Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mikill áhugi fyrir sjóstangveiði Mikill áhugi virðist verða á sjóstangveiðiferðum hjá vestfirska fyrirtækinu Fjord fishing en nú þegar hafa um 800 manns bókað í sjóstangsveiðir í sumar. Von er á fyrstu hópunum til Tálknafjarðar í apríl en til Súðavíkur í maí. 6.2.2006 09:39
Gistinóttum í desember fjölgar um rúm 13% á milli ára Gistinótum á hótelum í desember fjölgaði um rúm 13% í fyrra miðað við í desember árið 2004. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum 14% en gistinóttum fækkaði á Norðurlandi og á Austurlandi. 6.2.2006 09:28
Mikil hálka á Snæfellsnesi Vegagerðin varar við mikilli hálku á milli Grundarfjarðar og Stykkishólms. Hálka er víða um land, einkum á heiðum. Þá er nokkur éljagangur á Norðurlandi. 6.2.2006 07:56
Ferðir eingöngu fyrir barnlaus pör Danska ferðaskirfstofan Star tours býður nú fyrst allra danskra ferðaskrifstofa ferðir sem eru sérstaklega hugsaðar fyrir barnlaust fólk. Fyrirkomulagið kallast Bláu pörin eða blue couples og er einungis fyrir barnlaus pör eða vini. Hótelin liggja alltaf nálægt ströndinni, sundlaug er á öllum hótelum og allir fá drykk við komu þangað. Eitt er þó öðruvísi, engir barnaklúbbar eru á umræddum hótelum svo lítið fer fyrir börnunum. 6.2.2006 07:35
Þrjár bílveltur í gær og í nótt Sex manns sluppu ótrúlega vel úr þremur veltum í gærkvöldi og nótt, en tveir bílanna eru gjör ónýtir. Fyrst valt bíll úr af veginum í Súgandafirði í gærkvöldi og fór nokkrar veltur inn á túnið við bæinn Botn. Þrjú ungmenni sem voru í bílnum tognuðu eitthvað og mörðust og dvöldu á sjúkrahúsinu á Ísafirði í nótt til rannsóknar. Björgunarmenn þurftu að beita klippum til að ná tveimur út úr flakinu. 6.2.2006 07:25
Reyndu að smygla tæpum fjórum kílóum af amfetamíni til landsins Karl og kona á þrítugsaldri voru handtekin í Leifsstöð við komuna frá París á föstudag, eftir að um það bil fjögur kíló af mjög hreinu amfetamíni fundust í farangri þeirra. Að sögn Morgunblaðsins nemur smásöluverð efnisins á bilinu 40 til 60 milljónum króna og var fólkið úrskurðað í allt að tveggja vikna gæsluvarðhald á laugardag. 6.2.2006 07:23
300 milljón króna skíðalyfta í Bláfjöllum stendur auð Rigningar samfara löngu hlýindaskeiði hafa valdið því að öll skíðasvæði eru lokuð. Nýuppsett 300 milljóna króna skíðalyfta stendur auð í Bláfjöllum í hlýindunum þessa dagana. Tvær vikur eru síðan síðast var opið í Bláfjöllum en aðeins hefur verið opið þar í ellefu daga það sem af er vetri og enn hefur hvorki verið opnað í Skálafelli né á Hengilssvæðinu. 5.2.2006 20:00
Þórir Karl Jónasson dregur framboð sitt til baka Þórir Karl Jónasson, þátttakandi í prófkjöri fyrir Samfylkinguna og óháða í Reykjavík hefur dregið framboð sitt til baka af persónulegum ástæðum. 5.2.2006 16:42
Marga dreymir um að eiga sumarhús á Spáni Hundruð manna leituðu skjóls úr rigningunni í Reykjavík í dag og fóru inn í Perluna til að leita sér upplýsinga um sumarhús á Spáni. Það eru líklega margir orðnir þreyttir á umhleypingunum undanfarið og dreymir nú um sól og sumaryl. 5.2.2006 16:07
R-listaflokkarnir tapa fylgi til Sjálfstæðisflokksins R-listaflokkarnir myndu tapa talsverðu fylgi yfir til Sjálfstæðisflokksins ef kosið væri nú. Þetta kemur fram í könnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Morgunblaðið og birtist í blaðinu í morgun. 5.2.2006 16:02
Kom, sá og sigraði Silvía Nótt nótt kom, sá og sigraði í undankeppni Eurovision gærkvöldi með laginu Til hamingju Ísland en annar lagahöfundur í keppninni, Kristján Hreinsson lagði í gær fram stjórnsýslukæru til að fá lagið dæmt úr keppni. 5.2.2006 13:15
Björgunarsveitir af Suðurnesjum og Hafnarfirði voru kallaður út í nótt Björgunarsveitir af Suðurnesjum og Hafnarfirði voru kallaður út klukkan 03:17 í nótt vegna ungs manns sem saknað var. Í fréttatilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg kemur fram að 35 björgunarsveitamenn á 9 ökutækjum og tveimur sexhjólum hafi tekið þátt í leitinni. 5.2.2006 13:13
Mikilvægt að fólk hamstri ekki lyf gegn fulgaflensu Þrátt fyrir að lyfið Tamiflu sé lyfseðilskylt, hafa bæði einstaklingar og fyrirtæki orðið sér út um það í stórum stíl. Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir segir mikilvægt að fólk hamstri ekki lyfið. Nóg verði að vera til því aðeins sé tímaspursmál hvenær veiran breiðist út. 5.2.2006 12:16
Fíkniefni í Keflavík Lögreglan í Keflavík stöðvaði tvo menn við reglubundið eftirlit rétt fyrir sex í morgun, sem reyndust vera með ætluð fíkniefni, hass og amfetamín. Magn efnanna var ekki mikið og var það ætlað til eigin neyslu að sögn mannanna. Mennirnir eru báðir vel kunnugir lögreglunni. Þeim var sleppt að lokinni yfirheyrslu. Þrír menn voru stöðvaðir fyrir ölvunarakstur í Kópavogi, einn á Akureyri, einn í Hafnarfirði og einn á Akranesi, þar sem einn ökumaður reyndist líka réttindalaus. 5.2.2006 09:52
Vandræði á símkerfi fréttastofu NFS Vandræði hafa verið á símkerfi fréttastofu NFS í dag. Unnið er að viðgerðum. Áskrftarsími 365 miðla er hins vegar í lagi. 5.2.2006 13:48
Mikið álag á forsetafrúnni Mikið álag hefur verið á forsetafrúnni undanfarið og er það líklega skýringin á aðsvifinu sem hún fékk við upphaf afhendingar Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Dorrit gat ekki tekið þátt í opinberum störfum forsetans á Akureyri í dag. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir þó að líðan hennar sé með ágætum en hún hefur verið í rannsóknum í gær og í dag. 4.2.2006 20:32
Stjórnsýslukæra vegna flutnings Sílvíu Nætur Kristján Hreinsson einn lagahöfunda í undankeppni Evróvisjónkeppninnar hefur ákveðið að leggja inn stjórnsýslukæru vegna ákvörðunar Ríkisútvarpsins um að leyfa lagi sem lak út á Netið að halda áfram í keppninni. Þúsundir manna hafa hlustað á lagið á Netinu en lagið er flutt af Silvíu Nótt. 4.2.2006 20:28
Ólga meðal kennara Kennarasambandið segist ekki hafa gengist inn á hugmyndir menntamálaráðherra um styttingu námstíma til stúdentsprófs. Málið sé einfaldlega ekki á umræðugrundvelli. Mikil ólga er meðal menntaskólakennara vegna samkomulags menntamálaráðherra og kennaraforystunnar. 4.2.2006 20:26
Dagur Kári og Baltasar Kormákur verðlaunaðir Mynd Dags Kára Kristjánssonar Voksne mennesker var valin besta myndin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Gautaborg í dag. Mynd Baltasars Kormáks Little Trip to Heaven var valin besta mynd hátíðarinnar að mati alþjólegra samtaka kvikmyndagagnrýnanda. Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Gautaborg á sér áralanga sögu og fjöldi fólks sækir hátíðina. 4.2.2006 20:10
Óvæntur glaðningur til starfsmanna Landsbankans Á aðalfundi í dag samþykktu hluthafar Landsbankans að veita öllum starfsmönnum bankans í fullu starfi þrjú hundruð þúsunda króna kaupauka. Heildarupphæð kaupaukans er hálfur milljarður sem nemur um einu og hálfu prósenti af þrjátíu og níu milljarða hagnaði Landsbankans á síðasta ári. Þetta ætti að gefa 1725 Landsbankastarfsmönnum ástæðu til að hlakka til að fá útborgað fyrsta mars. 4.2.2006 18:47
Hrefnukjöt kláraðist í janúar Hrefnukjöt kláraðist í byrjun janúar hjá félagi hrefnuveiðimanna sem sér um sölu og dreifingu á hrefnukjöti af þeim 39 dýrum sem veidd voru í vísindaskini á síðasta ári. Framkvæmdarstjóri félagsins segir eftirspurn eftir hrefnukjöti mun meira en framboðið. 4.2.2006 13:45
Konur eru aðeins um 10% af stjórnarmönnum fyrirtækja Konur eru aðeins um tíu prósent af stjórnarmönnum fyrirtækja. Formaður Félags kvenna í endurskoðun segir engan skort á hæfum konum í störfin og að um vannýtan mannauð sé að ræða. 4.2.2006 13:30
Stefán Jón líklegastur til að leiða lista Samfylkingarinnar Samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is og birtist á heimasíðu þess er Stefán Jón Hafstein líklegastur til að leiða lista samfylkingarinnar í komandi borgarstjórnarkosningum. Þó er ekki marktækur munur á fylgi hans og Dags B. Eggertssonar. Steinunn Valdís borgarstjóri er í þriðja sæti á eftir Stefáni og Degi. 4.2.2006 13:03
Sjálfstæðismenn fá hreinan meirihluta í könnun Sjálfstæðisflokkurinn fengi hreinan meirihluta í borgarstjórn ef kosið væri núna. Þetta kemur fram í könnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Morgunblaðið og birtist í blaðinu í dag. 4.2.2006 13:00
Kjörsókn hefur farið rólega af stað Kjörsókn hefur farið rólega af stað í prófkjöri Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í Kópavogi og á Seltjarnarnesi. Á Seltjarnarnesi er gerð atlaga að oddvitanum. 4.2.2006 12:49
Ólga meðal kennara vegna samkomulags menntamálaráðherra og kennaraforystunnar Mikil ólga er meðal kennara í menntaskólum landsins vegna samkomulags menntamálaráðherra og kennaraforystunnar sem undirritað var í fyrradag. Samkvæmt því verður höfð samvinna um endurskoðun á námi í tenslum við styttingu námstíma til stúdentsprófs. Félag kennara Menntaskólans í Reykjavík hefur ályktað gegn samkomulaginu og kennarar í öðrum menntaskóla hafa jafnvel rætt úrsögn úr Kennarasambandinu. 4.2.2006 10:56
Mörg hundruð manns tróðust undir Að minnsta kosti áttatíu og átta manns létu lífið og yfir þrjú hundruð slösuðust þegar þeir tróðust undir í biðröð við leikvang í Manila, höfuðborg Filipseyja í morgun. Yfir tuttug þúsund manns biðu eftir að komast inn á leikvanginn en þar átti að taka upp vinsælan sjónvarpsþátt. 4.2.2006 10:05
Ekið á ungan mann Ekið var á ungan mann við Glaumbar í Tryggvagötu í nótt. Að sögn lögreglu virðist sem að maðurinn hafi hlaupið fyrir bílinn og var hann fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús til aðhlynningar. Meiðsl hans voru þó ekki alvarleg og hefur hann verið útskrifaður. Mikill erill var hjá lögreglunni í nótt og á slysadeild. 4.2.2006 10:02
Eldur í húsi Urðar, Verðandi, Skuldar Eldur kviknaði í húsnæði líftæknifyrirtækisins Urðar, Verðandi, Skuldar við Snorrabraut 60 um hálffjögur í nótt. Eldurinn kom upp í rafmagnstöflu í sérstöku spennuherbergi sem er á jarðhæð hússins. Vel gekk að slökkva eldinn og reykræsta húsið en ekki er vitað um skemmdir. 4.2.2006 10:00
Forsetafrúnni líður ágætlega Dorrit Moussaieff forsetafrú mun gangast undirlæknisrannsókn í dag. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær þá fékk Dorrit aðsvif við upphaf afhendingar Íslensku bókmenntaverðlaunanna á miðvikudag. 4.2.2006 07:30
Komið í veg fyrir pólitískt stórslys Þingmaður Samfylkingarinnar fagnar frestun menntamálaráðherra á styttingu námstíma til stúdentsprófs og segir að komið hafi verið í veg fyrir pólitískt stórslys. Félag kennara í Menntaskólanum í Reykjavík lítur svo á að forysta kennarafélaganna hafi ekki haft umboð til að undirrita samkomulag við menntamálaráherra. 3.2.2006 23:17
Stærsta bryggja landsins vígð við Grundartanga Stærsta bryggja landsins var tekin í notkun á Grundartanga í dag. Henni er ekki aðeins ætlað að þjóna vaxandi stóriðju heldur einnig höfuðborgarsvæðinu. 3.2.2006 23:16
Bygging hátæknisjúkrahúss vitleysa Fyrrverandi yfirlæknir á Landspítalanum segir byggingu hátæknisjúkrahúss við Hringbraut gamla og vitlausa stefnu sem kosti of mikið. Hann segir nær að nýta betur þann góða spítala sem Landspítalinn í Fossvogi er. 3.2.2006 23:10
Dorrit komin heim á Bessastaði Dorrit Mussajef, forsetafrú, gekkst undir rannsóknir á sjúkrahúsi í morgun en hún fékk aðsvif á Bessastöðum í gær, skömmu fyrir athöfn vegna íslensku bókmenntaverðlaunanna. Forsetafrúin var undir læknishendi mestan fyrrihluta dagsins en hvílir sig nú á Bessastöðum. 3.2.2006 23:09
Aukið magn eiturefna Þreföldun hefur orðið á eiturefnum á Austurlandi. Þar vega Kárahnjúkaframkvæmdir þyngst. Eiturefni eru flutt á milli landshluta í stórum stíl en líkur á umhverfisslysi eru þó taldar minniháttar. 3.2.2006 23:07
Múslimar á Íslandi eru áhyggjufullir yfir stöðu mála Múslímar hér á landi hafa miklar áhyggjur af því hvernig mál hafa þróast og óttast að almenn reiði gegn múslímum muni snúast gegn sér. Þórir Guðmundsson var viðstaddur bænastund í mosku múslíma í Reykjavík í dag. 3.2.2006 22:58
Íslensk leyniþjónusta í bígerð? Sérstök deild sem rannsakar hryðjuverk og skipulagða glæpastarfsemi verður starfrækt hjá embætti Ríkislögreglustjóra verði frumvarp dómsmálaráðherra til breytingar á lögreglulögum samþykkt á Alþingi. Þingmaður Samfylkingar óttast að verið sé að stofna eins konar leyniþjónustu. 3.2.2006 22:57
Ókeypis hádegismatur ella verði stéttaskipting Bjóða þarf grunnskólabörnum upp á ókeypis hádegismat til að koma í veg fyrir stéttaskiptingu að mati leiðtoga Vinstri grænna í borgarstjórnarkosningunum í vor. 3.2.2006 22:52
Svarar ekki ásökunum um blekkingar Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra kýs að svara ekki ásökunum um að ráðuneyti hans hafi farið vísvitandi með blekkingar í fréttatilkynningu um skattalækkanir. Hagfræðingur Landssambands eldri borgara sagði í fréttum NFS í gær að framsetning fjármálaráðuneytisins á tölum væri fyrir neðan allar hellur. Þau svör fengust frá ráðherranum í dag að hann hygðist ekki svara þessu. 3.2.2006 22:36
Svifryksmengun fækkar lífdögum fólks Svifryksmengun fækkar lífdögum fólks meira en umferðarslys samkvæmt sænskri rannsókn sem gerð hefur verið. 3.2.2006 22:23
Birgðir af hrefnukjöt búnar í bili Hrefnukjöt kláraðist í byrjun janúar hjá félagi hrefnuveiðimanna sem sér um sölu og dreifingu á hrefnukjöti af þeim 39 dýrum sem veidd voru í vísindaskini á síðasta ári. Framkvæmdarstjóri félagsins segir eftirspurn eftir hrefnukjöti mun meira en framboðið. 3.2.2006 22:13
Ólga meðal menntaskólakennara Mikil ólga er meðal kennara í menntaskólum landsins vegna samkomulags menntamálaráðherra og kennaraforystunnar sem undirritað var í gær. Þar er meðal annars náð sátt um samstarf við endurskoðun á námi í tengslum við styttingu á námstíma til stúdentsprófs. Félag kennara Menntaskólans í Reykjavík hefur ályktað gegn samkomulaginu og kennarar í öðrum menntaskóla hafa jafnvel rætt úrsögn úr Kennarasambandinu. 3.2.2006 22:11
Íslendingar greiði milljarða kostnað verði þotur áfram Íslendingar bjóðast til að taka á sig milljarða kostnað við rekstur Keflavíkurflugvallar og þyrlubjörgunarsveitar í varnarmálaviðræðum við Bandaríkjamenn, sem er framhaldið í dag. Stíft er þó haldið í þá kröfu að hér verði áfram herþotur. 3.2.2006 22:10
Flippaður föstudagur á Hárstofunni Gel Svokallaður Flippaður föstudagur eða Freaky Friday var haldinn í fyrsta skipti á hárstofunni Gel í dag. Viðskiptavinir dagsins réðu engu um klippingu sína eða hárlit en allir fóru ánægðir heim. 3.2.2006 22:07
Krónan styrktist um 0,38 prósent Gengisvísitalan lækkaði í dag, var í upphafi dags og endaði í 106,25, sem þýðir að krónan styrktist um 0,38%. Veltan á millibankamarkaði nam 13.392 milljónum króna. Gengi dollars var 63,24 kr. við lokun bankanna, gengi punds 111,34 og gengi evru 75,92. 3.2.2006 20:28