Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Seldu fleiri íbúðir en í meðalviku Fleiri fasteignir seldust á höfuðborgarsvæðinu í síðustu söluviku fyrir jól en nemur meðalsölu síðustu tólf vikurnar sem á undan komu. 185 fasteignir seldust í síðustu viku og var meðalverð þeirra 23 milljónir króna, tæpum fjórum milljónum lægra en í meðalviku. 26.12.2005 11:30
Opið í Hlíðarfjalli í dag Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnar í hádeginu og verður opið til klukkan fimm. Klukkan tíu var hitastigið rétt undir frostmarki og starfsfólk Hlíðarfjalls segir að þrátt fyrir hlýindi undanfarinna daga sé mjög góður snór í skíðabrekkunum. 26.12.2005 10:45
Fáir bátar á sjó Einn togari og ellefu bátar voru á sjó núna á tíunda tímanum að morgni annars í jólum. Mjög dregur úr sjósókn yfir jólin eins og annarri atvinnustarfsemi en til samanburðar má geta að venjulega eru um 200 skip og bátar á sjó undir hádegi í desember. 26.12.2005 09:29
Friðsamlegt síðustu nótt Skemmtanahald næturinnar gekk friðsamlega fyrir sig samkvæmt upplýsingum frá lögregluembættum hringinn í kringum landið. Nokkur erill var hjá lögreglunni í Reykjavík en þar kom ekkert alvarlegt upp á og fangageymslur voru tómar í morgun. 26.12.2005 09:28
Krapasnjór á Hellisheiði og í Þrengslum Nokkur krapasnjór er á Hellisheiði og í Þrengslum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Verið er að hreinsa snjó af vegum í Borgarfirði, Dölum og Norðurlandi vestra til Sauðárkróks og Siglufjarðar einnig um Öxnadalsheiði til Akureyrar. 26.12.2005 09:12
Innbrot í Apple-verslunina við Brautarholt Innbrot var framið í Apple-versluninni við Brautarholt í dag. Lögreglu barst tilkynning um innbrotið klukkan tvö og þegar hún kom á vettvang kom í ljós að rúða var skrúfuð úr glugga búðarinnar í heilu lagi. 25.12.2005 16:45
Biskup trúir ekki á jólasveininn Biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson, segist ekki trúa á jólasveininn. Hann lýsti þessu yfir í miðnæturmessu í Dómkirkjunni í gær en töluverð umræða skapaðist í þjóðfélaginu á dögunum þegar greint var frá því að Flóki Kristinsson, sóknarprestur á Hvanneyri, hafi sagt hópi sex ára barna að jólasveinninn væri ekki til. 25.12.2005 16:00
Rafmagn fór af í Kjós Rafmagn fór af hluta húsa í Kjós um hálf sjö leytið í morgun. Talið var að það hafi farið af vegna þess að línur hafi slegist saman vegna veðurs. Viðgerðarflokkur frá Borgarnesi sá um viðgerðir sem lauk á tíunda tímanum. Aftaka veður var á staðnum og allar aðstæður mjög erfiðar. 25.12.2005 15:00
Fullt út úr dyrum í kirkjum landsins Fullt var út úr dyrum við guðsþjónustur í flestum kirkjum landsins í gær. Í Grafarvogskirkju var gripið til þess ráðs að láta kórinn standa alla guðsþjónustuna til að sem flestir fengju sæti. 25.12.2005 14:00
Nokkur erill hjá lögreglunni í Reykjavík Nokkur erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt. Ekki voru alls staðar haldin gleðileg jól og þurfti lögreglan að hafa afskipti vegna ófriðar í nokkrum heimahúsum sökum ölvunar. 25.12.2005 13:14
Björgunarsveitir kallaðar út vegna veðurofsa Vestanlands Aftaka veður er víða vestanlands og hafa björgunarsveitir verið kallaðar út til þess að huga að lauslegum munum sem fokið hafa til. 25.12.2005 12:10
Ógnaði leigubílstjóra með loftbyssu Maður um tvítugt var handtekinn eftir að hafa miðað gasbyssu á leigubílstjóra við Stórhöfða rétt eftir klukkan hálf þrjú í nótt. Þegar leigubílstjórinn tilkynnti lögreglu um atvikið hafði maðurinn haupið á brott. Þegar laganna verður mættu á staðinn til að ræða við leigubílstjórann birtist byssumaðurinn á nýjan leik. 25.12.2005 11:33
Nokkur erill í verslunum í morgun Nú fer hver að verða síðastur að gera síðustu jólainnkaupin enda verður flestum verslunum lokað innan klukkustundar, en nokkur erill var í Kringlunni og miðbænum í morgun. En jólin reynast sumum erfið og þeim sem ekki hafa í nein hús að venda verður boðið upp á mat á fimm stöðum í bænum. 24.12.2005 12:45
Handteknir aftur vegna vopnastuldar Tveir menn, sem lögreglan í Keflavík handtók á miðvikudag í tengslum við vopnastuldinn á Húsavík, voru handteknir aftur í gær eftir að lögreglumenn fundu þýfi og fíkniefni í fórum þeirra. 24.12.2005 12:30
Býst við að endurskoðun verði rædd á fundi Forseti ASÍ segist fastlega gera ráð fyrir því að forsætisráðherra verði beðinn um að endurskoða úrskurð Kjaradóms á fundi sínum með fulltrúum vinnumarkaðarins á þriðjudag. Formaður Kjaradóms segir að dómnum sé falið vanþakklátt og vandasamt hlutverk. Nauðsynlegt sé að finna leið til að ákvarða laun kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna sem sæmileg sátt geti verið um. 24.12.2005 12:15
Enn hægt að kaupa jólatré Þeir borgarbúar sem eiga eftir að kaupa jólatré og óttast að allt sé uppselt geta tekið jólagleði sína á ný því enn er hægt að fá jólatré á nokkrum stöðum. Þær fregnir bárust í gær að öll tré væru að verða uppseld og brugðust því margir skjótt við og urðu sér úti um tré. Óformleg athugun fréttastofunnar í morgun leiðir hins vegar í ljós að enn er hægt að verða sér úti um tré. 24.12.2005 12:09
Lögregla stjórnar umferð við kirkjugarða Það er fastur liður í jólhaldi flestra borgarbúa að vitja látinna ættingja og vina í kirkjugörðum. Mikil umferð er þó á aðfangadag og jóladag og því mun lögregla aðstoða við að halda umferð greiðri fyrir gesti garðanna. 24.12.2005 11:15
Sjúkraflugvél áfram á Ísafirði Sjúkraflugvél verður áfram staðsett á Ísafirði en til stóð að hún myndi hafa aðstöðu á Akureyri frá og með áramótum. Eftir því sem fram kemur á fréttavef Bæjarins besta hafði fulltrúi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis samband við Halldór Halldórsson bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar í gær og staðfesti þetta. 24.12.2005 11:00
Mikill mannfjöldi í mibænum í gærkvöld Mikill mannfjöldi var í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi og góð stemming. Veður var gott og að sögn löreglunnar fót allt vel fram. Verslunareigendur við Laugaveginn munu hafa verið hæstánægðir með þetta lokaskot á jólaverslunina. 24.12.2005 10:30
Stórhríð á utanverðu Snæfellsnesi Stórhríð er á utanverðu Snæfellsnesi. Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að óveður sé á milli Grundarfjarðar og Hellissands. Þungfært sé og stórhríð á Fróðárheiði. Á vegum á Vesturlandi er annars hálka. 24.12.2005 10:15
Umhverfissinnar áfrýja skyrslettudómi Dómsmál Ólafur Páll Sigurðsson, sem ásamt Örnu Ösp Magnúsardóttur hefur verið dæmdur fyrir að sletta grænlituðu skyri á ráðstefnugesti á Hótel Nordica í sumar, segir líklegt að dómnum verið áfrýjað. "Frestur til þess er ekki liðinn þar sem enn á eftir að birta okkur dóminn," segir hann. 24.12.2005 06:00
Umferð stýrt um kirkjugarða Það er fastur liður í jólhaldi flestra borgarbúa að vitja látinna ættingja og vina í kirkjugörðum. Mikil umferð er þó á aðfangadag og jóladag og því mun lögregla aðstoða við að halda umferð greiðri fyrir gesti garðanna. 23.12.2005 21:54
Bíður eftir að komast í endurhæfingu Björn Hafsteinsson strætisvagnabílstjóri, sem missti báða fæturna í umferðarslysi í ágúst, er kominn í jólaskap og bíður eftir að komast í endurhæfingu eftir áramótin. 23.12.2005 21:00
Óvissa á sjö leikskólum Leikskólakennarar á leikskólanum Hömrum í Grafarvogi bættust í gær í hóp leikskólakennara á sjö leikskólum sem hyggjast segja upp vinnu sinni um áramótin vegna óánægju með laun. Formaður Félags leikskólakennara segir sinnuleysi valda því að margir leikskólakennarar sjái ekki aðra færa leið en að segja upp störfum. Borgarstjóri hyggst ræða við félagið á milli jóla og nýárs. 23.12.2005 20:13
Gríðarlegur áhugi á flugfélögum Hlutabréf í FL-Group hækkuðu um fjögur komma átta prósent í dag. Bréf í félaginu hafa meira en tvöfaldað sig á síðustu 12 mánuðum. Þá er gríðarlegur áhugi á öðru flugfélagi, Avion Group, en hlutafjárútboði félagsins lauk í dag. 23.12.2005 19:53
Fengu kæsta skötu í leikskólanum Börnin á leikskólanum Urðarhóli í Kópavogi fengu öllu lyktmeiri mat í hádeginu í dag en þau eru vön. Þar var, líkt og svo víða, boðið upp á skötu á Þorláksmessunni. Viðbrögð barnanna voru mismunandi. Sum biðu spennt eftir að fá fisk diskinn sinn en önnur virtust full efasemda um þetta lyktsterka sjávarmeti. 23.12.2005 19:30
Forsætisráðherra ræðir ekki kjarabæturnar án greinargerðar Forsætisráðherra vill ekki ræða kjarabætur til handa, ráðherrum, ríkisstjórn og æðstu embættismönnum við fjölmiðla nema fyrir liggi greinargerð frá Kjaradómi. Hann hefur hins vegar kallað aðila vinnumarkaðarins á sinn fund strax eftir jól. 23.12.2005 19:27
Nautgriparækt rekin með bullandi tapi Nautakjötsframleiðendur hafa litlar eða engar tekjur haft af búum sínum og halda þetta ekki út miklu lengur nema samkeppnisstaða þeirra verði bætt. Landbúnaðarráðherra segir það koma til greina að því gefnu að forystumenn bænda séu hlynntir styrkjum til þeirra. 23.12.2005 19:15
Byssur og dóp í Vogunum Á þriðja tug skotvopna og umtalsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglu á miðvikudaginn í atvinnuhúsnæði á Vatnsleysuströnd og í fimm íbúðum í Vogum og Njarðvík. Vopnunum var stolið á Húsavík í lok nóvember. 23.12.2005 19:09
Friðargangan að hefjast Árleg friðarganga friðarhreyfinga í Reykjavík hefst nú klukkan sex. Búist var við að um fimm þúsund manns myndu mæta í gönguna en ófriðurinn í Írak og fleiri stöðum í heiminum er mörgum tilefni til að krefja ráðmenn heimsins um friðsamlegar lausnir deilumála. Þá verða einnig farnar friðargöngur á Akureyri og á Ísafirði í kvöld. 23.12.2005 18:00
Einn á sjúkrahús eftir harðan árekstur á Akureyri Einn var fluttur á sjúkrahús eftir nokkuð harðan árekstur á gatnamótum Tryggvabrautar og Hjalteyrargötu á Akureyri skömmu eftir hádegi í dag. Að sögn lögreglu var maðurinn ekki talinn alvarlega meiddur en þó var talið æskilegt að hann gengist undir læknisskoðun. 23.12.2005 17:50
Vilja að Alþingi komi saman milli jóla og nýárs Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna eru reiðubúnir að koma saman til fundahalda milli jóla og nýárs vegna nýgengins úrskurðar Kjaradóms um laun æðstu embættismanna. Þessu er lýst yfir í bréfi sem formenn stjórnarandstöðuflokkanna sendu forsætisráðherra í dag. 23.12.2005 17:21
Afhenti trúnaðarbréf og kom á framfæri vonbrigðum íslenskra stjórnvalda Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra, afhenti nýlega, José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands hjá Evrópusambandinu. 23.12.2005 16:22
Lögregla lýsir eftir stolinni bifreið Aðfaranótt síðastliðins þriðjudags var bifreiðinni LV 026 stolið af bifreiðastæði við Bræðraborgarstíg í Reykjavík. Bifreiðin er svört Audi A4. Þeir sem hugsanlega verða varir við bifreiðina eru beðnir að láta lögreglu vita. 23.12.2005 16:17
Þrjú innbrot í Reykjavík í morgun Tilkynnt var um þrjú innbrot í Reykjavík í morgun. Brotist var inn í húsnæði í endurbyggingu í austurborginni í einu tilvikinu. Þaðan var stolið miklu magni rafmagnsverkfæra og annarra verkfæra. Þá var brotist inn í íbúð á Grettisgötu og tækjum stolið úr Borgarholtsskóla, þar sem reyndar var farið inn um opnar dyr. 23.12.2005 15:52
Hver að verða síðastur að ná sér í jólatré Jólatré eru að seljast upp, í það minnsta á höfuðborgarsvæðinu, og fer hver að verða síðastur til að ná sér í slíkt stofustáss. Mikil aukning hefur verið á sölu jólatrjáa milli ára og nú er svo komið að kaupmenn sjá fram á að þau seljist upp. 23.12.2005 15:49
Búist við að velta í verslun aukist um þriðjung milli ára Kaupmenn búast við að veltan í jólamánuðinum aukist um þriðjung að meðaltali á milli ára. Aukinn kaupmáttur er sagður aðalástæða þess. Lausleg og óformleg könnun fréttastofu NFS leiðir hins vegar í ljós að flestir eru á svipuðu róli og í fyrra. 23.12.2005 15:02
Vilja ræða við ráðherra um breytingar á póstþjónustu við Ísafjarðardjúp Þrír þingmenn Norðvesturkjördæmis hafa óskað eftir því við Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra að kallaður verði saman fundur þingmanna kjördæmisins með heimamönnum og forsvarsmönnum Íslandspósts vegna breytinga á póstþjónustu við Ísafjarðardjúp sem taka eiga gildi um áramótin. 23.12.2005 14:50
Nýr sýslumaður á Hólmavík Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hefur skipað Kristínu Völundardóttur, deildarstjóra í dómsmálaráðuneytinu, sýslumann á Hólmavík frá og með 1. janúar n.k. 23.12.2005 14:24
Helstu þjóðvegir færir Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að allir helstu þjóðvegir landsins séu færir, en búast má við hálku eða hálkublettum víða um land. 23.12.2005 13:26
Margir starfsmenn OR á vakt um jólin Orkuveita Reykjavíkur hefur að vanda verulegan viðbúnað til þess að tryggja góða þjónustu við viðskiptavini um jólin. 23.12.2005 13:19
Atlantsskip undirrita samning við DFDS Transport Atlantsskip hafa undirritað samstarfssaming við flutningsfyrirtækið DFDS Transport um flutninga fyrirtækisins í Skandinavíu. DFDS Transport er öflugasti forflutningsaðilinn á þessu svæði og er samningurinn því mikil viðurkenning fyrir Atlantsskip og ljóst að flutningsgeta fyrirtækisins mun aukast til muna frá því sem áður hefur verið. 23.12.2005 13:19
Vann til silfurverðlauna á EM í kranastjórnun Ingi Björnsson, nýkrýndur Íslandsmeistari í kranastjórnun, hlaut nýverið silfurverðlaun í Evrópukeppni Liebherr í kranastjórnun sem fram fór í Suður-Þýskalandi þann 30. nóvember síðastliðinn. 23.12.2005 13:15
Í gæsluvarðhald vegna umfangsmikils fíkniefnasmygls Tveir menn, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnasmygls með ferjunni Norrænu, reyndust vera með fjögur kíló af hassi og eitt kíló af amfetamíni. Mönnunum hefur nú verið sleppt úr gæslu en þeir hafa úrskurðaðir í farbann til 20. janúar. 23.12.2005 12:45
Vilja að Dagur víki sæti sem borgarfulltrúi Ungir framsóknarmenn krefjast þess að Dagur B. Eggertsson víki sæti sem borgarfulltrúi, þar sem hann sé ekki lengur óháður frambjóðandi. Hann hafi fengið sæti sitt á silfurfati sem fulltrúi óháðra kjósenda en nú séu forsendur fyrir framboði hans brostnar. 23.12.2005 12:30