Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kísilvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Kísilvegurinn, eða vegurinn um Hólasand á milli Húavíkur og Mývatnssveitar, rofnaði á tveimur stöðum í gærkvöldi vegna vatnavaxta. 19.5.2008 07:37
Fjárhagur sveitarfélaga fer versnandi Vegna þróunar í efnahagsmálum bendir allt til þess að fjárhagur sveitarfélag hér á landi versni um allt að fimm milljarða króna á þessu ári. Þau verða því mörg hver að skera niður verkefni og sinna aðeins þeim verkum sem lögbundin eru. K 18.5.2008 18:58
Á batavegi eftir að hafa innbyrt ólyfjan Mennirnir tveir sem hnigu hniður á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í nótt eru á batavegi. Líðan þeirra er eftir atvikum ágæt að sögn læknis. 18.5.2008 18:33
Slökkvilið kallað að Úlfarsfelli Slökkvilið var kallað að gróðurhúsi við rætur Úlfarsfells vegna koldíoxíðsleka á sjötta tímanum í dag. Sjúkraflutningamenn voru einnig sendir á vettvang. 18.5.2008 18:07
Fyrstu heimilismennirnir boðnir velkomnir Fyrstu heimilismennirnir voru boðnir velkomnir á deild L-1 í dag sem Grund hefur með samningi við Landaspítala tekið að sér að reka. Deildin er biðdeild fyrir aldraða þar sem áhersla er lögð á heimilisfólk með heilabilun. 18.5.2008 17:34
Ísland ekki á lista yfir samkeppnishæfar þjóðir Ísland er ekki lengur á lista IMD-viðskiptaháskólans í Sviss yfir samkeppnishæfustu þjóðir heims. Listinn hefur verið birtur síðan 1989. IMD-viðskiptaskólinn, sem var stofnaður 1990 með samruna tveggja viðskiptaskóla sem árisinn Alcan og Nestlé ráku, hefur séð um að gera hann. Ísland var í þriðja sæti á listanum fyrir tveimur árum og í fyrra var Ísland í sjöunda sæti. 18.5.2008 12:11
Tveir urðu fyrir árás Tveir menn urður fyrir alvarlegum líkamsárásum í nótt. Annar þeirra varð fyrir árása þar sem hann var við störf sem dyravörður á skemmtistað í miðborginni. Hinn var á ferð um Þverholt í Reykjavík þegar hópur manna koma aðvífandi í bíl, stökk út, og réðist á hann með bareflum. 18.5.2008 11:47
Tveir meðvitundarlausir eftir ólyfjan Tveir karlmenn voru fluttir meðvitundarlausir á sjúkrahús eftir að þeir hnigu niður á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í nótt. 18.5.2008 10:34
Þrír gistu fangageymslur á Suðurnesjum Mikið var að gera hjá lögreglu á Suðurnesjum vegna slagsmála og óláta í miðbæ Keflavíkur í nótt. Þrír aðilar gistu fangaklefa vegna ölvunar og óláta. Lögregla var fimm sinnu kölluð til vegna hávaða í heimahúsum 18.5.2008 09:45
Yfirvaldið á Álftanesi sagt hunsa Hæstarétt Eigandi lóðarinnar Miðskóga 8 á Álftanesi segist ekki una því að bæjaryfirvöld gefi Hæstarétti langt nef með því að afmá sjávarlóð hans út af skipulagi. Forseti bæjarstjórnar býr ofan við lóðina og telur nýtt einbýlishús ekki rúmast þar. 18.5.2008 06:00
Fundað um kjaramál Samninganefndir BSRB og ríkisins ætla að hittast klukkan 10 í fyrramálið en samninganefndirnar funduðu í dag. 17.5.2008 20:06
Lettar latastir við að telja fram Auk Íslendinga greiðir fólk frá tuttugu og níu þjóðlöndum skatta á Íslandi. Pólverjar eru fjölmennastir en Filipseyingar eru duglegastir við að skila inn skattframtölum. Lettar eru hins vegar latastir við að skila inn framtali. 17.5.2008 19:23
Fjölmenni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum Það var mikið fjör í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag þar sem áskrifendur Stöðvar 2 og fjölskyldur þeirra gerðu sér glaðan dag í boði Stöðvar 2. Að vanda var afar fjölmennt en gert er ráð fyrir að ríflega 16 þús manns hafi verið í garðinum þegar hæst stóð, í mildu og góðu veðri. 17.5.2008 17:22
Enn mótmælt við kínverska sendiráðið Lítill hópur safnaðist saman í stutta stund fyrir utan kínverska sendiráðið í hádeginu í dag. Sem fyrr var verið að mótmæli framgöngu Kínverja í málefnum Tíbet. Lögregla var viðstödd og segir að mótmælin hafi farið friðsamlega fram. 17.5.2008 15:43
Anna kjörin formaður Rauða kross Íslands Anna Stefánsdóttir var í dag kjörin formaður Rauða kross Íslands á aðalfundi félagsins. Hún tekur við af Ómari H. Kristmundssyni sem gegnt hefur formennsku síðastliðin tvö ár. Anna var kjörin með lófataki á aðalfundinum sem haldinn var í Kópavogi. 17.5.2008 15:14
Þrengt að réttinum til gjafsóknar Verulega hefur verið þrengt að réttinum til gjafsóknar, að mati Ragnars Aðalsteinssonar hæstaréttarlögmanns. 17.5.2008 14:23
Ævintýrahöll við Fríkirkjuveg Guðrún Ásmundsdóttir, fulltrúi minnihlutans í menningar- og ferðamálaráði, leggur til að Fríkirkjuvegur 11 verði gerður að Ævintýrahöll barnanna í sumar. 17.5.2008 06:00
Ósáttir við að vera stimplaðir ofbeldisseggir Ungu mennirnir sem fyrr í kvöld voru sakaður um svíðingsskap við Hlíðaskóla í dag höfðu samband við Vísi og eru ósáttir við fréttaflutning Vísis og Stöðvar 2 af málinu. Þeir segja atburðarrásina hafa verið allt aðra en þá sem sagt var frá í fréttum. Að þeirra sögn var það húsvörðurinn við skólann sem hóf stympingarnar en ekki þeir. 16.5.2008 20:56
Boða aðgerðir við þinglok Haukur Birgisson, bílstjórinn sem lagði bíl sínum fyrir hlið olíubirgðastöðvarinnar í Örfirisey, segist hafa látið af mótælunum í bili. Hann boðar aðgerðir á Austurvelli við þinglok. 16.5.2008 19:51
Lagði trukknum fyrir hliðið að Örfirisey Flutningabíl og jeppa var á sjöunda tímanum lagt fyrir aðalhlið olíubirgðastöðvarinnar í Örfirisey. Bílstjórinn sagði í samtali við fréttamann Stöðvar 2 að með aðgerðunum væri meiningin að trufla olíuflutninga olíufélaganna. Nóg væri komið af sífelldum hækkunum og því hefði hann ákveðið að grípa í taumana. 16.5.2008 18:44
Rétthafar stefna Istorrent á ný Aðstandendur Istorrent.is skráaskiptasíðunnar hafa sent frá sér fréttatilkynningu. Þar segir að rétthafasamtökin sem fengu lögbann sett á vefinn á sínum tíma hafi nú höfðað nýtt mál til staðfestingar lögbannsins og að svo virðist sem lögbannið sé því enn í gildi. Áður hafði héraðsdómur vísað málinu frá vegna vanreifunnar og tók Hæstiréttur undir þann dóm þann 8. maí síðastliðinn. Í tilkynningunni segir einnig að þolendur lögbannsins muni krefjast skaðabóta vegna tjóns sem þeir segjast hafa orðið fyrir vegna lögbannsins. 16.5.2008 20:18
Pistorius standi jafnfætis öðrum keppendum Forstjóri stoðtækjafyrirtækisins Össurar segir spretthlauparann Oscar Pistorius standa janffætisr ófötluðu keppendum á Ólympíuleikunum. Pistorius gengur með tvo gervifætur frá fyrirtækinu. Alþjóðlegur áfrýjunardómstóll í íþróttamálum úrskurðaði í dag að hann mætti keppa á Ólympíuleikunum nái hann ólympíulágmarkinu. 16.5.2008 19:06
Lögregla handtók mann við skrifstofu Félagsþjónustunnar Karlmaður sem hefur í tvígang ráðist inn á skrifstofu Félagsþjónustunnar í Hafnarfirði hefur verið handtekinn. Maðurinn réðst þangað inn í gær, sparkaði upp hurð og var með hótanir. 16.5.2008 16:58
Ofbeldisfullir unglingar við Hlíðaskóla Nokkrir unglingar sem komu með bolabít inn á frístundaheimili Hlíðaskóla í dag jusu svívirðingum yfir starfsfólk og réðust á húsvörð, þegar reynt var að fá þá til þess að fara. 16.5.2008 16:57
Auglýsing Keilis fyrst og fremst ímyndarauglýsing Stefanía Katrín Karlsdóttir, framkvæmdastjóri heilsu- og uppeldisskóla Keilis, segir það byggt á misskilningi að auglýsingar um hjúkrunarfræðinám við Keili séu innistæðulausar. 16.5.2008 16:10
Ákærð vegna mótmæla við Hellisheiðarvirkjun Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins á hendur níu einstaklingum tengdum Saving Iceland verður í Héraðsdómi Suðurlands á mánudag. . 16.5.2008 16:01
Alþjóðahús hlýtur mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar Alþjóðahús hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar sem veitt voru í fyrsta sinn í dag, á sérstökum mannréttindadegi Reykjavíkurborgar 16.5.2008 15:36
Sendi 11 SMS með hótunum um líkamsmeiðingar og líflát Ákæra á hendur þrítugum karlmanni sem sakaður er um hótanir í garð annars manns var þingfest í Héraðsdómi Suðurlands í gær. 16.5.2008 15:27
Grunaður innbrotsþjófur á höttum eftir köttum Lögreglan fékk tvær tilkynningar um grunsamlegar mannaferðir í gær, sem báðar byggðu á miklum misskilningi. 16.5.2008 15:23
Tuttugu þúsund króna sekt fyrir nagladekk í umferð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjá ökumenn í gær sem allir voru á bílum á nagladekkjum en það er með öllu óheimilt á þessum árstíma. 16.5.2008 15:10
Tillaga að matsáætlun fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar liggur fyrir Tillaga að matsáætlun fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar frá Hólmsá ofan Reykjavíkur og að Hveragerði hefur verið lögð inn til Skipulagsstofnunar til málsmeðferðar samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. 16.5.2008 15:03
Ákærður fyrir að hafa þrisvar ráðist á barnsmóður sína Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa í þrígang ráðist á barnsmóður sína á síðustu þremur árum. 16.5.2008 15:03
Ákærðir fyrir að berja tvo við íþróttahús Fjórir menn á aldrinum 20-24 ára hafa verið ákærðir fyrir tvær líkamsárásir við Íþróttahúsið í Þorlákshöfn í febrúar í fyrra en þeir réðust gegn fórnarlömbum sínum með höggum og spörkum. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Suðurlands í gær. 16.5.2008 14:38
Iðnskólanum í Reykjavík slitið í síðasta sinn Iðnskólanum í Reykjavík verður slitið í 104. og síðasta sinn við hátíðlegt tækifæri í Hallgrímskirkju klukkan þrjú í dag. 16.5.2008 14:17
Ágreiningur um Evrópumál að koma upp á yfirborðið „Það sem er að koma upp á yfirborðið er sá ágreiningur sem er innan flokksins um Evrópumál 16.5.2008 14:02
Remax fasteignasölur renna í sömu sæng Fjórar fasteignasölur sem starfað hafa undir merkjum Remax hafa sameinast. Um hagræðingu er að ræða og engin fækkun verður á sölufólki. Þórarinn Sævarsson einn af eigendum Remax segir að eingöngu sé verið að minnka kostnað. Hann telur að fasteignamarkaðurinn verði orðinn góður í ágúst. 16.5.2008 13:32
Spara þúsundir lítra af eldsneyti með hjólreiðum Hjólagarpar víða um land sem taka þátt í átakinu Hjólað í vinnuna hafa þegar lagt að baki samanlagt 174 þúsund kílómetra samkvæmt upplýsingum á heimasíðu ÍSÍ. 16.5.2008 13:26
Sakar ríkið um fálæti í samningaviðræðum Guðlaug Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari, var kosinn nýr formaður Bandalags háskólamanna nú laust fyrir hádegið. Hún sakar fulltrúa ríkisins um fálæti þar sem eiginlegar samningaviðræður hafi enn ekki hafist þrátt fyrir endurtekna fundi. 16.5.2008 13:07
Sakar frjálslynda á Akranesi um ómengaða útlendingaandúð Iðnaðarráðherra sakar Frjálslynda flokkinn á Akranesi um ómengaða útlendingaandúð, frekju og mannfyrirlitningu vegna andstöðu þeirra við móttöku flóttamanna frá Palestínu. 16.5.2008 13:02
„Löggæslan er fyrir fólkið í landinu“ „Hugsunin með stofnun þessa embættis var fyrst og fremst sú að þetta yrði einhvers konar stjórnsýslu- eða samræmingarstofnun fyrir embættin á landinu. 16.5.2008 12:30
Boðar breytingar á Íbúðalánasjóði Geir Haarde forsætisráðherra boðar breytingar á rekstri Íbúðalánasjóðs. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér vegna tvíhliða samninga Seðlabanka Íslands við Seðlabanka í Skandínavíu. 16.5.2008 12:25
Skýrslur teknar í dag vegna kæra á hendur séra Gunnari Þrjár stúlkur á táningsaldri mæta í skýrslutöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag í tengslum við kærur þeirra á hendur séra Gunnari Björnssyni, sóknarpresti á Selfossi. 16.5.2008 12:19
Guðlaug Kristjánsdóttir formaður BHM Guðlaug Kristjánsdóttir sjúkraþjálfari var kjörin formaður Bandalags háskólamanna á framhaldsaðalfundi félagsins rétt fyrir hádegið. Halldóra Friðjónsdóttir, fráfarandi formaður, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku. 16.5.2008 11:56
Segir umræðu um embætti Ríkislögreglustjóra villandi Ríkislögreglustjóri hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem því er haldið fram að opinber umræða um málið á Alþingi í gær hafi verið villandi. 16.5.2008 11:48
Eldsneyti lækkar Olíufélögin hafa lækkað verð á eldsneyti. Bensín lækkar um þrjár krónur lítrinn og dísilolía um tvær krónur. Hjá Atlantsolíu segja menn að þetta sé í takt við heimsmarkaðsverð, sem hafi lækkað nokkuð. 16.5.2008 11:42