Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslenski bílaflotinn einn sá stærsti Í skýrslu starfshóps um heildarstefnumótun skattlagningar eldsneytis og ökutækja sem var kynnt fyrr í dag kemur fram að heildarfjöldi bifreiða hefur fjölgað umtalsvert á seinustu árum. Frá árinu 1990 var heildarfjöldi fólksbíla, hópbíla, vöru- og sendibíla hér á landi um 134.000 en í árslok 2007 voru þeir rúmlega 240.000. 2.6.2008 16:46
Grýla gaus þegar skjálftinn reið yfir Grýla í Ölfusdal, þekktasti goshver Hveragerðis og raunar einn nafntogaðasti hver landsins, gaus í fyrst sinn í mörg ár af eðlilegum orsökum stuttu eftir síðasta Suðurlandsskjálfta og hefur hverinn gosið reglulega síðan. Grýla hefur reyndar gosið nokkrum sinnum undanfarin ár en þá eingöngu með hjálp sápu. Diðrik Jóhann Sæmundsson, garðyrkjubóndi á Friðarstöðum, segir að strax eftir skjálftann hafi Grýla lifnað við og gosið duglega. 2.6.2008 16:34
Gæsluvarðhald og farbann framlengt á ný Gæsluvarðhald yfir pólskum karlmanni, sem grunaður er um að hafa við tólfta mann ráðist með vopnum og ofstæki að sjö öðrum í húsi við Keilufell 22. mars síðastliðinn, hefur verið framlengt til 14. júlí með tilliti til almannahagsmuna. Farbann fjögurra landa hans framlengist til sama dags. 2.6.2008 16:14
Íslensk erfðagreining átti frumkvæðið að glákurannsóknum Íslensk erfðagreining hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta af verðlaunum sem fyrirtækið fékk í gær ásamt Friðberti Jónassyni, prófessor í augnlækningum. Verðlaunin voru veitt af heimssamtökum um sjúkdóminn gláku. 2.6.2008 16:06
Kjartan hvetur starfsfólk til þess að horfa til framtíðar Kjartan Magnússon, formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, segir í kjölfar harðorðrar yfirlýsingar frá starfsmönnum að hann skilji að það veki viðbrögð þegar forstjóri láti að störfum. 2.6.2008 15:56
Kennarar gagnrýna andvaraleysi stjórnvalda Félag framhaldsskólakennara hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun um stöðuna í viðræðum við fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs um endurnýjun kjarasamnings Kennarasambands Íslands í framhaldsskólum árið 2008: 2.6.2008 15:49
Bjarni einn um að fara fram á rökstuðning ráðherra Bjarni Vestmann, sendifulltrúi hjá utanríkisráðuneytinu, óskaði sl. þriðjudag eftir rökstuðningi utanríkisráðherra fyrir ráðningu Ellisifjar Tinnu Víðisdóttur í starf forstjóra Varnarmálastofunnar, en Bjarni var einn umsækjanda. 2.6.2008 15:48
19 ára stúlka ákærð fyrir alvarlega líkamsárás Í morgun var í Héraðsdómi Reykjavíkur þingfest ákæra á hendur 19 ára stúlku úr Reykjavík sem gefið er að sök að hafa framið sérstaklega hættulega líkamsárás í mosfellsbæ í júlí í fyrra. 2.6.2008 15:34
Mikið að gera í innrömmun eftir jarðskjálftann Nokkrar starfsstéttir á Suðurlandi hafa meira að gera en aðrar eftir skjálftann mikla í síðustu viku en meðal þeirra eru einstaklingar sem fást við innrömmum. Á Selfossi eru allavega tveir slíkir aðilar og gerðu þeir báðir tveir fastlega ráð fyrir því að nóg yrði að gera hjá þeim næstu mánuði. 2.6.2008 15:29
Sigrún Elsa tekur undir með starfsmönnum OR Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn Orkuveitu Reykjvíkur tekur undir áhyggjur starfsmannafélagsins af stöðu mála í fyrirtækinu. 2.6.2008 14:55
Hús á reki í Tjörninni Kofinn knái í Tjörninni í Reykjavík, sem vakið hefur talsverða athygli og hluti af Listahátíð í Reykjavík, losnaði frá stað sínum í rokinu í nótt og rak yfir alla Tjörnina. 2.6.2008 14:54
Líkamsleifar hermanna úr fyrri heimsstyrjöldinni finnast í Frakklandi Fornleifafræðingar hefur uppgötvað leifar hermanna sem börðust í orrustunni við Fromelles í Frakklandi. Grunur hafði leikið á að fjöldagrafir væru þar til staðar með líkamsleifum hundruða breskra og ástralska hermanna. Uppgröfturinn hafði vakið upp vonir ættingja hinna látna að finna líkamsleifar þeirra svo þeir gætu fengið greftrun við hæfi. 2.6.2008 14:46
Nauðsynlegt að láta Guðmund fara Ásta Þorleifsdóttir, varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, segir að trúnaðarbrestur hafi orðið á milli Guðmundar Þóroddsonar og stjórnar Orkuveitu Reykjvíkur, því hafi það verið nauðsynlegt að hann léti af störfum sem forstjóri Orkuveitunnar. 2.6.2008 14:25
Starfsmenn OR átelja stjórnina Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur samþykktu í dag harðorða ályktun þar sem vinnubrögð stjórnar Orkuveitunnar eru gagnrýnd. 2.6.2008 14:11
Hrikalegt að sleppa táknmálsfréttum þegar skjálftinn reið yfir „Mér fannst nú hrikalegt að þeir skyldu sleppa þeim, miðað við tímasetningu hafði RÚV kjörið tækifæri til að koma aðvörunum Almannavarna á framfæri á táknmáli til jafns við aðra landsmenn," segir Sigurlín Margrét Sigurðardóttir framkvæmdastjóri þegar Vísir spyr hana út í þá staðreynd að RÚV felldi niður táknmálsfréttir fimmtudaginn 29. maí, daginn sem Suðurlandsskjálftinn gekk yfir. 2.6.2008 14:08
Gruna starfsfólk Cabin um þjófnað Forsvarsmenn KFÍ á Ísafirði eru æfir út í starfsfólk Cabin hótels í Reykjavík eftir að þjálfari meistaraflokks félagsins, Borce Ilievski, var rændur þegar hann var gestur á hótelinu um þar síðustu helgi. Borce fær tjón sitt, sem metið er á um 300 þúsund krónur, ekki bætt hjá hótelinu en taskan hans fannst inn á öðru herbergi hótelsins skömmu eftir ránið. 2.6.2008 14:04
Smábílar gætu lækkað en hákarnir hækkað Starfshópur fjármálaráðherra hefur skilað af sér skýrslu um heildarstefnumótun skattlagningar eldsneytis og ökutækja. Í starfshópnum áttu sæti fulltrúar fjármálaráðuneytis, samgönguráðuneytis og umhverfisráðuneytis og átti starfshópurinn samráðsfundi við hagsmunaaðila. Verði tillögur hópsins samþykktar má gera ráð fyrir að smábílar sem losa lítið magn koltvísýrings lækki um allt að 30 prósent í verði en á móti munu bílar sem losa mikið magn hækka. Þannig er áætlað að ríkissjóður verði ekki af tekjum vegna þessara breytinga. Ríkisstjórnin mun ræða þessar tillögur í sumar og gert er ráð fyrir að ákvörðun um framhald verði tekin á vorþingi. 2.6.2008 13:49
Breytingum ætlað að tengja háskólann betur við atvinnulífið Sigurður Kári Kristjánsson, formaður menntamálanefndar Alþingis, segir að breytingarnar sem gerðar hafa verið á háskólalögum séu til þess fallnar að tengja háskólann betur við atvinnulífið. Breytingarnar eigi að stuðla að því að skipaðir verði aðilar úr atvinnulífinu í ráðið og þannig aukist samstarf háskólans við atvinnulífið. Með breytingum færist skólinn í svipað horf og þekkist á Norðurlöndunum og hjá Háskólanum í Reykjavík en þar er enginn úr sjálfum háskólanum í æðsta ráði skólans. 2.6.2008 13:45
Mikil óánægja með breytingar á háskólalögum Mikil óánægja ríkir á meðal háskólamanna með nýgerðar breytingar á háskólalögum. Ný lög um opinbera háskóla voru samþykkt á Alþingi á lokadögum þingsins. Innan Háskóla Íslands hefur mikil óánægja gert vart við sig vegna þeirra og þá aðallega breytingar sem gerðar voru á háskólaráði sem er æðsta stjórnvald skólans. 2.6.2008 13:31
Ótryggður fangi ósáttur Fangi á Litla Hrauni er ósáttur við að fá ekki bætur fyrir þær skemmdir sem urðu á eignum hans í Suðurlandsskjálftanum. 2.6.2008 12:52
Óánægðir starfsmenn OR funda Nú stendur yfir lokaður fundur starfsmanna Orkuveitu Reykjavíkur. Fjölmiðlar eru á staðnum en þeim var vísað af fundinum áður en hann hófst. 2.6.2008 12:51
Borholur gætu gefið vísbendingar um yfirvofandi skjálfta Vísindamenn kanna nú hvort samband kunni að vera á milli þess að virkni í rannsóknarholu á Hellisheiði tvöfaldaðist að morgni fimmtudags, nokkrum klukkustundum áður en Suðurlandsskjálftinn reið af. 2.6.2008 12:45
Þjónustumiðstöðvar verða opnar fram á kvöld Í gærkvöldi voru haldnir fjölmennir íbúafundir á Selfossi og Eyrarbakka þar sem farið var yfir stöðuna með íbúum í kjölfar jarðskjálftana. 2.6.2008 12:37
Styrmir lætur af störfum Styrmir Gunnarsson hefur látið af störum sem ritstjóri Morgunblaðsins eftir rúmleg 40 ára veru á blaðinu. Starfsmenn Árvakurs kvöddu Styrmi með virktum í Hádegismóum í morgun. 2.6.2008 12:17
Rannsókn Grímseyjar- og Byrgismála senn lokið Gera má ráð fyrir að um það bil mánaðarlöng vinna sé eftir við rannsókn efnahagsbrotadeildar á máli Brynjólfs Árnasonar, fyrrverandi sveitarstjóra í Grímsey, sem grunaður er um stórfelld fjársvik, og þeim hluta Byrgismálsins er snýr að fjárreiðum Byrgisins. 2.6.2008 11:32
Bankar vilja samstarf við REI Kjartan Magnússon, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavík Energy Invest, segir að nokkur fyrirtæki hafi haft samband til þess að opna á mögulegar viðræður um samstarf við REI í útrásarverkefnum á orkusviði. 2.6.2008 11:26
Franskir ferðamenn heilir á húfi Þyrla Landhelgisgæslunnar, Gná, fann rétt í þessu franska ferðamenn sem óttast var um eftir að bíll sem þeir voru með á leigu fannst mannlaus rétt við Landmannahelli í gær. Fólkið var í Landmannalaugum og amaði ekkert að því. 2.6.2008 11:00
Átta manns létust fyrir utan danska sendiráðið í Pakistan Átta manns létust í sjálfsmorðssprengingu í morgun nálægt danska sendiráðinu í Islamabad, höfuðborg Pakistan. Ekki er ljóst hver stendur að baki sprengingunni en sendiráðum Danmerkur hefur áður verið ógnað eftir að myndir af Múhammeð spámanni voru endurbirtar í dönskum fjölmiðlum í febrúar. 2.6.2008 10:49
Fyrrverandi tollverðir ákærðir fyrir brot í starfi Í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun voru þingfestar ákærur Ríkissaksóknara gegn tveimur mönnum sem gefið er sök að hafa brotið af sér í opinberu starfi. 2.6.2008 10:27
Skemmdarverk unnið á sýningarskála víkingaskips Skemmdarverk var unnið á sýningarskála víkingaskipsins Íslendings á Fitjum í Reykjanesbæ um helgina þegar fjórar stórar rúður og þrjár minni voru brotnar. 2.6.2008 07:53
Rúm 60 tonn af hvalkjöti sent til Japans Rúmlega 60 tonn af kjöti, eða allt kjötið sem fékkst af sjö langreiðum, sem veiddar voru hér við land sumarið 2006, hefur verið selt til Japans. 2.6.2008 07:39
Aðstoðuðu fólk við að flytja þunga húsmuni Um það bil þrjátíu björgunarsveitarmenn voru í allan gærdag að aðstoða fólk á jarðskjálftasvæðinu við að koma þungum húsmunum á sinn stað og sitthvað fleira. 2.6.2008 07:24
Svíar heimta að leikurinn gegn Íslandi verði spilaður aftur Svíar eru öskureiðir vegna tapsins gegn Íslandi í handbolta í dag. Þeir heimta að leikurinn verði spilaður aftur, þar sem tekið hafi verið af þeim mark. 1.6.2008 20:13
Hanna Birna næsti borgarstjóri Hanna Birna Kristjánsdóttir yrði næsti borgarstjóri Reykjvíkinga ef landsmenn fengju að ráða. 1.6.2008 18:26
Aldrei meiri stuðningur við ESB og evru Stuðningur við aðild Íslands að Evrópusambandinu og upptöku evru hefur aldrei reynst meiri samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup sem gerð var fyrir Samtök iðnaðarins. 1.6.2008 19:24
Íslenskur skiptinemi við geimferjuskot -myndband Geimskutlunni Discovery var skotið á loft frá Kennedy geimferðastöðinni í Flórída í gær. 1.6.2008 17:45
Alþjóðleg verðlaun fyrir vísindarannsóknir Friðbert Jónasson, prófessor í augnlækningum við Háskóla Íslands og yfirlæknir við Landspítala háskólasjúkrahús, hlaut í dag árleg verðlaun Heimssamtaka um augnsjúkdóminn gláku. 1.6.2008 17:01
Frjálslyndar konur mótmæltu kvótakerfinu Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum stóð fyrir mótmælum gegn kvótakerfinu í dag. 1.6.2008 16:48
Dorrit smakkaði afmælistertu Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaief voru meðal afmælisgesta í Hafnarfirði í dag. Hafnarfjörður fagnaði 100 ára afmæli sínu með miklu tilstandi. 1.6.2008 16:42
Áfram vakt á skjálftasvæðinu Rauði krossinn verður með vakt í Hveragerði og á Selfossi eftir lokun þjónustumiðstöðva í kvöld, sunnudag. 1.6.2008 16:29
Ellisif Tinna tekin við vörnum landsins Varnarmálastofnun tók til starfa í dag, 1. júní. Varnarmálastofnun sinnir varnartengdum verkefnum. Stofnunin heyrir undir utanríkisráðherra, sem ber ábyrgð á öryggis og varnarstefnu Íslands á alþjóðavettvangi. 1.6.2008 16:00
Eitt reyklaust ár að baki Eitt ár er nú liðið síðan slökkt var í síðustu löglegu sígarettunum á kaffihúsum, veitinga- og skemmtistöðum landsins. Reykingabannið á ársafmæli í dag. 1.6.2008 13:37
Borgarstjórnin kolfallin Samfylkingin fengi 45% atkvæða og hreinan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur ef kosið væri nú, samkvæmt könnun Capacent Gallup. 1.6.2008 12:40
100 metra afmælisterta í Hafnarfirði Hafnarfjörður á 100 ára afmæli í dag og verður mikið um dýrðir í bænum af því tilefni. 1.6.2008 10:54
Drukknir í bílveltu -og á flótta Þrír Pólverjar eru í haldi hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Á ellefta tímanum í gærkvöldi var tilkynnt um bíl sem hafði oltið af veginum við Vatnsleysuströnd. 1.6.2008 10:49
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent