Fleiri fréttir

Fjármagnstekjufólk greiði til samfélagsins

Skattkerfið þarf að ná til fólks sem hefur fjármagnstekjur en greiðir ekki venjulega skatta, segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Á þriðja þúsund landsmanna hefur eingöngu fjármagnstekjur og borgar ekkert til sveitarfélaganna.

Húsnæðislán bankanna hækkað fasteignaverð

Vextir á íbúðalánum eru hærri nú en þeir voru fyrir innreið bankanna á húsnæðislánamarkaðinn. Innkoma bankanna var mislukkuð segir sjálfstæður fjármálaráðgjafi.

Vistheimili ríkisins verða rannsökuð vegna Breiðuvíkur

Félagsmálaráðherra ætlar að láta rannsaka málefni vistheimilisins í Breiðuvík og fleiri stofnana og hagi þeirra sem þar voru vistaðir. Til greina kemur að greiða vistmönnum bætur vegna hrottalegrar meðferðar á heimilinu.

Varnarliðið skuldar íslenskum fyrirtækjum

Íslensk fyrirtæki kvarta undan því að hafa ekki fengið greitt fyrir vörur hjá Varnarliðinu, um eða yfir hálfu ári eftir að herinn fékk vörurnar. Reikningarnir eru ýmist sendir til höfuðstöðva hersins á Ítalíu eða í Bretlandi.

Þriggja mánaða fangelsi fyrir fólskulega árás

Tveir karlmenn um tvítugt þurfa aðeins að sitja í þrjá mánuði í fangelsi fyrir fólskulega árás gegn jafnaldra sínum. Þeir rændu honum við þriðja mann og óku með hann upp í Heiðmörk þar sem þeir gengu í skrokk á honum. Maðurinn hlaut lífshættulega áverka.

Stjórnvöld án markmiða í loftlagsmálum

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir íslensk stjórnvöld ekki hafa sett sér markmið um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda eins og flestar þjóðir Evrópu hafi gert. Forsætisráðherra segir að Íslendingar muni ekki skerast úr leik þegar reynt verði að ná samstöðu þjóða um þetta mál.

Nýr milljarða fjárfestingasjóður

Nýr fjárfestingasjóður sem er í meirihlutaeigu lífeyrissjóða hefur lokið fjármögnun sinni og hefur nú 5,5 milljarða til að fjárfesta í sprotafyrirtækjum. Ísland er annað vænlegasta landið fyrir fjárfesta í Evrópu samkvæmt nýrri könnun

Samfylkingin vill fresta stóriðjuframkvæmdum

Samfylkingin vill fresta stóriðjufamkvæmdum í Straumsvík og Helguvík. Þetta kom fram í ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í umræðu sem fram fór á Alþingi í dag. Umræðan var vegna frumvarps um rammaáætlun um náttúruvernd.

Tengibrautin í samræmi við lög

Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að heimild til að veita framkvæmdaleyfi fyrir tengibraut um Álafosskvísl hafi verið skýr og í fullu samræmi við lög og reglur. Gengið hafi verið úr skugga um það á fundi bæjarins með fulltrúum Umhverfisstofnunar 5. febrúar. Ekki hafi þurft að leita umsagnar Umhverfisstofnunar í þriðja sinn.

Ódýrara að aka um Hvalfjarðargöngin

Veggjöld um Hvalfjarðagöngin lækka frá og með 1. mars næstkomandi. Þannig lækkar stök ferð fólksbíla úr eitt þúsund krónum í níu hundruð krónur. Gjaldið fyrir staka ferð hefur verið þúsund krónur frá því göngin voru opnuð 1998. Bæði er um lækkun virðisaukaskatts að ræða og lækkun fyrirtækisins.

Dæmdir fyrir að ræna manni og misþyrma honum

Héraðsdómur Reykjaness dæmi í dag þrjá unga karlmenn fyrir að ræna í maí á síðasta ári tvítugum karlmanni og misþyrma honum. Þeir námu manninn á brott af heimili hans í Garðabæ, óku með hann upp í Heiðmörk og gengu í skrokk á honum þar.

Lýst eftir 16 ára stúlku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 16 ára stúlku Guðrúnu Maríu Pálsdóttur. Ekkert hefur til hennar spurst síðan þriðjudaginn 30. janúar. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Guðrúnar Maríu eru beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1100.

Frumvarp um losun gróðurhúsalofttegunda

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun frumvarp umhverfisráðherra um losun gróðurhúsalofttegunda. Frumvarpinu er ætlað að gefa stjórnvöldum tæki til að stjórna losun koldíoxíðs frá stóriðju.

Segja „draumalandsverð“ afvegaleiðingu

Íslenskir kjúklingaframleiðendur bregðast við fréttum um fuglaflensu í Bretlandi og salmonellusmit í Svíþjóð. Þeir vilja benda á að allt innra eftirlit hér á landi er mjög virkt og litlar líkur á að hér komi upp skæðir faraldrar eins verið hafa í fréttum.

Kjósa um framboð

Félagsmenn í Framtíðarlandinu munu kjósa um það á morgun hvort þeir bjóði sig fram til Alþingis eða ekki. Til þess að af framboðinu verði þurfa 66,6% félagsmanna að samþykkja tillögu þess efnis.

Álaborg seld með kvóta frá Þorlákshöfn

Bergur Huginn í Vestmannaeyjum hefur keypt tog- og netabátinn Álaborg ÁR 25 af Eyrum ehf. í Þorlákshöfn. Báturinn er seldur með öllum kvóta, sem er 364 þorskígildistonn. Álaborg er 138 brúttórúmlestir, smíðuð á Ísafirði árið 1974.

Vill láta rannsaka drengjaheimilið í Breiðuvík

Félagsmálaráðherra telur mikilvægt að starfsemi á drengjaheimilinu í Breiðuvík á Vestfjörðum verði rannsökuð. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, vakti máls á fréttaflutningi Kastljósins af slæmri meðferð drengjanna sem þar dvöldu við upphaf þingfundar í dag.

Samfylkingin hvergi bangin

Varaformaður Samfylkingarinnar segir að nægur tími sé til að hífa upp fylgi flokksins fyrir kosningar og að formaður flokksins sé trompið í þeirri viðleitni. Helstu niðurstöður skoðanakannannar Blaðsins um fylgi stjórnmálaflokkana sem birt var í dag sýnir mikið fylgistap hjá Samfylkingunni frá síðustu kosningum og mælist hún nú með liðlega 19 prósenta fylgi en var með 31 prósent í kosningum 2003.

Málið á Laugum fullrannsakað

Sigurður Brynjúlfsson, yfirlögregluþjónn á Húsavík, segir að það muni ráðast á næstu dögum hvort mál nokkurra drengja sem námu á brott stúlkur undir lögaldri úr heimavistarskólanum á Laugum verði sent til ríkissaksóknara. Málið þykir fullrannsakað og hefur lögfræðingur embættisins það nú undir höndum.

Bæjarstjóri á „flæmingi“ undan lögunum

Varmársamtökin segja að bæjarstjóri Mosfellsbæjar hafi farið með rangt mál í fréttum í gærkvöldi varðandi mat á umhverfisáhrifum af tengibraut um Álafosskvos. Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri sagði að vegna úrskurðar umhverfisráðherra um náttúruminjaskrá, hafi bænum ekki borið skylda til að óska eftir umsögn Umhverfisstofnunar um umhverfisáhrif. Þetta segja Varmársamtökin rangt.

Forsætisráðherra segir Byrgismálið hneyksli

Forsætisráðherra segir að Byrgismálið sé bæði fjárhagslegt og mannlegt hneykslismál, en telur að félagsmálaráðherra þurfi ekki að segja af sér embætti vegna þess. Málið sé allt til rannsóknar hjá réttum aðilum.

Tekist á um Baugsmálið

Skattrannsóknastjóri segir að ríkislögreglustóri hafi ekki lagaheimildir til að krefja embætti sitt um upplýsingar um skattamál einstaklinga, sem tengjast Baugsmálinu. Saksóknari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra segir hins vegar að sér beri að sjá til þess að sekir menn sæti refsimeðferð.

Fasteignaverð lækkar í höfuðborginni

Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur nálgast þolmörk og lækkaði á síðasta ári. Sveitarfélögin auka óvissu á fasteignamarkaði með því að upplýsa ekki um lóðaframboð. Forstöðumaður Rannsóknaseturs um húsnæðismál segir þó enga holskeflu lækkana framundan.

Uppbygging Vatnsmýrarinnar rædd í dag

Tillaga Samfylkingarinnar um uppbyggingu þekkingarklasa í Vatnsmýrinni verður til umræðu í borgarstjórn í dag. Byggir hún stefnumótun og þróun síðustu ára, m.a. samningum við Háskóla Íslands, Háskólan í Reykjavík og Landsspítala-háskólasjúkrahús.

Dæmdur fyrir gagnastuld frá Decode

Fyrrverandi starfsmaður Íslenskrar erfðagreiningar var í dag dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að stela gögnum frá Íslenskri erfðagreiningu. Dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Verjandi mannsins segir niðurstöðuna byggða á misskilningi.

Sænskt fjölskyldufólk háð hinu opinbera

Í nýrri bók sænska hagfræðingsins Dr. Fredrik Bergström er tekið fyrir hvernig háskattapólitík í Svíþjóð hefur gert venjulegt sænskt fjölskyldufólk háð hinu opinbera um efnahagslegt og félagslegt öryggi. Höfundurinn heldur fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík um efni bókarinnar og annarar bókar þar sem borin eru saman lífskjör í Svíþjóð og Bandaríkjunum.

Lunga Björns Bjarnasonar féll saman

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, þurfti að leita sér læknisaðstoðar í gær en við skoðun kom í ljós að hægra lunga hans hafði fallið saman.

„Meint misnotkun“ á Framkvæmdasjóði aldraðra

Aðstandendafélag aldraðra – AFA – segir að heilbrigðisráðuneytið og ráðherrar þess hafi ráðskast með fé Framkvæmdasjóðs aldraðra til óskyldra hluta. Þannig hafi þeir beinlínis stuðlað að því ástandi sem nú ríkir í hjúkrunar- og dvalarmálum aldraðra. Fram hefur komið að gerð og dreyfing kynningarbæklings heilbrigðisráðherra um áherslur í öldrunarmálum var kostuð af sjóðnum.

Annar laus úr gæsluvarðhaldi

Lögreglan á Selfossi lét í gærkvöldi lausan annan tveggja manna sem sat í gæsluvarðhaldi vegna gruns um innflutning á fíkniefnum frá Suður-Ameríku. Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir þeim báðum

Kristinn efast um að tekjuskattur skili sér

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir í dag á vefsíðu sinni að hann efist um að reiknaðar skattgreiðslur fjármálafyrirtækja hér á landi skili sér til ríkissjóðs.

Fjögur nauðgunarmál frá áramótum

Óvenju mörg kynferðisafbrotamál hafa komið upp á Norðurlandi síðustu vikur, að sögn Daníels Guðjónssonar yfirlögregluþjóns á Akureyri. Nú um helgina kom upp mál á skemmtistað á Akureyri þar sem grunur leikur á að konu um tvítugt hafi verið nauðgað á salerni.

Sterkt samband á mili steranotkunar og ofbeldisverka

Rannsóknir á Norðurlöndum hafa sýnt að sterkt samband er á milli ofbeldisverka og steranotkunar og hefur það meðal annars komið fram í mjög alvarlegum tilvikum heimilisofbeldis. Engar rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi um tengsl ofbeldis og steranotkunar og í ofbeldismálum kannar lögregla ekki sérstaklega hvort um steraneyslu sé um að ræða

Segja stjórnarliða í leikritagerð

Stjórnarandstaðan sagði Sigurð Kára Kristjánsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, og forsætisráðherra hafa sett á svið leikrit í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag, þar sem þingmaðurinn vakti athygli á nýrri skýrslu um tekjuskiptingu á Íslandi. Sigurður Kári sagði stjórnarandstöðuna ekki þola upplýsingar um góða stöðu mála í landinu.

Bílaflotinn allur á vetni innan 30 ára

Vetnisverkefnið með Strætó sýnir að hægt hefði verið að minnka losun á koltvísýringi í andrúmsloftið um 20 þúsund tonn á síðustu tveimur árum ef allir strætisvagnar hefðu gengið fyrir vetni. Í morgun voru kynntar tillögur um breytingar á gjaldtöku á bifreiðar sem tekur mið af losun þeirra á koltvísýringi og líst iðnaðarráðherra vel á tillögurnar.

Skrá yfir dæmda kynferðisbrotamenn á Íslandi

Svo gæti farið að skrá yfir kynferðisbrotamenn yrði að veruleika á Íslandi, samkvæmt samningi Evrópuráðsins um meðferð slíkra brotamanna. Slík skrá hefur ekki verið haldin á Íslandi fyrr.

Leynisamkomulag brot á lögum og jafnvel stjórnarskrá

Talsmenn vinstri grænna og Samfylkingarinnar segja að lög og jafnvel stjórnarskrá hafi verið brotin þegar viðaukum við varnarsamninginn var haldið leyndum fyrir Alþingi. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra eru sammála um að innihald viðaukanna kalli ekki á leynd, en tíðarandinn hafi verið allt annar fyrir hálfri öld en nú.

Kuldaköst að vori heyri sögunni til

Kuldaköst á vorin heyra sögunni til á Íslandi en um leið verður norðanáttin algengari, gangi spár um hlýnun loftslags eftir. Þetta er mat Haraldar Ólafssonar, veðurfræðings, sem segir sumarið lengjast í báða enda en áfram verði kalt yfir hávetur.

56,5 milljónum úthlutað

Baugur Group úthlutaði í dag 43 aðilum 56,5 milljónum úr Styrktarsjóði Baugs Group. Þetta var í þriðja sinn sem úthlutað var úr sjóðnum. Styrktarsjóði Baugs Group hf. er ætlað að styðja margvísleg líknar og velferðarmál auk menningar listalífs. Styrkirnir voru veittir í Iðusölum við Lækjargötu.

Íslensku forvarnarverðlaunin í annað sinn

Íslensku forvarnaverðlaunin verða veitt í annað sinn í apríl og standa tilnefningar nú yfir. Markmiðið er að verðlauna þá sem þykja skara fram úr í forvarnastarfi og hvetja þá og aðra til góðra verka. Viðurkenningarnar eru veittar í þrem flokkum: Í fyrsta lagi til fyrirtækis sem skarað hefur framúr í forvörnum, í öðru lagi til einstaklings sem sýnt hefur forystu og frumkvæði í forvörnum og loks til félagasamtaka eða stofnana sem eru í fararbroddi í forvörnum.

Umferðarteppa í Ártúnsbrekku

Miklar umferðartafir eru nú í Ártúnsbrekku vegna aftanákeyrslu sem þar varð. Lögreglan segir að ekki sé vitað hvað olli árekstrinum. Engin slys urðu á fólki í árekstrinum og bílarnir skemmdust lítið.

15 ára falsaði debetkort

15 ára stúlka sótti um debetkort fyrir eldri konu og skilaði mynd af sér með. Hún vitjaði kortsins og tók út fimmhundruð krónur í hraðbanka. Upp komst um kortafalsið og hefur stúlkan fengið eins árs skilorðsbundin dóm.

Sjá næstu 50 fréttir