Fleiri fréttir

Áfram í pólitík

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi borgarstjóri, ætlar ekki að draga sig út úr stjórnmálum á kjörtímabilinu. Vilhjálmur lætur af starfi borgarstjóra í dag og segist hann hafa óskorað traust sinna félaga til að starfa áfram.

Furðar sig á ályktun frjálslyndra kvenna

Margrét Sverrisdóttir borgarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra furðar sig á því að ályktun Landssambands kvenna í Frjálslynda flokknum beinist einungis að sér en ekki Ólafi F. Magnússyni eða öðrum í hennar borgarstjórnarflokki sem yfirgáfu Frjálslynda flokkinn.

Fékk slökkvitæki í kveðjugjöf

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson lýkur sínum síðasta vinnudegi sem borgarstjóri í dag eftir aðeins um sextán mánuði í starfinu.

Hafna því að sátt sé um verklagsreglur

Samtök verslunar og þjónustu hafna þeim orðum framkvæmtastjóra ASÍ í Morgunblaðinu í dag að verðkannanir ASÍ séu unnar út frá verklagsreglum sem sambandið og Samtök verslunar og þjónustu unnu saman og sátt sé um.

Lýsa yfir vantrausti á Margréti Sverrisdóttur

Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum lýsir vantrausti á Margréti Sverrisdóttur og öll vinnubrögð hennar, þar sem hún gekk úr flokknum en situr samt í umboði hans í borgarstjórn.

ASÍ vill ekki hætta verðlagseftirliti

Samtök verslunar og þjónustu hafa velt upp óljósum hugmyndum, sem í raun fela í sér að ASÍ hætti verðlagseftirliti, en á það getur ASÍ ekki falllist, segir í tilkynningu fá ASÍ.

Lögreglan stöðvar átök við Funahöfða

Tveir íslenskir karlmenn voru fluttir með sjúkrabílum á slysadeild Landsspítalans til aðhlynningar í nótt, eftir átök, sem urðu fyrir utan hús við Funahöfða í Reykjavík, þar sem margir erlendir verkamenn búa. Mennirnir höfðu verið barðir með kylfum.

Réttindalaus undir áhrifum fíkniefna

Réttindalaus ökumaður undir áhrifum fíkniefna, reyndi í nótt að stinga lögregluna af, en hafnaði á grindverki í vestanverðu Árbæjarhverfinu.

Vatnssósa-Rósa Ómars er fyrsti íslenski bíldraugurinn

Daihatsu Ferrósa jeppi Ómars Ragnarssonar er nú kominn á fullt eftir að hafa sokkið í Hálslón, verið grýttur, laminn, brotinn og bramlaður. Bílinn var dæmdur algerlega ónýtur eftir atlögu óþekktra varga að honum við Hálslón en Ómar segir að svo virðist sem bíllinn sé nú genginn aftur.

Sextán prósent háskólastúdína glíma við einkenni átröskunar

Höfundar nýrrar heimildarmyndar um átröskun segja mikið ráðaleysi í heilbrigðiskerfinu í baráttunni við sjúkdóminn. Nýleg könnun sýnir að um sextán prósent kvenna í Háskóla Íslands glími við einhver einkenni átröskunar. Heimildarmyndin hefur vakið afar sterk viðbrögð en hún var frumsýnd í gærkvöldi.

Ógilti flutning í starfi innan Landspítalans

Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti í dag þá ákvörðun forsvarsmanna Landspítalans að flytja hjúkrunarfræðing til í starfi, af geðdeild Landspítalans við Hringbraut yfir á geðdeildina á Kleppi.

Vilja miðla fæðingarorlofsreynslu Norðurlandabúa

Reynslan norrænu ríkjannasýnir að feður taka frekar barneignaorlof ef gert er ráð fyrir ákveðnu tímabili sem fyrnist ef það er ekki nýtt. Þetta kom fram í máli Stefans Wahlin, jafnréttisráðherra Finna, á fundi norrænu janfréttisráðherranna í Finnlandi.

Gæsluvarðhald framlengt yfir Hringbrautarmanninum

Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi nú á fjórða tímanum gæsluvarðhaldsúrskurð yfir 38 ára gömlum manni sem grunaður er um að hafa myrt nágranna sinn á Hringbraut á sunnudag fyrir viku.

Dæmdur nauðgari sakfelldur fyrir að nefbrjóta fyrrverandi kærustu

Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í dag karlmann á þrítugsaldri, Edward Koranteng, fyrir að hafa slegið fyrrverandi sambýliskonu sína og nefbrotið hana en gerði honum ekki sérstaka refsingu þar sem hann hafði þegar verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun.

Alvarlegt bifhjólaslys á Krýsuvíkurvegi

Ökumaður bifhjóls var fluttur alvarlega slasaður á slysadeild Landspítalans eftir að hann féll af hjólinu á Krýsuvíkurvegi. Slysið varð rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Maðurinn var á leið í beygju inn á Bláfjallarveg en ók út af og hafnaði í hrauni. Ekki er vitað hversu alvarlega maðurinn slasaðist.

Stunginn í bakið með brotnum flöskustút

Aðfaranótt 14. október var lögreglu tilkynnt um líkamsárás við heimahús Vestmannaeyjum og fylgdi tilkynningunni að maður hafi verið stunginn í bakið með glerbroti. Á vettvangi var maður sem grunaður var um verknaðinn handtekinn en hann var jafnframt grunaður um að hafa brotið rúðu í útidyrahurð í sama húsi.

Smyglskútugengið senn úr einangrun

Fimm menn sem grunaðir eru um aðild að Fáskrúðsfjarðarmálinu svokallaða hafa í dag verið færðir í héraðsdóm til þess að staðfesta fyrir dómi skýrslur sem lögregla hefur tekið af þeim.

Frelsi til sölu á áfengi aftur rætt á þingi

Fyrsta mál á þingfundi alþingis sem hefst kl. 15.00 í dag er frumvarp til laga um afnám einokunnar ÁTVR á sölu á léttu áfengi. Frumvarpið um frelsi til sölu á léttu áfengi og bjór hefur verið lagt fram á fjórum síðustu þingum en aldrei hlotið afgreiðslu.

Oddný sér um menntamál í borginni

Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, verður forystumaður í menntamálum í borginni ef marka má heimasíðu menntasviðs og leikskólasviðs borgarinnar.

Telur Íslandshreyfingarfólk hafa áhrif á umhverfisstefnu borgarinnar

Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, telur að koma síns fólks í borgarstjórn muni hafa áhrif á stefnu borgarinnar í umhverfis- og stóriðjumálum. Margrét Sverrisdóttir, varaformaður Íslandshreyfingarinnar, verður forseti borgarstjórnar þegar nýr meirihluti tekur við borginni á morgun.

Björgunarsveitarmenn á eigin bílum í útköllum

Starfsemi björgunnarsveita landsins byggir að mestu á sjálfboðavinnu meðlima sveitanna eins og kunnugt er. Hluti þeirra mun þar að auki leggja fram eigin bíla í þágu starfseminnar. Er þetta einkum hjá minni björgunarsveitum úti á landi þar sem bíla- og tækjakostur er ekki eins öflugur og hjá stærri sveitunum.

Ekki stefnt á að setja HydroKraft á markað

Ekki stendur til að setja HydroKraft Invest á almennan markað og enn sem komið er hafa engir starfsmenn verið ráðnir til fyrirtækinins. Landsvirkjun Invest á 50 prósenta hlut í fyrirtækinu sem hefur þann tilgang að leita eftir verkefnum erlendis, aðallega í Austur-Evrópu.

Beðið eftir því hvernig málum REI vindur fram hjá nýrri borgarstjórn

Helstu eigendur Hitaveitu Suðurnesja funduðu í morgun um framtíð fyrirtækisins sem hefur verið hulin nokkurri óvissu frá því tilkynnt var um sameiningu Geysis Green Energy og Reykjavík Energy Invest. Gunnar Svavarsson, fulltrúi Hafnarfjarðarbæjar í stjórn HS, segir að beðið verði eftir því hvernig málum REI vindur fram undir stjórn nýs meirihluta í borginni áður en frekari ákvarðanir verði teknar í málinu.

Rannsakar heitavatnsþjófnað í sumarbústöðum

Lögregla á Selfossi hefur til rannsóknar nokkrar kærur vegna meints þjófnaðar á heitu vatni. Fram kemur í frétt lögreglunnar að málin snúi að sumarbústöðum og felist í því að menn hafi náð að taka meira vatn inn í húsin en greitt er fyrir.

Velti jepplingi sínum á Hellisheiði

Töluvert hefur verið um umferðarslys og árekstra á Suðurlandsvegi í morgun. Rétt fyrir klukkan átta í morgun missti erlendur ferðamaður stjórn á jepplingi sínum uppi á Hellisheiði og fór hann margar veltur utan vegar.

Fær ekki að hitta fársjúka móður sína

Víetnömsk kona, Lai Thai Nguyen, fær ekki að fara frá Íslandi til að vera hjá fársjúkri móður sinni í Víetnam. Móðir hennar á skammt eftir ólifað.

Rusl og rottur til ama á Hverfisgötunni

Frá því að húsið á Hverfisgötu 42 var flutt á Bergstaðastræti og gengið var frá sárinu eftir það fyrir framan Samhjálparhúsið hefur heimilisrusl hrúgast upp á lóðinni og þbí fylgir nú rottugangur. Lúðvík Guðnason mengunnarvarnafulltrúi borgarinnar kynnti sér aðstæður í morgun og segir að eitthvað verði gert í þessu máli strax.

Síðasta verk Vilhjálms var eitt fyrsta umdeilda verkið

Eitt síðasta embættisverk Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra var að taka skóflustungu að einu fyrsta umdeilda verkinu sem hann kom að í embætti. Hann var harðlega gagnrýndur fyrir að víkja ekki sæti í málinu og sakaður um tortryggileg vinnubrögð þegar borgin skrifaði undir viljayfirlýsingu við hjúkrunarfélagið Eir um byggingu íbúða og miðstöðvar fyrir aldraða. Vilhjálmur er stjórnarformaður Eirar.

Þriggja bíla árekstur við Litlu Kaffistofuna

Þrír bílar lentu í árekstri í brekkunni ofan við Litlu Kaffistofuna á áttunda tímanum í morgun og einn til viðbótar valt þar út af veginum.Tveir úr honum slösuðust og verða fluttir með sjúkrabílum á Slysadeild Landsspítalans en enginn mun hafa slasast í árekstrinum.

Síldveiðin fer hægt af stað

Síldveiðin fer mun hægar af stað en undanfarin ár og er orðin um það bil hálfum mánuði á eftir áætlun, að sögn sjómanna.

Ölvaður og réttindalaus

Lögreglan á Selfossi tók ökumann úr umferð í nótt, grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annars voru fimm teknir í umdæminu um helgina vegna ölvunaraksturs. Þar af var einn fimmtán ára og þar með réttindalaus.

Viðræðurnar ganga vel í góðum anda

Nýji meirihlutinn í Reykjavík fundaði stíft í dag en ákveðið var að að taka frí í kvöld og gefa fólki tækifæri til að sinna fjölskyldum sínum eftir langa törn. Þetta segir Dagur B. Eggertsson, verðandi borgarstjóri í samtali við Vísi.

Besta ár í sögu minkaræktar

Geysihátt verð fæst fyrir minkaskinn og var síðasta ár það besta í sögu íslenskra loðdýrabænda, - það er að segja þeirra sem rækta mink, því aðeins einn bóndi er eftir í refarækt. Þar hefur afkoman verið mun lakari.

Lýsa eindregnum stuðningi við álver við Bakka

Kjördæmisráð Sjálfstæðisfélaganna í Norðausturkjördæmi lýsir yfir eindregnum stuðningi við áform um byggingu álvers við Bakka við Húsavík. „Sá mikli viðsnúningur sem hefur orðið á byggðaþróun á Austurlandi við byggingu Fjarðaáls gefur skýr fyrirheit um þau jákvæðu áhrif sem framkvæmd á Bakka mun hafa," segir í ályktun sem samþykkt var einróma á kjördæmisþingi Sjálfstæðisfélagana í Norðausturkjördæmi.

Sjá næstu 50 fréttir