Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hert landamæraeftirlit á Leifsstöð vegna Hells Angels Gripið var til herts landamæraeftirlits í Leifsstöð síðdegis í gær, að skipan dómsmálaráðherra, og stendur það fram á sunnudagskvöld. Hlutaðeigandi Shengen ríkjum hefur verið gert viðvart um þessa ráðstöfun í þágu þjóðaröryggis. 2.11.2007 07:02
Fé kastað á glæ og orðsporið skaðað „Þessi afdráttarlausa niðurstaða kemur mér á óvart og veldur mér vonbrigðum,“ segir Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður Reykjavik Energy Invest (REI). „Nú þurfum við að fara yfir afleiðingar þessarar niðurstöðu og skoða hver staða REI er í ljósi hennar.“ 2.11.2007 02:00
Fíkniefnin í flotholtum Hluti fíkniefnanna sem tekin voru í skútu í Fáskrúðsfjarðarhöfn á dögunum var falinn í flotholtum. Önnur efni voru geymd í töskum um borð. 2.11.2007 00:01
Vill nafn sitt afmáð úr fréttum Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, lögfræðingur Loga Freys Einarssonar, sem grunaður var um að hafa átt aðild að Pólstjörnumálinu á Fáskrúðsfirði, hefur farið fram á það við ritstjóra Vísis að nafn Loga verði afmáð úr öllum fréttum í fréttasafni Vísis. 2.11.2007 00:01
Ritstjóri DV ekki hafður með í ráðum Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri DV, var ekki hafður með í ráðum þegar ákveðið var að sameina fréttastofur DV, dv.is og tímaritsins Mannlífs. Þetta kom fram í máli hans í útvarpsþættinum Kvöldsögur á Bylgjunni með Önnu Kristine, sem einnig er starfsmaður DV. 1.11.2007 22:49
Vopn og fíkniefni fundust hjá Fáfnismönnum Samkvæmt heimildum Vísis lagði lögreglan hald á tölvur, vopn og fíkniefni í húsleit sinni hjá mótorhjólaklúbbi Fáfnis í dag. Húsleitin tengist rannsókn á fíkniefnamáli en lögreglan á Suðurnesjum verst allra frétta af málinu. 1.11.2007 19:47
Þrír menn úrskurðaðir í farbann vegna nauðgunarmáls Þrír menn voru úrskurðaðir í farbann til 17. desember næstkomandi að beiðni lögreglustjórans á Selfossi vegna rannsókn nauðgunarmálsins. Sakborningar voru leiddir fyrir dómara síðdegis í dag þar sem þeir gáfu skýrslu. 1.11.2007 19:39
Herjólfur fastur í Þorlákshöfn Herjólfur er fastur í Þorlákshöfn þessa stundina. Skipstjóri Herjólfs vill ekki leggja í hann vegna veðurs og ætlar að bíða þar til lægir. 8 metra ölduhæð er á milli lands og eyja. 1.11.2007 20:37
Björgunarsveitir aðstoða fleiri rjúpnaskyttur Björgunarsveitirnar Biskup og Ingunn aðstoðuðu í dag rjúpnaskyttur sem sátu fastar í mikilli aurbleytu við Bláfellsháls. Sveitirnar voru kallaðar út um klukkan tvö í dag en aðgerðum lauk um áttaleytið í kvöld. 1.11.2007 22:14
Brunaútkall á Akureyri Slökkvilið Akureyrar var kallað að Verkmenntaskólanum þar í bæ um klukkan sjö í kvöld eftir að eldur kviknaði í sagi á trésmíðaverkstæði skólans. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. 1.11.2007 20:27
Reyndi að smygla steralyfjum inn til landsins Karlmaður var í Héraðsdómi Austurlands í dag gert að greiða 120 þúsund krónur í sekt fyrir að hafa flutt lyf ólöglega til landsins. Þá var manninum einnig gert að greiða 340 þúsund krónur í sakarkostnað. 1.11.2007 19:51
Stýrivaxtahækkun kom mörgum á óvart Ákvörðun Seðlabankans í morgun um að hækka stýrivexti kom mörgum á óvart en vextir höfðu verið óbreyttir frá því í desember á síðasta ári. 1.11.2007 19:36
Útafakstur á Hellisheiði Útafakstur varð á Suðurlandsvegi á Hellisheiði um klukkan 18.40 í dag. Engan sakaði að sögn lögreglu. 1.11.2007 19:32
Minni áhrif en almennt var talið Ákvörðun Kaupþings um að taka upp Evru hefur ekki almennt þær stórkostlegu afleiðingar sem ýmsir hafa talið segir Davíð Oddsson. Um miðjan september tók hann þó nokkuð dýpra í árina. 1.11.2007 19:30
Snjóflóðum komið af stað með sprengingum Snjóflóðum verður komið af stað með sprengingum á Vestfjörðum í vetur. Kanna á hvort hægt sé að nota þessa aðferð við snjóflóðaeftirlit. 1.11.2007 19:14
Stöðvaði 15 ára ökumann Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði 15 ára ökumann við almennt umferðareftirlit í nótt. Eigandi bifreiðarinnar sat í farþegasæti bifreiðarinnar og hafði veitt þeim unga til að aka eins og segir í frétt lögreglunnar. Báðir eiga von á kæru fyrir athæfi sitt. 1.11.2007 19:09
Fyrsta raforkan frá Kárahnjúkum Orkan frá Kárahnjúkum var í fyrsta sinn notuð til að framleiða rafmagn í dag, - í tilraunaskyni, en stefnt er að því virkjunin verði gangsett eftir helgi. 1.11.2007 19:00
Tatjana Lationovic hlýtur húmanistaviðurkenningu Siðmenntar Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, hefur ákveðið að veita Tajönu Latinovic húmanistaviðurkenningu ársins 2007. 1.11.2007 18:46
Djúpivogur vill sameinast Egilsstöðum Sveitarstjórnir Djúpavogshrepps og Fljótsdalshéraðs hafa ákveðið að hefja viðræður um sameiningu. Minni sveitarfélög eru svelt til hlýðni, segir sveitarstjóri Djúpavogs. 1.11.2007 18:45
Fundaði með starfsmönnum Orkuveitunnar í dag Bryndís Hlöðversdóttir stjórnarformaður Orkuveitunnar og Hjörleifur Kvaran forstjóri funduðu með starfsmönnum Orkuveitunnar í dag. 1.11.2007 18:28
Hagar biðja Samkeppniseftirlitið að rannsaka áskanir um samráð Hagar, sem meðal annars reka Bónus og Hagkaup, hafa sent Samkeppniseftirlitinu bréf þar sem fyrirtækið óskar eftir því að stofnunin hefji nú þegar rannsókn á tilhæfulausum ásökunum á hendur fyrirtækjum Haga þess efnis að fyrirtækin séu aðilar að ólögmætu samráði á matvörumarkaðnum hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 1.11.2007 18:05
Harma fundarhöld stjórnenda í ógeðfelldum iðnaði Fundir og kaupstefnur vopnaframleiðenda hér á landi samrýmast ekki því markmiði að kynna Reykjavík sem miðstöð friðar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu borgarstjórnarflokks Vinstri grænna. Flokkurinn harmar að Reykjavík sé gerð að vettvangi fundarhalda stjórnenda í þessum ógeðfellda iðnaði. 1.11.2007 17:58
Einn úr Fáskrúðsfjarðarmáli áfram í gæsluvarðhaldi Einn þeirra fjögurra manna sem sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við svokallað Fáskrúðsfjarðarmál hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 8. nóvember vegna rannsóknarhagsmuna. 1.11.2007 17:31
Þrettán Litháar áfram í farbanni Þrettán Litháar, sem grunaðir eru um stófelldan þjófnað úr fjölmörgum verslunum á höfuðborgarsvæðinu, hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi farbann til 13. nóvember. 1.11.2007 17:28
Sýknaðir af því að grípa í pung skipsfélaga síns Tveir togarasjómenn voru í dag sýknaðir af því að grípa harkalega í pung skipsfélaga síns með þeim afleiðingum að hann lá sár eftir. Héraðsdómur hafði sakfellt mennina fyrir verknaðinn og dæmt þá í þriggja og tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi en Hæstiréttur koms að þeirri niðurstöðu að sýkna bæri mennina. 1.11.2007 17:19
Myndband: Vopnuð víkingasveit ræðst inn í mótorhjólaklúbb Húsleit lögreglunnar í klúbbhúsi bifhjólaklúbbsins Fáfnis í dag náðist á myndband. Hægt er að sjá myndbandið hér á síðunni. 1.11.2007 17:06
50 þúsund krónur í bætur fyrir hlerun Hæstiréttur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða karlmanni 50 þúsund krónur í skaðabætur vegna vegna þess að sími hans var hleraður í tvær vikur í tengslum við bruna á Sauðárkróki fyrir um þremur árum. 1.11.2007 16:59
Húsleit í klúbbhúsi Fáfnismanna Lögreglan í Reykjavík gerði húsleit í klúbbhúsi Fáfnismanna við Frakkastíg fyrir hálftíma síðan. Voru um tuttugu sérsveitarmenn sem brutust inn í húsið þar sem Jón Trausti Lúthersson meðlimur samtakanna var innan dyra. 1.11.2007 16:49
Níu mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot Karlmaður var í Hæstarétti í dag dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot og fyrir bensínstuld. Var það sami dómur og hann fékk í héraðsdómi. 1.11.2007 16:48
Bjarni Ármannsson: Niðurstaðan veldur mér þungum vonbrigðum Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður REI, reyndi ekki að dylja vonbrigði sín með ákvörðun Borgarráðs að hafna samruna REI og GGE þegar Vísir ræddi við hann í dag. "Þetta veldur mér þungum vonbrigðum," sagði Bjarni. 1.11.2007 16:42
Átta mánaða fangelsi fyrir að bera sig fyrir framan börn Hæstiréttur staðfesti í dag átta mánaða fangelsisdóm héraðsdóms yfir karlmanni sem ákærður var fyrir kynferðisbrot gegn fimm börnum. Fimm mánuðir af dómnum eru skilorðsbundnir. 1.11.2007 16:41
MS áfrýjar dómi um vanhæfi forstjóra Samkeppniseftirlitsins Mjólkursamsalan, Auðhumla og Osta- og smjörsalan hyggjast gagnáfrýja til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli félaganna á hendur Samkeppniseftirlitinu sem féll í síðasta mánuði. 1.11.2007 16:28
Ekki von á viðbrögðum frá Geysi Green að svo stöddu Engin viðbrögð hafa borist frá Geysi Green Energy í kjölfar þess að borgarráð samþykkti að hafna samruna Reykjavík Energy Invest og GGE. Auður Nanna Baldvinsdóttir, kynningarfulltrúi GGE, segir að ekki sé von á viðbrögðum í dag. 1.11.2007 16:04
Vilja færa ákvæði stjórnarskrár til nútímans Þrír þingmenn Samfylkingarinnar, Ellert B. Schram, Gunnar Svavarsson og Katrín Júlíusdóttir, hafa lagt fram frumvarp um breytingu á ákvæðum stjórnarskrárinnar sem snúa að forsetanum. 1.11.2007 15:55
Fiskvinnslufólk fær 217 milljónir í aukabætur Stjórnarfrumvarp hefur verið lagt fram á alþingi sem gerir ráð fyrir aukagreiðslum til þess fiskvinnslufólks sem verður atvinnulaust vegna kvótaskerðingarinnar. Er gert ráð fyrir að eyða 77 milljónum kr. á þessu ári og 140 milljónum kr. á næsta ári úr ríkissjóði sökum þessa eða samtals 217 milljónum kr. 1.11.2007 15:25
Kráareigendur safna undirskriftum Félag kráareigenda í Reykjavík hefur hafið undirskriftasöfnun á netinu þar sem fyrirætlunum borgaryfirvalda um að stytta opnunartíma nokkurra skemmtistaða í miðbænum er mótmælt. Í tilkynningu frá félaginu segir að kráareigendur hafi fyrir því áreiðanlegar heimildir að fyrirhuguð stytting opnunartíma staðanna Q-bar, Mónakó og Monte Carlo sé „einungis byrjunin á því að stytta opnunartíma skemmtistaða," í borginni. 1.11.2007 15:12
Menn njóti rjúpnaveiða Varaformaður Skotveiðifélags Íslands segir nýhafið rjúpnaveiðitímabil leggjast vel í veiðimenn og að félagið sé fylgjandi þeirri aðferðafræði sem stjórnvöld noti við ákvörðun um rjúpnaveiðar. Hann leggur áherslu á að menn njóti þess að vera á veiðum og segir veiðimenn almennt jákvæða gagnvart hófsamlegum veiðum. 1.11.2007 15:06
Vilja endurskoða áfengislöggjöf Viðskiptaráð telur tímabært að endurskoða áfengislöggjöfina með það fyrir augum að koma til móts við sjónarmið heildsala en án þess að það stefnu heilsu landsmanna í hættu. Þá vill ráðið að einkasala ríkisins á áfengissölu verði aflögð en frumvarp svipaðs efnis liggur nú fyrir Alþingi. 1.11.2007 15:00
Borgin styrkir félag til að fegra miðbæinn fyrir jólin Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að félagið Miðborg Reykjavíkur fái átta milljóna króna styrk til þess að mæta kostnaði vegna kynningarmála í aðdraganda jóla. 1.11.2007 14:42
Ólögráða burðardýr eru nýtt vandamál Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir að það sé nýtt vandamál að ungmenni undir lögaldri séu handtekin vegna gruns um fíkniefnasmygl. Tvær sautján ára gamlar stúlkur voru teknar með 300 grömm af kókaíni síðastliðinn mánudag 1.11.2007 14:08
Björgun hf fær lóð við Álfsnes Hafnarstjórn vinnur nú að því að finna nýja lóð undir starfsemi Björgunnar hf. á Sævarhöfða. Íbúar Bryggjuhverfisins í grennd við Björgun hafa kvartað undan mikilli mengun frá starfseminni. Að öllum líkindum mun Björgun hf fá lóð við Álfsnes í Kollafirði. 1.11.2007 14:02
Samstarf á lyfjamarkaði á Norðurlöndum Heilbrigðisráðherrar norrænu ríkjanna vilja efla samstarf á lyfjamarkaði og styrkja lítil markaðssvæði í þeim geira á Norðurlöndunum. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra fundaði með norrænum heilbrigðisráðherrum á þingi Norðurlandaráðs sem lauk í dag. 1.11.2007 14:01
Ríkar þjóðir hætti að lokka til sín lækna frá fátækari ríkjum Ríkar þjóðir heimsins eiga að hætta að lokka til sín lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk frá fátækum ríkjum, að mati velferðarnefndar Norðurlandaráðs. Nefndin vill að Norðurlöndin hafi frumkvæði að því að gerður verði alþjóðlegur samningur sem feli slíkt í sér. 1.11.2007 13:45
Borgin greiðir 263 milljónir fyrir Austurstræti 22 Tillaga þess efnis að Reykjavíkurborg kaupi lóðina Austurstræti 22 var samþykkt í borgarráði í dag. Borgin þarf að reiða fram 263 milljónir króna fyrir kaup á einkahlutafélaginu Austurstræti 22 sem er eignarhaldsfélag um lóðina. Með í kaupunum fylgja 95 milljónir í tryggingabætur eftir brunann í apríl. Kostnaður borgarinnar vegna kaupana er því 168 milljónir. 1.11.2007 13:40
Sjávarútvegsstefna ESB eins og stórskip Sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins er eins og stórskip, sagði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, á þingi Norðurlandaráðs sem lýkur í Osló í dag en sjávarútvegsmálin voru til umræðu á þinginu. 1.11.2007 13:34
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent