Fleiri fréttir

Ramses með fyrirlestur á Akureyri

Keníamaðurinn Paul Ramses mun halda fyrirlestur á svokölluðu Félagsvísindatorgi við Háskólann á Akureyri á miðvikudaginn klukkan 12:00. Það er Kumpáni, nemendafélag Félagsvísinda- og lagadeildar, sem hefur fengið Paul Ramses til að halda fyrirlesturinn.

Vill forsætisráðherra utan þings

Það kemur vel til greina að maður utan þings taki að sér að leiða þjóðstjórn, segir Jón Magnússon, formaður þingflokks Frjálslynda flokksins.

Hefðu betur hlustað á stjórnarandstöðuna í október

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna sagði í ræðu sinni á Alþingi í dag að ríkisstjórnin hefði betur tekið tilboði stjórnarandstöðunnar um þjóðstjórn í október. Hann sagði vert að velta því fyrir sér hvort hlutum væri ekki betur fyrir komið í dag ef því tilboði hefði verið tekið.

Kæra ákvörðun Samkeppniseftirlitsins

Teymi segir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að skipa nýja fulltrúa félagsins í stjórn Tals óviðunandi og henni verði áfrýjað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins gæti leitt það af sér að félagið hefði engin völd í stjórn Tals þrátt fyrir að eiga 51% hlut í félaginu.

Mismunandi sýn á ástæður stjórnarslitanna

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir það ekki alveg réttilega með farið þegar Geir Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, segi að ástæða stjórnarslita sé krafa Samfylkingarinnar um að taka við forsætisráðuneytinu.

Formaður Samfylkingarinnar varð undir

Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir í pistli á heimasíðu sinni að í miðjum björgunarleiðangrinum hafi Samfylkingin nú sóað nokkrum dögum í pólitíska kreppu í stað þess að reyna að vinna okkur útúr efnahagskreppunni.

Fulltrúum Teymis vikið úr stjórn Tals

Með bráðabirgðaákvörðun í dag hefur Samkeppniseftirlitið mælt fyrir um að fulltrúar Teymis hf. í stjórn IP-fjarskipta hf. (Tali) víki og í stað þeirra skuli skipaðir tveir óháðir einstaklingar sem tilnefndir verða af Samkeppniseftirlitinu.

Hittast klukkan 16:00 í dag

Forsætisráðherra Geir H. Haarde mun ganga á fund forseta Íslands á Bessastöðum í dag, mánudaginn 26. janúar kl. 16:00. Að loknum fundi forseta og forsætisráðherra mun forseti Íslands ræða við fréttamenn.

Mikið fjallað um stjórnarslitin í erlendum fjölmiðlum

Allir helstu fjölmiðlar Norðurlandanna fjalla um stjórnarslitin á Íslandi á vefsíðum sínum þessa stundina sem og fjölmiðlar víða í Evrópu. Það sem er sameiginlegur þráður í umfjölluninni er að fjármálakreppan hafi fellt ríkisstjórn Íslands.

Vildi Jóhönnu Sigurðardóttur í forsætisráðherraembættið

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, gerði Sjálfstæðisflokknum það tilboð að Jóhanna Sigurðardóttir yrði forsætisráðherra í stað Geirs Haarde. Sjálfstæðisflokkurinn hafnaði því, eftir því sem Ingibjörg sagði í samtali við fréttamenn rétt í þessu. Enn kemur til greina af hálfu Samfylkingarinnar að Jóhanna verði forsætisráðherra í þjóðstjórn.

Þjóðstjórn ólíkleg

Þjóðstjórn undir forystu Sjálfstæðisflokks er hæpin að mati Einars Mar Þórðarsonar stjórnmálafræðings.

Stjórnarsamstarfinu slitið

Stjórnarsamstarfinu er lokið. Þetta er niðurstaða formanna stjórnarflokkanna, sagði Geir Haarde, formaður Sjálfstæðisflokkins, á samstarfi.

Geir og Ingibjörg Sólrún ræða stöðuna

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar og Geir H. Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins sitja nú saman og ræða niðurstöðu þingflokksfundanna. Búist er við því að framtíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar ráðist á þeim fundi.

Sigmundur beðinn um staðfestingu á tilboði framsóknarmanna

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur verið í samtölum við Samfylkingarmenn að undanförnu og hann beðinn um staðfestingu á því að Framsóknarflokkurinn standi ennþá við tilboð sitt um að verja minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna falli.

Enn fundað í Alþingishúsinu

Enn funda þingflokkar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í Alþingishúsinu. Hópur fréttamanna er þar saman kominn og bíður eftir upplýsingum frá fulltrúum flokkanna eftir fundina. Óljósar upplýsingar hafa fengist um það hvenær fundunum lýkur en ljóst að það mun ekki verða fyrir hádegi.

Hávær en fámenn mótmæli á Austurvelli

Fámenn en hávær mótmæli eru nú fyrir utan alþingishúsið. Um tuttugu manns eru samankomin á Austurvelli og berja búsáhöld. Þá heyrist duglega í Sturlu Jónssyni vörubílstjóra sem er á svæðinu með flautur sínar. Mótmælin hafa verið með öllu friðsamleg, en einn viðstadda hafði þó orð á því að það hrykki allur bærinn í kút þegar Sturla þeytti flauturnar.

Fjögur umferðaróhöpp á Vestfjörðum

Fjögur umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum í vikunni sem leið. Flutningabíll valt sunnan við Hólmavík um hádegisbil þann 20. janúar en ekki urðu slys á fólki. Þá fór fólksbíll út af veginum á Kirkjubólshlíð aðfararnótt 20. janúar og hafnaði niður í fjöru.

Strætó fækkar ferðum

Strætó bs. mun fækka ferðum frá 1. febrúar vegna erfiðari rekstraraðstæðna í kjölfar bankahrunsins. Helstu breytingarnar eru að allar helstu leiðir, að leiðum 1 og 6 undanskildum, munu aka á hálftíma fresti utan annatíma virka daga og leiðir 21, 22, 33, 34, 35 og 36 á

Samkomulag um minnihlutastjórn

Náðst hefur samkomulag um að mynda minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna sem Framsóknarflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn munu verja vantrausti.

Hádegisfréttum sjónvarpað

Hádegisfréttir verða í beinni útsendingu á Stöð 2, Bylgjunni og á Vísi í dag. Þingflokkar stjórnarflokkanna hittast á fundum núna klukkan tíu og búist er við því að eftir það ráðist framtíð ríkisstjórnarinnar endanlega.

Fækkar mjög í rjúpnagöngum

Aðeins um helmingur félaga í Skotveiðifélagi Íslands gekk til rjúpna síðastliðið haust, en fyrir fjórum árum gengu um 70 prósent félagsmanna til rjúpna.

Innbrot í malbikunarstöð

Brotist var inn í malbikunarstöð í Hafnarfirði í nótt, en ekki er ljóst eftir hverju þjófarnir voru að slægjast þar. Þeir eru ófundnir. Sömuleiðis leitar lögregla þjófa sem brutust inn í Olís-sjoppuna í Grundarhverfi í Reykjavík undir morgun. Ekki er enn vitað hverju þeir stálu.

Stórreykingamenn brutust inn í sjoppu

Brotist var inn í Aðalsjoppuna við Tjarnargötu í Vogunum á Reykjanesi um eittleytið í nótt og þaðan stolið 20 kartonum af Winston-sígarettum, að andvirði um 170 þúsund krónur.

Fimm handteknir í seðlabankamótmælum

Fimm menn voru handteknir eftir að hafa klifrað upp á þak Seðlabankans um tvöleytið í nótt og skemmt þar eftirlitsmyndavél. Þeim var sleppt að yfirheyrslum loknum.

Meirihluti andvígur ESB

Nú segjast 59,8 prósent ekki vilja að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins. Í nóvember á síðasta ári sögðust 59,6 prósent vera fylgjandi umsókn um aðild.

Úrslitastundin er í dag

Forysta Sjálfstæðisflokksins vill að Samfylkingin samþykki tuga milljarða króna niðurskurð í ríkisútgjöldum til viðbótar við áður ákveðinn niðurskurð, eigi ríkisstjórnin að starfa áfram. Það er í samræmi við samkomulag við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Frestur rennur út á miðnætti

Nú fer hver að verða síðastur að skila inn tilnefningu til samfélagsverðlauna Fréttablaðsins. Frestur rennur út á miðnætti í kvöld.

Vörur frá Ísrael sniðgengnar

Hákoni Má Oddssyni ofbýður ofbeldis­verk Ísraelsmanna. „Ég sem neytandi hef áhuga á að vita hvaða vörur í búðunum eru frá Ísrael svo að hægt sé að sniðganga þær og tryggja að maður sé ekki að styrkja hernað þeirra gegn börnum og konum,“ skrifar hann. „Fór í Bónus í dag og sá sellerí sem virtist ferskt og flott en á kassanum sem var utan um vöruna kom fram að uppruni væri Carmel og ég hætti samstundis við að kaupa selleríið. Mér er óglatt af tilhugsuninni að ég væri að borða mat hvurs ágóði sé notaður til að myrða saklaus börn. Gætirðu hjálpað okkur neytendum með að grafa upp hvaða vörur koma frá Ísrael svo við getum sniðgengið þær?“

Óákveðnum fjölgar

Stór hluti óánægðra kjósenda, sem í fyrri skoðanakönnunum Fréttablaðsins hafa stutt Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna, eru ekki tilbúnir til að leggja lag sitt við neinn af stjórnmálaflokkunum og telja sig óákveðna.

Afsögnin óvenjuleg

Afsögn Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra markar viss tímamót þegar hún er borin saman við aðrar afsagnir ráðherra hér á landi, segir Gunnar Helgi Krist­insson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

Ráðherrar og þingmenn á borgarafundi

Boðað hefur verið til borgarafundar á Hótel Selfossi annað kvöld. Yfirskrift fundarins er: ,,Staða þjóðarinnar. Fortíð – Nútíð – Framtíð."

Þjóðstjórn besti möguleikinn

Þjóðstjórn er besti möguleikinn í stöðunni að mati Steingríms J. Sigfússonar formanns Vinsti grænna. Hann segist ekki hins vegar ekkert hafa rætt við forystumenn Samfylkingarinnar í dag. Steingrímur segir að sér virðist að ríkisstjórnin sé á síðustu metrunum. Upplausnarástand sé á stjórnaheimilinu.

Þyrla sækir ökklabrotinn mann við rætur Esju

Þegar þyrla Landhelgisgæslunnar lenti nú á sjötta tímanum við Landspítalann með slasaðan vélsleðamann, sem féll ofan í gili við Landamannalaugir, fór hún strax í annað útkall.

Jón hættir líka í Seðlabankanum

Jón Sigurðsson gerir ráð fyrir að biðjast lausnar úr starfi sínu í stjórn Seðlabanka Íslands, en hann er varaformaður stjórnarinnar skipaður af Samfylkingunni. Fyrr í dag lét hann af störfum sem stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins. Frá þessu er greint á vefsíðu DV.

Ingibjörg komin til Geirs

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, er komin til Geirs H. Haarde, formanns Sjálfstæðisflokksins, til að funda með honum á heimili hans í Vesturbænum. Með henni er Össur Skarphéðinsson.

Vonar að Davíð verði látinn fara úr Seðlabankanum

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vonar að Sjálfstæðisflokkurinn sjái til þess að Davíð Oddsson, seðlabankastjóri og fyrrum formaður flokksins, verði látinn víkja. Hún segir að með afsögn Björgvins G. Sigurðarssonar, Viðskiptaráðherra, og stjórnar Fjármálaeftirlitsins hafi ákveðið skref verið stigið. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins. Ragnheiður vonar að flokkur sinn hafi kjark til að stíga sama skref með bankaráð bankastjóra Seðlabankans.

Mikið að gera hjá Landhelgisgæslunni - þyrla sækir mann

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefur haft í nógu að snúast í dag. Klukkan rúmlega þrjú barst beiðni í gegnum Neyðarlínuna um aðstoð þyrlu við að sækja mann í Landmannalaugar sem féll ofaní gil. Að sögn félaga mannsins var vonlaust að komast að staðnum og nálægar Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar voru kallaðar út.

Sjá næstu 50 fréttir