnunum eins og Seðlabankanum. Þar eru ekki þau tæki og tól sem þarf til að gera svona, hvað þá á tveimur mánuðum," segir Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, sem heldur meðal annars utan um vanskilaskrá. 16.2.2009 02:30
Endurskoðar áform um Suðurlandsveg Samgönguráðherra hefur ákveðið að endurskoða áform um að Suðurlandsvegur yfir Hellisheiði verði fjögurra akreina. Hann vill hins vegar hafa kaflann milli Hveragerðis og Selfoss tvo plús tvo veg og byrja á honum. 15.2.2009 20:15
Opinn borgarafundur í Háskólabíói Annað kvöld fer fram borgarfundur í Háskólabíói. Yfirskrift fundarins er: Staðan - Stefnan - Framtíðin. Frummælendur verða Haraldur L. Haraldsson hagfræðingur, Andrés Magnússon geðlæknir og Aðalheiður Ámundadóttir laganemi. 15.2.2009 21:15
Jón Baldvin ekki kjörinn í póstkosningu Ljóst er að Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, verður ekki kjörinn formaður Samfylkingarinnar í póstkosningu bjóði hann sig á annað borð fram. Samkvæmt lögum flokksins er hann of seint á ferðinni með framboðshugleiðingar sínar til að svo megi verða, en hann getur boðið sig fram á landsfundi flokksins í mars. 15.2.2009 20:45
Staðgöngumæðrun til skoðunar í vinnuhóp Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, hefur skipað vinnuhóp sem kemur saman eftir helgi til að skoða siðfræðileg, lögfræðileg og læknisfræðileg álitaefni varðandi staðgöngumæðrun og hvort leyfa eigi staðgöngumæðrun hér á landi. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. 15.2.2009 19:57
St. Jósefsspítali starfar áfram í núverandi mynd Heilbrigðisráðherra ætlar að snúa við ákvörðun Guðlaugs Þórs Þóraðarsonar, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, um að leggja niður St. Jósefsspítala í núverandi mynd. 15.2.2009 18:29
Ingibjörg verður að fara að ákveða sig Yfirlýsingar Jóns Baldvins Hannibalssonar í gær skaða ekki Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, að mati Einars Mars Þórðarsonar stjórnmálafræðings. Hann telur að Ingibjörg verði að gera það fljótt upp við sig hvort hún ætli að halda áfram. 15.2.2009 19:30
Uppboðum Íbúðalánasjóðs hefur fjölgað verulega Miklu fleiri heimili eru illa stödd fjárhagslega nú en fyrir nokkrum mánuðum. Uppboðum hjá Íbúðalánasjóði hefur fjölgað verulega. 15.2.2009 19:30
Bresk stjórnvöld fái Icesave í hausinn Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur segir það afglöp íslenskra stjórnvalda að hafa ekki nú þegar krafist þess að ólöglegar aðgerðir Breta gegn Íslendingum hafi um leið fært skuldbindingar vegna Icesave-reikninganna yfir á þá. Þá telur hann raunhæft að leita samninga við Evrópusambandið um að það baktryggi íslensku krónuna með tengingu við evru. 15.2.2009 19:06
Soffía sækist eftir 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins Soffía Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs og framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Austurlandi, hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar í vor. 15.2.2009 19:25
ORA vísar fullyrðingum um fiskibollur á bug Vegna fréttar okkar þar sem fyrrverandi framleiðslustjóri ORA sagði að fyrirtækið væri vísvitandi að blekkja neytendur um uppruna vöru sinnar sendi ORA frá sér yfirlýsingu þar þessum fullyrðingum er algjörlega vísað á bug. 15.2.2009 19:04
Skotinn í Skallagrími Jón Baldvin Hannibalsson biðlar til Vinstri grænna um framhald stjórnarsamstarfs og kveðst vera pólitískt skotinn í Skallagrími. Vinstri grænir verði hins vegar að átta sig á því að Evrópusambandið sé hluti af lausninni. 15.2.2009 18:55
Alfreð byggir brýr Fundur Alfreðs Þorsteinssonar og Davíð Oddssonar í Seðlabankanum fyrir helgi hefur vakið upp spurningar um hvort áhrifamenn í Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki ræði nú saman um endurnýjað ríkisstjórnarsamstarf eftir kosningar. Eru menn ekki alltaf í brúarsmíði, spyr Alfreð þegar hann er spurður um fundinn með Davíð. 15.2.2009 18:47
Óskar stýrir fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis áfram Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, segir að Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttatjóri Stöðvar 2 og Vísis, hafi fallist á ósk fyrirtækisins um að draga til baka uppsögn sína úr starfi. 15.2.2009 18:14
Seðlabankafrumvarpið er frumvarp um að reka Davíð Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að rangnefni að kalla Seðlabankafrumvarp ríkisstjórnainnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands. „Þetta er bara frumvarp um að reka Davíð Oddsson. Svo einfalt er það,“ segir Einar á pistli á heimasíðu sinni. Einar segir að frumvarpið sé illa unnið. Um það deili enginn. 15.2.2009 17:35
Frambjóðandi segir tilkynningar VR villandi Kristinn Örn Jóhannesson, formannsframbjóðandi í VR, harmar vinnubrögð núverandi formanns og trúnaðarmanna sem hann segir að sendi frá sér tilkynningar um gölluð mótframboð sem erfitt sé að skilja. 15.2.2009 17:30
Lyfjanotkun beint í ódýrari lyf - milljarður sparast Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, hefur gefið út reglugerð sem hefur í för með sér umtalsverðar breytingar á niðurgreiðslum vegna lyfjakostnaðar sjúklinga. Lögð er áhersla á að beina lyfjanotkun í ódýrari lyf. Ögmundur telur að lyfjakostnaður allra barnafjölskyldna muni lækka. Aðgerðir hans gera ráð fyrir að lyfjaútgjöld sjúkratrygginga lækki um milljarð miðað við heilt ár. 15.2.2009 17:06
Enn er þoka á Hellisheiði Enn er þoka á Hellisheiði en vegir eru víðast hvar auðir á Suðurlandi. Þó eru sumstaðar hálkublettir á útvegum og raunar er flughált er á Grafningsvegi. 15.2.2009 16:56
Björn: Þagnarmúr um formannssæti rofinn Framganga Jóns Baldvins verður líklega til að skapa enn meira los innan forystusveitar Samfylkingarinnar, að mati Björn Bjarnasonar fyrrverandi ráðherra. Björn segir í pistli á heimasíðu sinni að með yfirlýsingum sínum í gær hafi Jón Baldvin gefið flokksmönnum leyfi til að ræða um formennsku og forystu Ingibjargar Sólrúnar á annan veg en áður. 15.2.2009 16:47
Paul sækist eftir 1.-3. sæti hjá VG Paul Nikolov, varaþingmaður, hefur ákveðið að sækjast eftir fyrsta til þriðja sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar – Græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmunum sem fer fram þann 7. mars. 15.2.2009 16:18
Jón Baldvin reyni á styrk sinn í prófkjöri Ungir jafnaðarmenn lýsa yfir óskoruðum stuðningi við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem formann Samfylkingarinnar. Tilefni yfirlýsingarinnar eru orð Jóns Baldvins Hannibalssonar um að hún ætti ekki að gefa kost á sér áfram. 15.2.2009 16:08
Tekist á um ályktun sjálfstæðismanna á Selfossi Sjálfstæðismenn á Selfossi takast á um ályktun sem stjórn sjálfstæðisfélagsins Óðins í bæjarfélaginu sendi frá sér í gær. Þar var skorað á nýja frambjóðendur að gefa kost á sér í prófkjöri flokksins í Suðurkjördæmi sem fer fram 14. mars. Almenn og víðtæk krafa um breytingar og lýðræðislegar umbætur kalli á endurnýjun á framboðslistum. 15.2.2009 15:39
Vestmannaeyingar skora á Steingrím Bæjarráð Vestmannaeyja kom saman í dag á aukafundi til að fjalla um loðnuveiðar. Ráðið skorar á Steingrím J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að gefa tafarlaust út 30 til 50 þúsundtonna upphafskvóta í loðnu. 15.2.2009 15:27
Ísaksskóli grýttur Lögregla var kölluð að Ísaksskóla í Bólstaðahlíð í hádeginu þar sem tveir drengir höfðu gert sér að leik að kasta grjóti í skólann. Rúða brotnaði í atganginum. Ekki er vitað hvað drengjunum gekk til. 15.2.2009 14:07
Gunnar vill 2. sæti VG í Reykjavík Gunnar Sigurðsson, stjórnmálafræðingur, hefur ákveðið að óska eftir öðru sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar -græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmunum sem fram fer 7. mars. Hann starfaði sem kosningastjóri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi vorið 2007. 15.2.2009 13:53
Fá frest til að leggja fram fullgildan framboðslista Lúðvík Lúðvíksson frambjóðandi til formanns VR og 82 félagsmenn sem gáfu kost á sér í trúnaðarráð VR frá frest til þriðjudags til að lagfæra ágalla og leggja fram fullgildan framboðslista. Þetta kemur fram í úrskurði kjörstjórnar. Trúnaðarráð VR unir niðurstöðunni. 15.2.2009 13:46
Íslendingar erlendis vilja vera á kjörskrá Íslendingar búsettir erlendis vilja að Alþingi setji bráðabirgðalög sem geri þeim kleyft á að komast á kjörskrá fyrir þingkosningarnar í apríl. Íslendingar búsettir erlendis þurfa að sækja um fyrir 1. desember að verða teknir á kjörskrá til að viðkomandi geti öðlast kosningarrétt við alþingiskosningar og forsetakjör sem efnt yrði til fram að næsta 1. desember. 15.2.2009 13:28
Hefur ekki tekið ákvörðun um formannsframboð Kristján Þór Júlíusson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, hefur ekki tekið ákvörðun um formannsframboð eða til annarra forystustarfa í flokknum. Nýr formaður verður kjörinn á landsfundi flokksins sem fer fram dagana 26. til 29. mars. Kristján Þór er meðal þeirra sem nefndir hafa verið sem hugsanlegir eftirmenn Geirs H. Haarde sem formaður flokksins. Enn sem komið er hefur Bjarni Benediktsson einn tilkynnt um framboð sitt. 15.2.2009 13:14
Gefur kost sér í prófkjöri Sjálfststæðiflokksins í Reykjavík Valdimar Agnar Valdimarsson hefur ákveðiða að bjóða sig fram í 7. sæti prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fer fram 13. og 14. mars næstkomandi. 15.2.2009 12:52
Þúsundir flutt á brott vegna eldgoss Hafist var handa við það í nótt að flytja á brott um átta þúsund manns frá bænum Pasto í suðurhluta Kólumbíu eftir að eldgos hófst í fjallinu Galeras. 15.2.2009 12:29
Öldungar hafa gefist vel, segir Jón Baldvin Jón Baldvin Hannibalsson segir að framundan sé stríð upp á líf og dauða um örlög þjóðarinnar. Hann segist tilbúinn að gefa kost á sér til forystu og vitnar í Bryndísi þegar hann segist vera við hestaheilsu. 15.2.2009 12:03
Varað við flughálku Vegagerðin varar við flughálku á Vatnskarði, Sauðárkróksbraut og upp Norðurárdal. Vegfarendur eru beðnir um að fara sérstaklega varlega. Hálka og hálkublettir eru víðsvegar um landið. 15.2.2009 11:59
Fyrsta loðnan til Norðfjarðar Börkur NK er væntanlegur til Neskaupstaðar nú klukkan tvö með þúsund tonna loðnufarm, en þetta er fyrsta loðnan sem þangað berst á þessari vertíð. Loðnan var veidd út á takmarkaðan rannsóknakvóta en skipstjórar í Eyjum krefjast þess í kjarnyrtri ályktun að stjórnvöld heimili nú þegar almennar loðnuveiðar. 15.2.2009 11:57
Gagnrýna forystu Frjálslynda flokksins harðlega ,,Það virðist sem forysta flokksins skorti áhuga á að stækka flokkinn, efla innra starf flokksins og hleypa nýju fólki að," segja Guðrún María Óskarsdóttir og Ásgerður Jóna Flosadóttir um forystu Frjálslynda flokksins í opnu bréfi til Guðjóns Arnars Kristjánssonar, formanns flokksins. Þær hafa gefið kost á sér sem formaður og varaformaður flokksins á komandi landsþingi. 15.2.2009 11:44
Fjölmiðlar unnu fyrir eigendur sína Sturla Böðvarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum forseti Alþingis, fullyrðir að eigendur fjölmiðla hafi stjórnað þeim og komið í veg fyrir óþægilega umfjöllun. Hann segir að svo virðist sem að fjölmiðlar hafi verið notaðir til að dreifa yfir margt af því sem átti sér stað í bönkunum. 15.2.2009 11:17
Átta nótaveiðiskip gulldepluveiðum Átta nótaveiðiskip eru nú á gulldepluveiðum á Reykjaneshrygg, Álfsey, Birtingur, Hoffell, Huginn, Jóna Eðvalds, Jón Kjartansson og Júpiter. Skipin eru flest 60 til 70 sjómílur suðvestur af landinu og voru tvö þeirra að kasta á torfur í morgun, Álfsey og Jón Kjartansson. 15.2.2009 10:15
Ríkisstjórnin láti af mannaveiðum - vilja loðnuveiðar strax Íslenskt þjóðfélag er á hausnum í orðsins fyllstu merkingu og það eina sem Ríkisstjórn Íslands hefur hugann við er allt annað en sjávarútvegur. Svo segir í ályktun stjórnarfundur Skipstjóra og- stýrimannafélagsins Verðanda í Vestmannaeyjum sem haldinn var í gær þar sem skorað er á ríkisstjórnina að láta hefja loðnuveiðar strax. Þar segir að fullmönnuð ríkisstjórn af fólki sem hafi ekki hundsvit á sjávarútvegi sé hneisa fyrir Ísland. Mörg hundruð milljónir séu að tapast á hverjum degi "meðan þið sem stjórnið landinu okkar vitið ekki að sjávarútvegurinn er það eina sem getur bjargað þessari þjóð frá gjaldþroti. 15.2.2009 10:04
Hálka um land allt Á Suðurlandi er þoka á Hellisheiði og sumstaðar eru enn hálkublettir á útvegum. Flughált er á Grafningsvegi, samkvæmt Vegagerðinni. 15.2.2009 09:56
Skíðasvæðin í Hlíðarfjalli og Tindastól opin Skíðasvæðin í Hlíðarfjalli og Tindastól verða opin í dag. Í morgun var logn og hiti við frostmark í Hlíðarfjalli en skíðasvæðið verður opið frá klukkan 10 til 16 15.2.2009 09:50
Rólegt víðs vegar um landið Lögreglan á Selfossi handtók mann á fimmta tímanum í nótt grunaðan um ölvun við akstur. Þá stöðvaði lögreglan á Ísafirði mann í nótt sem talinn var aka undir áhrifum fíkniefna. 15.2.2009 09:40
Eldar kveiktir við Lækjartorg - tveir handteknir Rúmlega 100 mótmælendur komu saman á Lækjartorgi í gærkvöldi með flautur og ýmis búsáhöld til að framkalla hávaða, að sögn lögreglu. Að auki var kveikt í bálköstum. 15.2.2009 09:15
Jóhanna Guðrún sigraði í Eurovision Í kvöld varð ljóst hvaða lag verður framlag Íslands í söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin verður í Moskvu 16. maí. Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sigraði með laginu Is it true eftir Óskar Pál Sveinsson. 14.2.2009 21:41
Formennska Jóns styrkti ekki Alþýðuflokkinn ,,Fyrr í vikunni ritaði ég grein í Morgunblaðið og rifjaði upp, að formennska Jóns Baldvins í Alþýðuflokknum styrkti ekki flokkinn, hann mældist með 5% fylgi, þegar hann skreið í skjól Samfylkingarinnar í kosningbandalagi árið 1999," segir Björn Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, á heimasíðu sinni. 14.2.2009 21:00
Jón stendur ekki fyrir endurnýjun - leiddi Sjálfstæðisflokkinn til valda Í ljósi forsögunnar ætti Jón Baldvin að láta Jóhönnu Sigurðardóttur um að tala fyrir sig sjálfa, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Hún telur að standi vilji Samfylkingarinnar til þess að endurnýja forystu flokksins þá standi Jón Baldvin ekki undir því. 14.2.2009 18:40
Mótmælendum hótað Nokkuð hefur borið á hótunum í garð þeirra sem hafa staðið framarlega í mótmælum hér á landi. Í síðustu viku var ráðist á konu á fimmtugsaldri en hún hafði það eitt til saka unnið að hafa tekið þátt í mótmælaaðgerðum gegn efnhagsástandinu. Þetta staðfesti Hörður Torfason, talsmaður Radda fólksins, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Ekki er vitað hverjir standa á bak við hótanirnar. 14.2.2009 20:15