Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nokkuð minni kjörsókn í Reykjavík norður en suður Kjörsókn í Reykjavíkurkjördæmi norður klukkan 21 var 64,94 prósent sem er tæplega níu prósentustigum minna en á sama tíma fyrir fjórum árum. Alls höfðu 28.425 kosningabærra manna í kjördæminu neytt atkvæðisréttar síns í kjördæminu klukkan 21. 12.5.2007 21:16
Óánægja með vinnubrögð yfirkjörstjórnar á Suðurlandi Fyrr í dag kærðu vinstri grænir, samfylkingar- og framsóknarmenn Sjálfstæðismenn á Suðurlandi fyrir að miðla upplýsingum um kjörsókn út úr kjördeildum. Sigurður Vilhelmsson, umboðsmaður Framsóknarflokksins í Vestmannaeyjum er afar ósáttur með vinnubrögðin í málinu og átelur yfirkjörstjórn fyrir að taka ekki efnislega á kærunni. 12.5.2007 20:48
Kjörsókn nokkuð dræmari á höfuðborgarsvæðinu Kjörsókn í þeim þremur kjördæmum sem ná yfir höfuðborgarsvæðið er nokkru minni en fyrir fjórum árum. Þannig höfðu 27.487 kosið í Reykjavíkurkjördæmi norður klukkan 20 sem er 62,79 prósenta kjörsókn en á sama tíma árið 2003 höfðu 70,71 prósent kjósenda nýtt atkvæðisrétt sinn. 12.5.2007 20:39
Mjög góð kjörsókn í Grímsey Kjörstöðum hefur nú verið lokað á nokkrum stöðum á landinu, sérstaklega á minni og afskekktari stöðum. Í Grímsey var kjörsókn um 71,6 prósent en miðað við fjölda utankjörfundaratkvæða var kosningaþátttaka þar nánast 100 prósent. 12.5.2007 20:31
Um 30 þúsund manns voru í bænum þegar mest var Lögreglan í Reykjavík áætlar að um 30 þúsund manns í það minnsta hafi verið samankomin í miðborginni í dag að fylgjast með því Þega Risessan svokallaða reyndi að tjónka við föður sinn sem farið hafði um borgina og látið öllum illum látum. 12.5.2007 20:21
Deilt um auglýsingar á kjörstað Mikið stapp hefur staðið yfir í Njarðvík í allan dag vegna auglýsinga Sjálfstæðisflokksins í félagsheimili flokksins. Auglýsingarnar voru sýnilegar frá kjörstað og slíkt er óheimilt samkvæmt lögum. Nú fyrir stundu voru auglýsingarnar fjarlægðar. 12.5.2007 19:56
Geysispennandi kosningasjónvarp framundan Undirbúningur kosningasjónvarpsins er nú á lokaspretti og starfsfólk stöðvar 2 um allt land er í startholunum fyrir útsendinguna sem hefst klukkan níu. Sigríður Guðlaugsdóttir heimsótti myndverið á Lynghálsi, en þaðan verður fylgst náið með framvindu mála fram á rauða nótt. 12.5.2007 19:06
Risessan farin til Frakklands Risessan sem arkað hefur um götur Reykjavíkurborgar undanfarna tvo sólarhringa er nú á heimleið. Áætlanir hennar um að reyna að lokka föður sinn með sér heim til Frakklands fóru öðruvísi en á horfðist í fyrstu. 12.5.2007 18:57
Hjúkrunarfræðingar vilja úr BHM Félag Íslenskra hjúkrunarfræðinga stefnir á úrsögn úr Bandalagi íslenskra háskólamanna. Á fulltrúaþingi félagsins á þriðjudaginn kom fram afdráttarlaus vilji fulltrúanna til þess. 12.5.2007 18:55
Um helmingur landsmanna hefur greitt atkvæði Um helmingur landsmanna hafði kosið í Alþingiskosningunum klukkan sex í dag. Kjörsókn er svipuð og í síðustu kosningum víðast hvar. Í Reykjavík er kjörsóknin þó ívið minni en 2003 en til þess þarf að taka að þá var kjörsóknin óvenjugóð. 12.5.2007 18:53
Kjörsókn meiri í Norðausturkjördæmi Kjörsókn hefur gengið vel víðsvegar um landið en er heldur minni en fyrir fjórum árum ef undan er skilið Norðausturkjördæmi. Þar er kjörsókn umtalsvert meiri á Egilsstöðum og á Akureyri en í síðustu kosningum. 12.5.2007 16:52
Risessan reynir að róa pabba sinn Risinn er fundinn og nú freistar risessan, dóttir hans, þess að sannfæra hann um að koma með sér úr landi. Risinn hefur verið mjög pirraður síðan hann var vakinn upp og hefur skemmt bíla með hnífapörunum sínum. 12.5.2007 15:20
Sjálfstæðismenn á Suðurlandi kærðir Samfylkingin í Suðurkjördæmi hefur kært til yfirkjörstjórnar störf fulltrúa Sjálfstæðismanna í kjördeild á Selfossi, í Þorlákshöfn og Vestmanneyjum. Athugasemd er gerð við það að Sjálfstæðismenn miðli upplýsingum um kjörsókn út úr kjördeildum. 12.5.2007 15:13
Kjörsókn ívið minni víðast hvar Kosningar til Alþingis hafa gengið vel fyrir sig það sem af er. Kjörsókn hefur víðast verið heldur dræmari en fyrir fjórum árum ef undan er skilið Norðvesturkjördæmi þar sem kjörsókn hefur verið töluvert meiri og á Akureyri hafa nokkuð fleiri greitt atkvæði en árið 2003. 12.5.2007 14:34
Risessan leitar að pabba sínum Leit risessunnar að föður heldur áfram í dag en faðir hennar, risinn, hefur gengið berserksgang um borgina. Risessan hóf daginn á því að fara í sturtu áður en hún hélt af stað á nýjan leik. 12.5.2007 13:08
Nýjustu tölur á Vísi Á kosningavef Vísis verður í kvöld hægt að fylgjast með stöðunni í Alþingiskosningunum eins og hún er hverju sinni. Staðan verður uppfærð um leið og nýjar tölur berast og reiknað út hvaða frambjóðendur eru inni á þingi eins og staðan er á þeim tíma. 12.5.2007 12:47
Kaldo, en ekki Kaldi Maður af eistneskum uppruna hefur ítrekað orðið fyrir símaónæði vegna þess hve nafn hans líkist bjórnum sem bruggaður er á Árskógssandi. Hann heitir Kaldo en bjórinn Kaldi. 12.5.2007 12:45
Kæra í Suðurkjördæmi Samfylkinginn í Suðurkjördæmi undirbýr nú kæru vegna starfa fulltrúa Sjálfstæðismanna í kjördeild á Selfossi og í Vestmannaeyjum. 12.5.2007 12:21
Hvað má og hvað má ekki gera við kjörseðil Það getur vafist fyrir sumum hvað megi gera við kjörseðilinn og hvað ekki. Auðvelt er að gera kjörseðil ógildan með því að fara ekki rétt með hann. Þannig má ekki strika út frambjóðendur af öðrum listum en þeim eina sem kjósandi merkir við. 12.5.2007 12:11
Kosningasjónvarp með stæl á Stöð 2 Stöð tvö mun fjalla skilmerkilega um kosningarnar í kvöld. Kosningasjónvarpið hefst formlega klukkan níu. Þar verður boðið upp á skýringar á framvindu mála, auk skemmtunar fram á rauða nótt. Þá verður kosningavefur Vísis með nýjustu tölur á hverjum tíma. 12.5.2007 11:59
Ingibjörg Sólrún kaus í Hagaskóla Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar hefur greitt sitt atkvæði í Alþingiskosningunum. Hún mætti í Hagaskóla á ellefta tímanum og kaus í 5. kjördeild. 12.5.2007 11:30
Geir Haarde kaus í Hagaskóla Geir Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins mætti á kjörstað í Hagaskóla fyrir stundu til þess að greiða atkvæði sitt í kosningunum. 12.5.2007 11:21
Útgerðarfyrirtæki vísar ásökunum á bug Vísir hf. í Grindavík vísar á bug ásökunum sem fram komu í frétt Stöðvar 2 í gærkvöldi. Í fréttinni var sagt frá því að fyrirtækið hafi landað þorski og gefið upp sem ufsa. Í yfirlýsingu sem borist hefur fyrirtækinu er þessu vísað alfarið á bug. 12.5.2007 11:09
Ómar kaus í Laugardalshöll Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, mætti á kjörstað nú fyrir stundu til að greiða sitt atkvæði í Alþingiskosningunum. Ómar kaus í Laugardalshöllinni. 12.5.2007 10:31
Gæslan keypti búnað til að slökkva gróðurelda Landhelgisgæslan hefur fengið búnað til að nota í þyrlum Landhelgisgæslunnar sem er sérstaklega hannaður til að slökkva gróðurelda. Um er að ræða sérhannaða fötu sem notuð er í þessum tilgangi. Hún rúmar alls 2000 lítra af vatni. 11.5.2007 22:30
Ríkisstjórnin missir þingmeirihluta samkvæmt könnun Gallup Ríkisstjórnin missir þingmeirihluta sinn samkvæmt niðurstöðum síðustu raðkönnunar Gallup fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið, sem gerð var dagana 9. til 10. maí. Þetta kom fram í fréttum Ríkssjónvarpsins í kvöld. 11.5.2007 22:00
Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhald yfir meintum nauðgara Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að framlengja gæsluvarðhald yfir 18 ára karlmanni sem er grunaður um að hafa nauðgað stúlku á salerni á hóteli í Reykjavík. Gæsluvarðhaldið mun þó ekki standa lengur en til 20. júní. Maðurinn hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því í mars. 11.5.2007 21:30
Gæsluvarðhald framlengt í hnífsstungumáli Hæstiréttur hefur framlengt gæsluvarðhald yfir karlmanni á fimmtugsaldri sem hefur játað að hafa stungið annan mann í brjóstkassa og kvið með hnífi. Gæsluvarðhaldið var framlengt til 6. júní en beðið er niðurstöðu úr lyfja- og áfengisprófum. 11.5.2007 21:00
Veður hefur ekki áhrif á kjörfylgi Sjálfstæðisflokks Veður á kjördag hefur áhrif á úrslit kosninganna hjá Framsóknarflokknum og Vinstriflokkunum en ekki Sjálfstæðisflokknum. Þetta sýna niðurstaður rannsóknar sem Sigurðar Þ. Ragnarsson veðurfræðingur hefur gert. Öfugt við það sem margir halda hefur veðrið ekki áhrif á heildarkjörsókn. 11.5.2007 20:15
Risessa á ferð um miðborgina Átta metra há og tignarleg risessa hægði á umferð í miðborginni í dag. Tafirnar verða ekki minni á morgun þegar berserkurinn faðir hennar slæst í för. 11.5.2007 20:11
MND sjúklingur fer heim eftir margra mánaða bið Útlit er fyrir að 63 ára MND sjúklingur sem dvalið hefur á taugadeild Landspítalans hátt í 10 mánuði fái nú loks að dvelja heima hjá fjölskyldu sinni alla daga vikunnar. Kópavogsbær hefur útvegað honum fulla heimahjúkrun, en fjölskylda hans hefur sóst eftir að fá slíka þjónustu í fleiri mánuði. 11.5.2007 19:07
Jónas áfram formaður Ekki er útilokað að Jónas Garðarsson setjist aftur í formannsstól Sjómannafélags Reykjavíkur þegar hann hefur afplánað sína refsingu. Jónas var í gær dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. 11.5.2007 18:45
Talsmenn flokkanna allir bjartsýnir Talsmenn stjórnmálaflokkanna eru allir bjartsýnir á úrslit kosninganna á morgun. Síðustu klukkustundirnar er lögð áhersla á að ganga maður á mann, gefa blöðrur, forstpinna og annan varning merktum flokkunum. 11.5.2007 18:43
Vonast til að klára atkvæðatalningu á minna en tólf klukkustundum Reiknað er með því að búið verði að telja öll atkvæði í kosningunum á morgun fyrir klukkan fjögur aðfaranótt sunnudags. Formaður kjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis norður segist þó vona að hægt verði að ljúka talningu mun fyrr. 11.5.2007 16:25
Vinnuslys við brúnarústirnar í miðbæ Reykjavíkur Karlmaður slasaðist í dag þegar hann féll af vinnupalli við rústir húsanna sem brunnu í eldsvoðanum í miðbæ Reykjavíkur. Maðurinn féll niður þrjá metra. 11.5.2007 16:01
Varað við mikilli umferð í miðborginni á morgun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við mikilli umferð á morgun, sérstaklega í miðbæ Reykjavíkur þar sem saman fara kosningar og viðburðir á Listahátíð. 11.5.2007 15:57
Vegagerðinni gert skylt að mæla mengun við Gjábakkaveg Umhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar frá því í maí 2006 varðandi mat á umhverfisáhrifum Gjábakkavegar. Telur ráðherra að vegurinn muni ekki hafa umtalsverð umhverfisáhrif. Vegagerðinni er þó gert skylt að gera mælingar á ákomu loftaðborinnar köfnunarefnismengunar áður en framkvæmdir hefjast. 11.5.2007 15:22
Rætt um framtíð ratsjárkerfis í dag Íslensk yfirvöld héldu í dag áfram viðræðum við Bandaríkjamenn um framtíð ratsjár- og loftvarnarkerfisins á landinu. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu fóru viðræðurnar fram í Reykjavík og var áfram var rætt um fyrirkomulag og fjármögnun á kerfinu og miðaði viðræðum vel áfram. 11.5.2007 15:13
Dæmd fyrir að draga sér fé Kona var í Héraðsdómi Austurlands í gær dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjársvik upp á nærri 300 þúsund krónur. 11.5.2007 14:51
Metþátttaka í utankjörstaða- atkvæðagreiðslu Mjög góð kjörsókn hefur verið í utankjörstaðaatkvæðagreiðslum í Reykjavík og á Akureyri. Nú þegar hafa mun fleiri kosið en á sama tíma í síðustu bæjar- og sveitarstjórnarkosningum. 11.5.2007 14:43
Tveggja mánaða fangelsi fyrir að framvísa ógildu ökuskírteini Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða fangelsi fyrir að hafa framvísað ógildu ökuskírteini þegar lögregla hafði afskipti af honum. 11.5.2007 14:40
Hafravatnsvegur lokaður við Vesturlandsveg Aðkoman að Hafravatnsvegi verður lokuð við Hringtorgi á Vesturlandsvegi frá og með mánudeginum og til 12. júní. Þetta er vegna framkvæmda við gatnagerð og veitulagnir eftir því sem segir á vef framkvæmdasviðs borgarinnar. 11.5.2007 13:45
Erlendir verkamenn fái upplýsingar um réttindi sín Tryggja verður að erlendir verkamenn á Íslandi fái nægar upplýsingar um réttindi sín og skyldur við komuna til landsins. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu starfshóps á vegum félagsmálaráðherra sem fjallaði um málefni útlendinga á íslenskum vinnumarkaði. Í skýrslunni eru lagðar fram fjölmargar tillögur hvernig bæta megi starfskjör útlendinga hér á landi og yfirsýn stjórnvalda yfir málaflokknum. 11.5.2007 13:34
Dæmdur fyrir að vera með dóp í fangaklefa Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag fanga á Litla-Hrauni í eins mánaðar fangelsi fyrir að hafa haft í tvígang fíkniefni í klefa sínum. Fangaverðir fundu efnin við leit í klefanum. 11.5.2007 13:15
Hljóðfæri úr drasli vesturlandabúa á Listahátíð Hljómsveitin Konono N°1 heldur tónleika í porti Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu í kvöld. Hljómsveitin er frá Kinshasa í Kongo og hlaut verðlaun sem besti nýliðinn í heimstónlist hjá breska ríkisútvarpinu BBC í fyrra. Þeir spila einnig á nýjustu plötu Bjarkar Guðmundsdóttur, Volta. 11.5.2007 13:07