Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óskar fékk grænt ljós frá flokksforystunni Óskar Bergsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins nýtur fulls stuðnings forystu Framsóknarflokksins til þess að ganga til meirihlutasamstarfs með Sjálfstæðisflokknum í borginni. Óskar kæmi þá inn í meirihlutasamstarfið í stað Ólafs F. Magnússonar. Ekki kemur til greina af hálfu flokksins að Óskar kæmi inn í þriggja flokka samstarf með Sjálfstæðisflokknum og Ólafi F. 13.8.2008 15:12
Nýliðar í umferðinni eftir helgi Grunnskólar hefja starfsemi á ný eftir helgi og þá koma 4.300 nýir vegfarendur í umferðina. 13.8.2008 15:01
Mosfellsbær verðlaunar fyrir fallega garða Kristleifur Guðbjörnsson og Margrét Ólafsdóttir að Arkarholti 4 fengu viðurkenningu fyrir áratuga ræktunarstarf og eru að hljóta viðurkenningu í þriðja sinn en þau fengu síðast viðurkenningu fyrir garð sinn fyrir fjórtán árum. 13.8.2008 14:49
Atvinnuleysi enn með minnsta móti Atvinnuleysi í nýliðnum júlímánuði reyndist 1,1 prósent og var óbreytt frá júnímánuði samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. 13.8.2008 12:59
Báðir hinna grunuðu í stóra hassmálinu áfram í varðhaldi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað bæði tónleikahaldarann Þorsteinn Kragh og hollenskan öldung í áframhaldandi þriggja vikna gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn á umfangsmiklu fíkniefnasmygli með Norrænu. 13.8.2008 12:51
Telur álversframkvæmdir geta frestast um ár Jóhannes Geir Sigurgeirsson, fyrrverandi stjórnarformaður Landsvirkjunar, telur hættu á að álversframkvæmdir við Bakka tefjist um eitt ár en ekki nokkrar vikur vegna úrskurðar umhverfisráðherra. Hiti var í Húsvíkingum á fundi sem umhverfisráðherra boðaði til í gærkvöld. 13.8.2008 12:41
Hringtorg og Nýbýlavegur færð sex metra frá blokk Tekist hefur sátt um breytingar á Nýbýlavegi en styr hefur staði um framkvæmdirnar og nálægð götunnar við fjölbýlishús við Lund 1. 13.8.2008 12:36
Olíuhreinsunarstöð einhver alversta hugmynd sögunnar Umhverfisráðherra segir að olíuhreinsunarstöð í Arnarfirði sé einhver alversta hugmynd sem um getur í sögunni. Skaði íslenskrar náttúru yrði gríðarlegur verði stöðin reist. 13.8.2008 12:24
Segir samstarf við Ólaf ekki mistök Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir samstarf flokksins í borginni við Ólaf F. Magnússon ekki mistök. Honum er ekki kunnugt um þreifingar manna um myndun nýs meirihluta. 13.8.2008 12:20
Þorsteinn Kragh í áframhaldandi þriggja vikna varðhald Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í morgun á þá kröfu lögreglunnar að tónleikahaldarinn Þorsteinn Kragh, sem grunaður er ásamt Hollendingi um umfangsmikið fíkniefnasmygl með Norrænu, yrði úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Það er til þriggja vikna. 13.8.2008 11:58
Sjálfstæðismenn vilja Óskar frekar en Ólaf Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna íhugar hvort slíta skuli meirihlutasamstarfi við Ólaf F. Magnússon borgarstjóra, gangi ekki að taka Óskar Bergsson, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, inn í núverandi meirihluta, líkt og sjálfstæðismenn hafa hug á. 13.8.2008 11:57
Marsibil: Held að enginn vilji eða geti unnið með Ólafi Marsibil Sæmundardóttir, sem er í öðru sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík, segir það óhugsandi að Framsóknarflokkurinn muni vinna með Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra í mögulegu meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks, F-lista og Framsóknar. 13.8.2008 10:19
Átta prósenta aflasamdráttur það sem af er ári Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júlí reyndist 0,2 prósentum meiri en í sama mánuði í fyrra þegar miðað er við fast verð. 13.8.2008 09:53
Dagur: Mikil örvænting hjá Sjálfstæðisflokknum Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir samstöðu minnihlutans í borgarstjórn hafa verið órofna alveg frá því að hundrað daga meirihlutinn varð til og hvergi borið þar skugga á. Hann treystir sér ekki til að spá fyrir um framhaldið í borgarmálunum en segir mikla örvæntingu hjá Sjálfstæðisflokknum. 13.8.2008 09:06
Gísli Marteinn hlakkar til námsvetrar í Edinborg Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist hafa fengið mikinn stuðning frá öðrum borgarfulltrúum, bæði í meirihluta og minnihluta, til að láta draum sinn um að komast í meistaranám í Edinborgarháskóla rætast. 13.8.2008 09:00
Farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald í stóra hassmálinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun nú fyrir hádegi fara fram á það að tónleikahaldarinn Þorsteinn Kragh og Hollendingur, sem grunaðir eru um umfangsmikið fíkniefnasmygl með Norrænu, verði úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald. 13.8.2008 08:37
Líklega haldið sofandi á gjörgæsludeild næstu daga Ökumanni jeppa sem slasaðist í árekstri jeppans, rútu og sendibíls á Suðurlandsvegi í gærmorgun er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild. 13.8.2008 08:00
Þrettán tilboð í fyrri hluta Suðurstrandarvegar KNH á Ísafirði átti lægsta tilboð í lagningu 33 kílómetra kafla Suðurstrandarvegar milli Krýsuvíkur og Þorlákshafnarvegar. Tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær. 13.8.2008 07:30
Mannlaus jeppi eyðilagðist við Ljótapoll Jeppi erlendra ferðamanna gjöreyðilagðist þegar hann rann fram af brúninni á Ljótapolli sem er nærri Landmannalaugum um hálfsjöleytið í gærkvöld. 13.8.2008 07:08
Sjálfstæðismenn ræða meirihlutasamstarf við Óskar Bergsson Mjög viðkvæm staða er í borgarmálunum þessa dagana og sjálfstæðismenn eiga í óformlegum meirihlutaviðræðum við Framsóknarflokkinn um meirihlutasamstarf. 13.8.2008 07:03
Brenndist þegar hann steig í hver við Geysi Spænskur ferðamaður hlaut annars stigs bruna upp á miðja ökkla á báðum fótum eftir að hann steig ofan í hver við Geysi í Haukadal í nótt. Lögreglan á Selfossi og sjúkralið var kvatt á vettvang og var maðurinn fluttur á slysadeild á Selfossi þar sem gert var að sárum hans. 13.8.2008 06:56
Slökkviliðið kallað að Sorpu á Sævarhöfða Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að útibúi Sopru á Sævarhöfða um hálffimm í morgun vegna elds sem logaði í tveimur rusla gámum. Slökkviliðsmenn frá einni stöð voru sendir á vettvang og þegar að var komið logaði nokkur eldur í gámunum. 13.8.2008 06:46
Fundur með umhverfisráðherra vonbrigði „Af okkar hálfu var fundurinn og svör ráðherra vonbrigði því við bjuggumst við að fá svör við ákveðnum kjarnaspurningum sem við höfðum fram að færa," segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, eftir opinn fund Þórunnar Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra, á Húsavík í kvöld. Þar var tekist á um nýlegan úrskurð hennar um að áhrif fyrirhugaðs álvers á Bakka á umhverfið skuli metin heildstætt. 12.8.2008 23:35
Gísli Marteinn mun fljúga milli Skotlands og Reykjavíkur á borgarstjórnafundi Eins og koma fram á Vísi í kvöld mun Gísli Marteinn Baldursson, borgarstjórnafulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, halda í árslangt námsleyfi til Edinborgar í haust. Hann mun hins vegar fljúga á milli Reykjavíkur og Skotlands til þess að sækja borgarstjórnarfundi samkvæmt heimildum Vísis. 12.8.2008 22:58
Ólafur tók hugmynd um samstarf með Framsókn fálega Fréttastofa Sjónvarps fullyrti í kvöldfréttum sínum að Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn Reykjavíkur vilji Óskar Bergsson úr Framsókn inn í meirihlutasamstarf sitt og F-listans til þess að tryggja meirihlutann enn frekar. Samkvæmt heimildum Vísis var málið viðrað innan meirihlutans í dag og tók Ólafur fálega í hugmyndir sjálfstæðismanna að bæta framsóknarmönnum inn í meirihlutasamstarfið. 12.8.2008 21:12
Birtíngur kaupir DV Útgáfufélagið Birtíngur ehf. hefur keypt DV og dv.is af Dagblaðinu Vísi útgáfufélagi ehf. í. Birtíngur rekur fyrir tímaritaútgáfu sem m.a. gefur út blöðin Séð og Heyrt, Vikuna, Gestgjafann, Hús og hýbíli, Mannlíf, Nýtt líf og Söguna alla. Frá þessu er greint á dv. 12.8.2008 21:02
Kveik í ruslatunnu við Bónusvideo Kveikt var í ruslatunnu fyrir utan Bónusvideo við Laugalæk í kvöld. Ruslatunnan er staðsett í kjallaratröppum, upp við kjallaradyr, og því var í fyrstu talið að eldurinn kæmi inn úr kjallaranum. 12.8.2008 20:57
Kaupsamningum fjölgar um 75 prósent milli mánaða Þinglýstir kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu reyndust nærri 75 prósentum fleiri í nýliðnum júlí en mánuðinn á undan samkvæmt nýjum tölum Fasteignamats ríkisins. Samningarnir voru hins vegar nærri 64 prósentum færri miðað við júlí í fyrra. 12.8.2008 20:41
Hugmyndir uppi um að reisa kvikmyndaver í gömlu vararafstöðinni Hugmyndir eru uppi um að reisa kvikmyndaver í húsnæði gömlu vararafstöðvarinnar í Elliðaárdalnum. Til stendur að rífa húsið en borgarstjóri útilokar ekki að það verði nýtt. 12.8.2008 20:40
Gísli Marteinn í ársleyfi frá borgarstjórn Gísli Marteinn Baldursson mun flytja til Edinborgar í Skotlandi í haust ásamt fjölskyldu sinni en þar hyggst hann stunda nám í borgarfræðum. Samkvæmt heimildum Vísis mun hann taka sér ársleyfi frá störfum sem borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og jafnframt víkja úr þeim nefndum sem hann hefur setið í, meðal annars umhverfis- og samgöngunefnd þar sem Gísli gegnir formennsku. 12.8.2008 20:14
Minnihlutinn vill auka fjárstreymið til Strætó bs en ekki skera niður Það er með ólíkindum að á sama tíma og meirihlutinn leggur til framkvæmdir við Geirsgötu og Mýrargötu sem kosta munu á annan tug milljarða til úrlausna fyrir einkabílinn sé verið að leggja til niðurskurð á þjónustu Strætó bs upp á 300 milljónir króna. Svo segir í ályktun frá minnihlutanum í borgarstjórn. 12.8.2008 18:56
Bæjarstjórar neita ásökunum samgönguráðherra Samgönguráðherra segir að ekki sé hægt að tvöfalda hættulegasta kafla Suðurlandsvegar af því að heimamenn eigi eftir að vinna nauðsynlega undirbúningsvinnu. Bæjarstjórar á svæðinu hafna þessu og segja að ekkert standi upp á þá til að framkvæmdir við tvöföldun vegarins geti hafist á leiðinni milli Hveragerðis og Selfoss. Þar hafa orðið tólf banaslys á undanförnum árum. 12.8.2008 18:37
Leit að manni hætt við Vík í Mýrdal Leit að manni við Vík í Mýrdal hefur verið hætt eftir að vísbendingar bárust um að hann væri ekki á því svæði. 12.8.2008 17:56
Unglingspiltur skotinn með loftbyssu Unglingspiltur slapp með skrekkinn þegar hann varð fyrir skoti úr loftbyssu í Reykjavík í gær. Það varð piltinum til happs að vera með gleraugu en skotið fór í þau en við það kom sprunga í annað sjónglerið. Talið er víst að piltur á svipuðu reki hafi skotið úr byssunni en lögreglan á eftir að ræða við hann og foreldra hans um þetta alvarlega atvik. 12.8.2008 16:45
Sótti um pólitískt hæli með falsað vegabréf Hæstiréttur staðfesti í dag að erlendur karlmaður skuli sæta gæsluvarðhaldi til 1. september á meðan lögregla rannsakar mál hans en hann kom hingað til lands í síðustu viku á fölsuðu belgísku vegabréfi. 12.8.2008 16:44
Leitað að manni í nágrenni við Vík í Mýrdal Lögregla og björgunarsveitir leita nú að manni við Reynisdranga við Vík í Mýrdal samkvæmt upplýsingum Vísis. Ekki liggur fyrir hvort hann féll í sjóinn og hvort um Íslending sé að ræða eða erlendan ferðamann. 12.8.2008 16:15
Mikil ánægja með hverfagæslu Níutíu og sjö prósent íbúa á Seltjarnarnesi eru ánægð með hverfagæslu sem tekin var upp í sveitarfélaginu fyrir um þremur árum. Þetta kemur fram í júlíblaði Nesfrétta. 12.8.2008 15:56
Fjögur hundruð ný hjúkrunarrými á næstu árum Fjögur hundruð ný hjúkrunarrými verða til hér á landi á næstu fjórum árum samkvæmt framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma sem kynnt var í dag. 12.8.2008 15:13
Gifti, skírði og jarðaði í óþökk kirkjunnar Gunnar Björnsson, sóknarprestur á Selfossi, sem settur hefur verið í leyfi vegna ásakana um kynferðisbrot, hefur verið minntur á að honum er óheimilt að framkvæma kirkjulegar athafnir í Selfosskirkju á meðan hann er í leyfi. 12.8.2008 15:10
Stjórn LÍ ræðir stöðu samningamála Stjórn Læknafélags Íslands kemur saman til fundar síðar í dag til þess að ræða þá stöðu sem uppi er eftir að læknar felldu nýgerðan kjarasamning við ríkið. 12.8.2008 13:52
85 ökumenn myndaðir Brot 85 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Suðurlandsbrautar, Kringlumýrarbrautar og Laugavegs frá föstudegi til mánudags. 12.8.2008 13:32
Nítján stútar teknir um helgina Nítján ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tæplega helmingur þeirra var tekinn á laugardag og ellefu stútanna voru gripnir í Reykjavík. 12.8.2008 12:55
Skipulagsvinna hjá sveitarfélögum tefur tvöföldun Kristján L. Möller samgönguráðherra segir skipulagsvinnu hjá sveitarfélagögum á Suðurlandi tefja fyrir tvöföldun vegarkaflans milli Hveragerðis og Selfoss. Eðlilegt hefði verið að sú vinna hefði hafist fyrr. 12.8.2008 12:44
Kannast ekki við að hafa samþykkt ósk Breta Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, segist ekki kannast við að stjórnvöld hér á landi hafi samþykkt ósk Breta um stuðning við innrásina í Írak þann 17. mars 2003, daginn áður en Bandaríkjamenn birtu lista „hinna viljugu þjóða", eins og Valur Ingimundarsonar sagnfræðingur heldur fram í nýrri bók um íslenska utanríkisstefnu. 12.8.2008 12:42
Þrjú kjálkabrot á Þjóðhátíð Þrjár kærur hafa verið lagðar fram hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum vegna líkamsárása sem áttu sér stað á Þjóðhátíð. Í öllum tilvikum var um kjálkabrot að ræða. 12.8.2008 12:25