Fleiri fréttir

BHM vill nýja vegamálastjóraauglýsingu

Vísi hefur borist eftirfarandi bréf Stefáns Aðalsteinssonar, framkvæmdastjóra Bandalags háskólamanna, til Kristjáns L. Möller samgönguráðherra:

Vill bjóða vörubílstjórum í kaffi

Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segist hafa fylgst með mótmælum vörubílstjóra og vill helst að þeir kíki til sín í kaffi. Þetta kom fram í viðtali við Árna í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í gær.

Boðar átak í verðkönnunum

Á fundi sem viðskiptaráðherra og stjórnvöld boðuðu til í hádeginu í dag var gengið til samstarfs við Alþýðusamband íslands, Neytendasamtökin og Neytendastofu um að leita leiða til að vinna gegn verðhækkunum og draga úr þeirri verðlagsþróun sem nú stefnir í.

Óttast ekki klíkustríð á Litla-Hrauni

„Það er auðvitað kunningskapur á milli manna sem kannski koma inn og hafa lengi verið saman í afbrotum. En það er ekki þannig að hér séu einhver gengi,“ segir Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni.

Segja ekki komin fram góð rök fyrir breytingu á Suðurnesjum

Þrír þingmenn Samfylkingarinnar, þeir Lúðvík Bergvinsson, Árni Páll Árnason og Helgi Hjörvar, lýstu allir yfir efasemdum um fyrirhugaðar breytingar á embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Veigamikil rök þyrfti að breyta því sem gengi vel og slík rök væru ekki komin fram.

Óskar óskar eftir rökstuðningi borgarstjóra

„Á þeim rúmu tveimur mánuðum frá því borgarstjórnarmeirihluti Ólafs F Magnússonar tók við völdum í Reykjavíkurborg hefur borgarstjóri nú í þrígang veist að Framsóknarflokknum og fulltrúa hans í borgarstjórn með þeim hætti að eftir hefur verið tekið,“segir í fyrirspurn Óskars Bergssonar borgarfulltrúa Framsóknarflokksins.

Geir og Ingibjörg Sólrún með einkaþotu á NATO-fund

Íslenska sendinefndin sem fer á leiðtogafund NATO í Búkarest á morgun mun ferðast með einkaþotu til Rúmeníu frá Íslandi. Aðstoðarkona forsætisráðherra segir kostnaðarmuninn á ferðinni miðað við áætlunarflug óverulegan. Með vélinni fara þau Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra auk fylgdarliðs og blaðamanna.

Vaxandi eftirspurn eftir silungsveiðileyfum

Vaxandi eftirspurn er eftir silungsveiðileyfum sem eru allt að tífalt ódýrari en laxveiðileyfi. Veiðitímabilið hófst í morgun á öllum hefðbundnum veiðisvæðum. Undantekning er þó Varmá í Ölfusi.

Fjölmenni á nefndafundi um efnahagsmál í morgun

Fjölmenni var á sameiginlegum fundi fjárlaganefndar og og efnahags- og skattanefndar Alþingis í morgun þar sem rædd var staða efnahagsmála og horfur í ríkisfjármálum. Fjárlaganefnd bíður eftir nýrri þjóðhagsspá og Peningamálum áður en skoðað verður hvort endurskoða þurfi fjárlög.

Funduðu með nýrri Evrópunefnd

Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra áttu í dag fund með nýskipaðri nefnd um þróun Evrópumála.

Snekkjan leggst að bryggju

Snekkja Pálma Haraldssonar, áður í eigu Saddams Husseins, lagðist fyrir skömmu að bryggju við hlið Viðeyjarferjunnar í Sundahöfn. Snekkjunni er ætlað að hýsa Al Gore á meðan hann dvelur hér á landi í næstu viku, og munu bandarískir öryggisverðir sem gæta varaforsetans fyrrverandi því taka við henni upp úr tvö í dag og fara yfir öryggismál.

Leggja fram fjárnámskröfu á snekkju Saddams

„Þetta er náttúrulega afar kaldhæðnislegt, en að sumu leyti viðeigandi, því eins og menn vita byggði Saddam veldi sitt að miklu leyti á stuðningi Bandaríkjanna," segir Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga.

Orkuveitan ekki skaðabótaskyld

„Það sem gerðist var að virkjunin sló út líka og þar er eitthvað framleiðslutap sem nemur hundruðum þúsunda en ómögulegt er að segja til um kostnað fyrir notendur,“ segir Eiríkur Hjálmarsson upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur.

Málþing um íslenska tungu í fjölmiðlum

„Íslenskan er atvinnutæki íslensks fjölmiðlafólks,“ segir Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri og nefndarmanneskja Íslenskrar málnefndar, í spjalli við Vísi um málþing föstudagsins sem að þessu sinni fjallar um stöðu íslenskrar tungu í fjölmiðlum og er haldið í samvinnu við Blaðamannafélag Íslands.

Byrgisstúlkan kvartar til umboðsmanns Alþingis

Ólöf Ósk Erlendsdóttir hefur kvartað undan Birgi Ottóssyni forstöðumanni þjónustudeildar Félagsbústaða til umboðsmanns Alþingis. Hún sakar hann um einelti og að hafa fjarlægt eigur sínar úr íbúð sem Ólöf var í á þeirra vegum. Það gerði hann án þess að hafa dómsúrskurð og án þess að hafa samband við fjölskyldu Ólafar segir í kvörtuninni. Ólöf afplánar nú dóm í Kvennafangelsinu.

Kalli Bjarni fluttur heim til mömmu

„Hann er kominn heim á hótel mömmu og verður hjá mér þangað til hann fer inn," segir Sveinbjörg Karlsdóttir, móðir Kalla Bjarna, sem handtekinn var á föstudaginn á Hótel Vík ásamt vinkonu sinni með 65 grömm af amfetamíni.

Nokkurt tjón í vatnsleka í Árbæ

Talsverðar annir voru hjá slökkviliði í gærkvöld og nótt og var það meðal annars kallað út þrisvar vegna elds í bílum og einu sinni vegna vatnsleka.

Sjóbirtingsveiðin hafin

Sjóbirtingsveiði hófst í morgun á öllum hefðbundnum veiðistöðum fyrir sjóbirting nema í Varmá í Ölfusi. Þar er enn verið að meta afleiðingar mengunarslyssins í fyrra þegar klór frá sundlauginni í Hveragerði barst út í ánna. Heldur færri urriðum er nú landað ár eftir ár en áður og bleikju hefur fækkað mikið síðastliðin fimm ár án þess að vísindalegar skýringar séu á því.

Einn með hamar og annar með hníf

Lögregla kannar nú hvort tveir menn, sem hún handtók á Eiríksgötu í Reykjavík í nótt, kunni að hafa eitthvað saknæmt á samviskunni því annar var vopnaður hnífi og hinn hamri.

Fáir aka of hratt í göngunum

Aðeins eitt prósent bíla, sem óku um Hvalfjarðargöng frá föstudegi fram á mánudag, reyndist vera á of miklum hraða, samkvæmt mælingum lögreglunnar.

Gore gistir á snekkju Saddams á Íslandi

Nóbelsverðlaunahafinn Al Gore mun gista á snekkju Saddams Hussein á meðan hann dvelur á Íslandi í næstu viku. Snekkjan er í eigu athafnamannsins Pálma Haraldssonar sem keypti hana fyrir skömmu. Þetta staðfesti Pálmi í samtali við Vísi í morgun .

Sjá næstu 50 fréttir