Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fangi sýknaður af ákæru um smygl Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag fanga á Litla Hrauni af ákæru vegna brota á tolla- og lyfsölulögum. Í dómnum er vitnað í skýrslu fangavarða frá 24. nóvember 2006. Þar kemur fram að klefaleit hafi verið gerð hjá ákærða þann sama dag. „Hafi ákærða verið boðið að vera viðstaddur leitina, sem hann þáði. Þá hafi fundist ein sprauta, tvær nálar, níutíu og átta bleikar litlar töflur í plastpoka og tvær ambúlur með svörtum miða sem á stóð „supertest og trenbolone acetate“. 17.9.2007 14:20
Hið ógurlega hernaðarleyndarmál Íslands Ekki eru veittar upplýsingar um hvernig hið nýja varðskip sem verið er að smíða fyrir Landhelgisgæsluna verður vopnað. Það er sagt trúnaðarmál. Í uppflettibókum og á netinu er hægt að fá upplýsingar um það í smáatriðum hvernig öflugustu herskip Bandaríkjanna, Breta, Frakka og Rússa eru vopnuð. Raunar er hægt að fá þar upplýsingar um búnað allra herskipa og varðskipa um allan heim. 17.9.2007 14:16
Flugþjónustan tekur fyrsta evruposann í notkun Fyrirtækið Kortaþjónustan hefur sett upp fyrstu posana hér á landi sem taka við evrum. Það var Flugþjónustan á Reykjavíkurflugvelli sem tók fyrstu posana í notkun en evruposar gagnast til að byrja með helst fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Fleiri fyrirtæki hafa þegar beðið um að fá slíka evruposa. Þetta þýðir að viðskiptavinir fyrirtækjanna fá uppgefið verð vöru eða þjónustu í evrum og greiða í þeirri mynt. 17.9.2007 13:43
Sonur minn var meira en bara fangi “Þetta hefur veitt mér mikinn styrk,” segir Ragnheiður Hilmarsdóttir sem undanfarnar vikur hefur vakið athygli fyrir einlæg og opinská skrif á heimasíðu sinni. Sonur Ragnheiðar, Hilmar Már, féll fyrir eiginn hendi á Litla-Hrauni fyrir skömmu og hefur Ragnheiður notað skrifin til að halda minningu hans á lofti. 17.9.2007 13:21
Forseti Íslands til Rúmeníu Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson mun á morgun þriðjudaginn 18. september halda í opinbera heimsókn til Rúmeníu. Heimsóknin stendur dagana 19.-20. september og er þetta er í fyrsta skipti sem forseti Íslands fer í opinbera heimsókn til Rúmeníu. Á undanförnum árum hafa myndast allmikil tengsl milli landanna og viðskipti þeirra farið vaxandi. 17.9.2007 13:01
Nauðgari átti að vera í farbanni Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður segir að varla sé hægt að benda á nokkurn einn aðila sem beri ábyrgð á því þegar dæmdir menn strjúki burt úr landi eftir að hafa hlotið fangelsisrefsingu. Hann segir að farbannsúrskurðir þurfi að lúta ákveðnum skilyrðum sem kveðið sé á um í lögum. Farbann sé mikil refsing. DV greindi frá því í morgun að Portúgalinn Americo Luis Da Silva Concalves væri farinn úr landi. Concalves var dæmdur fyrir hrottalega nauðgun fyrir helgi. 17.9.2007 11:38
Einelti hjá fimmta hverjum ríkisstarfsmanni Starfsmannaskrifstofa ríkisstofnanna vinnur nú að stefnumótun og verkefnaáætlun sem miðar að því að bæta starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Einelti á vinnustöðum ríkisins er eitt þeirra atriði sem gefinn verður aukinn gaumur. Samkvæmt könnun í fyrra á einelti telur nær fimmti hver ríkisstarfsmaður, eða 17%, sig hafa orðið fyrir einelti í starfi. Þar af 10% sem segja að eineltið hafi átt sér stað oftar en einu sinni. 17.9.2007 11:32
Borgarstjóri vinnur gegn stefnunni Ungir sjálfstæðismenn telja Vilhjálm Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra vinna gegn sjálfstæðisstefnunni. Máli sínu til stuðnings nefna þeir nokkur mál sem borgarstjóri hefur staðið að, svo sem „klámráðstefnumálið, afskipti af ÁTVR og spilakassamálið svokallaða,“ eins og segir í ályktun SUS um innanríkis- og stjórnsýslumál. 17.9.2007 10:46
Tveir stöðvaðir vegna fíkniefnaaksturs Tveir ökumenn voru teknir úr umferð í Reykjavík í gærkvöldi vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Annar var svo vankaður að ökumenn gerðu lögreglu viðvart um skrikkjótt ökulag hans. Í bíl hins, sem upphaflega var tekinn fyrir of hraðann akstur, fannst auk þess amfetamín. Engin ökumaður var hinsvegar tekinn úr umferð vegna neyslu áfengis í gærkvöldi eða í nótt.- 17.9.2007 09:17
Má búast við ísingu á þjóðvegum Ísing var á götum í efri byggðum á Akureyri í morgun, en búist er við að hana taki upp þegar líður á morguninn. Í ljósi þessa má búast við ísingu eða hálkublettum víða á þjóðvegum framan af degi.- 17.9.2007 09:13
Á fimmta tug erlendra ferðamanna meðal hinna látnu Áttatíu og átta hið minnsta eru nú sagðir látnir eftir flugslysið á Phuket-eyju á Taílandi í morgun, þar af á fimmta tug erlendra ferðamanna. Alls voru 130 manns í vélinni sem var á vegum taílenska lággjaldaflugfélagsins One-Two-Go, 123 farþegar og sjö manna áhöfn. 16.9.2007 22:07
Hjörvar Steinn ósigraður á Evrópumóti ungmenna Skákmaðurinn ungi Hjörvar Steinn Grétarsson er efstur ásamt fjórum öðrum með fullt hús vinninga á Evrópumóti ungmenna skák sem fram fer í Zagreb í Króatíu. Fram kemur í tilkynningu að Hjörvar, sem teflir í flokki 14 ára og yngri, hafi sigrað Þjóðverjann Felix Graf í 3. umferð mótsins í dag. 16.9.2007 21:33
Sjö handteknir vegna tilræðis í Tyrklandi Lögreglan í Tyrklandi handtók í dag sjö manns sem hún grunar um að hafa lagt á ráðin um sprengjuárás í höfuðborginni Ankara í síðustu viku. Lögreglu tókst að koma í veg fyrir árásina á þriðjudaginn var þegar hún fann bíl fullan af sprengiefni í bílageymslu í verslunarmiðstöð. 16.9.2007 21:14
Vistun fanga á Sólheimum gefur góða raun Það hefur gefið góða raun að vista fanga á Sólheimum í Grímsnesi en þar hafa fyrirmyndarfangar afplánað hluta af fangavist sinni. Færst hefur í vöxt að önnur úrræði en fangelsun sé notuð við betrun fanga á Íslandi. 16.9.2007 19:45
Segja Hörpuna í Bandaríkjunum Aðstendur þeirra sem létust þegar skemmtibáturinn Harpan steytti á Skarfaskeri fyrir um tveimur árum hafa lagt fram kæru á hendur Jónasi Garðarssyni fyrir að hafa selt bátinn og þannig komið í veg fyrir að þau hlytu þær skaðabætur sem Hæstiréttur dæmdi hann til að greiða. Aðstandendurnir segja bátinn í Bandaríkjunum. 16.9.2007 19:28
Lögmaður Færeyja fékk ekki þjóðhöfðingjaorðu Allir þjóðhöfðingjar Norðurlandanna hafa fengið fimmta og æðsta stig hinnar íslensku fálkaorðu - stórkross með keðju. Lögmaður Færeyja er ekki í þeim hópi. 16.9.2007 19:15
Fólk fær að kaupa í Símanum fyrir áramót Engin áform eru uppi hjá Símanum um að fá undanþágu til að fresta því að selja almenningi þrjátíu prósenta hlut í félaginu. Fyrirtækið verður skráð í Kauphöllinni fyrir áramót. 16.9.2007 18:45
Hópur fjárfesta styrkir skóla fyrir fatlaða Fjársterk kona leiðir hóp einstaklinga sem hyggst styrkja byggingu á nýjum skóla fyrir fatlaða í Mjóddinni. Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla verður því lokað innan fárra ára þegar nýi skólinn verður tekinn í notkun. 16.9.2007 18:45
Jafnlaunavottun úr sögunni? Ákvörðun verður tekin í kvöld um það hvort ráðherraskipuð nefnd sem ætlað var að undirbúa jafnlaunavottun fyrirtækja, heldur áfram störfum. Fyrrverandi félagasmálaráðherra skipaði nefndina til að vinna gegn kynbundnum launamun, en hana vantar 75 milljónir til að ljúka verkinu. 16.9.2007 18:30
Samgönguvika sett í borginni Samgönguvika Reykjavíkurborgar var sett með formlegum hætti í Perlunni í dag þar sem jafnframt voru veitt verðlaun í Kappakstrinum mikla sem fram fór í borginni í síðustu viku. 16.9.2007 15:45
Þungfært um Nesjavallaleið Vegagerðin varar við því að þungfært er um Nesjavallaleið. Þá er ófært yfir Öxarfjarðarheiði og hálka eða hálkublettir eru víða á heiðum á Norðaustur- og Austurlandi. Enn fremur er þungfært upp að Dettifossi. 16.9.2007 13:23
Skipulagslög eru gölluð Skipulagslög eru gölluð að mati formanns samtakanna Betri byggð á Kársnesi, sem telur að samráð við nágranna þurfi að koma mun fyrr inn en nú er. 16.9.2007 13:15
Ekki skýr ákvæði um bann við að pissa úti á götu Í lögreglusamþykkt borgarinnar er ekki tekið sérstaklega fram að bannað sé að kasta af sér vatni úti á götu en margir hafa verið sektaðir fyrir það undanfarnar tvær helgar í miðborginni. Tuttugu og fjórir voru handteknir í nótt fyrir að haga sér illa - flestir fyrir að pissa úti á götu. Alls hafa þrjátíu og átta verið handteknir í miðborginni um helgina fyrir slík minniháttar brot. 16.9.2007 12:45
Lugovoj býður sig fram fyrir öfgaþjóðernisflokk Zhírónovskys Andrej Lugovoj, fyrrverandi njósnari hjá KGB, staðfesti í dag hann hygðist bjóða sig fram fyrir Frjálslynda demókrataflokkinn í Rússlandi, flokk öfgaþjóðernissinnans Vladímírs Zhírínovskys, í þingkosningum í landinu þann 2. desember. 16.9.2007 12:36
Fleiri forgangsakreinar fyrir strætó og hjólagötur við stofnbrautir Borgarstjórnaflokkur Samfylkingarinnar vill ölfugri almenningssamgöngur með fleiri forgangsakreinum fyrir strætó á helstu stofnbrautum borgarinnar og sérstaka hjólagötur á sömu götum. Þá vill flokkurinn að fremur verði ráðist í Öskjuhlíðargöng en mislæg gatnamót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Þetta kemur fram í ályktun frá borgarstjórnarflokknum í tilefni að því að samgönguvika borgarinnar hefst í dag. 16.9.2007 12:15
Rændi flatskjá og ferðatösku Brotist var inn í kjallaraíbúð við Bergþórugötu í miðbænum í nótt og þaðan stolið ýmsum verðmætum. Að sögn lögreglu hafði þjófurinn á brott með sér flatskjá, fartölvu og stóra ferðatösku. 16.9.2007 11:25
Fagna undirbúningi að stofnun háskóla á Vestfjörðum Stjórn Vestfjarðaakademíunnar fagnar ályktun Fjórðungssambands Vestfirðinga sem hefur falið stjórn sambandsins að hefja þegar undirbúning að stofnun háskóla. 16.9.2007 11:00
Sló til lögreglumanns Fjórir menn gista fangageymslu lögreglunnar á Suðurnesjum eftir nóttina en þeir voru allir færðir þangað vegna ölvunar og óspekta. Einn mannanna sló til lögreglumanns og segir lögregla að hann verði yfirheyrður þegar áfengisvíman renni af honum. 16.9.2007 10:15
Velti jeppa við Hraunaveitur Ökumaður jeppa var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur í gærkvöld eftir að jeppi hans valt í hálku skammt frá Hraunaveitum Kárahnjúkavirkjunar. Maðurinn var fyrst fluttur á sjúkrahúsið á Egilsstöðum en þar sem hann var með höfuðáverka var ákveðið að flytja hann með flugvél til Reykjavíkur og dvelur hann nú á Landspítalanum í Fossvogi. 16.9.2007 09:49
Slapp vel þegar bíll fór þrjár veltur Ungur karlmaður þykir hafa sloppið vel þegar hann missti stjórn á bíl sínum á Skeiðavegi við Merkurhraun rétt eftir miðnætti í nótt. Bíllinn fór út af veginum og fór einar þrjár veltur að sögn lögreglunnar á Selfossi. 16.9.2007 09:38
Tuttugu og fjórir teknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Tuttugu og fjórir voru handteknir í miðbæ Reykjavíkur í nótt fyrir brot á lögreglusamþykkt, en eins og kunnugt er hefur lögregla tekið harðar á slíkum brotum síðustu tvær helgar þar sem eftirlit hefur verið hert. Alls hafa því 38 verið teknir fyrir slík brot um helgina. 16.9.2007 09:31
Lugovoj til liðs við Zhírínovsky? Andrei Lugovoi, njósnarinn fyrrverandi sem bresk stjórnvöld hafa sakað um morðið á öðrum fyrrverandi njósnara, Alexander Litvinenko, hyggst bjóða sig fram til þingsetu fyrir hægriöfgaflokkinn LDPR, flokk Vladímírs Zhírínovsky, í kosningum 2. desember. 15.9.2007 22:30
Hellisheiðin opnuð á ný Búið er að opna Hellisheiðina á ný en henni var lokað um sjöleytið í kvöld eftir að tveir fólksbílar rákust saman í Kömbunum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi komu bílarnir tveir úr gagnstæðri átt og var áreksturinn allharður. 15.9.2007 21:00
Missti stjórn á bíl sínum og endaði á vegriði Ungur maður slapp án teljandi meiðlsa þegar hann missti stjórn á bíl sínum á Snæfellsnesvegi við Grundará laust eftir klukkan tíu í morgun. Bíllinn hafnaði á vegrið og skemmdist svo mikið að það varð að draga hann burt með kranabíl. 15.9.2007 20:00
Hellisheiðin lokuð vegna umferðarslyss Hellisheiðin er lokuð vegna bílslyss sem þar varð upp úr klukkan sjö. Þá rákust tveir bílar saman í Kömbunum og þurfti að flytja einn með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. 15.9.2007 19:50
Hvalir vekja athygli í Vestmannaeyjahöfn Óvanalegrar hvalagengdar hefur orðið vart í höfninni í Vestmannaeyjum. Tvær ólíkar hvalategundir virðast hafa tekið sér bólfestu um stund í innsta hluta hafnarinnar. Hvalirnir hafa vakið mikla athygli hjá bæjarbúum og hefur fjöldi manna lagt leið sína niður á bryggju. 15.9.2007 19:30
Alhvít jörð á Hellisheiði og snjóar í Esjuna Veturinn gekk í garð á Hellisheiði í dag og í Þrengslum og Esjan setti upp hvítan koll. Þótt Hellisheiðin sé hvít yfir að líta þá var vegurinn að mestu auður enda veghitinn allt að þremur gráðum meiri en lofthitinn. Sumstaðar var þó krapi og hvatti lögreglan í dag ökumenn til að fara varlega. 15.9.2007 19:15
Stjórnvöld flýta ekki fyrir vistvæðingu bílaflotans Stjórnvöld þurfa að gera gangskör í að breyta gjöldum vistvænna bíla, segir framkvæmdastjóri Orkuseturs. Sýnishorn af vistvænustu bílum landsins eru til sýnis í Perlunni um helgina. 15.9.2007 19:00
Rökstuddan grun um brot þarf til að heimila líkamsleit lögreglu Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður segir að lögreglan þurfi að hafa rökstuddan grun til að leita á fólki. Með hertum aðgerðum sínum fann lögreglan vopn og fíkniefni á fólki í gær í miðborginni. Sveinn Andri segir að borgarar hafi úrræði telji þeir á sér brotið við slíka líkamsleit. 15.9.2007 18:45
Strákar í Víðistaðaskóla gera stuttmynd um afleiðingar eineltis Krakkar í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði búa sjálfir til námsefni fyrir aðra nemendur í skólanum um þeirra hjartans mál. Sex strákar eru að gera stuttmynd og vefsvæði um áhrif eineltis. 15.9.2007 18:39
Glórulaust að fara yfir Reynisfjall á sumardekkjum Tveir bílar hafa farið út af veginum á Reynisfjalli vestan við Vík í Mýrdal í dag. Bæði óhöppin má rekja til mikillar hálku á svæðinu og hvassviðris og segir lögreglan á Hvolsvelli að það sé glórulaust að fara yfir fjallið á sumardekkjum. 15.9.2007 15:52
Veskjum vistmanna í Hlaðgerðarkoti stolið í nótt Brotist var inn í meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot í Mosfellsdal einhvern tíma í nótt og veskjum nokkurra vistmanna þar stolið. Veskin voru geymd í hirslum í vaktmannsherbergi en svo virðist sem þjófurinn hafi komið utan frá og náð að hafa veskin á brott án þess að nokkur yrði hans var. 15.9.2007 15:28
Lögmaður Færeyja sæmdur stórriddarakrossi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi í dag Jóannes Eidesgaard, lögmann Færeyja, stórriddarakrossi með stjörnu fyrir framlag hans til að styrkja samvinnu Íslendinga og Færeyinga. Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu að þetta hafi verið gert við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. 15.9.2007 14:30
Hestur sparkar í konu í réttum Kona var flutt á slysadeild Landspítalans í Fossvogi í dag eftir að hestur hafði sparkað í hana. Konan var í hestaréttum í Tungnarétt í Biskupstungum þegar eitt hrossanna sparkaði í hana. Ekki liggur fyrir hvers eðilis meiðsl hennar voru en rannsókn mun hafa leitt í ljós að þau voru ekki alvarleg. 15.9.2007 14:15
Varað við krapa á Hellisheiði Vetur konungur hefur heldur betur bankað á dyrnar bæði á Suður- og Norðurlandi, þó einungis með ofankomu sunnan heiða. Lögreglan á Selfossi varar við krapa á Hellisheiði. 15.9.2007 14:00