Fleiri fréttir

Leggja fram frumvarp um stjórnlagaþing

Framsóknarflokkurinn hyggst leggja fram frumvarp um stjórnlagaþing næst þegar þing kemur saman. Þingið hefði það hlutverk að semja nýja stjórnarskrá.

Kannabisskógur á Álftanesi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kom upp um mjög umfangsmikla kannabisræktun í húsi á Álftanesi í gær. Við húsleit fundust tæplega 200 kannabisplöntur, flestar á lokastigi ræktunar að því er lögregla segir. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknar málsins.

Erlendir ferðamenn í fyrsta sinn yfir hálfa milljón

Fimm hundruð og tvö þúsund ferðamenn fóru frá landinu í fyrra og er það í fyrsta skipti sem þeir eru fleiri en hálf milljón. Árið áður voru þeir 485 þúsund, og hefur því fjölgað um 3,5 prósent.

Yfir 16 þúsund hraðakstursbrot mynduð

Árið 2008 voru 16.125 hraðakstursbrot skráð með stafrænum hraðamyndavélum samkvæmt málaskrá lögreglunnar. Með tilkomu stafrænna hraðamyndavéla hefur skráðum hraðakstursbrotum fjölgað til muna. Um 40% allra hraðakstursbrota sem skráð voru í málaskrá lögreglunnar árið 2008 voru vegna nýtilkominna hraðamyndavéla. Á síðasta ári voru skráð hraðaksturbrot á Íslandi rúmlega 39.000.

Lögreglan minnir á bensínstöðvarnar

Lögreglan brýnir fyrir ökumönnum að fylla bensíntankinn og taka ekki óþarfa áhættu með því að reyna að komast frá A til B á síðustu dropunum. Slíkt getur beinlínis verið hættulegt.

Fordæma ákvörðun Einars um hvalveiðar

Samtök ferðaþjónustunnar fordæma ákvörðun Einars K. Guðfinssonar, starfandi sjávarútvegsráðherra, að heimila hvalveiðar og telja með ólíkindum að slík ákvörðun skuli tekin af ráðherra sem er að hætta störfum.

Þorgerður hreinsar út af skrifstofunni

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fráfarandi menntamálaráðherra, segir arftaka sinn taka við góðu búi. Ráðherrar sjálfstæðismanna eru nú í óða önn að pakka saman.

Össur: Þeir hafa beðið í 18 ár

Fundi forystumanna Samfylkingar og Vinstri grænna sem átti að hefjast klukkan ellefu í Alþingishúsinu seinkaði um rúmlega hálftíma. Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, segir að honum og Jóhönnu hafi seinkað vegna þess að þau sátu á fund með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar, á heimili hennar í Vesturbænum.

Borgarráð hættir við mislægu gatnamótin

Borgarráð staðfesti á fundi sínum í dag að horfið hefur verið frá þriggja hæða mislægum gatnamótum við Miklubraut og Kringlumýrarbraut. „Þessi gamla hugmynd hefur nú verið slegin út af borðinu,“ segir Dagur B. Eggertsson í tilkynningu.

Fleiri matjurtagarðar í sumar

Matjurtargörðum í Reykjavík verður fjölgað sumarið 2009. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar segir að aukinn áhugi sé á görðunum, bæði vegna efnahagsástandsins og almenns áhuga á grænmetisræktun.

Óttast stefnubreytingu VG í Evrópumálum

Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, óttast að Vinstri grænir breyti stefnu sinni í Evrópumálum þegar flokkurinn myndar ríkisstjórn með Samfylkingunni.

Geir kvaddi alþjóðlega samstarfsmenn sína

Geir Haarde, fráfarandi forsætisráðherra, nýtti tækifærið á málþingi um öryggismál á norðurslóðum til að þakka fyrir það samstarf sem hann hefur átt á vettvangi Nato.

Stjórnarmyndunarviðræður halda áfram

Núna klukkan ellefu hittast forsvarsmenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna á ný í Alþingishúsinu til þess að ræða myndun minnihlutastjórnar. Fundarhöldin hafa til þessa gengið vel og sagðist Jóhanna Sigurðardóttir, væntanlegur forsætisráðherra, vonast til þess að ný ríkisstjórn líti dagsins ljós um helgina.

Fagna ákvörðun um aukinn kvóta

Framsýn- stéttarfélag fagnar ákvörðun Einars K. Guðfinssonar, starfandi sjávarútvegsráðherra, um að auka fiskveiðikvótann um 30 þúsund tonn á núverandi fiskveiðiári. Aukningin mun hafa jákvæð áhrif á sjávarbyggðir landsins og þjóðarbúið í heild enda verði aflinn unninn af fiskvinnslufólki á Íslandi.

Bridgehátíð 2009 hefst – Auðunn Blöndal dregur saman lið

Stjörnutvímenningur í bridge verður leikinn á Hótel Loftleiðum í kvöld, miðvikudaginn 28. janúar og hefst klukkan 18:30. Þar munu landsþekktir Íslendingar mæta sumum af sterkustu keppendum Bridgehátíðar 2009. Auðunn Blöndal dregur saman lið.

Samverukvöld fyrir ekkla og ekkjur

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins heldur í kvöld samverukvöld fyrir ekkla og ekkjur. Þetta er í annað sinn sem slíkur fundur er haldinn, en sá fyrri var haldinn í desember. Þá mættu rúmlega áttatíu manns og því ljóst að mikil þörf er á slíkum samverustundum. Þær hafa fengið nafnið Maður er manns gaman og er ráðgert að halda þær reglulega í framhaldinu. Í kvöld mætir Sr. Bragi Skúla á fundinn og ræðir hinar ýmsu birtingarmyndir hugsana og tilfinninga.365

Ríkið semur við SÁÁ

Sjúkratryggingar Íslands og SÁÁ hafa gert samning um göngudeildarþjónustu fyrir þá sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða.

Óbreyttir stýrivextir

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta ekki stýrivöxtum bankans nú. Þeir verða áfram 18%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum þar sem segir ennfremur að nánar verði greint frá stöðu og horfum í efnahagsmálum í Peningamálum sem birt verða á heimasíðu Seðlabankans klukkan ellefu.

Hestar lausir á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti tvisvar í nótt að eltast við hesta sem höfðu sloppið út og brugðið sér í bæinn. Annar var laus á Fífuhvammsvegi á móts við Smáralind og hinn á Selásvegi. Vörslumenn voru ræstir út og eftir nokkurn eltingaleik tókst að handsama þá báða.

Mótmælendum sleppt úr haldi

Mönnunum sex, sem lögregla handtók vegna mótmælanna við Hilton-Nordica hótelið í Reykjavík í gærkvöldi, þar sem fulltrúar NATO dvelja, var sleppt að yfirheyrslum loknum laust fyrir miðnætti.

Gulldepluveiðar hafnar suður af Eyjum

Mörg fjölveiðiskip, þar af nokkur þeirra stærstu, eru nú komin á gulldepluveiðar suður af Vestmannaeyjum og er afli nokkuð góður.

Segir gagnrýni Össurar furðulega

Björn Bjarnason fráfarandi dóms- og kirkjumálaráðherra undrast gagnrýni Össurar Skarphéðinssonar vegna ákvörðunar Einars K. Guðfinnssonar fráfarandi sjávarútvegsráðherra.

Víða hálka og éljagangur

Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú í kvöld segir að hálska sé á Sandskeiði og í Þrengslum. Einnig er hálka og éljagangur á hellisheiði en hálka eða snjóþekja er um mestalt Suðurland. Þæfingsfærð er ofan Galtalækjar.

Settu hækkunarmiða á vörur í Krónunni

Hópur sem kallar sig 12.7 lét til sín taka í verslunum Krónunnar í dag. Hópurinn segir að vöruverð í matvöruverslunum hafi hækkað mikið síðan bankarnir féllu og lágvöruverslunin Krónan hafi hækkað vöruverð hvað mest eða um 12,7%. Hópurinn fór í verslanir Krónunnar og setti límmiða með fyrrgreindri hækkun á vörur í versluninni. Í yfirlýsingu frá þeim nú í kvöld kemur fram að lögreglan hafi verið kölluð á vettvang.

Fundað í vinnuhópum í kvöld

Ljóst er að góður gangur í samningaviðræðum VG og Samfylkingar um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Jóhanna Sigurðardóttir verðandi forsætisráðherra sagði við fjölmiðla að hún byggist við að ný ríkisstjórn yrði tilbúin um helgina, föstudag eða laugardag. Formlegar samningaviðræður halda áfram í fyrramálið.

Erlendir miðlar fjalla um kynhneigð Jóhönnu

Skipan Jóhönnu Sigurðardóttur í embætti forsætisráðherra vekur athygli víða um heim. Sér í lagi sú staðreynd að hún yrði fyrsti samkynhneigði forsætisráðaherrann sem væri það fyrir opnum tjöldum.

Lögreglumaðurinn ekki enn kominn til fullrar heilsu

Lögreglumaðurinn sem fékk stein í höfuðið í mótmælum við Alþingishúsið fyrir viku er enn ekki kominn til fullrar heilsu, að sögn lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins. Maðurinn stóð vaktina við Alþingishúsið þegar hópur fólks lét kansteinum af Austurvelli rigna yfir lögregluþjóna.

Órói innan Framsóknar

Í dag bárust fregnir af óróa innan forystu Framsóknarflokksins, bæði vegna yfirlýsinga einstakra þingmanna hinna flokkanna og eins fóru þeir fram á meira samráð við gerð stjórnarsáttmála.

Segir upplýsingum lekið til þess að koma á sig höggi

Gunnar Páll Pálsson, formaður VR segir að upplýsingum hafi vísvitandi verið lekið úr gamla Kaupþingi til að koma á hann höggi. Gunnar Páll hefur verið gagnrýndur harðlega fyrir störf sín fyrir bankann og átti meðal annars sæti í lánanefnd þegar breska auðkýfingnum Tchenguiz var veitt tugi ef ekki hundruð milljarða króna lán stuttu fyrir bankahrun.

Eins hreyfils flugvél í vandræðum

Í dag klukkan 15:35 barst Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð frá Flugstjórnarmiðstöð Reykjavíkur um eins hreyfils flugvél í vandræðum vegna ísingar. Flugvélin var á leið frá Grænlandi og átti eftir um 275 sjómílur til Reykjavíkurflugvallar. Áætlað var að lenda í Reykjavík kl. 17:05.

Undirbýr lög um Eftirlitsstofnun heilbrigðisþjónustu

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur sent út frumvarpsdrög til umsagnar þar sem gert er ráð fyrir að breyta í grundvallaratriðum hlutverki og skipulagi eftirlits- og forvarnastofnana sem ríkið rekur.

Bjartsýn á að stjórnarmyndun ljúki um helgina

Viðræður Samfylkingarinnar og Vinstri grænna ganga vel, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, verðandi forsætisráðherra, í samtali við fréttamenn á fimmta timanum í dag. Sagðist Jóhanna bjartsýn á að flokkarnir gætu myndað nýja ríkisstjórn um helgina.

Steingrímur fundar með Ingibjörgu

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna fór fyrir skömmu af stjórnarmyndunarfundinum í Alþingishúsinu. Hann fór að hitta Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur formann Samfylkingarinnar en hún hefur verið fjarverandi í dag.

Hnúfubakur í Hafnarfjarðarhöfn

Um tíu metra langur hnúfubakur sást í dag í Hafnarfjarðarhöfn. Í frétt í bæjarblaðinu Fjarðarpóstinum segir að dýrið hafi hafi synt inn í höfnina og skotið kajakræðara sem þar var á fer skelk í bringu.

Norrænir stjórnmálamenn gagnrýna áformaðar hvalveiðar harðlega

Ákvörðun Íslendinga um að auka hvalveiðikvótann var gagnrýnd harðlega á fundi Norðurlandaráðs sem haldin er á Íslandi þessa dagana. Meðal annars er það tímasetning ákvörðunar um aukinn kvóta sem vekur athygli, ekki síst vegna fjármálakreppunnar. Þá er það gagnrýnt að ríkisstjórnin hafi

E-töflur og kókaín á Akureyri

Síðastliðinn mánudag handtók lögreglan á Akureyri tvo menn á þrítugsaldri grunaða um fíkniefnamisferli og hafði annar þeirra í fórum sínum 5 grömm af kókaíni. Hinn maðurinn var grunaður um að hafa stundað fíkniefnasölu á Akureyri og við húsleitir hjá honum fundust 500 e-töflur og um 55 grömm af kókaíni til viðbótar.

Stjórnarmyndunarviðræður halda áfram

Samninganefndir Vinstri grænna og Samfylkingarinnar komu saman að nýju klukkan hálftvö eftir hádegishlé. Jóhanna Sigurðardóttir, verðandi forsætisráðherra, kom korteri síðar en hún sagðist þá hafa fundað með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í hádeginu auk fleiri aðila sem hún vildi ekki nafngreina.

Lokað vegna hagræðingar í rekstri

Markmiðið með lokun á skrifstofu Ferðamálastofu í Kaupmannahöfn er að spara í rekstri til að eiga aukið fé í kynningarverkefni.

Lögreglumaður enn frá störfum

Lögreglumaðurinn sem fékk stein í höfuðið í mótmælum við Alþingishúsið í síðustu viku er ekki enn kominn til vinnu, segir Stefán Eiríksson

Talaði ekki við ferðamálaráðherrann um hvalveiðar

Þeir Steingrímur J. Sigfússon og Össur Skarphéðinsson gagnrýna báðir ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra að leyfa veiðar á Langreyðum næstu fimm árin sem tekin var í gær. Steingrímur segir að um sé að ræða ákaflega sérkennilega stjórnsýslu hjá ráðherra sem sitji í starfsstjórn. „Þetta er ekki stórmannlegt,“ sagði Steingrímur.

Sjá næstu 50 fréttir