Fleiri fréttir

Leifarnar af Bjólfskviðu enn á Kerlingardalsheiði

Leikmyndin úr kvikmyndinni Bjólfskviðu er enn á Kerlingardalsheiði, rúmum þremur árum eftir að tökum á myndinni lauk. Bóndinn í Kerlingardal segir þetta til skammar fyrir alla þá sem að myndinni komu.

Sala á hlut í Hitaveitunni skoðuð ofan í kjölinn

Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði segir að hugsanleg sala á hlut bæjarins í Hitaveitu Suðurnesja verði skoðuð ofan í kjölinn á næstunni. "Við stefnum að því að ljúka þessu máli eins fljótt og kostur er en ég á ekki von á neinni ákvörðun fyrr en eftir einhverjar vikur," segir Lúðvík.

Ódýrara að fá erlenda hjúkrunarfræðinga á Landspítalann

Landspítalinn hefur sagt upp samningum við tvö íslensk þjónustufyrirtæki sem hafa séð spítalanum fyrir hjúkrunarfræðingum og ætlar að ráða hjúkrunarfræðinga erlendis frá. Hátt í níutíu hjúkrunarfræðinga vantar á spítalann og segir hjúkrunarforstjóri ódýrara að ráða erlent starfsfólk.

Á fimmta tug fatlaðra barna fá ekki fullt pláss á Vesturhlíð

Hátt í fimmtíu fötluð börn fá ekki fullt pláss á frístundaheimilinu Vesturhlíð vegna manneklu. Börnin fá vistun í mesta lagi þrjá daga í viku og þurfa foreldar þeirra að sleppa úr vinnu hina dagana. Foreldrar eru orðnir langþreyttir á ástandinu.

Tífaldur munur á stærstu forlögunum

Forlagið - sem verður til þegar Mál og menning og JPV sameinast - verður að minnsta kosti tífalt stærra en næst stærsta bókaútgáfa landsins.

Skaðabætur vegna brunalóða

Borgin gæti þurft að reiða fram á fjórða tug milljóna króna í skaðabætur til eigenda brunalóðarinnar að Austurstræti 22 því ekki er gert ráð fyrir að fullnýta byggingarrétt lóðarinnar.

Vísir tekur kipp

Breyttar áherslur á ritstjórn Vísis og nýtt útlit virðast falla í góðan jarðveg hjá netnotendum. Á heimasíðu Modernus er fylgst vandlega með netnotkun hér á landi og þar má sjá að gríðarleg aukning hefur verið í flettingum á Vísi þegar kemur að fréttalestri. Aukningin á milli vikna er 88 prósent.

Lögreglumenn í djúpum skít

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerði í dag húsleit á heimili annars mannsins sem situr í gæsluvarðhaldi fyrir að hafa smyglað inn 1800 millilítrum af fljótandi kókaíni. Að sögn sjónarvotta var aðkoman á heimili mannsins skelfileg, límt var fyrir alla glugga og matarleifar og kattarúrgangur um öll gólf.

Ánægður með minnkandi dópneyslu í fangelsunum

Nýlega var framkvæmd allsherjar úttekt á fíkniefna- og lyfjaneyslu fanga hér á landi. Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segist afar ánægður með niðurstöðurnar sem sýni að málin þokist í rétta átt. Í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg og í fangelsunum í Kópavogi og á Kvíabryggju reyndist enginn fangi hafa neytt fíkniefna eða lyfja sem bönnuð eru innan veggja fangelsisins. Ástandið er þó ekki eins gott á Litla Hrauni.

Börðu mann á sjómannadansleik

Tveir menn voru í Héraðsdómi Austurlands í dag sakfelldir fyrir líkamsárás á sjómannadansleik á Höfn í Hornafirði í sumar.

IGS þarf að greiða 60 milljóna króna sekt vegna samkeppnisbrota

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli (IGS) um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála vegna fyrirtækisins yrði felldur úr gildi. Félagið þarf því að greiða 60 milljóna króna sekt vegna samkeppnisbrota.

Verðlaunaður fyrir baráttu gegn loftlagsbreytingum

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók í gær við verðlaunum frá Louise T. Blouin stofnuninni fyrir forystu á alþjóðavettvangi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og fyrir að stuðla að nýrri sýn á nýtingu hreinnar orku víða um heim.

Lögreglan lokar Laugavegi

Lögreglan hefur lokað hluta Laugavegar vegna þess að þakplötur eru farnar að fjúka af þaki húss númer 71 við götuna. Vegfarendum er bannað að ganga framhjá húsinu vegna hættu á því að plöturnar slasi fólk. Körfubíll er á svæðini og eru iðnaðarmenn nú að athafna sig á þaki hússinns.

Reyndu að flýja Fáskrúðsfjörð

Samkvæmt heimildum Vísis reyndu þeir Guðbjarni Traustason og Alvar Óskarsson, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi vegna Fáskrúðsfjarðarmálsins, að flýja Fáskrúðsfjörð þegar þeir urðu varir við að þeim var veitt eftirför.

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald

Hæstiréttur Íslands staðfesti í morgun gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Bjarna Hrafnkelssyni og Einari Jökli Einarssyni. Þeir voru báðir handteknir í tengslum við Fáskrúðsfjarðarmálið í síðustu viku og úrskurðaðir í gæsluvarðhald af Héraðsdómi Reykjavíkur til 18. október. Alls voru fimm úrskurðaðir í gæsluvarðhald en aðeins Bjarni og Einar Jökull áfrýjuðu úrskurðinum til Hæstaréttar.

Samherji hættir skreiðavinnslu á Hjalteyri

Samherji hyggst loka skreiðavinnslu sinni á Hjalteyri við Eyjafjörð og missa á bilinu 8-10 manns vinnuna við það. Samherji hefur verið stærsti vinnuveitandinn í Arnarneshreppi og segir Axel Grettisson, oddviti hreppsins, að starfsmönnum hafi verið boðin vinna á Dalvík og akstur þangað, alla vega í vetur.

Tekist á um mögulegar olíulindir

Íslendingar, Færeyingar, Bretar og Írar ætla í vikunni að freista þess að ná samkomulagi um skiptingu Hatton Rockall svæðisins. Um mikla hagsmuni er að tefla því talið er að þar geti verið gjöfular olíulindir.

Vara við litarefnum sem valda hegðunarvanda hjá börnum

Neytendasamtökin hvetja íslenska neytendur til að sniðganga matvæli sem innihalda hin umdeildu asó-litarefni. Fram kemur í frétt á heimasíðu samtakanna að efnin geti valdið ofvirkni og hegðunarvanda hjá börnum. Efnin eru algeng í hvers konar sælgæti.

Ekki vanhæfur til að fjalla um ráðningu frænda

Bæjarlögmaður Kópavogs hefur komist að þeirri niðurstöðu að skólanefndarfulltrúi hafi ekki verið vanhæfur til að að sitja afgreiðslu á ráðningu aðstoðarskólastjóra Smáraskóla. Lögmaðurinn mun senda bæjarstjórn Kópavogs niðurstöðu sína á morgun.

Meira frelsi til skoðana í nýrri ríkisstjórn

Formaður Samfylkingarinnar segir að stjórnarliðum leyfist nú að hafa skoðanir og skýtur þannig föstum skotum að fyrri ríkisstjórrn. Stjórnarliðar hafa enda tjáð sig frjálslega mál sem einhugur er ekki um í ríkisstjórninni.

Hnefaleikaforkólfur ákærður fyrir líkamsárás

Í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun var þingfest ákæra á hendur 45 ára karlmanni sem gefið er að sök að hafa ráðist á 37 ára karlmann á veitingastaðnum Classic Rock með hnefahöggum. Maðurinn neitaði sök þegar hann var inntur eftir afstöðu sinni til ákærunnar í morgun. Ákærði hefur lengi sinnt áhrifastörfum fyrir hnefaleikahreyfingunna á Íslandi og hlaut dóm fyrir að þjálfa hnedaleika áður en Íþróttin var lögleidd hér á landi.

Eðlileg gagnrýni

Gagnrýni Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, á hagstjórn síðustu ríkisstjórnar er eðlileg að mati Péturs H. Blöndal, alþingismanns. Hann segir ekkert óeðlilegt að flokkur sem kemur nýr inn í ríkisstjórn gagnrýni aðgerðir þeirrar sem sat á undan.

Fangi framdi ekki sjálfsmorð

Valtýr Sigurðsson fangelsismálastjóri segir það alrangt að maðurinn sem lést á Litla-Hrauni um helgina hafi svipt sig lífi eins og líkur eru leiddar að í DV í dag. Valtýr segir að alfrei hafi neitt bent til þess að um sjálfsvíg hafi verið að ræða og það hafi verið staðfest við nánari eftirgrennslan.

Þungt að vita af bróður mínum í varðhaldi

Logi Freyr Einarsson, sem handtekinn var í Noregi í síðustu viku í tengslum við Fáskrúðsfjarðarmálið, segir í samtali við Vísi að erfitt sé að vita af bróður sínum á Íslandi í gæsluvarðhaldi

Valt í þrengslunum

Malarflutningabíll fór útaf veginum í Þrengslunum til móts við Votaberg laust fyrir klukkan tíu í morgun. Ökumaður var fluttur á slysadeild.

Fannst látinn í klefa sínum

Karlmaður fæddur 1972 fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni um helgina. Frá þessu er greint á heimasíðu fanga, Timamot.is. Þar segir að ekkert bendi til þess að maðurinn hafi tekið sitt eigið líf. Hinn látni var við það að ljúka afplánun á 16 ára fangelsisdómi sem hann fékk fyrir morð. Hann strauk af áfangaheimilinu Vernd fyrir hálfum mánuði og var greint frá því í fjölmiðlum.

Stjórnarsáttmáli útilokar ekki aðildarumsókn

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra bendir á það í viðtali við Stöð tvö að ekki sé kveðið upp úr um það í stjórnarsáttmálanum að ekki verði sótt um aðild að Evrópusambandinu á kjörtímabilinu.

Heilbrigðar konur fjarlægja jafnvel brjóst sín til að forðast krabbamein

Pétur Hauksson geðlæknir telur ákaflega vafasamt að bjóða almenningi að kaupa greiningu á erfðamengi sínu eins og Íslensk erfðagreining áformar að gera. Hann segir að svo geti farið að heilbrigðar konur með kortlagða áhættuþætti láti jafnvel fjarlægja brjóst sín til að fá ekki krabbamein.

Stunginn hundrað sinnum

Það draup hunang af hverju strái í húsdýragarðinum í dag þegar býflugnabændur héldu uppskeruhátíð og kynntu afurðir sínar. Framleiðslan gengur þó ekki alltaf áfallalaust fyrir sig og einn bóndi segist hafa verið stunginn mörg hundruð sinnum.

Líður sem hústökumanni í eigin íbúð

Íbúar við Skúlagötu 32 í Reykjavík eru ósáttir við fyrirhugaða framkvæmdir á hinum svokallaða Barónsreit. Þeir fréttu fyrst fyrir nokkrum dögum að reisa ætti verslunarmiðstöð þar sem íbúðir þeirra standa í dag.

Smyglskútan sigldi langa leið

Smyglskútan sem kom til Fáskrúðsfjarðar á fimmtudag var tekin á leigu í Bergen og þaðan siglt til ýmissa landa áður en henni var siglt hingað til lands. Íslendingnum, sem var í haldi norsku lögreglunnar, hefur verið sleppt.

Skotið á skútusmyglara í fyrra

Skotárás fyrir tveimur árum á tvo af mönnunum, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi, gefur innsýn í veruleika íslenska fíkniefnaheimsins en sjónarvottar lýsa árásinni sem framhjá-aksturs-skothríð.

Fara yfir öryggismál í Soginu

Stangaveiðifélag Reykjavíkur mun á næstunni fara ítarlega yfir öryggismál í Soginu til að reyna að koma í veg fyrir að slys verði í ánni, meðal annars í samráði við Landsvirkjun. Bjarni Júlíusson, formaður félagsins, segir félagið einnig ætla að fara yfir öryggismál almennt í ám landsins og fá til liðs við sig björgunarsveitarmenn og aðra sem til þekkja.

Flugvél KLM-flugfélagsins lenti óvænt í Keflavík

Flugvél frá KLM-flugfélaginu á leið til Kanada lenti óvænt á Keflavíkurflugvelli rétt eftir klukkan fjögur í dag. Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar segir að í vélinni hafi verið töskur sem ekki fylgdu þeim farþegum sem um borð voru. Í þeim tilfellum sé alltaf gripið til ákveðinna ráðstafana „Flugvél á ekki að fara í loftið með farangur sem tilheyrir ekki farþega um borð," segir Friðþór.

Kærði nauðgun til lögreglunnar

Kona á fertugsaldri kærði nauðgun til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í gærmorgun. Fljótlega beindist grunur að erlendum ríkisborgara.

Bílvelta við Skarðsmýrafjall

Bíll valt á Þúsundvatnaleið í átt að Skarðsmýrarfjalli á Hellisheiðinni nú á fimmta tímanum. Lögregla og sjúkralið eru á vettvangi. Ekki er talið að alvarleg slys hafi orðið á fólki.

Yfirheyrslur yfir amfetamínsmyglurum halda áfram

Rannsókninni á smyglskútumálinu sem kom upp á Fáskrúðsfirði á fimmtudag miðar vel en yfirheyrslur yfir sakborningunum halda áfram, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá lögreglunni. Í Noregi var einn aðili handtekinn vegna málsins en sá er laus úr haldi. Í Færeyjum voru tveir handtekni.

Nágrannar Kompáslögmannsins óttast um börnin sín

Íslenskir foreldrar sem búa í nálægð við Kompáslögmanninn á Spáni óttast um börnin sín. Fjallað var um mál lögmannsins í Kompási síðastliðinn miðvikudag. Hann hefur verið ákærður fyrir kynferðisafbrot gegn fjórum unglingsstúlkum, fjórtán og fimmtán ára gömlum.

Sjá næstu 50 fréttir