Fleiri fréttir

Héraðsdómur ósammála siðanefnd BÍ

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag fyrrum ritstjóra DV, Pál Baldvin Baldvinsson og Björgvin Guðmundsson, af kröfu framkvæmdarstjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.

Strætó harmar atburðinn í leið 13

Framkvæmdastjóri Strætó bs, Reynir Jónsson, segir að fyrirtækið harmi þá atburði sem áttu sér stað í leið 13 á dögunum þegar vagnstjóri brást ókvæða við beiðnum konu sem bað hann um að fara sér hægar. Þá sagði einnig í fréttinni að vagninum hefði verið ekið nokkuð greitt upp Hverfisgötuna. Vagnstjórarnir sem um ræðir hafa viðurkennt mistök sín. Þá er því beint til konunnar sem hlut átti að máli að hún gefi sig fram við Strætó svo hægt sé að biðja hana persónulega afsökunar.

Geir fundaði með páfa og Prodi

Geir H. Haarde, forsætisráðherra fundaði í morgun með Romano Prodi, starfsbróður sínum á Ítalíu, í Róm og Benedikt sextánda páfa í Páfagarði.

Vörubílar rákust saman á Suðurlandsvegi

Þrjú umferðaróhöpp hafa orðið í Suðurlandsvegi í morgun. Fyrir stundu rákust tveir vörubílar saman skammt vestan við Þrengslavegamót en engan sakaði í óhappinu að sögn lögreglunni á Selfossi.

Ekki víst að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt

Dómari Héraðsdóms Suðurlands hefur tekið sér frest til klukkan fjögur í dag til að úrskurða hvort kona sem grunuð er um að hafa kveikt í íbúð sinni við Hilmisgötu í Vestmannaeyjum verði úrskurðuð í viku gæsluvarðhald.

Karlar menga meira en konur

Karlar menga meira en konur með þar sem þeir eyða meira eldsneyti og borða meira kjöt en hvort tveggja eykur magn gróðurhúsalofttegunda í lofthjúpnum. Þetta sýnir rannsókn sem unnin var á vegum sænska umhverfisráðuneytisins.

Snjóþekja víða á heiðum

Vegagerðin varar við snjóþekju er á Hellisheiði og í Þrengslum en saltbíll er farinn af stað til þess að salta vegina.

Flutt með þyrlu fyrir dómara

Kona sem var handtekinn í Vestmannaeyjum, grunuð um að hafa kveikt í íbúð sinni þar á miðvikudaginn, var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Selfoss í gær, til að færa hana fyrir dómara Héraðsdóms Suðurlands.

Gríðarlegar rigningar í gærkvöldi

Vatn flæddi yfir þjóðveginn í Fáskrúðsfirði og í Álftafirði á Suðuausturlandi í gærkvöldi vegna gríðarlegrar rigningar. Þá höfðu dælur ekki undan í kjallara einnar byggingar á svæði Fjarðaáls og varð að kalla til slökkvilið með auka dælur. Engar skemmdir urðu í húsinu.

Þrettán tonna bátur sökk í Sandgerðishöfn

Þrettán tonna eikarbátur, Hafrós KE 2, sökk í smábátahöfninni í Sandgerði um klukkan hálftólf í morgun. Björgunarsveit Sandgerðis tókst að koma bátnum á flot og var hann dreginn að Norðurbryggju þar sem hann liggur við flotbelgi, eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á Suðurnesjum. Ekki er vitað orsök óhappsins en málið er í rannsókn.

Mesta skógareyðing hérlendis af mannavöldum framundan

Áform borgaryfirvalda um að taka skógræktarsvæði á Hólmsheiði undir iðnaðarsvæði fela í sér mestu skógareyðingu af mannavöldum á Íslandi í meira en öld að mati Skógræktarfélags Reykjavíkur.

Háskóla Íslands skipt upp í fimm fræðasvið

Háskóla Íslands verður skipt upp í fimm fræðasvið og vald fært frá rektor og yfirstjórn skólans til forseta fræðasviðanna, samkvæmt skipulagstillögum sem háskólaráð hefur samþykkt.

Sterk króna skaðar meira en niðurskurður þorskkvótans

Sterk staða krónunnar skaðar sjávarútveginn jafnvel meira en niðurskurður þorskkvótans, að mati sjávarútvegsráðherra. Formaður útvegsmanna segir biðlund þeirra gagnvart Seðlabankanum á þrotum. Þessu var haldið fram á aðalfundi Landssamband útvegsmanna í dag.

Meira en 80 kindur drápust í bílveltu

Sjötíu og níu kindur drápust þegar flutningabíll með um 230 kindum valt við afleggjarann að Arnarstöðum við Stykkishólm skömmu fyrir klukkan þrjú í dag.

Stærra skref en margir gera sér grein fyrir

Séra Ólafur Jóhannsson, prestur í Grensáskirkju og formaður Prestafélags Íslands, segir niðurstöðu Kirkjuþings um að heimila prestum þjóðkirkjunnar að staðfesta samvist samkynhneigðra stærra skref en margir geri sér grein fyrir. Hann segir að reynslan verði að leiða það í ljós hvort einhverjir prestar muni ekki gefa saman samkynhneigða.

Ásatrúarmenn kæra til Mannréttindadómstólsins

Ásatrúarmenn ætla að kæra niðurstöðu Hæstarétts frá því í dag til Mannréttindardómstólsins í Strassborg að sögn Hilmars Arnar Hilmarssonar, allsherjargoða. Hann segir niðurstöðuna vera vonbrigði.

Ríkisútvarpið braut ekki gegn friðhelgi einkalífsins

Ríkisútvarpið var í Hæstarétti í dag sýknað af kröfu um brot á friðhelgi einkalífsins. Um er að ræða sjónvarpsþáttinn Sönn Íslensk sakamál sem sýndur var í sjónvarpinu í mars árið 2002 og byggði á atburðum Stóragerðismálsins svokallaða.

Hæstiréttur hafnar kröfu Ásatrúarfélagsins um sóknargjöld

Hæstiréttur staðfesti í dag dóms héraðsdóms í máli sem Ásatrúarfélagið höfðaði á hendur íslenska ríkinu vegna sóknargjalda. Ásatrúarfélagið taldi jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar brotna þar sem þjóðkirkjan fengi meiri greiðslur úr ríkissjóði en önnur trúfélög. Í því fælist ólögmæt mismunun.

Útvarpsstjóri fékk 78% meiri launahækkun en forstjóri Flugstoða

Á meðan laun Páls Magnússonar útvarpsstjóra hækkuðu um 87,5% þegar Ríkisútvarpinu var breytt í opinbert hlutafélag hækkuðu laun Þorgeirs Pálssonar, forstjóra Flugstoða, um 9,75% þegar það sama var gert við Flugmálastjórn. Páll er með sex hundruð þúsund krónum hærri mánaðarlaun en Þorgeir.

Hæstiréttur þyngir dóma í BMW-smyglmáli

Hæstiréttur þyngdi í dag dóm héraðsdóms yfir þremur mönnum sem dæmdir voru fyrir að smygla um 15 kílóum af amfetamíni og tíu kílóum af hassi í BMW-bifreið inn til landsins. Dómarnir voru allir þyngdir um eitt ár

Kirkjulögum breytt á kjörtímabilinu

Lögð verður fram lagabreyting á núverandi kjörtímabili í samræmi við samþykkt kirkjuþings í morgun um að leyfa prestum að staðfesta samvist samkynhneigðra að sögn Birgis Ármannssonar, formanns allsherjarnefndar Alþingis. Hann segir þó ekki liggja fyrir hvenær málið kemur til kasta Alþingis.

Konur í miklum meirihluta brautskráðra frá HÍ á laugardag

Alls verða 400 manns brautskráðir frá Háskóla Íslands við hátíðlega athöfn í Háskólabíó á laugardaginn kemur. Þar af ljúka 111 meistaragráðu. Af meistaranemum eru tæplega 70 prósent konur, en af heildafjölda kandídata eru konur um 63 prósent en karla 37 prósent.

Óljóst og loðið hjá kirkjunni

Samþykkt kirkjuþings í morgun um að leyfa prestum að staðfesta samvist samkynhneigðra er loðin og óljós að mati formanns Samtakanna 78. Hann sakar forystu þjóðkirkjunnar um að vilja viðhalda aðskilnaðarstefnu gagnvart samkynhneigðum.

Tiltrúin á Hafró minni en nokkru sinni fyrr

Björgólfur Jóhannsson formaður LÍÚ gerði Hafrannsóknarstofnun m.a. að umræðuefni í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ sem nú stendur yfir. Segir hann að að tiltrú manna í sjávarútvegi á niðurstöður og ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar er minni nú en nokkru sinni fyrr. Efasemdir eru um að ástand þorskstofnsins geti verið eins dapurt og nýjasta stofnmat stofnunarinnar segir til um.

Tugir kinda drápust í veltu á Snæfellsnesi

Flutningabíll með um 230 kindum valt við afleggjarann að Arnarstöðum við Stykkishólm skömmu fyrir klukkan þrjú í dag. Gísli Guðmundsson varðstjói lögreglunnar á Snæfellsnesi sagði að verið væri að reka féð í hús og greina skaðann. Einhverjir tugir kinda og lamba drápust í slysinu, en nákvæm tala fæst ekki fyrr en seinna í dag.

Makrílaflinn margfaldast milli ára

Makrílafli íslenskra skipa hefur tæplega nífaldast á milli ára. Alls hafa 28 íslensk skip og bátar veitt rúmlega 36.300 tonn af makríl á þessu ári. Þar af eru 15 skip með meira en 1000 tonna makrílafla hvert. Júpíter ÞH er aflahæsta skipið með 4381 tonn samkvæmt upplýsingum sem InterSeafood.com hefur fengið hjá Fiskistofu.

Einar segir mikinn styrk krónunnar óviðunandi

Einar K. Guðfinnsson sjávarráðherra ræddi m.a. um gengi krónunnar í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ sem nú stendur yfir. Kvað hann mikinn styrk krónunnar skapa óviðunandi ástand fyrir útflutningsgreinarnar.

Ekið á gangandi vegfaranda við Suðurver

Betu fór en á horfðist þegar ekið var á gangandi vegfaranda á Kringlumýrarbraut til móts við Suðurver laust eftir hádegi í dag. Þær upplýsingar fengust hjá lögreglu að það hefði verið lán í óláni að vegfarandinn lenti ekki framan á bílnum heldur rann hann með hlið bílsins.

Veðramót fékk 11 tilnefningar, Astrópía eina

Kvikmyndin Veðramót eftir Guðnýju Halldórsdóttur fær langflestar tilnefningar til Edduverðlaunanna í ár, eða 11 talsins. Foreldrar í leikstjórn Ragnars Bragasonar fær næstflestar tilnefningar eða sex talsins. Þá hlýtur kvikmyndin Köld slóð fjórar tilnefningar. Það vekur athygli að Astrópía, sú mynd sem hefur fengið hvað mesta aðsókn skuli einungis fá eina tilnefningu, fyrir leikstjórn.

Stjórnskipulagi HÍ breytt með samruna við KHÍ

Umtalsverðar breytingar verða á stjórnskipulagi Háskóla Íslands um leið og Háskólinn sameinast Kennaraháskóla Íslands um mitt næsta ár. Þetta kom fram á fundi Kristínar Ingólfsdóttur rektors með starfsmönnum og nemendum Háskólans nú í hádeginu.

Vildi óska þess að geta boðið bláan Opal

Blár Opal á sér greinilega marga aðdáendur þó nokkur ár séu liðin frá því framleiðslu hans var hætt. Á Netsamfélaginu Facebook hefur nú verið stofnuð síða þar sem Nói og Síríus er hvatt til að hefja sölu á ný. Tæplega tvöþúsund manns, hvaðanæva að úr heiminum, hafa skráð sig á síðuna. Gunnar B. Sigurgeirsson, markaðsstjóri Nóa Síríus segir erfitt að segja til um hvort von sé á endurkomu sælgætisins en hann vonar það besta.

30 milljónir söfnuðust eftir Kompásþátt

Um 30 milljónir söfnuðust eftir sýningu Kompásþáttar í vor þar sem hjálparstarf ABC barnahjálpar í Kenýa var til umfjöllunar. Fjárframlögin breyttu miklu fyrir samtökin og nú eiga 340 börn bjartari framtíð fyrir höndum í landinu. Þó er enn þörf á mikilli hjálp til að sinna þeim verkefnum sem eru á döfinni að sögn Guðrúnar Margrétar Pálsdóttur formanns ABC barnahjálpar.

Geta ekki keppt við nýsjálenska bændur vegna ólíkra aðstæðna

Þótt íslenskir bændur fái hæstu styrki í heima en nýsjálenskir bændur nær enga styrki munu þeir íslensku aldrei geta keppt við starfsbræður sína á Nýja-Sjálandi, að mati hagfræðings Bændasamtaka Íslands. Íslenskir neytendur eygja þó von um verðlækkun á lambakjöti með afnámi útflutningsskyldu á næsta ári.

Horfði á húsið sitt brenna

„Þetta var mjög mikill eldur og ég held það sé allt ónýtt fyrir ofan mig,“ segir Aðalheiður I Sveinsdóttir Waage sem býr fyrir neðan íbúðina að Hilmisgötu 1 í Vestmannaeyjum þar sem eldur kom upp síðdegis í gær.

Eyjamenn vilja stærri ferju og fleiri ferðir

Róbert Marshall, aðstoðarmaður samgönguráðherra, segir að minnisblað bæjarráðs Vestmannaeyja þar sem lagðar eru fram kröfur varðandi nýja ferju, verði teknar til skoðunnar í stýrihópnum sem nú vinnur að málinu. Róbert, sem á sæti í stýrihópnum segir tillögur Vestmannaeyinga ganga heldur lengra en menn hafi hingað til gert ráð fyrir.

Fleiri skjálftar í hádeginu

Lítið lát virðist vera á jarðskjálftum á Suðurlandi en þrír skjálftar mældust þar nú rétt eftir klukkan tólf. Stærsti skjálftinn mældist 3 á Richter en tveir minni mældust 2.3 á Richter. Íbúi á Selfossi sem hafði samband við Vísi sagði að allt hefði leikið á reiðiskjálfi í íbúð sinni sem er á fjórðu hæð.

Sjá næstu 50 fréttir