Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fundu tvo hnúfubaka á Faxaflóa Það var tilkomumikil sjón sem blasti við erlendum ferðamönnum sem fóru í hvalaskoðunarferð frá Reykjavíkurhöfn á föstudag, en tveir hnúfubakar urðu á vegi þeirra. 17.11.2008 12:22
Rússar segja fjögurra milljarða evra lán of hátt Rússar hugleiða að veita Íslandi lán, en það verða ekki þeir fjórir milljarðar evra sem áður hafa verið ræddir. Dmitry Pankin, aðstoðarfjármálaráðherra Rússlands, sagði á blaðamannafundi í morgun að það væri of há fjárhæð. 17.11.2008 12:05
Verið að skuldbinda þjóðina fyrir þúsundum milljarða Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir að stjórnvöld séu að skuldbinda þjóðina fyrir þúsundum milljarða króna án þess að ráðfæra sig við Alþingi. Öllum upplýsingum um samkomulag við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Evrópusambandið vegna Icesave hafi verið haldið frá utanríkismálanefnd. 17.11.2008 12:02
Lagt til að ráðuneyti dragi saman útgjöld um tíu prósent Gert er ráð fyrir að hvert ráðuneyti dragi saman útgjöld sín um 10 prósent miðað við fyrirliggjandi fjárlagafrumvarp næsta árs. 17.11.2008 11:54
Páll íhugar formannsframboð í Framsókn Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi, íhugar nú hvort hann muni gefa kost á sér til formanns Framsóknarflokksins á flokksþingi sem haldið verður í janúar á næsta ári. Ef af verður gæti hann hugsanlega att kappi við fyrrverandi ráðherra sem hann aðstoðaði um tíma. 17.11.2008 11:35
Margir missa vinnuna um næstu mánaðamót Margir þeirra iðnaðarmanna sem hafa fengið uppsagnarbréf munu missa vinnuna um næstu mánaðamót, segir Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar. 17.11.2008 11:25
Íslenskuverðlaun menntaráðs veitt grunnskólanemum Íslenskuverðlaun menntaráðs Reykjavíkur voru afhent, annað árið í röð, á degi íslenskrar tungu hinn 16. nóvember. Rúmlega eitt hundrað nemendur í grunnskólum Reykjavíkur fengu verðlaun að þessu sinni, rúmlega 50 einstaklingar og 8 hópar. 17.11.2008 11:12
Aðeins 90 ökutæki nýskráð á síðustu tveimur vikum Aðeins 90 ökutæki voru nýskráð hér á landi á fyrstu tveimur vikum nóvembermánaðar. Samkvæmt tölum Umferðarstofu eru það tólf sinnum færri ökutæki en á sama tíma í fyrra en þá reyndust þau um ellefu hundruð. 17.11.2008 11:10
Bjóða Íslendingum störf í Noregi Norska ráðningafyritækið Jobbia hefur sett sig í samband við Samiðn með það fyrir augum að bjóða Íslendingum störf í Noregi. 17.11.2008 10:47
Segir stefnt á umsókn til ESB snemma á næsta ári Drög að áætlun fyrir umsókn um aðild að Evrópusambandinu hefur verið mótuð í utanríkisráðuneytinu. 17.11.2008 09:56
Aflaverðmæti eykst um átta prósent á milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 63 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum þessa árs sem er um 4,5 milljörðum króna meira en á sama tíma í fyrra. 17.11.2008 09:06
Þjóðin ber mikið traust til slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna Nánast allir þeir sem spurðir voru í könnun Capacent, eða rúm 96 prósent, segjast bera mikið eða frekar mikið traust til slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. 17.11.2008 08:55
Innbrot í Vesturbænum Brotist var inn í íbúð í vesturborginni í nótt og þaðan meðal annars stolið fartölvu og stafrænni tökuvél. 17.11.2008 07:29
Skora á Samfylkingu að beita sér fyrir kosningum Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík skorar á þingflokk Samfylkingarinnar að beita sér fyrir því að kosningar til Alþingis fari fram sem fyrst á nýju ári. 17.11.2008 07:26
Verulega dregið úr kolmunnaveiðum á næsta ári Verulega verður dregið úr kolmunnaveiðum á næsta ári samkvæmt niðurstöðu ársfundar Norður-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar. 17.11.2008 07:21
Makríll í nótina hjá Hoffelli Makríll kom í nótina hjá síldveiðiskipinu Hoffelli þegar skipið var að síldveiðum á Breiðafirði nýverið, en ekki er vitað til að makríll hafi sést á þessum slóðum áður. 17.11.2008 07:17
Ráðinn verði reyndur bankaeftirlitsmaður Fyrrverandi yfirstjórnendur og helstu hluthafar í yfirteknu bönkunum, sem gerst hafa sekir um afglöp í rekstri eða misnotkun á bönkunum, eiga ekki að gegna sambærilegum störfum næstu þrjú árin, segir meðal annars í viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 17.11.2008 07:12
Ók á ljósastaur og stakk af Ölvaður ökumaður ók á ljósastaur við Grensásveg í nótt og braut hann niður. Þrátt fyrir að bíllinn hafi stórskemmst reyndi maðurinn að stinga af, en náðist skömmu síðar á Nýbýlavegi í Kópavogi og var tekinn úr umferð. 17.11.2008 07:10
Bæjarstjórum berst fjöldi fyrirspurna "Síðustu vikur höfum við fundið fyrir miklum áhuga fólks á búsetu í Vestmannaeyjum. Margar fyrirspurnir hafa borist, bæði til mín og atvinnurekenda,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Efnahagsástandið hefur gert það að verkum að margir höfuðborgarbúar líta til landsbyggðarinnar í von um atvinnu. Bæjarstjóri í Snæfellsbæ og sveitarstjóri í Skagafirði taka í sama streng og segja umleitanir um atvinnu hafa aukist töluvert upp á síðkastið, og von sé á að enn bætist við. 17.11.2008 04:00
Bjarni: Framsókn gæti allt eins sameinast Samfylkingunni Bjarni Harðarson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins sem sagði af sér á dögunum, segir að fari svo að Framsóknarflokkurinn ákveði að vinna að því að sækja um aðild að Evrópusambandinu geti hann allt eins sameinast Samfylkingunni. Þetta kom fram í þættinum Mannamáli með Sigmundi Erni Rúnarssyni á Stöð 2 nú í kvöld. 16.11.2008 20:21
Ingibjörg: „Ásættanleg niðurstaða“ Þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra tilkynntu nú fyrir stundu að samkomulag hafi náðst við Evrópusambandið varðandi Icesave reikninga Landsbankans. Í samkomulaginu fellst að Íslendingar viðurkenna að þeim beri að tryggja innistæður að hámarki 20.877 evrum á hverjum reikningi í samræmi við lög um tryggingasjóð innistæðueigenda. Í framhaldi af þessu munu Íslendingar hefja viðræður við Breta og Hollendinga um hvernig staðið verði að því að greiða út peningana. 16.11.2008 17:49
Ys og þys á Alþingi Þegar samfélagið logar í illdeildum bæði innanlands og utan vegna hruns bankanna og efnahagsþrenginga er ekki úr vegi að skoða hvað þingmenn eru að dunda sér við á Alþingi. 16.11.2008 19:38
Norðurál vill byggja stærra í Helguvík Norðurál hefur kynnt stjórnvöldum ósk um að álverið í Helguvík verði fjörutíu prósentum stærra en áður var áformað. Líklegt þykir að málið geti leitt til harðra átaka innan Samfylkingarinnar. 16.11.2008 19:27
Veskjaþjófar sendir úr landi Tvær erlendar konur voru handteknar í Kringlunni á föstudaginn fyrir að hafa stolið þónokkrum peningaveskjum. Konurnar eru grunaðar um að hafa stundað vasaþjófnað víða í höfuðborginni undanfarna daga en talið er að þær hafi komið gagngert til landsins til þess. Þær voru látnar lausar úr haldi lögreglu í gær og sendar úr landi í dag. 16.11.2008 19:23
Engin stefnubreyting hjá VG Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri Grænna boðar ekki stefnubreytingu í Evrópumálum þótt að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafi á síðustu dögum ákveðið að flýta landsfundum sínum vegna málsins. 16.11.2008 19:21
Valgerður útilokar ekki framboð Formannsslagur virðist vera í uppsiglingu hjá Framsóknarflokknum eftir miðstjórnarfund flokksins í gær. Valgerður Sverrisdóttir útilokar ekki framboð. 16.11.2008 19:17
Icesave deilan leyst Samkomulag er í höfn í Icesave deilunni svokölluðu. Tilkynnt verður nánar um málið á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum sem hefst innan tíðar. Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, segir að búið sé að hnýta þá hnúta sem þurfti að hnýta. 16.11.2008 17:25
Samfylkingin í Reykjavík skorar á þingflokkinn að beita sér fyrir kosningum Stjórn Samfylkingarfélags Reykjavíkur samþykkti í dag ályktun á stjórnarfundi félagsins þar sem skorað er á þingmenn flokksins að beita sér fyrir því að kosningar til Alþingis fari fram sem fyrst á næsta ári. 16.11.2008 16:50
Herdís Egilsdóttir fær Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2008 voru afhent í hátíðardagskrá í hátíðasal Háskóla Íslands í dag. Auk þess voru einnig veittar sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra veitti Herdísi Egilsdóttur kennara Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2008. 16.11.2008 16:35
Ungir jafnaðarmenn á Akureyri vilja flutningsjöfnun Salka, félag ungra jafnaðarmanna á Akureyri vill fá flutningsjöfnun setta á strax. Í ályktun frá félaginu segir að það sé mikið hagsmunamál fyrir framleiðslufyrirtæki á Akureyri að flutningsjöfnun verði sett á. 16.11.2008 15:47
Ísland mótmælir samþykkt um stjórn makrílveiða Föstudaginn 14. nóvember lauk í London 27. ársfundi Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar, NEAFC. Á fundinum var m.a. fjallað um stjórn veiða á kolmunna, úthafskarfa, norsk-íslenskri síld, og makríl fyrir árið 2009 auk verndunar viðkvæmra hafsvæða. Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu kemur fram að ekki hafi tekist samningar um veiðar á úthafskarfa og að samþykkt hafi verið tillaga um stjórn makrílveiða, sem Íslendingar mótmæltu. Þá var heildaraflamark ákveðið í norsk-íslenska síldarstofninum og komu 238 þúsund tonn í hlut Íslendinga fyrir árið 2009. 16.11.2008 15:41
Fljúgandi hálka víða um land Fljúgandi hálka er nú á þjóðvegum víða um land og hafa til að mynda þrír bílar oltið í Árnessýslu það sem af er degi. Að sögn lögreglunnar á Selfossi veldur frostrigning þessum varasömu akstursskilyrðum. 16.11.2008 14:56
Vonir standa til að Icesave samkomulag náist í dag Samkomulag við Evrópusambandið varðandi Icesave reikninga er nánast í höfn og standa vonir til þess að hægt verði að opinbera það í dag. Heimilir Vísis herma að samningaviðræðum sé lokið og nú sé verið að fínpússa samninginn. Sömu heimildir herma þó að ekki sé hægt að fullyrða neitt um að samkomulagið verði handsalað í dag heldur gæti það verið á morgun. Hins vegar standi vonir manna til þess að klára málið sem fyrst. 16.11.2008 13:57
Ekki á dagskrá hjá Siv að sækjast eftir formannsembættinu Siv Friðleifdóttir þingmaður Framsóknarflokksins segist ekki hafa í hyggju að bjóða sig fram gegn sitjandi formanni Guðna Ágústssyni á flokksþingi Framsóknar í janúar. „Hjá mér hefur ekki annað verið á dagskrá en að styðja Guðna, Valgerði og Sæunni,“ segir Siv í samtali við fréttastofu. Í Fréttablaðinu í morgun er fullyrt að formannsslagur sé framundan hjá Framsóknarflokknum og heimildir blaðsins segja að Siv og Páll Magnússon muni blanda sér í slaginn. 16.11.2008 12:01
Dagur íslenskrar tungu Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur í dag, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember. Minnt er á mikilvægi íslenskunnar með ýmsum hætti. 16.11.2008 11:22
Skíðasvæði opin Í Tindastóli og á Sigló Skíðasvæðin á Siglufirði og á Sauðárkróki eru opin í dag til klukkan fimm. Á Sauðárkróki verður opnað í Tindastóli nú klukkan tíu og þar er sagt frábært færi og hægviðri. Á Sigló er svipaða sögu að segja en þar verður opnað klukkan ellefu. 16.11.2008 10:16
Grunur um íkveikju í umdeildu húsi Grunur leikur á að kveikt hafi verið í yfirgefna húsinu sem brann við Baldursgötu í Reykjavík í gær. Lögreglan rannsakar tildrög eldsins en húsið var rafmagnslaust þegar eldurinn kom upp og þykir það renna stoðum undir að kveikt hafi verið í því. Deilur hafa staðið um húsið í töluverðan tíma. 16.11.2008 10:14
Reynt að kveikja í lögreglustöðinni á Selfossi Logandi rakettu var kastað inn í anddyri lögreglustöðvarinnar á Selfossi í nótt. Flugeldurinn sprakk þar inni og hljóp glóð í nokkra stóla og aðra innanstokksmuni. Lögreglumönnum á vakt stóð ekki á sama og segja þeir að litlu hafi mátt muna að eldurinn næði að breiða úr sér. 16.11.2008 09:51
Séra Friðriks minnst Blómsveigur var lagður að leiði séra Friðriks Friðrikssonar í kirkjugarðinum við Suðurgötu í morgun í tilefni þess að í ár eru 140 ár liðin frá fæðingu hans. Blómsveigurinn er frá fimm félögum sem Friðrik stofnaði á ævi sinni, en þau eru KFUM og K, íþróttafélögin Valur og Haukar, íslenska skátahreyfingin og Karlakórinn Fóstbræður. 16.11.2008 09:29
IMF tekur lán til Íslands fyrir á miðvikudaginn Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins tekur lánsumsókn Íslands fyrir á fundi sínum á miðvikudaginn. Dominique Strauss-Kahn, forstjóri sjóðsins, greindi frá þessu á blaðamannafundi í gærkvöldi. 16.11.2008 09:14
Valgerður: Skref sem verður að stíga „Ég held að niðurstöður fundarins hafi verið mjög ásættanlegar,“ segir Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins um þá ákvörðun miðstjórnar að flýta flokksþingi og fela þinginu að taka ákvörðun um aðild að Evrópusambandinu. Hún segir þetta nauðsynlegt skref. 15.11.2008 21:13
Eggjakast og blómvendir á Austurvelli Eggjum og snjóboltum var kastað á Alþingshúsið eftir að útifundinum lauk á Austurvelli í dag. Þó voru ekki allir í vígahug. 15.11.2008 19:46
Framsókn flýtir flokksþingi sem taka á ákvörðun um aðildarviðræður Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins samþykkti í kvöld að flýta flokksþingi fram í janúar og að fyrir þingið yrði lögð tillaga um að flokkurinn samþykkti að gengið yrði til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Til stóð að halda flokksþing í mars. 15.11.2008 18:30
Mörg þúsund manns mættu á Austurvöll Útifundi á Austurvelli sem hófst klukkan þrjú er lokið. Undanfarna laugardaga hefur fólk komið saman fyrir framan Alþingishúsið og hefur fjölgað í þeim hópi með hverri vikunni sem líður. Aldrei hafa eins margir mætt og í dag og voru þúsundir manna samankomnir í miðbænum. Mótmælin fóru friðsamlega fram en eftir að fundi lauk var eggjum og klósettrúllum látið rigna á Alþingishúsið. Fyrir því stóð afmarkaður hópur mótmælenda en Hörður Torfason skipuleggjandi fundarins sagði í samtali við Stöð 2 að slík hegðun væri málstað almennings ekki til framdráttar. 15.11.2008 09:53
Staðið við áform um Drekasvæðið Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir að þrátt fyrir efnahagskreppu verði staðið við þau áform að bjóða út í janúar réttindi til olíuleitar og vinnslu á Drekasvæðinu. 15.11.2008 19:10