Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hafa áhyggjur af fé vegna þurrka Bændur hafa áhyggjur af fé sem komið er á afrétt þar sem vitað er að sum vatnsból sem féð gengur í eru að þorna upp eða eru hreinlega þornuð vegna langvarandi þurrka. 28.6.2007 12:12
175% hækkun framlaga til Ríkislögreglustjóra Hækkun á fjárframlögum hins opinbera til embættis Ríkislögreglustjóra á árunum 2002 þúsund og 2006 nemur rúmum 175 prósentum. Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður efast um að þeim fjármunum hafi verið vel varið. 28.6.2007 12:05
Menntun flóttabarna Átta milljón börn flóttamanna munu njóta menntunar ef áætlun Alþjóðasamtaka Barnaheilla nær fram að ganga. Þegar hafa þau komið á þriðju milljón barna til hjálpar. Neyðarteymi samtakanna fundar í Reykjavík þessa dagana. 28.6.2007 12:04
Inga Dóra ráðin ráðgjafi heilbrigðisráðherra Dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir hefur verið ráðin í tímabundna stöðu sem ráðgjafi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, ráðherra heilbrigðismála, um stefnumótun í heilbrigðismálum með sérstaka áherslu á forvarnir og lýðheilsu. Inga Dóra er forseti Kennslufræði- og lýðheilsudeildar Háskólans í Reykjavík og þangaði mun hún snúa aftur þegar verkefninu lýkur. 28.6.2007 12:02
Samningur um orkusölu OR til Helguvíkur samþykktur í borgarráði Borgarráð samþykkti í dag samning um sölu orku frá Orkuveitu Reykjavíkur til hugsanlegs álvers í Helguvík. Minnihlutinn í borgarráði greiddi atkvæði gegn samningnum. 28.6.2007 11:59
Búist við að viðgerð ljúki eftir hádegi Enn er heitavatnslaust í stórum hluta Hólahverfis í Breiðholti. Viðgerð stendur yfir og segja Orkuveitumenn hana ganga vel. Búist er við að heitavatnið verði komið á eftir hádegi. 28.6.2007 11:53
Íbúi í Álafosskvos segir vegarlagningu hafna Helgafellsvegurinn svokallaði, sem ollið hefur miklum deilum síðustu mánuðu hefur verið lagður að mestu án þess að lögbundnu kynningarferli vegna lagningu brautarinnar sé lokið, að sögn íbúa í Álafosshverfi. Formaður skipulagsnefndar segir að aðeins sé um fráveituframkvæmd að ræða. 28.6.2007 11:14
Dómur í Baugsmálinu í dag Dómur verður kveðinn upp klukkan þrjú í dag í þeim hluta endurákærunnar í Baugsmálinu sem Hæstiréttur vísaði aftur í hérað. Um er að ræða níu heila ákæruliði og hluta tveggja annarra sem héraðsdómur vísaði frá í upphafi maímánaðar eftir ein umfangsmestu réttarhöld í íslenskri réttarsögu. 28.6.2007 11:05
Dæmd til að greiða manni bætur vegna líkamsárásar Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur sakfellt konu fyrir líkamsárás gegn karlmanni og dæmt hana til að greiða honum ríflega 110 þúsund krónur í skaðabætur vegna árásarinnar. 28.6.2007 10:26
Skiptar skoðanir um ágæti Blairs í hlutverki sáttasemjara Skiptar skoðanir eru á meðal Palestínumanna um ágæti skipunar Tony Blairs í starf sérstaks erindreka Miðausturlandakvartettsins svokallaða. Forseti Palestínu, Mahmoud Abbas fagnaði tilnefningunni en Hamas, samtök herskárra Palestínumanna eru ekki eins hrifin. 27.6.2007 23:42
Bíll brann í Ármúla Eldur kom upp í bíl í Ármúla klukkan tuttugu mínútur í tíu í kvöld. Verið var að draga bílinn þegar eldurinn blossaði upp. Slökkvilið og lögregla mættu á staðinn og slökktu eldinn en bíllinn er talinn ónýtur. Örsök eldsins er ókunn sem stendur. 27.6.2007 22:23
Sjávarútvegur í Færeyjum vill engan samdrátt Ráðgjafanefnd sjómanna og útgerðarmanna í Færeyjum leggur til að tillögur fiskifræðinga um samdrátt í veiðum við Færeyjar verði algerlega hunsaðar. Einn nefndarmanna segir nánast ekkert hafi verið hlustað á varnaðarorð fræðinganna í tíu ár og reynslan sýni að ráðgjöf þeirra hafi verið vitlaus. 27.6.2007 19:20
Nasdaq og OMX funda í Keflavík Sendinefndir frá Nasdaq og OMX hafa setið á fundum í Reykjanesbæ í allan dag. Frá þessu er greint á heimasíðu Víkurfrétta. Samtals mættu um 30 manns til þessa fundar bandaríska verðbréfamarkaðarins Nasdaq og sænska fyrirtækisins OMX, sem rekur kauphallir á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum. 27.6.2007 19:12
Öryrki eftir gálausan akstur Í einum vetfangi missti fjölskyldumaður í fullri vinnu heilsuna og það líf sem hann áður þekkti - allt vegna bílstjóra sem var að flýta sér milli akreina. Baldvin Jónsson, fyrrverandi formaður Sniglanna, er öryrki í dag og svo fullur af skrúfum að hann þarf röntgenmyndir með til útlanda - svo hann komist í gegnum vopnaleitarhlið flugvallanna. 27.6.2007 19:06
Hakvæmast að stöðva þorskveiðar Samkvæmt mati Hagfræðistofnunar er það besta leiðin til að byggja upp þorskstofninn að stöðva veiðar alveg í nokkur ár. Heildarniðurstaða stofnunarinnar styður tillögur Hafró um stórfelldan samdrátt í þorskveiðum. Hagfræðistofnun metur áhrif þess að 250-550 smaár útgerðir leggi upp laupana. 27.6.2007 19:05
Brýnir heilbrigðisráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra tekur gagnrýni sem birtist í minningargrein föður í gær mjög alvarlega. Hann segir athugasemdirnar brýna yfirvöld enn frekar í að taka á þessum málum. 27.6.2007 19:02
380 beinar útsendingar í vetur Ný sjónvarpsstöð, helguð enskri knattspyrnu, hefur útsendingar í ágúst. Beinar útsendingar frá leikjum á Sýn 2 næsta vetur verða nærri fjögur hundruð og íslenskir sjónvarpsáhorfendur fá að sjá markapakka á laugardögum á undan Englendingum sjálfum. 27.6.2007 19:00
Aðsókn að kaffihúsum dregst saman Dæmi eru um að sala á börum hafi dregist saman um allt að 70 prósent eftir að reykingarbannið tók gildi síðustu mánaðarmót. Aðstöðuleysi fyrir reykingarfólk utandyra er helsti orsakavaldur. Starfsfólk segir þó allt annað líf að að standa vaktir eftir breytinguna. 27.6.2007 18:43
Sjávarútvegsnefnd Alþingis ræðir skýrslu Hagfræðistofnunar um aflaregluna Einar Oddur Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist telja að nánast sé pólitísk samstaða sé um það að fara að tillögum Hafrannsóknarstofnunar og skera niður afla. 27.6.2007 18:30
Valgerður segir viðsnúning Samfylkingarinnar grátbroslegan Valgerður Sverrisdóttir varaformaður Framsóknarflokksins segir viðsnúning Samfylkingarinnar í stóriðjumálum grátbroslegan. Alcan vill endurnýja raforkusamnings sinn við Landsvirkjun um sex mánuði en niðurstaða Landsvirkjunar gæti ráðið miklu um frekari stóriðjuuppbyggingu í landinu. 27.6.2007 18:30
Ingibjörg Sólrún á leið til Gana Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra heldur í dag af stað til Gana þar sem hún mun sækja leiðtogafund Afríkusambandsins sem hófst 25. júní og lýkur 3. júlí. Á meðan á fundinum stendur munu utanríkisráðherrar álfunnar sitja framkvæmdaráðsfund og á fimmtudag og föstudag mun ráðherrann eiga tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum Afríkuríkja. 27.6.2007 18:07
Utanríkisráðherra ætlar að taka fangaflug til nánari skoðunar Utanríkisráðherra ákvað í dag að taka til nánari skoðunar lendingar ákveðinna flugvéla á Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli. Þetta var ákveðið í framhaldi af umfjöllun þings Evrópuráðsins í dag um skýrslu sem fjallar um leynifangelsi og ólöglegt fangaflug CIA. Í skýrslunni er sagt frá fangaflugvélum sem meðal annars eiga að hafa lent hér á landi. 27.6.2007 17:43
Bæjarráð vill nýta fyrirliggjandi næturferðir fyrir Shellmót og goslokahátíð Á bæjarráðsfundi í Vestmannaeyjum í dag var fjallað málefni Herjólfs en Elliði Vignisson bæjarstjóri hefur undanfarið gagnrýnt seinagang yfirvalda við að koma á næturferðum með ferjunni. Ákveðið hefur verið að koma á næturferðum fyrir Shellmót og goslokahátíð en þrýst er á stjórnvöld um að efna loforð um 20 ferðir. 27.6.2007 17:15
Símaskráin hækkar verðið um 246% Skráningar í símaskrá hafa hækkað mikið milli ára. Athugull greiðandi vakti athygli Skessuhorns á þessu. Gjald fyrir hverja aukalínu í símaskrá fór úr 491,25 krónum í 1.210 krónur og á ja.is, sem er um 246% hækkun. Viðkomandi greiðandi sem rekur fyrirtæki á Akranesi hafði 16 línur skráðar í símaskrá, greiddi í fyrra 7.856 krónur fyrir þetta en 19.360 krónur í ár. 27.6.2007 17:12
Kim Larsen með tónleika á Íslandi í haust Íslandsvinurinn Kim Larsen og hljómsveit hans Kjukken koma hingað til lands í haust og halda tónleika í Vodafone-höllinni, nýrri höll Valsmanna. Tónleikarnir fara fram þann 24. nóvember en þetta er í fjórða sinn sem Larsen sækir Ísland heim. 27.6.2007 16:32
Samvinnutryggingar styrkja Bifröst Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar veitti í dag Háskólanum á Bifröst 20 milljóna króna styrk og hvatti til þess að önnur fyritæki sýndu menntastofnunum stuðning með svipuðum hætti. 27.6.2007 15:52
Íslenski refurinn Á Íslandi lifir ein tegund refa villt. Það er tófan eða melrakkinn, sem fengið hefur latneska heitið Alopex lagopus. Tófan settist að á Íslandi í lok ísaldar, fyrir um það bil 10 þúsund árum, en hingað komst hún á hafís. Útbreiðslusvæði tegundarinnar er allt í kringum Norðurheimskautið, bæði á meginlöndum og eyjum, en útbreiðslan er takmörkuð við svæði norðan og ofan barrskóga- og birkibeltisins. 27.6.2007 15:08
Fær bætur vegna slyss við kúasmölun Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann til þess að greiða 19 ára stúlku nærri tvær milljónir króna í skaðabætur vegna slyss sem hún varð fyrir við kúasmölun hjá manninum. 27.6.2007 14:46
Framkvæmdastjóraskipti hjá Viðskiptaráði Dr. Finnur Oddsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands og tekur hann við starfinu af Höllu Tómasdóttur sem lætur af störfum í haust til að stofna eigið fyrirtæki. 27.6.2007 14:23
Ellefu ára piltur undir stýri Selfosslögregla stöðvaði í gær bifreið á sandinum vestan við Óseyrarbrú eftir að hún hafði veitt ökumanni bílsins athygli. Fram kemur á fréttavefnum Suðurland.is að ellefu ára gamall piltur hafi setið undir stýri en forráðamaður hans sat í aftursætinu og leiðbeindi honum við aksturinn. 27.6.2007 13:37
Asparglytta herjar á íslensk tré Meindýrið asparglytta sem herjar á tré hefur í fyrsta sinn fundist hér á landi að því er fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands. Asparglytta ber latneska heitið Phratora vitellinae og er bjalla en hún er vel þekkt meindýr á trjám af víðiætt í norðanverðri Evrópu. 27.6.2007 13:15
Athygli vakin á pyndingaraðferðum á Austurvelli Íslandsdeild Amnesty International efnir til uppákomu á Austurvelli Laugardaginn 30. júní til að vekja athygli á þeim pyndingaraðferðum sem eiga sér stað í "stríðinu gegn hryðjuverkum". Uppákoman stendur yfir frá 13-17 og eru það ungir Amnesty-félagar sem standa fyrir henni. 27.6.2007 12:36
Björn áfram formaður Þingvallanefndar Björn Bjarnason dómsmálaráðherra verður áfram formaður Þingvallanefndar en hann var kosinn til starfans á fyrsta fundi nýrrar Þingvallanefndar í gær. 27.6.2007 12:34
Ólöglegum innflytjanda bjargað um borð í Búðafell við Möltu Ólöglegum innflytjanda var bjargað um borð í togarann Búðafell úti fyrir ströndum Möltu í síðustu viku. Aðrir þrír björguðu sér með því að hanga á fleka sem skipið dró á eftir sér. Talið er að tuttugu félagar mannanna hafi drukknað þegar lítilli bátskænu þeirra hvolfdi. 27.6.2007 12:19
Kostnaður við nýja Grímseyjarferju yfir 400 milljónir Nýja Grímseyjarferjan er komin á flot. Samgönguráðherra vonast til að hún verði komin í áætlunarsiglingar eftir þrjá mánuði. Forstjóri Vélsmiðju Orms og Víglundar segir deilur um endurbætur nánast leystar. Heildarkostnaður er 130 milljónum meira en áætlað var og fer yfir 400 milljónir króna. 27.6.2007 12:12
Lithái kominn af gjörgæslu Lithái sem höfuðkúpubrotnaði í samkvæmi í Breiðholti aðfararnótt sunnudags var útskrifaður af gjörgæslu í gær. Hann liggur nú á heila og taugadeild. Annar maður sem hlaut stungusár í sama samkvæmi reyndist ekki alvarlega slasaður. 27.6.2007 12:05
Skerðing þorskkvóta kallar á skerðingu í veiðum á öllum bolfisktegundum Sjómenn og útvegsmenn segja að draga verði sjálfkrafa úr veiðum á öllum bolfisktegundum verði þorskvótinn lækkaður niður í 130 þúsund tonn nema að menn vilji gerast brotlegir við lög. 27.6.2007 12:00
Ellý kjörin forseti bæjarstjórnar í stað Gunnars Ellý Erlingsdóttir var einróma kjörin forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á fundi í gær. Hún tekur við af Gunnari Svavarssyni sem gengt hefur stöðunni til þriggja ára en hann sóttist ekki eftir endurkjöri þar sem hann hefur tekið sætið á Alþingi. 27.6.2007 11:58
Hjörtur fagnar úrskurði siðanefndar Hjörtur Magni Jóhannsson Fríkirkjuprestur telst ekki hafa brotið siðareglur Prestafélags Íslands með ummælum sínum um Þjóðkirkjuna. Hjörtur fagnar úrskurðinum og því að deiluaðilar eru hvattir af siðanefndinni til að takast á opinberlega. 27.6.2007 11:56
Ný sjónvarpsstöð kynnt í hádeginu Ný sjónvarpsstöð verður formlega kynnt í hádeginu í dag. Sjónvarpsstöðin, sem fengið hefur nafnið Sýn 2, mun nánast eingöngu sýna efni tengt enska boltanum. Fyrirferðarmest verða beinar útsendingar úr ensku Úrvalsdeildinni, en einnig verða sendar út beinar útsendingar frá leikjum úr 1. deildinni. 27.6.2007 11:49
Tyrkir vilja samvinnu í orkumálum Ólafur Ragnar Grímsson, er nú staddur í Istanbúl Tyrklandi á ráðstefnu OECD um framfarir þjóða. Þangað var honum boðið til að flytja erindi um loftlagsbreytingar og orkumál. Forsætisráðherra Tyrklands hefur óskað eftir fundi með forsetanum til þess að ræða samvinnu í orkumálum. 27.6.2007 11:45
Reyndi að ræna matvöruverslun vegna ótta við handrukkara Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um að hafa reynt að ræna peningum úr verslun 10/11 við Dalveg í Kópavogi á fimmtudaginn var. 27.6.2007 11:08
Meirihluti trúir á kraft Snæfellsjökuls Liðlega helmingur lesenda fréttavefjarins Skessuhorns á Vesturlandi telur að sérstakur kraftur búi í Snæfellsjökli samkvæmt óformlegri könnun gerð var á vefnum. 27.6.2007 10:32
Lansbjörg hvetur til aðgæslu í sundi Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna tíðra slysa í sundlaugum undanfarið. Félagið vill með því minna á öryggisatriði varðandi sundferðir. 27.6.2007 10:31
Ökumaður bifhjóls keyrði útaf við Hvalfjarðargöng Bifhjól fór útaf Vesturlandsvegi við Hvalfjarðargöngin um hálfátta leytið í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er óljóst um orsakir þess að hjólið fór útaf veginum en meiðsli ökumanns munu hafa verið minniháttar. 26.6.2007 22:24