Innlent

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald

Andri Ólafsson skrifar
Hæstiréttur Íslands staðfesti í morgun gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Bjarna Hrafnkelssyni og Einari Jökli Einarssyni. Þeir voru báðir handteknir í tengslum við Fáskrúðsfjarðarmálið í síðustu viku og úrskurðaðir í gæsluvarðhald af Héraðsdómi Reykjavíkur til 18. október.

Alls voru fimm úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins en aðeins Bjarni og Einar Jökull áfrýjuðu úrskurðinum til Hæstaréttar. Þeir voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu en hinir þrír á Fáskrúðsfirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×