Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óvenjulegt að slagsmál og fíkniefni séu áberandi á Dönskum dögum Það er mjög óvenjulegt að á Dönskum dögum komi upp slagsmál og fíkniefnamál, að sögn Daða Heiðars Sigurþórssonar, framkvæmdastjóra hátíðarinnar. 17.8.2008 20:38
Bjartsýn á framhaldið „Ég tel að þessu tíðu meirihlutaskipti í borginni séu borgarfulltrúum ekki til framdráttar," segir Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnmálafræðingur og formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, um nýjan borgarstjórnarmeirihluta og fylgiskönnun Fréttablaðsins. 17.8.2008 17:49
Bifreið valt á Vatnsleysustrandarvegi Um klukkan sjö í morgun var tilkynnt um að bifreið hefði oltið á Vatnleysustrandarvegi skammt frá Vogum. Ökumaður og einn farþegi voru í bifreiðinni og voru þeir fluttir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. 17.8.2008 21:01
Ók á ljósastaur Ökumaður Toyota bifreiðar var fluttur á slysadeild eftir að hafa ekið bifreið sinni á ljósastaur þegar hann ók meðfram Reykjanesbrautinni um fimmleytið í dag. 17.8.2008 19:34
Fimmtán ára stúlka á spítala eftir e-töflu neyslu Fimmtán ára stúlka var flutt alvarlega veik á sjúkrahús eftir að hafa tekið inn e-töflur á Dönskum dögum í Stykkishólmi um helgina. Að sögn Ólafs Guðmundssonar, yfirlögregluþjóni á Snæfellsnesi, fluttu lögreglumenn stúlkuna á spítala um leið og ljóst var hvað hafði gerst. 17.8.2008 19:06
Ungir jafnaðarmenn hyggja á mótmæli við meirihlutaskipti Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, segir það vel geta farið svo að hún muni standa að mótmælum í Ráðhúsinu næstkomandi fimmtudag, þegar nýr meirihluti tekur við í borgarstjórn. 17.8.2008 16:52
Vill lausn á málefnum utangarðsmanna „Ég held að það væri mjög góð lausn ef það væri hægt að beina þeim eitthvað annað," segir Svava Johansen, kaupmaður í NTC tískuvörufyrirtækinu, um þá hugmynd að finna sér stað fyrir utangarðsmenn sem safnast saman í miðborginni. 17.8.2008 14:42
Þúsundir lögðu leið sína til Hveragerðis um helgina Á bilinu tíu til þrettán þúsund manns lögðu leið sína til Hveragerðis í gær, að sögn Kristins Grétars Harðarsonar framkvæmdastjóra „Blómstrandi daga", sem fara fram þar um helgina. 17.8.2008 14:00
Utangarðsmenn dvelji við Faxaflóahafnir Hugmyndir liggja fyrir hjá Reykjavíkurborg um að fundinn verði staður á svæði Faxaflóahafna í Reykjavík fyrir rekstur ölstofu. 17.8.2008 12:55
Á fjórða þúsund manns á Dönskum dögum í Stykkishólmi Fangageymslur í Stykkishólmi fylltust á miðnætti og eru enn fullar að sögn lögreglumanna. Danskir dagar eru haldnir hátíðlegir í Stykkishólmi þessa helgina og segir lögreglan að á bilinu þrjú til fjögur þúsund manns séu í bænum. 17.8.2008 11:41
Átta gistu fangageymslur í Reykjavík Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og í morgun. Mikil ölvun var í Reykjavík og margt um manninn í miðbænum. Átta gistu fangageymslur vegna ölvunar. 17.8.2008 10:21
Benedikt Hjartarson synti Drangeyjarsund Rétt fyrir klukkan átta í kvöld kom Benedikt Hjartarson sundkappi í land að Reykjum á Reykjarströnd eftir sund frá Drangeyjarfjöru. 16.8.2008 23:05
Vann rúmar 65 milljónir i íslenska Lottóinu Það var einn heppinn Lottóspilari sem fékk 5 rétta þegar dregið var í kvöld og hlýtur sá rúmar 65 milljón krónur. Potturinn var sjöfaldur að þessu sinni. Lukkumiðinn var keyptur í Söluturninum Iðufelli. Það voru 12 sem skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver um sig 81.290 krónur. Auk þess voru fjöldi smærri vinninga. 16.8.2008 20:59
Síbrotamaður í tveggja ára fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 45 ára gamlan karlmann, Sigurð Hólm Sigurðsson, í tveggja ára fangelsi fyrir fjölda afbrota sem hann framdi frá því í nóvember 2006 þar til í maí á þessu ári. Á meðal þeirra brota sem Sigurður er dæmdur fyrir eru nytjastuldur, þjófnaðir, fjársvik og varsla fíkniefna. Afbrotaferill Sigurðar er langur og nær allt til ársins 1979. 16.8.2008 19:49
Holskefla gjaldþrota framundan Gjaldþrotaúrskurðum hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra hefur fjölgað um tæpan helming frá fyrra ári. Holskefla gjaldþrota virðist fram undan, eftir því sem fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2. 16.8.2008 18:40
Bílvelta við Hraunhellu Vörubíll velti á hringtorgi við Hraunhellu í Hafnarfirði um fjögurleytið í dag. Að sögn lögreglu var einn maður í bílnum en hann slasaðist ekki. 16.8.2008 17:44
Húsin við Laugaveg keypt með samþykki Ólafs „Það var eitt helsta baráttumál Ólafs F að húsin við Laugaveg 4-6 yrðu endurbyggð sem næst sinni upprunalegu mynd,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. 16.8.2008 12:04
Brutust inn í Árbæjarskóla Fjórir piltar á unglingsaldri voru handteknir rétt eftir klukkan sjö í morgun, grunaðir um innbrot í Árbæjarskóla. 16.8.2008 10:25
Tekinn á 149 kílómetra hraða Erlendur ferðamaður var tekinn á 149 kílómetra hraða í Fagradal á leið sinni til Egilsstaða í gærkvöldi. 16.8.2008 10:15
Blómstrandi dagar í Hveragerði Töluverður fjöldi fólks var samankominn í Hveragerði í gær að sögn lögreglunnar á Selfossi. 16.8.2008 09:59
Vinningstillagan verður umdeild Vinningstillaga um höfuðstöðvar Landsbankans í miðbæ Reykjavíkur á eftir að skapa mikið umtal, deilur og vangaveltur að mati Margrétar Harðardóttur arkitekts hjá Studio Granda. 16.8.2008 06:30
Antík ef ég væri bíll Litlu munaði að liði yfir Guðbjörgu Helgu Sigurdórsdóttur, húsmóður á Selfossi, á fertugsafmælinu þegar fagurblár og hvítur Bjúkki renndi í hlað og reyndist vera gjöf til hennar. 16.8.2008 06:00
Ólafur F: Óskar var áfjáður í samstarf með sjálfstæðismönnum „Ég tel það verstu samsetningu á meirihluta í Reykjavík, samsetning Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, og því íhugaði ég að segja af mér til að komast hjá því stórslysi. Óskar sýndi hins vegar engan áhuga á að vinna með Tjarnarkvartettnum, heldur var mjög ákveðinn og áfjáður í að vinna með sjálfstæðismönnum. “ Þetta sagði Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri í viðtali við Vísi í kvöld. 15.8.2008 23:18
Gunnar Smári átti að verða aðstoðarmaður borgarstjóra Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri, segir að Gunnar Smári Egilsson hafi upprunalega átt að starfa sem aðstoðarmaður borgarstjóra en ekki eingöngu að yfirfara upplýsingamál borgarinnar eins og áður hefur verið haldið fram. Hvorki Ólafur F. né Hanna Birna Kristjánsdóttir, verðandi borgarstjóri, vildi þó meina að ráðning Gunnar Smára hafi orðið til þess að meirihluti þeirra sprakk í gær, eins og frægt er orðið. Þetta kom fram í viðtali við þau tvö í Kastljósinu í kvöld. 15.8.2008 21:26
Maður grunaður um gróft kynferðisbrot á Skagaströnd Maður á sjötugsaldri situr nú í gæsluvarðhaldi á Akureyri, grunaður um gróft kynferðisbrot. Hann er sakaður um að hafa nauðgað konu á heimili sínu á Skagaströnd. 15.8.2008 19:44
Hanna Birna hafði áhyggjur af kjaftasögum um Ólaf Hanna Birna Kristjánsdóttir, verðandi borgarstjóri, sagði í samtali við Kastljósið í kvöld að hún hefði lýst yfir áhyggjum við Ólaf F. Magnússon vegna ýmissa gróusagna sem höfðu komist á kreik um meintar galeiðuferðir hans sem henni þóttu ekki borgarstjóra sæmandi. 15.8.2008 20:15
Utanríkisráðherra Sri Lanka kemur í opinbera heimsókn eftir helgi Utanríkisráðherra Sri Lanka, Rohitha Bogollagama, er væntanlegur til Íslands sunnudaginn 17. ágúst. Mánudaginn 18. ágúst mun hann eiga fundi með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra og Geir Haarde forsætisráðherra. 15.8.2008 20:21
Tannheilsa ungra barna hérlendis er skelfileg Tannheilsa ungra barna er skelfileg að sögn tannlæknis hjá Lýðheilsustöð. Margt bendir til að tannheilsa barna af erlendum uppruna sé enn verri en íslenskra. Dæmi eru um að ástandið sé svo slæmt að rífa þurfi fjölda tanna úr ungum börnum. 15.8.2008 18:46
Ólafur F: Málefnasamningur var agn til að sprengja Tjarnarkvartettinn Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri, segir sjálfstæðismenn hafa svikið sig og að málefnasamningur milli hans og þeirra hafi verið settur sem agn til að hann myndi sprengja Tjarnarkvartettinn. Bakland Sjálfstæðisflokksins hafi ákveðið að slíta samstarfinu. 15.8.2008 18:37
Tjarnarkvartettinn stillti Óskari upp við vegg Óskar Bergsson hefði ekki getað hafið meirihlutasamtarf við Tjarnarkvartettinn skilyrðislaust. Fyrst hefði hann þurft að hringja í Ólaf F. Magnússon, þáverandi borgarstjóra, og tjá honum að hann myndi ekki ganga til samtarfs við sjálfstæðismenn. Þá og aðeins þá, hefði Ólafur F. sagt af sér og nýr Tjarnarkvartett orðið að veruleika, enda hefði lítið annað verið hægt í stöðunni. Þetta fullyrðir Óskar Bergsson í samtali við Vísi. 15.8.2008 17:35
Kjartan: Vonbrigði að samstarfið við Ólaf hafi ekki gengið Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir það ákveðin vonbrigði að ekki hefði verið hægt að halda samstarfinu við Ólaf F Magnússon áfram. Ólafur sagði í yfirlýsingu fyrr í dag að hann hefði verið blekktur til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Kjartan segir það ekki rétt. 15.8.2008 16:02
Ræktuðu ekki sambandið við Björn Inga Sjálfstæðismenn ræktuðu illa sambandið við Björn Inga Hrafnsson, þáverandi oddvita Framsóknarflokksins, sem varð til þess að upp úr slitnaði í samstarfi flokkanna í október á síðasta ári. Þetta segir Gísli í pistli á heimasíðu sinni. 15.8.2008 15:45
Framsóknarmenn saka Vg og Samfylkingu um klæki Stjórnir kjördæmissambands framsóknarmanna í Reykjavík, Framsóknarfélags Reykjavíkur og Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík styðja Óskar Bergsson og ákvörðun hans að ganga til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. 15.8.2008 15:40
Ólafur, ekki Hanna Birna, opnar Skólavörðustíginn Efri hluti Skólavörðustígsins, sem tekinn hefur verið í gegn, verður opnaður formlega á morgun með hátíðahöldum. 15.8.2008 15:33
Eldur í tjörupotti á Löngulínu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að nýbyggingu við Löngulínu í Garðabæ um tvöleytið í dag eftir að eldur kom upp í tjörupotti á þaki byggingarinnar. Nokkur eldur var í pottinum þegar slökkvilið kom á vettvang en greiðlega gekk að slökkva eldinn. 15.8.2008 15:24
Íslenskur friðargæsluliði á leið til Georgíu Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að senda íslenskan friðargæsluliða Ólöfu Magnúsdóttur til starfa hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, í Georgíu. Ráðuneytið ætlar einnig að leggja þrjár milljónir króna til Rauða krossins vegna þess neyðarástands sem skapast hefur í landinu. 15.8.2008 15:22
Sambýlisfólk hins látna í Hamraborg látið laust Lögreglan hefur sleppt karlmanni og konu af erlendum uppruna sem handtekin voru í gær í tengslum við lát sjötugs karlmanns í Hamraborg. Fólkið bjó með manninum í íbúð hans. 15.8.2008 15:18
Arkþing vann í samkeppni um hönnun óperuhúss Tillaga arkitektastofunnar Arkþings ehf. varð hlutskörpust í samkeppni um hönnun óperuhúss í Kópavogi. Dómnefnd samkeppninnar leggur til að leitað verði samstarfs við hönnuði Arkþings ehf. um þróun og úrvinnslu verkefnisins eftir því sem segir í tilkynningu Kópavogsbæjar. 15.8.2008 14:53
Hafna bakdyradúetti framsóknar og sjálfstæðismanna Hallveig – ungir jafnaðarmenn í Reykjavík, hafnar nýjum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borginni og telur félagið að Reykvíkingar séu sama sinnis. Þetta kemur fram í ályktun frá félaginu. 15.8.2008 14:33
Innan við 50 kaupsamningar í liðinni viku Þinglýstir kaupsamningar í síðastliðinni viku á höfuðborgarsvæðinu reyndust aðeins 49 talsins eða rétt um fjórðungur þess sem þeir voru í sömu viku í fyrra, en þá voru samningarnir 199. 15.8.2008 14:27
Fundarmenn virtu afstöðu Marsibil Marsibil Sæmundardóttir ,varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins, sem ekki styður meirihlutasamstarf Óskars Bergssonar og Sjálfstæðisflokksins fór á fund með framsóknarmönnum í hádeginu. Marsibil segir fundarmenn hafa skilið sína afstöðu en lykilfólk í flokknum, aðallega úr Reykjavík, sat fundinn. 15.8.2008 14:20
Ljósmæður boða verkföll í september Ljósmæður samþykktu í atkvæðagreiðslu í vikunni að boða til verkfallsaðgerða í byrjun september til þess að knýja á um betri kjör. 15.8.2008 13:12
Hræringar hafa laskað Sjálfstæðisflokkinn að ákveðnu leyti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokkinn, telur að hræringar undanfarinna missera í borgarstjórn hafi laskað flokkinn að ákveðnu leyti, eins og hún orðar það í samtali við fréttamann Stöðvar 2. 15.8.2008 12:55
Nýr meirihluti er uppvakningur Formaður Samfylkingar kallar nýjan meirihluta í borgarstjórn uppvakning og segir myndun hans harmleik. Formaður Sjálfstæðisflokksins segist hins vegar ánægður með meirihlutann. 15.8.2008 12:33
Gísli græjar skólamálin í Edinborg - byrjaður að blogga Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi er nú staddur í Edinborg þar sem hann hyggur á háskólanám í borgarfræðum. Í samtali við Vísi segir hann að verið sé að hnýta lausa enda og ganga frá skólavist fyrir börn sín. Gísli er byrjaður að blogga á Eyjunni og er fyrsta færslan skrifuð frá Edinborg í dag. 15.8.2008 11:51