Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Viða hálka eða hálkublettir á landinu Það er hálka á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka er á flestum leiðum á Suðurlandi, þó er þæfingur í Grafningnum og nokkrum öðrum útvegum. Þungfært er á Krísuvíkurvegi, Ísólfsskálavegi og Bláfjallavegi sunnan Bláfjalla. 30.1.2009 20:30
Sigmundur: Ætlum ekki að afhenda óútfylltan tékka Það vantaði upp á raunhæfar leiðir til að hrinda í framkvæmd þeim hugmyndum sem þegar eru komnar fram, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. „Það er samstaða um markmiðin þetta snýst um leiðirnar," segir Sigmundur. 30.1.2009 17:27
Engin ríkisstjórn fyrr en eftir helgi Þingflokksfundi Framsóknarflokksins sem haldinn var í Alþingishúsinu í dag er lokið. Þingmenn sem komið hafa út af fundinum hafa ekkert viljað tjá sig við fréttamenn og vísa þeir allir á formann sinn Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Hann hefur haldið til fundar við þau Steingrím J. Sigfússon og Jóhönnu Sigurðardóttir. 30.1.2009 16:46
Árni sammála AGS um seinagang í endurreisn bankakerfisins Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að endurreisn íslenska bankakerfisins hafi gengið of hægt, segir Árni M. Mathiesen starfandi fjármálaráðherra. Hann tekur undir gagnrýni sjóðsins og segir að endurreisn bankanna verði að ganga hraðar. Aftur á móti hafi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lýst ánægju sinni með fjárlögin og hvernig gangi að endurreisa krónuna. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma fráfarandi ráðherra sjálfstæðismanna á fundi flokksins á Grand hótel í dag. 30.1.2009 16:43
Mótmæla kjaralækkandi aðgerðum Reykjavíkurborgar „Starfsmenn Reykjavíkur hafa sætt lakari kjörum en aðrir, undir því yfirskyni að þeir byggju í staðinn við atvinnuöryggi. Það hlýtur því að sæta furðu að þegar á þetta atvinnuöryggi reynir skuli þeir þurfa að greiða það enn hærra verði,“ segir í ályktun sameiginlegs félagsfundar Fræðagarðs, Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga og Stéttarfélags lögfræðinga, sem haldinn var í dag. 30.1.2009 16:40
Mótmælt í Dimmuborgum Mótmæla- og samstöðufundur verður haldinn í Dimmuborgum í Mývatnssveit á morgun laugardag. „Okkur, sem stöndum að mótmælum hér í Mývatnssveit finnst rétt að safnast saman enn á ný og láta af okkur vita. Þótt áfangasigrar hafi unnist, er ekki öllum kröfum mótmælenda fullnægt. Þar sem unnið er að stofnun nýrrar ríkisstjórnar og fleiri málum finnst okkur þó rétt að staldra við og sjá hverju fram vindur,“ segir í tilkynningu. Sem fyrr verður mótmælt á Hallarflöt í Dimmuborgum klukkan 15. 30.1.2009 16:25
Yfirvinna endurskoðuð - engar uppsagnir Hallur Páll Jónsson, mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar, segir að við endurskoðun á yfirvinnu hjá starfsmönnum Reykjavíkurborgar hafi rauði þráðurinn í aðgerðunum verið að tryggja störf starfsmanna. Þeir sem hæst launin hafa taka á sig hlutfallslega mesta lækkun fastra heildarlauna og við endurskoðun fastlaunasamninga sé sú regla höfð i heiðri að lækka ekki föst heildarlaun sem eru undir 300 þúsund krónum. 30.1.2009 16:19
Reginhneyksli verði hætt við hvalveiðarnar Einar K. Guðfinnsson, starfandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, telur að það væri reginhneyksli ef minnistjórn Samfylkingar og Vinstri grænna ákveði að breyta ákvörðun hans em heimilar hvalveiðar. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma fráfarandi ráðherra sjálfstæðismanna á fundi þeirra á Grand hótel í dag. 30.1.2009 16:02
Lúðvík vísar ummælum Gunnars Páls einnig á bug Lúðvík Lúðvíksson, sem er í framboði til formanns hjá VR segir ummæli Gunnar Páls Pálsonar formanns VR varla svara verð og dæma sig sjálf. Vísar hann þeim alfarið á bug. Lúðvík er að vitna til viðtals sem birtist við Gunnar Pál í fréttum Stöðvar 2 þar sem hann velti því upp hvort upplýsingum úr Kaupþingi hefði verið lekið úr bankanum til þess að hafa áhrif á formannskjörið. 30.1.2009 15:40
Íslenskur friðargæsluliði til starfa í Palestínu Ólöf Magnúsdóttir, fulltrúi Íslensku friðargæslunnar, heldur um helgina til starfa í Palestínu í tveggja mánaða verkefni hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Ólöf mun aðstoða staðarskrifstofu Barnahjálparinnar við að miðla upplýsingum um aðstæður barna á átakasvæðum Palestínu og neyðaraðstoð þeim til handa. 30.1.2009 15:24
Ný ríkisstjórn kynnt á morgun Búið er að fresta þingflokksfundum Vinstri grænna og Samfylkingarinnar þangað til klukkan 10 í fyrramálið. Fyrirhugað var að ný ríkisstjórn yrði kynnt á Austurvelli síðar í dag en búist er við að ekki verði af fyrr enn í hádeginu á morgun. Flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem halda átti í dag hefur einnig verið frestað og hefst hann klukkan 11 í fyrramálið. 30.1.2009 15:15
Nýskráningar ökutækja dragast saman um 90 prósent Umferðarstofa hefur tekið saman yfirlit yfir nýskráningar ökutækja og eigendaskipti á fyrstu 23 dögum ársins borið saman við sama tímabil árið á undan. Í ljós kemur mjög mikil fækkun nýskráninga. 30.1.2009 14:56
Fleiri en þúsund í sjósund í janúar Sjósund virðist vera að slá í gegn. Starfsfólk Ylstrandarinnar í Nauthólsvík segir fjölgun gesta þar í janúar ævintýri líkasta, en 1036 gestir hafa skráð sig í gestabók strandarinnar í mánuðinum. 30.1.2009 14:54
Fundi þingflokks Samfylkingarinnar frestað Þingflokksfundi Samfylkingarinnar sem átti að hefjast klukkan 15 hefur verið frestað til klukkan 10 í fyrramálið. Flokksstjórn Samfylkingarinnar á að koma saman klukkan 16 á Nasa og ræða stjórnarsáttmála og ráðherraskipan tilvonandi ríkisstjórnar. Líklegt verður að teljast að þeim fundi verði einnig frestað til morguns. 30.1.2009 14:42
Vaxandi spenna í þinghúsinu Fæðing nýrrar ríkisstjórnar virðist ganga treglegar en búist var við. Framsóknarmenn voru ekki sáttir við þau drög að nýjum ríkisstjórnarsáttmála sem þeim voru kynnt í morgun. Þeir fengu ný drög til skoðunar í hádeginu og fundar þingflokkur Framsóknarflokksins um þau. 30.1.2009 14:36
Raddir fólksins boða til sigurhátíðar Sautjándi mótmælafundur Radda fólksins verður haldinn á Austurvelli á morgun laugardag klukkan 15. Samtökin boða til sigurhátíðar. 30.1.2009 14:36
Fjölmörgum snjóbrettum stolið Töluvert er um að snjóbrettum sé stolið þessa dagana. Að undanförnu hafa lögreglu borist margar slíkar tilkynningar, flestar ef ekki allar úr Bláfjöllum. „Þar hafa óprúttnir aðilar verið á ferð en þeir virðast nota tækifærið á meðan snjóbrettafólkið hvílir lúin bein og borðar nestið sitt. Allmörg snjóbretti hafa horfið með þessum hætti og því er full ástæða til að vera betur á varðbergi,“ segir í tilkynningu frá lögreglu. 30.1.2009 14:10
Leiðir málefnahóp um endurreisnarstarf Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, mun leiða málefnahóp Sjálfstæðisflokksins fyrir landsfund flokksins um endurreisn íslensks efnahagslífs. Tilkynnt var um þetta á fundi sjálfstæðismanna á Grand Hótel. 30.1.2009 13:56
Indefence.is í breskar sögubækur Landsbókasafn Bretlands - British Library - hefur ákveðið að varðveita vef indefence.is sem heimild um fjármálakreppuna fyrir fræðimenn framtíðar. 30.1.2009 13:55
Óskar: Grunnlaun ekki lækkuð heldur dregið úr yfirvinnu Grunnlaun starfsmanna Reykjavíkurborgarar lækka ekki heldur verður dregið úr yfirvinnu, að sögn Óskars Bergssonar formanns borgarráðs. „Við höfðum náttúrulega samráð við okkar sviðsstjóra en það er hugsanlega misjafnt hvernig menn hafa unnið úr því hver fyrir sig. Við erum ekki að lækka grunnlaun heldur að draga úr yfirvinnu." 30.1.2009 13:41
Geir: Stjórnarmyndun langt komin áður en Ingibjörg kom heim Fullt er út úr dyrum á fundi sjálfstæðismanna á Grand hotel sem hófst klukkan eitt. Á fundinum fer Geir H. Haarde, formaður flokksins og fráfarandi forsætisráðherra yfir stöðuna og það „uppbyggingarstarf sem framundan er í íslensku þjóðfélagi,“ eins og sagði í tilkynningu frá flokknum. Í máli Geirs kom meðal annars fram að hann telji myndun nýrrar ríkisstjórnar hafa verið langt komna áður en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sneri heim frá Svíþjóð. 30.1.2009 13:11
Samfylking óskar skýringa á launabreytingum Samfylkingin hefur sent borgarstjóra og mannauðsstjóra Reykjavíkurborgar bréf og óskað skýringa á framgöngu við uppsagnir fastlaunasamninga og launalækkun hjá starfsfólki borgarinnar sem áformaðar eru. 30.1.2009 12:59
Bifreið stolið í Borgartúni Í gærmorgun rétt fyrir klukkan tíu var bifreiðinni PA 301, sem er 2ja dyra hvítur Nissan Sunny árgerð 1994 stolið úr porti við Borgartún 7. 30.1.2009 12:37
Loftrýmiseftirlit í höndum utanríkisráðherra Formaður Vinstri grænna segir loftrýmiseftirlit Atlantshafsbandalagsríkja yfir Íslandi drauga frá fyrri ríkisstjórnar og að flokkurinn vilji ekki sóa peningum í slíkt brölt. Það verði hins vegar í höndum utanríkisráðherra nýrrar ríkisstjórnar að annast framkvæmd slíkra mála. 30.1.2009 12:18
Ný ríkisstjórn kynnt við styttu Jón Sigurðssonar Stefnt er að því að ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna verði kynnt við styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli klukkan sex í kvöld þar sem búsáhaldabyltingin svokallaða hófst. Gert er ráð fyrir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, gangi á fund Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, eftir hádegið og að forseti feli Jóhönnu Sigurðardóttur umboð til að mynda stjórn. Að öllum líkindum verður kosið laugardaginn 25. apríl. 30.1.2009 12:02
Hjúkrunarfræðingar vara við sparnaðaraðgerðum Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga varar við afleiðingum þeirra sparnaðaraðgerða sem boðaðar hafa verið hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Í ályktun stjórnarinnar segir að öflugt starf hafi verið byggst upp á þremur heilsuverndarsviðum en það eru miðstöð heilsuverndar barna, miðstöð mæðraverndar og miðstöð tannverndar. 30.1.2009 11:46
Mánudagsútgáfu DV hætt Biríngur, útgáfufélag DV, hefur ákvaðið að fækka útgáfudögum og héðan í frá kemur DV ekki út á mánudögum. Blaðið mun koma út frá þriðjudegi til föstudags. Þetta er gert til að mæta samdrætti á auglýsingamarkaði og mikilli hækkun á kostnaði. Aðgerðunum fylgja engar uppsagnir á ritstjórn DV. 30.1.2009 11:33
Undirbúningi rafrænnar sjúkraskrár verði hraðað Lagt er til í áliti stýrihóps um upplýsingatækni að undirbúningi rafrænnar sjúkraskrár fyrir landið allt verði hraðað. Stýrihópur um upplýsingatækni hefur skilað áfangaskýrslu sinni til Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, og hvetur eindregið til átaks í rafrænum samskiptum í heilbrigðisþjónustu. 30.1.2009 11:11
Frjálslyndir funda um stjórnarmynd Miðstjórn Frjálslynda flokksins hefur verið boðuð til fundar á morgun laugardag í húsnæði flokksins við Skúlatún. Þar mun Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, greina frá viðræðum um stjórnarmyndun og aðkomu flokksins að þeim, eins og segir í tilkynningu frá flokknum. 30.1.2009 11:05
25 vilja stýra þjónustumiðstöð fyrir blinda Tuttugu og fimm umsóknir bárust um starf forstjóra nýrrar Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Lög um stofnunina voru samþykkt á Alþingi 18. desember síðastliðinn. 30.1.2009 10:55
Stjórnarmyndunarviðræðum haldið áfram Viðræðunefndir Samfylkingar og Vinstri grænna komu saman til fundar í herbergi forsætisnefndar Alþingis í Alþingishúsinu klukkan hálf tíu og sögðu samningamenn við fréttamann rétt fyrir fundinn að þau ætluðu ekki að standa upp af þessum fundi fyrr en að því verki loknu. 30.1.2009 09:55
Vísar ásökunum Gunnars Páls á bug Kristinn Örn Jóhannesson, frambjóðandi í formannskjöri VR hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Gunnars Páls Pálssonar í fréttum Stöðvar 2 þann 28. janúar. Þar vísar hann ásökunum Páls Gunnars um að skjölum úr Kaupþingi sé lekið í fjölmiðla til þess að hafa áhrif á formannskosninguna á bug, fyrir sitt leyti. 30.1.2009 09:51
Fjallað um lopavörusöfnunina á BBC Lopavörusöfnun fyrir aldraða Breta sem Bítíð á Bylgjunni hratt af stað á dögunum hefur vakið töluverða athygli í Bretlandi og breskir miðlar fjallað ítarlega um hana. Í morgun var Heimir Karlsson, umsjónarmaður þáttarins, í beinni útsendingu í sjónvarsþættinum vinsæla Daily Politics á BBC 2. 30.1.2009 09:30
Geir ræðir við sjálfstæðismenn Vegna sviptinganna í íslenskum stjórnmálum að undanförnu boðar Sjálfstæðisflokkurinn félaga sína til stjórnmálafundar á Grand Hótel í dag til að fara yfir stöðuna og verkefnin framundan. 30.1.2009 09:15
Rehn segir aðild Íslands hvalreka fyrir ESB Ísland gæti verið komið í Evrópusambandið fyrr en varði, jafnvel árið 2011, ef marka má ummæli embættismanna í Brussel og íslenskra stjórnmálamanna í breska blaðinu Guardian í dag. 30.1.2009 07:35
Þriggja manna leitað eftir rán Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn þriggja grímuklæddra manna, sem ógnuðu starfsfólki Pítunnar við Skipholt með hnífi um tíuleytið í gærkvöldi og hurfu á brott eftir að hafa tæmt peningakassann, eða sjóðsvélina. 30.1.2009 07:15
Erill hjá lögreglu í nótt Óvenjumikill erill var hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt vegna ölvunar og pústra meðal veitingahúsagesta í miðborginni. Að minnsta kosti tvisvar þurfti lögregla að stilla til friðar vegna slagsmála, en enginn þurfti þó að leita læknis og enginn var handtekinn. 30.1.2009 07:13
Á annað hundrað á stofnfundi kvennaframboðs Á annað hundrað konur mættu á stofnfund nýs kvennaframboðs að Hallveigarstöðum í Reykjavík í gærkvöldi og voru fundargestir sammála um nauðsyn þess að efna til kvennaframboðs fyrir næstu þingkosningar. 30.1.2009 07:09
Gylfi Magnússon verður viðskiptaráðherra Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, verður viðskiptaráðherra í nýrri ríkisstjórn, sem væntanlega verður kynnt í dag. Þá þykja sterkar líkur á að Björg Thorarensen, prófessor í lögfræði við Háskóla íslands, verði dómsmálaráðherra. 30.1.2009 07:04
Bílslys á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Borgartúns Bílslys varð á gatnamótum Kringlymýrarbrautar og Borgartúns rétt fyrir klukkan 19:00 í kvöld. Að sögn lögreglu voru tveir bílar fluttir af vettvangi óökuhæfir en ekki liggja fyrir upplýsingar um slys á fólki. 29.1.2009 19:27
Tímamóta ríkisstjórn hvað jafnréttismál varðar Búist er við því að ný ríkisstjórn verði mynduð formlega á laugardaginn. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur verðandi forsætisráðherra í fréttum Stöðvar 2 nú í kvöld. Steingrímur J. Sigfússon sagði að um tímamóta ríkisstjórn væri að ræða hvað varðar jafnréttismál, en búist er við jöfnu hlutfalli karla og kvenna. 29.1.2009 18:42
Stálu 20 kartonum af Winston sígarettum Brotist var inn í Aðalsjoppuna við Tjarnargötu í Vogunum um kl. 01:00 aðfararnótt mánudags. Þaðan var stolið um 20 kartonum af Winston sígarettum. Í öryggismyndavél Aðalsjoppunar sást til tveggja ungra manna við verknaðinn. 29.1.2009 20:30
Fjórar F-16 orrustuþotur annast loftrýmisvarnir Fjórar F-16 orustuþotur munu annast loftrýmisvarnir Íslands þegar Danir taka að sér verkið í mars. Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segist vona að eftirlitið haldi áfram en það sé nýrrar ríkisstjórnar Íslands að ákveða hvort svo verð. 29.1.2009 19:02
Lögregla lokaði spilavíti í miðborginni Lögregla fór um helgina inn í spilavíti í miðborg Reykjavíkur og stöðvaði fjárhættuspil sem þar var í gangi. Í spilavítinu er jafnan spilað upp á hundruðir þúsunda króna. 29.1.2009 18:27
Atvinnuleysistryggingasjóður gæti tæmst fyrir árslok Búist er við að 14 þúsund manns verði komnir í hóp atvinnulausra eftir helgi og fjöldinn verði um tuttugu þúsund í vor. Atvinnuleysistryggingasjóður mun að óbreyttu tæmast fyrir árslok. 29.1.2009 18:22