Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enn haldið sofandi í öndunarvél eftir bílslys Ökumanni jeppa sem slasaðist í árekstri jeppans, rútu og sendibíls á Suðurlandsvegi í gærmorgun er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild. 12.8.2008 10:42
Vill nýjan meirihluta í Reykjavík Fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins segir að þörf sé á nýjum borgarstjórnarmeirihluta. Þetta kemur fram í leiðara sem Þorsteinn Pálsson ritar í Fréttablaðið í dag. 12.8.2008 10:13
Elsti Íslendingurinn látinn Þuríður Samúelsdóttir, sem var elsti Íslendingurinn, lést 2. Ágúst, 105 ára og 42 daga gömul. Útförin fór fram í gær í kyrrþey, að hennar eigin ósk. 12.8.2008 09:39
Blair óskaði eftir stuðningi Íslands við innrásina í Írak Íslenskir ráðamenn samþykktu ósk breskra stjórnvalda um stuðning við innrásina í Írak degi áður en Bandaríkjamenn birtu lista yfir hinna viljugu þjóða. 12.8.2008 09:15
Brotist inn í dansskóla Brotist var inn í dansskóla í Lágmúla 9 í Reykjavik um hálffjögurleytið í nótt. Það var öryggisvörður sem tilkynnti lögreglu um innbrotið. Þegar lögregla kom á vettvang var innbrotsþjófurinn enn á staðnum og hafði hann ekki náð að stela neinu. 12.8.2008 08:11
Skaftárhlaup í rénun Rennsli í Skaftá hefur lækkað ört í nótt. Sjálfvirkar mælingar Vatnamælinga Orkustofnunar benda til að hlaupið hafi náð hámarki í rúmum 390 rúmmetra á sekúndu laust eftir miðnætti, en fór svo niður i um 370 rúmmetra í nótt. Áður en hlaup hófst var meðalrennslið um 150 rúmmetrar á sekúndu. 12.8.2008 07:55
Tveir úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í hnífsstungumáli Gæsluvarðhald yfir tveimur af þremenningunum sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald vegna hnífstunguárásar á Hverfisgötu, föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi, var í kvöld framlengt til fimmtudags. 11.8.2008 21:16
Formaður Samiðnar segir tilboð ekki hafa verið metin rétt Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Samiðnar, krefst þess að Reykjavíkurborg rökstyðji hvers vegna hún tók tilboði litháíska verktakafyrirtækisins Adakris í byggingu Sæmundarskóla í Grafarholti. Þetta kom fram í tíufréttum Sjónvarpsins. 11.8.2008 22:57
Jákvæður sandsílaleiðangur Talsverð aukning var í magni sílis miðað við árin 2006 og 2007 og má rekja hana að langmestu leyti til eins árs sílis af 2007 árgangi ef marka má niðurstöður nýlegan sandsílaleiðangur Hafrannsóknastofnunnar. 11.8.2008 20:45
Nýlegar hækkanir ekki faldar á bakvið kaupauka Toyota á Íslandi býður nú upp á sérstakan sólarlandaferðakaupauka upp á 550 þúsund með flestum seldum bifreiðum. Kaupaukinn kemur þó nokkuð ankannalega fyrir sjónir með tilliti til þess bifreiðar umboðsins hækkuðu um 5% í verði þann 1. ágúst síðastliðinn. Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi, segir að þetta tvennt tengist á engan hátt saman og því sé ekki verið að fela hækkanirnar á bakvið kaupaukann. 11.8.2008 20:03
Ríkið skuldar Impregilo hátt í tvo milljarða Skuldir íslenska ríkisins við ítalska verktakafyrirtækið Impregilo nálgast tvo milljarða króna. Þar af er hálfur milljarður vegna dráttarvaxta. Skattgreiðendur sitja uppi með tapið segir lögmaður Impregilo. 11.8.2008 19:05
Utanríkisráðherra vinnur að samstarfi Ísafjarðar og A-Grænlands Möguleikar Vestfjarða sem þjónustumiðstöð fyrir atvinnustarfsemi og auðlindanýtingu á Austur-Grænlandi og ný störf á Ísafirði á vegum utanríkisráðuneytisins voru á meðal þess sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ræddi við sveitastjórnarmenn á Vestfjörðum í heimsókn sinni til Ísafjarðar í dag, samkvæmt tilkynningu utanríkisráðuneytisins. 11.8.2008 18:46
Hefur miklar áhyggjur af fjölskyldu sinni í Georgíu Íslensk kona, sem er frá Georgíu hefur miklar áhyggjur af fjölskyldu sinni þar. Hún segir skelfilegt hvernig allt hefur farið en vonast til að stríðinu ljúki sem fyrst. 11.8.2008 18:40
Enn bið á vegaúrbótum Til stendur að bjóða út fyrsta áfanga í tvöföldun Suðurlandsvegar næsta vor en leiðin milli Selfoss og Hveragerðis verður þó látin bíða. 11.8.2008 18:32
Umhverfisráðherra boðar til opins fundar á Húsavík Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur boðað til opins fundar í Borgarhólsskóla á Húsavík annað kvöld klukkan 20. 11.8.2008 18:29
Eldur í bíl í þriggja bíla árekstri við Skeiðarbrú Þriggja bíla árekstur varð á sjötta tímanum við Skeiðarbrú, á mótum Skeiðarvogs og Miklubrautar. 11.8.2008 17:39
Löggan eltist við hest í Hafnarfirði Hestur veldur nú usla í Hafnarfirði en svo virðist sem hann hafi sloppið úr gerði fyrir ofan bæinn. 11.8.2008 17:04
Lifir í ótta eftir að nálgunarbanni var hafnað Kona sem var beitt afar grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi af sambýlimanni sínum í rúmlega þrjú ár er mjög ósátt við niðurstöðu Hæstaréttar frá því fyrir helgi, að sögn Gunnhildar Pétursdóttur, lögfræðings hennar. 11.8.2008 16:39
Báru brenndan dreng þrjá kílómetra Tíu ára drengur sem brenndist annars stigs bruna á fæti á göngu í Reykjadal ofan við Hveragerði í síðustu viku var borinn þriggja kílómetra leið að sjúkrabíl. 11.8.2008 16:39
Skemmdir unnar á vinnuvélum í malarnámu Talið er að kveikt hafi verið í vinnuvél í malarnámu við Lambafell á Suðurlandi um helgina og leitar lögregla sökudólgsins. 11.8.2008 16:30
Lestur á Morgunblaðinu dregst saman Lestur á Morgunblaðinu heldur áfram að dragast saman samkvæmt nýrri könnun Capacent á lestri dagblaða. 11.8.2008 15:31
Fannst látin í Glerá Lögreglan á Akureyri ásamt Slökkviliði Akureyrar og Björgunarsveitinni Súlum hófu leit að konu á tólfta tímanum í dag eftir að tilkynnt hafði verið um að hennar væri saknað. 11.8.2008 15:29
Íslendingum ráðið frá því að ferðast til Georgíu Utanríkisráðuneytið ræður Íslendingum eindregið frá því að ferðast til Georgíu vegna ófriðarástandsins þar. 11.8.2008 15:19
Bílstjórinn bjargaði því sem bjargað varð Bílstjórinn í rútunni sem lenti í hörðum árekstri við jeppa á Suðurlandsvegi brást hárrétt við og forðaði frekara slysi. Þetta segir Sigríður Ásta Hallgrímsdóttir, starfsmannastjóri Kynnisferða, félagsins sem á rútuna. 11.8.2008 14:36
Austurríska leiðin í höndum allsherjarnefndar Björn Bjarnason segir ákvörðun um það hvort að austurríska leiðin, þar sem lögreglan fengi vald til að fjarlægja ofbeldismenn af heimilum, verði tekin upp hér á landi vera í höndum allsherjarnefndar. 11.8.2008 14:15
Suðurlandsvegur opnaður á ný eftir slys Búið er að opna Suðurlandsveg á ný en veginum var lokað eftir alvarlegt umferðarslys á móts við Kirkjuferju á milli Hveragerðis og Selfoss um hálftíu í morgun. 11.8.2008 14:13
Rannsókn lokið á handrukkuninni í Heiðmörk Rannsókn er lokið á máli er snetir handrukkun í Heiðmörk í lok júlí. Þrír menn voru handteknir í tengslum við árás á ungan mann sem tekinn var af heimili sínu í Hafnarfirði og keyrt með hann upp í Heiðmörk þar sem hann var laminn illa. 11.8.2008 13:24
Umferðartafir á Hafnarfjarðarvegi í dag og á morgun Umferðartafir verða á Hafnarfjarðarvegi til suðurs frá Fossvogi að Álftanesvegi í dag og fram á morgundaginn. 11.8.2008 13:17
Ástarvikan í fimmta sinn í Bolungarvík Ástarvikan var sett í Bolunungarvík í fimmta sinn í gær. Tilgangur hennar er að fjölga bæjarbúum og standa vonir til þess að nokkur ástarvikubörn líti dagsins ljós að níu mánuðum liðnum. 11.8.2008 12:30
Segir Björn standa í vegi fyrir austurrísku leiðinni Dómsmálaráðherra hefur komið í veg fyrir að austurríska leiðin verði tekinn upp hér landi, að mati Kolbrúnar Halldórsdóttur. Úrræðið felur í sér að fbeldismaður er fjarlægður af heimili sínu. 11.8.2008 12:22
Vandi að finna urðunarstað fyrir mengaðan botn Tjarnarinnar Erfitt er að finna urðunarstað fyrir mengaðan botn Tjarnarinnar að sögn Egils Arnar Jóhannessonar formanns, heilbrigðisnefndar Reykjavíkurborgar. Fundað var í nefndinni síðastliðinn fimmtudag þar sem staða mengunarmála Tjarnarinnar var kynnt sem og tillögur að úrlausnum. 11.8.2008 12:19
Leita tilboða í borun á háhitaborholum Landsvirkjun óskar í dag eftir tilboðum í borun á allt að tuttugu og fimm háhitaborholum á Norðausturlandi. 11.8.2008 12:12
Líklega farið fram á áframhaldandi varðhald í hnífstungumáli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer að líkindum fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir einum þremenninganna sem handteknir voru fyrir helgi vegna hnífstunguárásar á Hverfisgötu föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi. 11.8.2008 12:03
Haldið sofandi í öndunarvél eftir bílslys Einum þeirra sem slösuðust í alvarlegu bílslysi á Suðurlandsvegi á móts við Kirkjuferju á milli Hveragerðis og Selfoss um klukkan hálfttíu í morgun er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild. Þrír voru fluttir á slysadeild í Reykjavík eftir slysið, en hinir tveir eru ekki alvarlega slasaðir, að sögn vakthafandi læknis á slysadeild Landspítalans. 11.8.2008 11:45
Íbúðalánasjóður lækkar vexti Íbúðalánasjóður hefur ákveðið frá og með deginum í dag að lækka vexti af íbúðalánum sínum í kjölfar útboðs á íbúðabréfum. 11.8.2008 10:41
Segir ESB-aðild treysta fullveldi Aðild að Evrópusambandinu og upptaka evru treystir fullveldi Íslands, að sögn Jóns Sigurðssonar fyrrverandi formanns Framsóknarflokksins. 11.8.2008 10:39
Ljósmæður greiða atkvæði um verkfallsaðgerðir Atkvæðagreiðsla hófst í morgun um verkfallsaðgerðir Ljósmæðrafélags Íslands sem gripið verður til náist ekki samkomulag um nýjan kjarasamning við ríkið. 11.8.2008 10:02
Alvarlega slasaðir eftir bílslys Alvarlegt umferðarslys varð á Suðurlandsvegi á móts við Kirkjuferju á milli Hveragerðis og Selfoss um klukkan hálfttíu. 11.8.2008 09:43
Rafmagnslaust í Fossvogi Rafmagnslaust er í hluta Fossvogs þessa stundina. Tíu mínútur fyrir níu í morgun bilaði háspennulínu í hverfinu sem orsakar rafmagnsleysið. Verið er að vinna að biluninni. Að svo stöddu er ekki vitað hvenær rafmagn kemst aftur á í hverfinu. 11.8.2008 09:10
Þúsund tonn á þessu kvótaári Netabáturinn Bárður SH frá Arnarstapa, sem er svonefndur hraðfiskibátgur í stærri kantinum, hefur borið rúmlega þúsund tonn að landi á þessu kvótaári, sem er að ljúka. 11.8.2008 08:46
Skaftárhlaup í rénun Skaftárhlaupið, sem hófst í gær virðist vera í rénun og telst þá til lítilla hlaupa í ánni. Meðal rennsli í henni er um 150 rúmmetrar á sekúndu, en fór upp í 364 rúmmetra í gærkvöldi. 11.8.2008 07:02
Steyptist ofan í Jökulsá á Dal Franskur ferðamaður á fimmtugsaldri var útskrifaður af heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum í gærkvöldi eftir að hafa sloppið ótrúlega vel úr hremmingum, sem hann lenti í fyrr um kvöldið. 11.8.2008 06:56
Litlar breytingar á Skaftárhlaupi Litlar breytingar hafa orðið á hlaupinu í Skaftá frá því sem var í dag, að sögn Guðmundar Inga Ingasonar, lögreglumanns á Kirkjubæjarklaustri. Hann segir að áin bæti þó við sig hægt og bítandi en líklegast verði þetta ekki mjög stórt hlaup þar sem aðeins rann úr öðrum sigkatlinum undir jökli. 10.8.2008 21:04
Metanstrætóar gætu sparað tugmilljónir Forsvarsmenn Strætó Bs skoða nú hvort hægt verði að fjölga strætisvögnum sem knúnir eru með metani í stað díselolíu. Með metanvögnum gætu tugir milljóna króna sparast í eldsneytiskostnað á ári. 10.8.2008 18:48
Fólk yfirgefur sumarbústaði í Skaftárdal Skaftá líkist nú Ólgusjó og óx í ánni um meter á aðeins tveimur tímum í morgun að sögn lögreglunnar á Kirkjubæjarklaustri. Hlaup í Skaftá tekur yfirleitt um hálfan sólarhring að ná hámarki. Rennsli árinnar við Sveinstind mældist um 300 rúmmetrar á sekúndu í morgun, þar sem meðalrennsli er í kringum fimmtíu rúmmetrar. 10.8.2008 16:47