Fleiri fréttir

Reynslulítill Framsóknarflokkur

Nú þegar Valgerður Sverrisdóttir hefur tilkynnt að hún ætli að hætta í stjórnmálum stendur eftir reynslulítill þingflokkur að Siv Friðleifsdóttur undanskilinni, að mati Ástu Möller þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hún bendir á að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sé ungur, með engan bakgrunn í stjórnmálum og hafi gengið í flokkinn skömmu fyrir formannskjörið.

Ómar boðaði fagnaðarerindið á Klörubar

Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, reifaði skoðanir sínar á þjóðmálunum og þá sér í lagi til náttúruverndar á fjölmennum fundi á Klörubar á Kanaraí fyrr í dag. Á annað hundrað manns komu saman til að hlýða á Ómar og beindu fjölmargir spurningum til hans, þar á meðal varðandi atvinnumál og álversuppbyggingu.

Birna vill forystusæti hjá Sjálfstæðisflokknum

Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar og varaþingmaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1. – 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar í vor. Hún segir Sjálfstæðisflokkinn líkt og aðra flokka verða að axla ábyrgð á núverandi stöðu efnhagsmála þjóðarinnar.

Nokkur hundruð á Austurvelli

Nokkur hundruð manns komu saman á 19. mótmælafundi Radda fólksins á Austurvelli fyrr í dag. Elísabet Jónsdóttir ellilífeyrisþegi og Ágúst Guðmundsson leikstjóri ávörpuðu fundinn. Fundurinn fór friðsamlega fram og þurfti lögregla ekki að hafa afskipti af fundargestum.

Þátttaka á mörkum þess að vera fullnægjandi

Nýjar upplýsingar úr miðlægum bólusetningagrunni benda til þess að þátttaka í bólusetningu virðist vera á mörkum þess að vera fullnægjandi. Þetta kemur fram á vef Landlæknisembættisins. Þar kemur fram að bólusetning gegn mislingum, rauðum höndum og hettusótt skipti sköpum.

Rændi apótekið í Austurveri með sprautunál

Kona vopnuð hnífi og sprautunál ógnaði starfsfólki í Lyf og heilsu í Austurveri við Háaleitsbraut á fjóra tímanum í dag. Hún komst undan með eitthvað af lyfum, að sögn lögreglu sem barst tilkynning um ránið klukkan 15:24. Lögregla handtók skömmu síðar fólk sem talið er tengjast málinu.

Kynnir breytingar á niðurgreiðslu á lyfjum og lyfjakostnaði

Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, hyggst kynna á morgun tillögur sem fela í sér umtalsverðar breytingar á niðurgreiðslu lyfja, lyfjakostnaði barna og atvinnulausra. Þetta mun ráðherrann gera á fundi með blaðamönnum, að fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Jóhanna taki við af Ingibjörgu - útilokar ekki framboð til formanns

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, segir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eigi að víkja sem formaður Samfylkingarinnar og kveðst styðja Jóhönnu Sigurðardóttur til að taka við. Ef Ingibjörg víki ekki fyrir Jóhönnu kveðst Jón Baldvin reiðubúinn að bjóða sig fram sjálfur til forystu í flokknum. Þetta kom fram á fundi sem Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur, Samfylkingarfélag, hélt í Rúgbrauðsgerðinni við Skúlagötu í dag.

Framsóknarmenn halda prófkjör í Kraganum 7. mars

Á aukakjördæmisþingi framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi sem haldið var í dag var ákveðið að halda prófkjör þann 7. mars þar sem kosið verður í fimm efstu sætin á lista framsóknarmanna í kjördæminu fyrir komandi alþingiskosningar. Flokkurinn fékk einn mann kjörin í kosningunum vorið 2007.

Vilja landsbyggðarkonur á þing

,,Engin kona er þingmaður Samfylkingarinnar fyrir landsbyggðarkjördæmin þrjú. Þetta er staðreynd þrátt fyrir margyfirlýsta jafnréttisstefnu Samfylkingarinnar um að baráttan fyrir jafnrétti og kvenfrelsi sé órjúfanlegur hluti jafnaðarstefnunnar," segir í ályktun Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar.

Jafnréttisverðlaun KSÍ veitt í fyrsta sinn

Jafnréttisverðlaun Knattspyrnusambands Íslands voru veitt í fyrsta sinn í dag. 63. ársþing sambandsins fer fram um helgina. Tveir aðilar hlutu viðurkenninguna. Knattspyrnudeild ÍR fyrir verkefnið ,,Innan vallar sem utan" og Víðir Sigurðsson fyrir skrásetningu um sögu íslenskrar knattspyrnu.

Frambjóðendur í Norðvesturkjördæmi valdir með póstkosningu

Á aukakjördæmisþingi framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi sem haldið er í dag að Reykjum í Hrútafirði var samþykkt tillaga þess efnis að val í fjögur efstu sætin á framboðslista framsóknarmanna í kjördæminu vegna kosninga til Alþingis í vork skyldi fara fram með póstkosningu allra félagsmanna í kjördæminu.

Góð þátttaka á Vetrarhátíð

Safnanótt tókst með eindæmum vel og þátttaka hefur sennilega aldrei verið jafnmikil og lagði mikinn fjölda fólks leið sína á söfn borgarinnar og á sýningar og viðburði gærkvöldsins, samkvæmt Skúla Gautasyni hjá Höfuðborgarstofu.

Sjálfstæðisflokkurinn þarf tilfinningalegt svigrúm

,,Sjálfstæðisflokkurinn er í stjórnarandstöðu í fyrsta sinn í 18 ár og eðlilegt að hann þurfi tilfinningalegt svigrúm til að fóta sig í þeirri framandi stöðu," segir Skúla Helgason, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, í pistli á heimasíðu flokksins.

Tíu greindust með HIV-smit í fyrra

Á árinu 2008 greindust tíu manns með HIV-smit á Íslandi, sjö karlar og þrjár konur. Enginn greindist með alnæmi, lokastig sjúkdómsins. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum á vef Landlæknisembættisins.

Ósamið um áframhaldandi samstarf VG og Samfylkingar

Össur Skarphéðinsson, utanríkis- og iðnaðarráðherra, segir að forystumenn Vinstri grænna og Samfylkingar hafi ekki rætt áframhaldandi samstarf eftir kosningarnar í vor. Aftur á móti segir hann málið verði væntanlega rætt og kannað þegar nær dregur kosningum. Fjallað var um málið í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Þar er fullyrt að áhrifamenn í VG lýsi yfir áhuga á áframhaldandi samstarfi ríkisstjórnarflokkanna eftir kosningar. Sumir hafa jafnvel haft á orði að flokkarnir ættu að mynda kosningabandalag svo kjósendur vissu að hverju þeir gengju.

Valgerður hættir í stjórnmálum

Á kjördæmisþingi framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi, sem haldið er í Mývatnssveit í dag, lýsti Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og ráðherra, því yfir að hún gæfi ekki kost á sér á framboðslista flokksins í kjördæminu fyrir alþingiskosningarnar í vor. ,,Lýk ég þar með störfum á vettvangi stjórnmálanna," segir Valgerður á vefsíðu sinni.

Guðni gefur kost á sér fyrir Framsókn

Guðni Ragnarsson, búfræðingur og kúabóndi á Guðnastöðum, hefur ákveðið að kefa kost á mér í 4. sæti á lista framsóknarmanna í Suðurkjördæmi fyrir komandi þingkosningar.

Runólfur hættir hjá Keili - Guðfinna orðuð við stöðuna

Runólfur Ágústsson framkvæmdastjóri Keilis ætlar að láta af störfum í mars. Runólfur staðfesti þetta í samtali við fréttastofu í gær en hann mun hafa tilkynnt samtarfsfólki um ákvörðun sína í síðustu viku. Hann hefur verið framkvæmdastjóri háskólasamfélagsins Keilis frá stofnun þess en ekki hefur verið gengið frá ráðningu eftirmanns. Guðfinna Bjarnadóttir hefur verið orðuð við stöðuna en hún sagðist ekki hafa heyrt af því í samtali við fréttastofu.

Þinglýstir kaupsamningar þrefalt færri en í fyrra

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 39, um þrefalt færri en á sama tíma í fyrra. Fasteignamarkaðurinn hefur verið svo til frosinn síðustu mánuði og náði sögulegu lágmarki í lok síðasta árs þegar gerðir voru 13 kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu vikuna fyrir áramót.

Skíðasvæðið í Tindastól opið

Skíðasvæðið í Skíðasvæðið í Tindastól opnaði klukkan 11 og verður opið til 17. Mínus tvær gráður er á svæðinu og heiðskýrt. ,,Það er algjörlega frábært rennsli hér í dag," segir Viggó Jónsson og bætir við að hægt sé að sjá sjálvirka veðurstöð og myndavél sem uppfærist á 15 mín fresti á tindasoll.is/skidi.

Framsóknarmenn funda um framboðsmál

Framsóknarmenn halda aukakjördæmaþing í öllum kjördæmum landsins í dag. Á þeim mun hvert kjördæmi fyrir sig taka ákvörðun um hvernig staðið verði að vali á framboðslista framsóknarmanna vegna kosninga til Alþingis í vor.

Tólf tilnefndir til Blaðamannaverðlaunanna

Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna hefur komið sér saman um þrjár tilnefningar í hverjum af hinum þremur flokkum verðlaunanna. Tólf eru tilnefndir til verðlaunanna í ár. Meðal þeirra eru Sigrún Davíðsdóttir, Erla Hlynsdóttir og Sigurjón M. Egilsson.

Sjálfstæðismenn á Selfossi vilja breytingar

Sjálfstæðisfélagið Óðinn á Selfossi skorar á nýja frambjóðendur til þess að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Forsvarsmenn flokksins í kjördæminu telja að mikilvægt sé að það verði endurnýjun í forystu flokksins og þingmannaliði. Ljóst sé að þær breytingar nái ekki fram að ganga, nema nýtt fólk gefi kost á sér.

Opið í Hlíðarfjalli og á Siglufirði - lokað í Bláfjöllum

Veður er með besta móti til skíða- og snjóbrettaiðkunar norðanlands í dag eða logn, tveggja gráðu frost og farið er að glitta í blessaða sólina. Opið er í Hlíðarfjalli á Akureyri frá 10 til 16 og á skíðasvæðinu á Siglufirði frá 11 til 17. Þar efnir Brettafélag Íslands til snjóbrettakeppni og fjöldi fólks er þar saman kominn.

Nítjándi mótmælafundur Radda fólksins

Raddir fólksins halda mótmælafund á Austurvelli klukkan 15 í dag. Yfirskrift fundarins er sem fyrr - Breiðfylking gegn ástandinu. Þetta er nítjandi mótmælafundurinn í röð og krafan er sú að stjórn Seðlabankans víki.

Ók ölvaður á vegrið í Svínahrauni

Lögreglan á Selfossi handtók mann á fjórða tímanum í nótt grunaðan um ölvunarakstur eftir að hann ók á vegrið í Svínahrauni. Maðurinn gistir fangageymslu og verður rætt við hann síðar í dag.

Brotist inn í apótek í Langarima

Brotist var inn í apótek í Langarima í nótt og talsverðu magni lyfja stolið. Ræningjarnir komust undan. Fimm voru teknir grunaðir um ölvunarakststur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Að öðru leyti var nóttin róleg, að sögn lögreglu.

Ammóníakleki við Grandagarð

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út rétt fyrir klukkan átta í morgun vegna ammóníkleka í skipinu Lundey sem lá við gömlu höfnina í Grandagarði. Svæðinu var lokað í rúmlega hálfa klukkustund og þurfti að auki að loka veitingastaðnum Grandakaffi. Engin slys urðu á mönnum.

Um 600 manns voru á Hótel Loftleiðum þegar eldur kom upp

Hótel Loftleiðir var rýmt nú undir kvöld þegar að eldur kom upp á einu salerninu þar. Að sögn Eiríks Becks, öryggisstjóra á Hótel Loftleiðum, voru um 600 manns á hótelinu. Þar af 350 gestir, 200 í ráðstefnusal og auk þess nokkrir í veislusal og sundlaug.

Tvísýnt um alla blaðaútgáfu

„Það er alveg ljóst að það er tvísýnt um alla blaðaútgáfu á Íslandi í dag," segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla. Hann segist þó ekki sjá annað fyrir sér en að 365 miðlar haldi áfram rekstri Fréttablaðsins.

Eldur á salerni á Hótel Loftleiðum

Allt tiltækt lið slökkviliðsins var sent að Hótel Loftleiðum nú undir kvöld þegar eldur kviknaði á á salerni. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu eru slökkviliðsmenn að ná tökum á eldinum.

Vonbrigði að boði um umsögn bankans var hafnað

Það olli sjálfstæðismönnum í viðskiptanefnd vonbrigðum að boði Evrópska seðlabankans um að veita umsögn um frumvarp forsætisráðherra um Seðlabanka Íslands skyldi hafa verið hafnað. Þetta segir Birgir Ármannsson nefndarmaður í tilkynningu sem hann sendi fjölmiðlum.

Reynt að þoka samgöngumiðstöð áfram

Tillaga um helmingi minni samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli en áður var áformað er nú til umræðu hjá flugmálayfirvöldum með það að markmiði að koma framkvæmdum í gang þegar í haust.

Lýsa vonbrigðum vegna fyrirhugaðra hvalveiða Íslendinga

Sendiherrar sex vestrænna ríkja rituðu Steingrími J. Sigfússyni bréf í dag þar sem lýst er vonbrigðum vegna þeirrar ákvörðunar Einars K. Guðfinnssonar, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, að gefa út kvóta fyrir 150 langreyði og

Auður sækist eftir sæti á lista VG í Reykjavík

Auður Lilja Erlingsdóttir hefur ákveðið að sækjast eftir öðru til þriðja sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmunum sem fer fram 7. mars næstkomandi.

Sveitastjóri hyggur á þingframboð

Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Rangárþingi eystra og varaþingmaður, gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Hún óskar eftir stuðningi í 2. sæti í prófkjörinu. Unnur Brá er 34 ára gömul og er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands en auk þess hefur hún stundað nám í opinberri stjórnsýslu (MPA).

Ólöf Nordal vill þingsæti í Reykjavíkurkjördæmi

Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, hefur ákveðið að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar. Prófjörið fer fram 13. og 14. mars næstkomandi.

Sjá næstu 50 fréttir