Fleiri fréttir

Átta jarðskjálftar undir Ingólfsfjalli í nótt

Átta jarðskjálftar mældust í nótt undir Ingólfsfjalli. Stærstu skjálftarnir mældust rúmlega tveir á Richter og voru þeir á um tveggja kílómetra dýpi. Skjálftarnir fundust vel á Selfossi en þeir riðu yfir á tímabilinu frá klukkan þrjú í nótt og til hálf tíu í morgun. Að sögn Veðurstofu eru skjálftahrinur algengar á þessu svæði.

Tillaga biskups um staðfesta samvist samþykkt á Kirkjuþingi

Samþykkt var á Kirkjuþingi fyrir stundu að lýsa yfir stuðningi við ályktun kenningarnefndar þjóðkirkjunnar um að prestum yrði heimilt að staðfesta samvist samkynhneigðra ef þeir kysu svo og ef Alþingi breytti lögum þar að lútandi.

Haukur í Héraðsdómi á mánudag

Umdeildur eigendafundur í REI, þar sem samruni fyrirtækisins við Geysi Green Energy var samþykktur, verður tekinn fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag. Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri Grænna, kærði framkvæmd hans þar sem hann var ekki boðaður með löglegum fyrirvara. Ragnar H. Hall sækir málið fyrir hennar hönd.

Vatn flæðir yfir veg í Hvalfirði

Vegagerðin varar við því að vatn rennur yfir þjóðveg númer 47, það er Hvalfjarðarveg rétt innan við Eyri í Kjós. Fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni að verið sé að undirbúa viðgerð og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát.

Féll á milli skips og bryggju

Maður féll á milli skips og bryggju í höfninni á Reyðarfirði í nótt. Félagi hans kallaði í talstöð skipsins eftir aðstoð, en hafði sjálfur náð að bjarga manninum upp áður en hjálp barst.

Dópistum í Mosó sleppt eftir yfirheyrslur

Fimm manneskjum, sem handteknar voru í heimahúsi í Mosfellsbæ snemma í gærmorgun, í annarlegu ástandi vegna fíkniefnaneyslu, var sleppt að yfirheyrslum loknum í gærkvöldi og var ekki krafist gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir neinum.

Málsókn prófessora í bígerð

Félag prófessora við ríkisháskóla hyggst stefna fjármálaráðuneytinu fyrir félagsdóm þar sem það hefur neitað að viðurkenna félagið sem samningsaðila í kjarasamningum fyrir prófessora. Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður, sem vinnur að undirbúningi málsins, segir að niðurstöðum verði skilað til félagsmanna á næstu dögum.

Segja skógeyðingu blasa við á Hólmsheiði

Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur leggst alfarið gegn fyrirhuguðum byggingarframkvæmdum á Hólmsheiði og skorar á borgarstjórn Reykjavíkur að endurskoða aðalskipulag borgarinnar með það fyrir augum að finna aðrar lausnir en að ganga á verðmæt útivistarsvæði. Þetta kemur fram í umsögn félagsins um tillögu að nýju deiliskipulagi á Hólmsheiði.

Stöð 2 fær átta tilnefningar til Eddunnar

Átta tilnefningar til Edduverðlaunanna 2007 tengjast Stöð 2. Fréttaskýringarþátturinn Kompás er tilnefndur í flokknum Frétta- og/eða viðtalsþáttur ársins. Kompás hlaut verðlaunin í fyrra. Gamanþáttaröðin Næturvaktin fær tilnefningu fyrir leikið sjónvarpsefni og handrit. Pétur Jóhann Sigfússon fær einnig tilnefningu fyrir hlutverk sitt í þáttunum.

Velferðarráð varar við áfengisfrumvarpi

Velferðarráð Reykjavíkurborgar ályktaði í dag um áfengisfrumvarpið sem nú er til meðferðar á Alþingi. Ráðið varar við frumvarpinu segir rannsóknir sýni að þegar aðgegni að áfengi er aukið aukist neysla.

Iceland Express býður flugfar á tæpar 6.000 kr.

Frá og með hádegi á morgun og fram á mánudag getur fólk bókað flug utan með Iceland Express á 5.890 kr. og eru skattar og gjöld innifalin í þessu verði. Um takmarkaðann sætafjölda verður að ræða.

Ferja sigli átta sinnum á sólarhring milli Eyja og lands á sumrin

Bæjarráð Vestmannaeyja gerir kröfu um að ferja sem sigla á milli Eyja og Bakkafjöru sigli sex sinnum á sólarhring á veturna og átta sinnum á sumrin og að far- og farmgjöld taki mið að því að um þjóðveg sé að ræða. Bæjarráðið fundaði í dag þar sem rætt var útboð á slíkri ferju.

Vinna hafin við nýtt varðskip

Smíði nýs varðskips hófst, í ASMAR skipasmíðastöðinni í Talcahuano í Chile, þann 16. október síðastliðinn. Byrjað var að skera til stál í fyrsta hluta skipsins sem hafist verður handa við að smíða á næstu dögum.

Ekkert óeðlilegt við gjaldtöku bankanna

Samkeppni milli banka og fjármálastofnana hér á landi hefur aldrei verið meiri en einmitt nú að sögn framkvæmdastjóra Sambands banka og sparisjóða. Hann segir ekkert óeðlilegt við gjaldtöku bankanna og segist fullviss um að starfshópur sem nú er starfandi á vegum viðskiptaráðherra komist að sömu niðurstöðu.

Össur fann brunalykt í Kalíforníu

„Þetta var rétt fyrir lok vinnudags og fólk hvort sem er á leiðinni heim,“ segir Karl Guðmundsson starfsmaður Össurar í Foothill Ranch í Kalíforníu. Skrifstofa stoðtækjafyrirtækisins var rýmd í fyrradag vegna skógareldanna en engin hætta var á ferðum að sögn Karls.

Lítið barn í dópgreni í Breiðholti

Lögreglan handtók tvo karla og konu eftir að töluvert magn fíkniefna fannst við húsleit í Breiðholti í nótt. Kom til átaka á milli lögreglu og annars mannanna við handtöku.

Ísland of lítið fyrir gjafasæðisbanka

Þórður Óskarsson, læknir og sérfræðingur hjá Art Medica, segir íslenskt samfélag of lítið til þess að það borgi sig að koma á fót gjafasæðisbanka líkt og tíðkast í útlöndum. Auk þess yrði með slíku hætta á of miklum skyldleika milli gjafa og þega. Hann segir hins vegar að ekkert standi í vegi fyrir því að íslenskir karlar gefi sæði til tæknifrjóvgana hér á landi.

Tilnefningar til Edduverðlauna 2007

Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2007 voru kynntar fyrir stundu. Verðlaunin verða afhent í níunda sinn við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica 11. nóvember næstkomandi. Það eru meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar sem kjósa úr hópi tilnefndra, en þeir telja um 700 manns.

Skilar sér í lækkun til neytenda

Formaður Neytendasamtakanna fagnar yfirlýsingu viðskiptaráðherra um afnám stimpil- og vörugjalda á næstu mánuðum og styrkingu neytendamála. Hann segist fullviss um að þetta skili sér í lækkun til neytenda.

Gaf Landspítalanum fimm milljónir til tækjakaupa

Forsvarsmenn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands afhentu í morgun forstjóra Landspítalans fimm milljónir króna að gjöf til þess að kaupa tæki sem tengjast meðferð alvarlegra brunaáverka á börnum.

Hyggst ræða við nýjan ráðherra um kúakyn

Formaður Nautgriparæktarfélags Íslands, sem vann að því fyrir nokkrum árum að fá að flytja inn erfðaefni fyrir nýtt kúakyn, býst við því að leita hófanna hjá nýjum landbúnaðarráðherra um möguleikann á innflutningi.

Verðlaunahafar Eddunnar 2005

Dagur Kári var sigurvegari Edduverðlaunanna árið 2005. Mynd hans Voksne mennesker hlaut fjögur verðlaun. Verðlaunahafar hátíðarinnar fyrir tveimur árum voru:

Vill banna kaup á kynlífsþjónustu

Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri Grænna, mun í næstu viku leggja fram frumvarp um siðareglur fyrir opinbera starfsmenn í vinnuferðum erlendis. Í þeim verður lagt blátt bann við því aðp opinberir starfsmenn kaupi sér kynlífsþjónustu hvers konar.

Rætt um að einkavæða sundlaugarrekstur í Kópavogi

Íþrótta- og tómstundaráð Kópavogsbæjar hefur nú til umfjöllunar erindi frá fyrirtækinu Rækt ehf, um að það taki að sér rekstur Sundlaugar Kópavogs. Í samtali við Vísi segir Gunnar Birgisson bæjarstjóri að sér lítist bara vel á hugmyndina við fyrstu sýn þó hann hafi ekki kynnt sér hana til hlítar.

Vinsælasti sjónvarpsþátturinn 2007

Þau nýmæli verða á Edduhátíðinni í ár að almenningur velur fimm vinsælustu sjónvarpsþættina með netkosningu á Vísi. Vinnigshafinn verður síðan valinn með símakosningu á meðan beinni útsendingu verðlaunanna stendur. Kosningin hefst á Vísi næstkomandi þriðjudag.

Miklir möguleikar í þorskeldi á Vestfjörðum

Bæjarstjórinn á Ísafirði telur mikla möguleika í þorskeldi á Vestfjörðum enda falli sú grein vel að þeirri þekkingu sem er til staðar á svæðinu. Vestfirðingar ætla að blása til sóknar í atvinnumálum með nýsköpun að vopni.

Þykja hafa sloppið ótrúlega vel í ofsahraðaslysi

Það þykir ganga kraftaverki næst að karl og kona skyldu hafa sloppið lítið meidd og ekki hafa skaðað aðra þegar bíll þeirra fór bókstaflega í tætlur á ofsahraða á Kringlumýrarbrautinni seint í gærkvöldi.

Verðlaunahafar Eddunnar 2006

Mýrin, Kvikmynd Baltasar Kormáks, var sigurstranglegust á Edduverðlaununum árið 2006. Myndin hlaut fimm verðlaun. Mynd Ragnars Bragasonar, Börn, var framlag Íslands til Óskarsverðlauna, en verðlaunin skiptust svona:

Stimpil- og vörugjöld burt á næstu mánuðum

Stimpil- vörugjöld verða lögð niður á næstu mánuðum og lagafrumvarp um greiðsluaðlögun lagt fram á yfirstandandi þingi að sögn Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra sem í morgun kynnti heildarstefnumótun á sviði neytendamála sem hann hyggst hrinda af stað.

Megum veiða 203.000 tonn af kolmunna

Á fundi strandríkja um stjórnun kolmunnaveiða, sem lauk í Lundúnum í gær, náðist samkomulag um að heildaraflamark verði 1.250.000 tonn árið 2008. Samkvæmt samkomulaginu verður íslenskum skipum heimilað að veiða 202.836 tonn.

Vísaði frá máli um rekstur álbræðslu í Straumsvík

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá máli eigenda Óttarstaða vegna álversins í Straumsvík. Jörðin er í nágrenni við álverið og vildu eigendur hennar að dómurinn úrskurðaði að óheimilt væri að reka álbræðslu í Straumsvík vegna gastegunda og reyks sem takmarkaði not landeigenda af jörðinni.

Auðlindafrumvarp í anda Indónesa

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra fer mikinn á blog-síðu sinni þessa dagana en hann hefur verið í opinberri heimsókn í Indónesíu. Össur er greinilega mjög hrifinn af því hvernig löggjöf Indónesar hafa um orku-og auðlindir sínar og í síðustu blogfærslu skrifar Össur um nýtt auðlindafrumvarp sem hann hefur í smíðum og ber helst að skilja á honum að fordæmi Indónesa verði þar m.a. lagt til grundvallar.

Hæstiréttur staðfesti einangrunarvist

Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Einar Jökull Einarsson skuli sitja í einangrun til 1. nóvember en verjandi hans hafði kært úrskurðinn. Einar grunaður um að vera annar höfuðpauranna í Fáskrúðsfjarðarmálinu svokallað sem upp komst í síðasta mánuði. Hann er sá eini af þeim sem í gæsluvarðhaldi sitja sem enn er gert að dúsa í einangrun.

Jafnréttisviðurkenning afhent í dag

Jafnréttisviðurkenning ársins 2007 verður afhent í dag um leið og stjórnvöld úthluta fimm styrkjum til rannsókna á sviði jafnréttismála.

Hrasaði í skriðu

Lögregla og björgunarmenn á Suðurnesjum bjuggust í gærkvöld undir björgunaraðgerð í berginu við Grófina í Keflavík, þar sem talið var að unglingspiltur hefði hrapað fyrir björg.

Ráðuneyti tefur lekaskýrslu

„Við eigum þessu ekki að venjast,“ segir Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi, sem í hálft ár hefur beðið eftir upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu um vatnsleka í íbúðum á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Brakið úr bimmanum þeyttist um allt

Það þykir ganga kraftaverki næst að karl og kona skyldu sleppa lítið meidd eftir að bíll þeirra fór bókstaflega í tætlur á Kringlumýrarbraut laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi.

Ekkert barnaklám í tölvu Ágústs

Ekkert barnaklám fannst við leit í tölvu Ágústs Magnússonar, dæmds barnaníðings, að sögn Brynjars Níelssonar skipaðs verjanda hans. Lögreglan haldlagði tölvu hans fyrir tíu mánuðum síðan og er rannsókn lokið á gögnum sem í henni voru.

Sjá næstu 50 fréttir