Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stuðningur við landbúnað mestur á Íslandi Stuðningur við landbúnað í heiminum er mestur á Íslandi og er hann metinn á fimmtán milljarða króna á síðasta ári, samkvæmt skýrslu OECD sem birt var í dag. Athygli vekur að kjúklingabændur njóta mests ríkisstuðnings hérlendis hlutfallslega, mun meiri stuðnings en kúa- og sauðfjárbændur. 23.10.2007 18:30
Kompásþátturinn stendur fyrir sínu Jóhannes Kr. Kristjánsson ritstjóri Kompás segir að Kompásþátturinn standi fyllilega fyrir sínu þrátt fyrir sýknu Héraðsdóms Reykjavíkur í dag. 23.10.2007 18:13
Slökkviliðið kallað að Flétturima Slökkvilið og lögregla á höfuðborgarsvæðinu fengu tilkynningu um reyk í íbúð við Flétturima í Reykjavík fyrir fáeinum mínútum. Um minniháttar eld var að ræða sem má rekja til bilunar í rafmagnstöflu. Íbúðin var reykræst. 23.10.2007 17:48
Réðst að lögreglumönnum í Leifsstöð Lögregla á Suðurnesjum yfirheyrði í dag karlmann sem handtekinn var á öðrum tímanum í nótt í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. 23.10.2007 17:04
Öryggiskerfi í sundlaug yfirfarið eftir banaslys Öryggiskerfi Sundlaugar Kópavogs hefur verið vandlega yfirfarið eftir sviplegt slys síðastliðið vor sem dró ungan pilt í skólasundi til dauða. 23.10.2007 16:56
Hæstiréttur staðfestir farbann yfir Litháum Hæstiréttur hefur staðfest farbann yfir tveimur Litháum sem taldir eru tengjast litháísku þjófagengi sem grunað er um stórfelldan þjófnað úr fjölmörgum verslunum á höfuðborgarsvæðinu. 23.10.2007 16:55
Össur undirritar í Indónesíu Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Purnomo Yusgiantoro orkumálaráðherra Indónesíu undirrituðu í dag samstarfssamning á milli þjóðanna tveggja í jarðvarmaámálum. 23.10.2007 16:29
Tólf vilja stýra sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu Tólf manns sækja um stöður ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu en skipað verður í stöðuna frá og með áramótum. Meðal umsækjenda eru Þórður Ásgeirsson fiskistofustjóri, Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu og Belinda Theriault, fyrrverandi forstöðumaður alþjóðamála á skrifstofu Alþingis. 23.10.2007 16:07
Gátu ekki tengst Leifsstöð vegna hvassviðris Nokkrar tafir urðu á millilandaflugi í gær vegna hvassviðris og þá gekk urðu vélar að bíða í röðum eftir því að fá afgreiðslu við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli. Þegar mest var náði vindhraðinn 27 metrum á sekúndu en öryggishámark á vellinum er 25 metrar á sekúndu. 23.10.2007 15:56
Vilja fullan aðskilnað ríkis og kirkju Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hvetur stjórnvöld til þess að styðja hugmyndir Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra um að leggja niður ráðuneyti kirkjumála. 23.10.2007 15:12
Offita orðin að „heimsfaraldri“ Fólk um allan heim er að verða feitara samkvæmt nýrri könnun Circulation journal sem framkvæmd var á einum degi víða um heim. Einungis íbúar Asíu eru möguleg undantekning samkvæmt könnuninni. 23.10.2007 15:04
Ráðherra tjáir sig ekki um yfirlýsingu Ólafs Arnar Haraldssonar Utanríkisráðherra mun ekki tjá sig um yfirlýsingu Ólafs Arnar Haraldssonar, fyrrverandi forstjóra Ratsjárstofnunar, í tengslum við brottvikningu hans úr starfi. Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, segir ráðherra ekki tjá sig um mál einstakra starfsmanna. 23.10.2007 15:03
Lætur gera úttekt á stöðu neytendamála Viðskiptaráðherra hefur falið Félagsvísindastofnun, Hagfræðistofnun og Lagastofnun Háskóla Íslands að vinna ítarlega rannsókn á stöðu neytendamála hér á landi. 23.10.2007 14:40
Þrýstingur úr grasrótinni um að fá að flytja inn kúakyn Þrýstingur er úr grasrótinni frá ákveðnum hópi bænda um að fá að flytja inn erlend kúakyn til þess að auka mjólkurframleiðsluna að sögn formanns Landssambands kúabænda. 23.10.2007 14:14
Þjófagengi á Akureyri Sýslumaðurinn á Akureyri þingfesti í dag mál á hendur 7 strákum, fæddum á árunum frá 1987 til 1990 fyrir fjölmörg þjófnaðar og nytjastuldbrot sem þeir frömdu á þriggja mánaða tímabili síðasta vetur. 23.10.2007 14:02
Hraðakstursbrotum fjölgar um 50 prósent milli ára Nærri 3.800 hraðkstursbrot komu inn á borð lögreglunnar í september síðastliðnu sem er nærri fimmtíu prósentum fleiri brot en í sama mánuði í fyrra og hitteðfyrra. 23.10.2007 13:49
Höfuðkúpubraut konu með öskubakka Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Vestmannaeyjum á sunnudag grunaður um að hafa slegið konu á fertugsaldri í höfuðið með gleröskubakka þannig að hún höfuðkúpubrotnaði. 23.10.2007 13:09
Forsetinn leiddi Össur inn í prívatíbúðina Í bráðskemmtilegri færslu á bloggsíðu sinni greinir Össur Skarphéðinsson iðnaðaráðherra frá óvæntum fundi sínum með forseta Indónesíu. Endaði langur fundur þeirra með því að forsetinn dró Össur með sér inn í prívatíbúð sína og höfðu viðstaddir þrír ráðherrar landsins aldrei kynnst öðru eins. 23.10.2007 13:09
Bara tryggður fyrir tapi verði forsendubrestur af hálfu OR Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður Reykjavik Energy Invest hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem því er haldið fram að fullyrðing Moggans á forsíðu blaðsins í dag, um samning Bjarna við OR, sé röng. 23.10.2007 12:38
Verða að fá hagstæð langtímalán til jarðarkaupa Bændur verða að hafa aðgang að hagstæðum langtímalánum til jarðakaupa, ef koma á í veg fyrir að stóreignamenn eignist allar bújarðir. Þetta segir helsti kúabóndi Vopnafjarðar sem segir brýnt að skipulagsyfirvöld skilgreini hvaða land megi taka undir aðra starfsemi. 23.10.2007 12:38
Eddutilnefningar kynntar á morgun Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2007 verða tilkynntar á morgun. Kosið verður í 16 flokkum auk þess sem heiðursverðlaun verða afhent og almenningur kýs vinsælasta sjónvarpsþáttinn á Vísi. 23.10.2007 12:32
Fjárdráttarkærur velkjast um hjá lögreglu Kærur Tryggingastofnunar um fjárdrátt upp á eitthvað á annað hundrað milljónir króna velkjast nú hjá lögregluembættum án þess að ákærur séu gefnar út. Forstjóri stofnunarinnar segir þetta vekja spurningar um framgang réttvísinnar. 23.10.2007 12:20
Utanríkisráðherra óskaði eftir uppsögn Ólafs Arnar Ólafur Örn Haraldsson, fyrrverandi forstjóri Ratstjárstofnunar, segir ekki það ekki rétt sem fram hafi komið í fréttum að hann hafi gengið á dyr án þess að upplýsa utanríkisráðuneytið um það. 23.10.2007 12:05
Norðmenn segja Íslendinga falsa aflatölur Samtök norskra útgerðarmanna hafa í bréfi til norska sjávarútvegsráðuneytisins dregið í efa að aflatölur íslenskra skipa á makrílveiðum í sumar séu réttar. Í það er látið skína að aflatölurnar hafi verið falsaðar til þess að koma Íslendingum að samningsborðinu við skiptingu makrílkvótans á milli strandríkja. 23.10.2007 12:03
Upplýsingar um leigukostnað utanríkisráðuneytis ekki til reiðu Í frétt á norska vefmiðlinum E24 kemur fram að húsaleiga fyrir norska sendiherrabústaði er himinhá í sumum tilfellum. Þannig er leigan á sendiherrabústaði Norðmanna í London heilar 18 milljónir íslenskra króna á mánuði. Vísir leitaði upplýsinga hjá utanríkisráðuneytinu um húsaleigukostnað á vegum Íslensku sendiráðanna, og sundurliðun á því hvar húsnæði er leigt og hvar það hefur verið keypt. 23.10.2007 11:58
Varað við stórauknu framboði á e-töflum Framboð e-taflna hefur stóraukist hér á landi undanfarnar vikur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við neyslu þessara taflna og boðaði til blaðamannafundar í morgun vegna málsins. 23.10.2007 11:41
Steingrímur Njálsson dæmdur fyrir hótanir Einn alræmdasti barnaníðingur Íslands, Steingrímur Njálsson, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í tvegja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hótanir í garð Illuga Jökulssonar, fyrrverandi ritstjóra DV. 23.10.2007 11:37
Þrír sýknaðir í Kompásmáli Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag þrjá karlmenn af ákærum um tilraun til kynferðisbrota. Ákæran var byggð á tálbeitugögnum frá sjónvarpsþættinum Kompási. 23.10.2007 11:23
Meiðyrðamál Ómars gegn Gauki tekið fyrir Meiðyrðamál almannatengilsins Ómars R. Valdimarssonar gegn sjónvarpsmanninum Gauki Úlfarssyni verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 23.10.2007 10:25
Íslandsmet í að steikja hamborgara Kokkurinn á Vitabar hefur örugglega sett Íslandsmet í að steikja hamborgara á laugardaginn var en þá afgreiddi hann yfir 200 pantanir frá hádegi og fram til klukkan tíu um kvöldið, það er pöntun á 3 mínútna fresti. Þeir sem pöntuðu voru að mestu gestir á Airwaves-hátíðinni en svipuð örtröð var á staðnum í fyrra er hátíðin stóð yfir. 23.10.2007 10:10
Hafa mánuð til að meta Jón nauðgara Tveir matsmenn hafa verið dómkvaddir til að meta hvort Jón Pétursson, sem hefur fengið tvo fimm ára dóma fyrir nauðganir á skömmum tíma, sé í raun ósakhæfur. Þeir hafa rétt rúman mánuð til að meta Jón því seinna mál hans verður tekið fyrir í Hæstarétti 28. nóvember næstkomandi. 23.10.2007 09:52
Kaupmáttaraukning um fjögur prósent síðustu tólf mánuði Launavísitala hækkaði um 0,6 prósent milli ágústmánaðar og septembermánaðar samkvæmt tölum Hagstofunnar. 23.10.2007 09:22
Tannlæknir í rannsókn Lögregla rannsakar nú meint misferli tannlæknis gagnvart Tryggingastofnun. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er upphæðin, sem stofnunin telur að hann hafi dregið sér með ólögmætum hætti, töluvert hærri en sú, sem talið er að svæfingalæknir hafi dregið sér af stofnuninni með fölsuðum reikningum. 23.10.2007 08:04
Tólk stútar teknir um helgina Tólf ökumenn voru teknir á höfuðborgarsvæðinu um helgina fyrir ölvunarakstur, samkvæmt helgaruppgjöri lögreglunnar. 23.10.2007 08:02
Slökkvilið dældi vatni í tveimur húsum Ýmislegt smálegt fauk, vatnselgur myndaðist víða á götum, og slökkvilið þurfti að dæla vatni út úr tveimur húsum í hvassviðri og mikilli rigningu á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær. 23.10.2007 07:59
Búðarkassaþjófur í Hafnarfirði Lögregla greip undir morgun þjóf, sem brotist hafði inn í söluturn í Hafnarfirði og stolið þaðan búðarkassanum, eða sjóðsvélinni í heilu lagi. 23.10.2007 06:54
Drögin gerðu ráð fyrir samningi til 10 ára Í drögum að samningi milli Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Reykjavík Energy Invest (REI) frá 17. september var gert ráð fyrir einkarétti REI á hugviti og þjónustu OR til tíu ára en ekki tuttugu eins og niðurstaðan varð. 23.10.2007 05:30
Erfiðara að búa á landsbyggðinni Innflytjendur á landsbyggðinni búa frekar við félagslega einangrun en þeir sem sest hafa að á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Rauði krossinn á Norðurlandi lét gera. 23.10.2007 05:15
Flugfreyjurnar eru fyrstar Vinnumarkaður Flugfreyjufélag Íslands á fyrsta samningafund með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd Icelandair á miðvikudaginn í næstu viku. Flugfreyjufélagið er þar með eitt fyrsta stéttarfélagið til að hefja samningalotuna í haust. 23.10.2007 05:00
Höfn í Bakkafjöru ekki einkarekin „Þetta eru nýjar fréttir fyrir okkur," segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sem undrast að Siglingastofnun segi koma til greina að rekstur ferjuhafnar í Bakkafjöru verði í höndum einkaaðila. 23.10.2007 04:45
Mest aukning á Suðurnesjum Íbúum Íslands fjölgaði um 3.700 manns, eða 1,2 prósent, á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma var fjöldi aðfluttra umfram brottflutta af landinu 2.561 en náttúruleg fjölgun, það er fæddir umfram dána, var 1.139 manns. 23.10.2007 04:30
Meindýraeyðir áfrýjar dómi Árni Logi Sigurbjörnsson meindýraeyðir hefur ákveðið að áfrýja dómi, sem hann hann hlaut í síðustu viku, til Hæstaréttar, að því er hann hefur tjáð Fréttablaðinu. 23.10.2007 04:30
Með 700 grömm af kókaíni Sex menn hafa verið ákærðir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa ýmist skipulagt eða flutt hingað til lands rúmlega 700 grömm af kókaíni á síðasta ári. 23.10.2007 04:30
Einar vill ítarlega umræðu um kýrnar Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir mikilvægt að niðurstaða um að flytja inn nýtt kúakyn til Íslands verði ekki tekin í fljótfærni. Hann vill að bændur ræði málið á sínum vettvangi og komist að niðurstöðu sín í milli. 22.10.2007 20:10
Annríki hjá lögreglu og slökkviliði Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Dalsmára í Kópavogi um sexleytið vegna þess að vatn lak úr læk í nágrenninu og inn í hús. 22.10.2007 19:45