Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tekist á um ábyrgð í Byrgismálinu Forsætisráðherra telur ekki að Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra eigi að segja af sér vegna Byrgismálsins. Valdimar Leó Friðriksson, þingmaður Frjálslynda flokksins, spurði á Alþingi í dag hver bæri ábyrgð í málinu og velti því upp hvort að forsætisráðherra eða félagsmálaráðherra hefðu átt að segja af sér vegna málsins. 5.2.2007 15:26
Loftlagsmál rædd á Alþingi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, spurði forsætisráðherra út í stefnu íslenskra stjórnvalda í loftlagsmálum í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Hún vildi vita hvernig forsætisráðherra ætli að beita sér í þessum málum. 5.2.2007 15:14
Vilja byggja upp alþjóðlegt orkufyrirtæki Geysir Green Energy í eigu FL Group, Glitnis og VGK Hönnunar, og Reykjanesbær hafa í dag undirritað viljayfirlýsingu um samstarf í þeim tilgangi að byggja upp leiðandi alþjóðlegt orkufyrirtæki. 5.2.2007 15:10
Handtóku þjófa á Miklubrautinni Fjórir þjófar voru handteknir á Miklubrautinni um hádegisbil í dag eftir eftirför lögreglu. Þjófarnir fóru inn í hús í Mosfellsbæ og höfðu sankað að sér nokkuð af munum þar þegar komið var að þeim við iðju sína. Þeir flúði inn í bíl en sá sem að þeim kom sýndi snör handtök og hringdi á lögreglu. 5.2.2007 14:53
Vill skjóta afgreiðslu samningsins Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, átti fundi með tveimur af framkvæmdarstjórum Evrópusambandsins og ræddi meðal annars samning um gagnkvæman markaðsaðgang fyrir landbúnaðarvörur. 5.2.2007 14:34
Frönsk útvarpsstöð á Íslandi Franska útvarpsrásin Radio France Internationale hóf útsendingar á Íslandi um helgina. Stöðinni er útvarpað allan sólarhringinn, alla daga vikunnar á tíðninni FM 89,0. 5.2.2007 14:18
Gámahöfnin í Reyðarfirði næst stærst Gámahöfnin í Reyðarfirði verður önnur stærsta höfn landsins með nýjum samning sem Alcoa Fjarðarál og Eimskip á Reyðarfirði undirrituðu í hádeginu. Um er að ræða einn stærsta skipaafgreiðslusamning sem gerður hefur verið hér á landi. 5.2.2007 13:13
Varað við Nígeríubréfum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál þar sem Íslendingur lét glepjast af svokölluðu Nígeríubréfi. Slík bréf innihalda gylliboð sem ekki er innistæða fyrir og eru þau til þess eins að svíkja peninga af fólki. Lögreglan varar fólk fyrir að þiggja slík boð. 5.2.2007 13:00
Sterkt samband milli ofbeldisverka og steranotkunar Rannsóknir á Norðurlöndum sýna að að sterkt samband sé á milli ofbeldisverka og steranotkunar. Eru dæmi um mjög gróft ofbeldi og kemur það helst fram í mjög alvarlegu heimilisofbeldi. 5.2.2007 12:30
Nýr forstjóri Umhverfisstofnunar Umhverfisráðherra hefur ráðið Ellý Katrínu Guðmundsdóttur nýjan forstjóra Umhverfisstofnunar. Ellý Katrín lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1990 og meistaraprófi í umhverfis- og alþjóðarétti frá University of Wisconsin Law School árið 1997. 5.2.2007 12:21
SS og Reykjagarður kaupa kjötmjölsverksmiðjuna í Flóa Sláturfélag Suðurlands og Reykjagarður hafa keypt kjötmjölsverksmiðjuna vi'ð Hraungerði í Flóa og hefst rekstur hennar á ný í þessari viku eftir stutt hlé. 5.2.2007 12:10
Nýr framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga Jón Helgi Björnsson hefur verið skipaður framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Jón var skipaður af Siv Friðleifsdóttur heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra til fimm ára, frá 1. mars 2007. Níu einstaklingar sóttu um starfið og fól ráðherra þriggja manna hæfnisnefnd að meta umsóknirnar. Sex umsækjendur þóttu uppfylla hæfnisskilyrði um menntun sem sett voru fram í auglýsingu um starfið. 5.2.2007 12:02
Ráðstafanir hérlendis vega fuglaflensu Rannsókn á orsökum þess að kalkúnar á bresku alifuglabúi smituðust af fuglaflensu stendur yfir en talið er líklegast að veiran hafi borist með farfuglum. Viðbragðshópur landlæknis ræður ráðum sínum um aðgerðir síðdegis. 5.2.2007 11:52
Áform um Kjöl hafa ekki áhrif á stækkun Hvalfjarðarganga Malbikaður hálendisvegur yfir Kjöl breytir nær engu um þörf á stækkun Hvalfjarðarganga, segir framkvæmdastjóri Spalar. Hann bendir á að umferð um Kjalveg verði aðeins um tíundi hluti umferðar um Hvalfjarðargöngin. 5.2.2007 11:51
Húsnæðisverð lækkar Hækkunarprósentan á íbúðahúsnæði á höfuðborgarsvæðinu er komin niður í fimm prósent, þegar litið er eitt ár aftur í tímann. Lækkun síðastliðna mánuði er að éta upp hækkunina, sem varð fyrrihluta tímabilsins. 5.2.2007 11:50
Náttúruvaktin skorar á umhverfisráðherra Náttúruvaktin hefur ritað Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra bréf þar sem athygli er vakin á skeytingarleysi stjórnvalda varðandi svæði á Náttúrminjaskrá. Í bréfinu segir að baráttuhópurinn, sem berst fyrir verndun Íslenskrar náttúru, taki nú þátt í að reyna að verja þrjú svæði á náttúruminjaskrá fyrir óhóflegri framkvæmdagleði. 5.2.2007 11:23
225 milljónum varið í vetnisverkefni Verja á 225 milljónum króna á þremur árum til vetnisverkefna á Íslandi. Iðnaðarráðuneytið og Vistorka hafa gert samning þessa efnis en hann tryggir samfellu í vetnisverkefnum á Íslandi. Tuttugu og fimm milljónir af fjárlögum þessa árs verða til ráðstöfunar. 5.2.2007 11:04
Hátt í þrjú hundruð ökumenn óku of hratt Hátt í þrjú hundruð ökumenn óku of hratt yfir gatnamót Bústaðarvegar og Flugvallarvegar fyrir síðustu helgi. Mynduð voru brot 289 ökumanna en meðalhraði þeirra var tæpir 77 km/klst en hámarkshraði á þessum stað er 60 km/klst. 5.2.2007 10:53
Nemendur Suðvesturkjördæmis bestir í stærðfræði Niðurstöður úr samræmdum prófum nemenda í 4. og 7. bekk liggja nú fyrir í vefriti Menntamálaráðuneytisins. Þar kemur fram að nemendur í Suðvesturkjördæmi eru sterkastir yfir landið í stærðfræði, bæði í 4. og 7. bekk. Í Íslensku eru nemendur 4. bekkjar í Reykjavík og Norðausturkjördæmi bestir, en í 7. bekk eru bestu Íslenskunemendurnir í Norðausturkjördæmi. 5.2.2007 10:30
Vel heppnað Fjölskylduþing í Reykjanesbæ Fjölskyldu-og félagsþjónusta Reykjanesbæjar stóð fyrir fjölskylduþingi um síðustu helgi og var markmið þess að endurskoða fjölskyldustefnu bæjarins. Í fréttatilkynningu segir að þingið hafi verið afar vel heppnað en þar voru fjölskyldutengd verkefni úr framtíðaarsýn bæjarins til ársins 2010 kynnt. Hera Ósk Einarsdóttir verkefnastjóri kynnti forvarnarverkefni Reykjanesbæjar, en Hjördís Árnadóttir félagsmálastjóri kynnti fjölskyldustefnuna. 5.2.2007 10:20
Engin slys á fólki í árekstri þriggja jeppa Engin alvarleg slys urðu á fólki þegar þrír jeppar rákust saman á Vesturlandsvegi skammt norðan við Hvalfjarðargöng um fimmleytið í dag. Flughált var á veginum og lentu bílarnir allir utan vegar. Tveir þeirra reyndust óökuhæfir eftir áreksturinn. 4.2.2007 21:12
Stjórnvöld kærulaus um stera Jóhanna Eiríksdóttir, nýkjörinn formaður Kraftlyftingasambandsins harmar að stóra steramálið hafi tengst sambandinu og segir það á móti steranotkun. Birgir Guðjónsson læknir og meðlimur í lyfjanefnd alþjóða frjálsíþróttasambandsins segir að stjórnvöld hafi sýnt algjört kæruleysi í þessum málaflokki. 4.2.2007 19:21
Losið ykkur við krónuna og bankastjórana Bandaríski auðkýfingurinn Steve Forbes hvetur Íslendinga til að skipta um gjaldmiðil hið fyrsta og leysa bankastjóra Seðlabankans frá störfum. 4.2.2007 19:03
Segja stóriðjustefnuna í forgangi Formaður vinstri grænna átelur ríkisstjórnina fyrir ábyrgðarleysi í umhverfismálum og segir stóriðjustefnuna forgangsatriði í málflutningi hennar. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir enga raunverulega stefnu í loftslagsmálum til hérlendis 4.2.2007 19:00
Enginn Íslendingur í liði heimsmeistaramótsins Enginn Íslendingur er í liði heimsmeistaramótsins í handknattleik sem tilkynnt var rétt í þessu en tveir Pólverjar, tveir Þjóðverjar og Rússi, Frakki og Dani. Lið mótsins er þannig skipað: 4.2.2007 18:22
Vill að þingið rannsaki okurlánastarfsemi Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vill að skipuð verði þingnefnd til að rannsaka okur á Íslandi. Hún segir slíka rannsókn nauðsynlega í ljósi ofsagróða bankanna, okurvaxta á útlánum og hárra þjónustugjalda. Jóhanna lét þessi orð falla í þættinum Silfri Egils í umræðu um góða afkomu bankanna. 4.2.2007 18:20
Ráherrar farið frjálslega með framkvæmdasjóðinn Stjórn Landssambands eldri borgara ætlar á morgun að ræða, á fundi sínum, fréttir um að Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra hafi notað fé úr Framkvæmdasjóði aldraðra til að prenta og dreifa bæklingi um framtíðarsýn sína í öldrunarmálum. 4.2.2007 18:12
Tók skýrslu af stúlkum sem numdar voru á brott Lögreglan á Húsavík tók í dag skýrslur af stúlkunum þremur í Laugaskóla, sem teknar voru nauðugar úr rúmum sínum aðfararnótt föstudags á heimavist skólans. Farið var með stúlkurnar í hús í nágrenninu og, samkvæmt því sem fram kemur á bloggsíðum nemenda, var einni þeirra stungið ofan í klósett. 4.2.2007 17:58
Guðjón Valur markahæstur á HM Guðjón Valur Sigurðsson varð markakóngur heimsmeistaramótsins í handknattleik í Þýskalandi með 66 mörk. Þetta var ljóst eftir að keppninni lauk í dag. Fimm Íslendingar eru í hópi tólf markahæstu manna á heimsmeistaramótinu. 4.2.2007 17:52
Þriggja bíla árekstur í hálku norðan Hvalfjarðarganga Þriggja bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi skammt norðan við Hvalfjarðargöng nú fyrir stundu. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hvort einhver sé alvarlega slasaður en lögregla í Borgarnesi segir flughált frá Hvalfjarðargöngum og upp í Borgarnes. 4.2.2007 16:06
Flutt á sjúkrahús eftir bílveltu nærri Grundartanga Betur fór en á horfðist þegar bíll fór út af Vesturlandsvegi um einn kílómetra norðan við afleggjarann að Grundartanga um tvöleytið í dag. Tvennt var í bílnum og þurfti að beita klippum til að ná fólkinu út úr honum. 4.2.2007 14:52
Vilja leggja nýjan Kjalveg með einkaframkvæmd Félagið Norðurvegur vill hefja lagningu nýs vegar yfir Kjöl í einkaframkvæmd og áætlar að kostnaður við framkvæmdina verði um 4,2 milljarðar króna. 4.2.2007 14:10
Karíus og Baktus mæta í Borgarleikhúsið Sýningar á hinu sívinsæla verki um Karíus og Baktus, sem Leikfélag Akureyrar hefur sett upp, hefjast í Borgarleikhúsinu í dag. Samkvæmt tilkynningu frá Leikfélagi Akureyrar er gríðarlegur áhugi fyrir sýningunni og er þegar uppselt á allar sýningar í febrúar og mars. 4.2.2007 13:15
Fjölgaði um 80 prósent í strætó þegar gjaldtöku var hætt Farþegum með almenningsvögnum í Reykjanesbæ fjölgaði um áttatíu prósent þegar gjaldtöku var hætt í vögnunum. Árni Sigfússon bæjarstjóri telur að reynslan af ókeypis strætó sé afar jákvæð. 4.2.2007 12:45
Of lítill stuðningur í baráttunni við stera Birgir Guðjónsson, læknir og meðlimur í lyfjanefnd Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, segir að stjórnvöld hafi of lítið stutt við baráttu gegn misnoktun stera hér á landi. 4.2.2007 12:30
Nýtt pólitískt afl á hægri vængnum í burðarliðnum Nýtt afl er að koma fram á sjónarsviðið í íslenskum stjórnmálum eftir því sem segir á bloggsíðu Margrétar Sverrisdóttur. Þar segir Margrét að fundað hafi verið í gær og að á næstunni verði sett fram skýr markmið framboðs sem sé hægra megin við miðju í pólitísku litrófi stjórnmálanna. 4.2.2007 12:27
Skýrslutökur halda áfram vegna brottnáms stúlkna Skýrslutökur halda áfram hjá lögreglunni á Húsavík í dag vegna máls sem kom upp í Laugaskóla aðfararnótt föstudags. Þá fóru nokkrir eldri nemar í hópi drengja við skólann inn á herbergi þriggja ungra stúlkna þar sem þær sváfu fáklæddar á heimavist, tóku þær nauðugar af vistinni og tróðu þeim í skottið á bíl. 4.2.2007 12:15
Álögur auknar á fjármagnstekjufólk Ríkisstjórnin undirbýr frumvarp sem kveður á um að þeir sem hafa einungis fjármagnstekjur skuli greiða í framkvæmdasjóð aldraðra. Þá hefur frumvarpið sjálfkrafa í för með sér að nýr nefskattur Ríkisútvarpsins verður lagður á fjármagnstekjufólkið. 4.2.2007 12:00
Harður árekstur í Reykjanesbæ í gærkvöld Harður árekstur varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Aðalgötu í Reykjanesbæ um sjöleytið í gærkvöld. Lögregla og sjúkralið fóru á vettvang og voru tveir fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en meiðsl þeirra voru minni háttar. 4.2.2007 11:30
Reyndu að ræna sígarettum og morgunkorni Tveir svangir og sígarettulausir ungir menn brutust inn í verslun á Akureyri í nótt og höfðu á brott með sér þær nauðsynjar sem þeir þurftu til að mæta sínum þörfum. Ekki komust þeir langt því lögregla greip þá þar sem þeir voru á hlaupum frá innbrotsstað. 4.2.2007 10:45
Slegist á þorrablótum á höfuðborgarsvæðinu Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt líkt og fyrrinótt og voru allar fangageymslur fullar í morgun. Að sögn lögreglu var mikið um pústra og átök í tengslum við þorrablót víða um höfuðborgarsvæðið en engin alvarleg líkamsárás var þó gerð. 4.2.2007 10:15
Sjúkrabíll í hörðum árekstri í útkalli Harður árekstur varð á Eyrarbakkavegi um fimmleytið í nótt þegar fólksbíl var ekið í veg fyrir sjúkrabíl á leið til Þorlákshafnar. Lögregla hafði kallað á sjúkrabílinn vegna líkamsárásar sem átti sér stað á dansleik í Þorlákshöfn en þar var meðal annars sparkað í höfuð manns. 4.2.2007 09:53
Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur jeppa í Grímsnesi Tvennt var flutt á sjúkrahús í Reykjavík eftir að tveir jeppar sem komu úr gangstæðri átt rákust saman á Biskupstungnabraut sunnan við Borg í Grímsnesi um hálfsexleytið í dag. Að sögn lögreglu voru fimm í öðrum jeppanum og þrír í hinum og mun hluti hópsins leitað sjálfur til læknis til skoðunar. 3.2.2007 19:47
Hlýnun bætir nýtingu virkjana Hlýnun loftslags bætir nýtingu virkjana og gerir þær hagstæðari í rekstri. Þetta segir Tómas Jóhannesson, jöklafræðingur. Endurskoðuð umhverfisstefna til ársins 2050 verður lögð fram á næstu dögum, segir Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra. 3.2.2007 19:00
Kraftlyftingamaður handtekinn vegna sterasmygls Frammámaður innan Kraftlyftingasambandsins var handtekinn í gær vegna innflutnings á þrjátíu þúsund skömmtum af sterum. Á aðalfundi sambandsins í gærkvöld hætti hann í félaginu. Fíkniefnalögreglan hefur aldrei áður lagt hald á jafn mikið magn af sterum en innflutningur þeirra varðar ekki við fíkniefnalöggjöf heldur lyfjalög. 3.2.2007 18:47