Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Prófkjör hjá Samfylkingu í Hafnarfirði Samfylkingarmenn í Hafnarfirði ganga til prófkjörs á morgun. Kjörfundur hefst klukkan tíu og eru rúmlega tvö þúsund félagar á kjörskrá. Úrslitin verða tilkynnt um ellefu leytið annað kvöld. 4.11.2005 20:42
Stór skjálfti um kvöldmatarleytið Skjálftahrina hófst austur af Grímsey á þriðja tímanum í dag og stendur enn. Stór skjálfti, 3,3 á richter, mældist um hálfátta-leytið í kvöld. 4.11.2005 20:12
Úttekt á MÍ birt í næstu viku Skýrsla Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um úttekt á stjórnunarháttum og samskiptum innan Menntaskólans á Ísafirði verður birt í næstu viku. 4.11.2005 20:04
Böðvar að hætta hjá Medcare Böðvar Þórisson, framkvæmdastjóri Alþjóðasölu og Markaðssviðs Medcare, hefur sagt starfi sínu lausu. 4.11.2005 20:02
Segir kaupmátt í sögulegu hámarki Sérstök forsendunefnd Alþýðusambandsins og atvinnurekenda hefur ellefu daga til að úrskurða hvort grundvöllur kjarasamninga sé brostinn - vegna meiri verðbólgu en ráð var fyrir gert. Uppsögn kjarasamninga nú hefði skelfilegar afleiðingar fyrir allan vinnumarkaðinn, segir Ari Edwald og bendir á að kaupmáttur sé í sögulegu hámarki. 4.11.2005 20:00
Örykjum hafi fjölgað um þrjá hvern virkan dag frá áramótum Bílastyrkur til hreyfihamlaðra og aldraðra verður ekki afnuminn. Þetta tilkynnti Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra á Alþingi í dag þegar hann svaraði spurningum Helga Hjörvars við utandagskrárumræðu um fjölgun öryrkja og kjör þeirra. Ráðherra sagðist aldrei hafa haldið því fram að fólk færi á örorkubætur að gamni sínu, en benti á að öryrkjum hafi fjölgað um þrjá hvern virkan dag frá áramótum til 1. október og við því yrði að bregðast með einhverjum hætti. 4.11.2005 19:58
Telja kynslóð sem er við völd hafa afskrifað gamla fólkið Eldri hjón, sem fréttastofa Stöðvar 2 hitti í dag, segjast kvíða því að lenda á hjúkrunarheimili og hugsanlega þurfa að skiljast að. Þau segjast hafa það á tilfinningunni að kynslóðin sem nú er við völd hafi afskrifað gamla fólkið. 4.11.2005 19:45
Á fjórða þúsund hefur kosið í prófkjöri Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík hófst í dag og höfðu á fjórða þúsund manna kosið nú skömmu fyrir fréttir. Um nítján þúsund manns hafa kosningarétt, en þeim hefur fjölgað rúm tíu prósent á undanförnum vikum. 4.11.2005 18:38
Já símaskrá ekki til sölu Hvorki Já símaskrá né starfsstöð fyrirtækisins á Ísafirði eru til sölu. Þetta voru svörin sem Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, fékk á fundi sínum með stjórnarformanni Já símaskrár í dag að því er fram kemur á vef Bæjarins besta. 4.11.2005 18:15
Alvarlega slösuð eftir að hafa dottið af hestbaki Konan sem féll af hestbaki við Syðra-Langholt í Hrunamannahreppi fyrr í dag er alvarlega slösuð. TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti stúlkuna austur fyrir fjall laust eftir hádegi í dag og flaug með hana beint á Landspítalann í Fossvogi þar sem hún var flutt á gjörgæsludeild. Að sögn vakthafandi læknis er hún nú í aðgerð og er ástand hennar alvarlegt. 4.11.2005 17:45
Skorar á almenning og stjórnvöld að leggja meira fram Mannréttindaskrifstofa Íslands skorar á almenning og stjórnvöld að bregðast nú þegar við og leggja meira af mörkum til að koma í vega fyrir frekari hörmungar í Pakistan. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að í Kasmírhéraði einu sé áætlað að ennþá séu um 200.000 manns sem enn hafi ekki fengið neina aðstoð. Mikill skortur sé á hjálpargögnum og vetur í nánd með tilheyrandi kulda. 4.11.2005 17:14
Hollensk starsmannaleiga vill senda starfsmenn hingað Hollenska starfsmannaleigan Inter-Galaxy er að búa sig undir að stofna útibús hér á landi og hefur óskað eftir upplýsingum frá félagsmálaráðuneytinu og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu um lög og reglugerðir um starfsemi starfsmannaleiga. 4.11.2005 16:43
Allt að sex milljónir falla á ríkið Ríkið þarf að greiða á bilinu fjórar til sex milljónir króna vegna dóms Hæstaréttar um að Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli hafi verið óheimilt að hætta að greiða slökkviliðsmönnum rútugjald. 4.11.2005 16:40
Snörp skjálftahrina austur af Grímsey Allsnörp skjálftahrina hófst austur af Grímsey á þriðja tímanum í dag og og mældust 4 skjálftar af stærðinni 3 til 3,5 á Richter fyrstu 20 mínúturnar auk annarra smærri skjálfta. Um klukkan þrjú dró verulega úr virkninni, en þó hafa mælst 50-60 skjálftar eftir það, þeir stærstu um 2,4 á Richter. 4.11.2005 16:32
Bloggið auglýst á forsíðu Bloggmenningin hefur tröllriðið landanum síðustu misseri en hingað til hafa menn að mestu látið það vera að kaupa auglýsingar til að kynna skrif sín. Auglýsing á forsíðu Fréttablaðsins í dag og undanfarna daga, virðist þó gefa til kynna að þetta sé að breytast. 4.11.2005 16:15
Kjartan segist ekkert hafa vitað Kjartan Magnússon borgarfulltrúi segist ekkert hafa vitað af því að formaður KR-inga myndi hvetja sitt fólk til að greiða sér og Benedikt Geirssyni, starfsmanni ÍSÍ, atkvæði í prófkjörinu. 4.11.2005 16:14
KR-áskorun tekin af heimasíðunni Áskorun á heimasíðu KR, þar sem formaðurinn Guðjón Guðmundsson, hvetur KR-inga til að greiða Kjartani Magnússyni borgarfulltrúa og Benedikt Geirssyni starfsmanni ÍSÍ atkvæði í prófkjöri sjálfstæðismanna sem hófst í dag, hefur verið fjarlægð af heimasíðunni. 4.11.2005 16:10
Brunavörnum verulega ábótavant Engar úrbætur hafa verið gerðar á brunavörnum í húsnæðinu að Lágmúla 6-8, þrátt fyrir ítrekaðar kröfur þar um af hálfu eldvarnareftirlitsins. Eigandi fasteignarinnar er nú beittur dagsektum. 4.11.2005 15:51
KÍ og ÞSSÍ vinna saman Kennaraháskólinn og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands undirrituðu í dag samstarfssamning um markvissa þátttöku Kennaraháskólans í verkefnum á sviði þróunaraðstoðar í menntamálum. 4.11.2005 15:30
Gísli Marteinn með forskot en þriðjungur óákveðinn Gísli Marteinn Baldursson nýtur meira fylgis en Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson í baráttunni um fyrsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna komandi borgarstjórnarkosninga samkvæmt niðurstöðum könnunar sem 365 Nýmiðlun gerði á fylgi frambjóðenda. Athygli vekur að rúmlega þriðjungur segist enn óákveðinn. Könnunin sem var póstlistakönnun, var gerð fyrir stuðningsmenn Gísla Marteins og bárust rúmlega 4.500 svör. 4.11.2005 15:15
Bensínstyrkur ekki afnuminn Bensínstyrkur ellilífeyrisþega og öryrkja verður ekki afnuminn. Þetta sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra í utandagskrárumræðu um fjölgun öryrkja hér á landi á Alþingi í dag. Alls nær styrkurinn til 4000 ellilífeyrisþega og 2650 öryrkja. 4.11.2005 15:06
Olíutengivagn slitnaði aftan úr flutningabíl Betur fór en á horfðist þegar tengivagn olíuflutningabíls með fullan tank af olíu slitnaði aftan úr bílnum á hringtorginu við Kaplakrika í Hafnarfirði. Að sögn lögreglu í Hafnarfirði stöðvaðist vagninn strax og urðu engin slys á fólki og litlar sem engar skemmdir á umferðarmannvirkjum. 4.11.2005 15:00
Gjöld bæjarins 20-30 milljónum meiri en búist var við Útlit er fyrir að gjöld Ísafjarðarbæjar á yfirstandandi rekstrarári fari tugir milljóna fram úr áætlun. Halldór Halldórsson bæjarstjóri segir í samtali við Bæjarins besta að þetta stafi af auknum launakostnaði sem stefni í að verða 20 til 30 milljónum króna meiri en gert var ráð fyrir. 4.11.2005 14:14
Ekki hægt að leita um borð í öllum skipum Tollgæslan fylgist með öllum skipum sem koma til landsins þótt eftirlit með einstökum skipum sé mismikil. Þegar upp koma stór smyglmál líkt og í Noregi í fyrradag, er fylgst náið með umræddum skipum og ferðum þeirra til landsins. Fjölmörg skip koma til landsins og því erfitt að framkvæma ítarlega leit um borð í þeim öllum. 4.11.2005 14:07
Kosið um sameiningu á morgun Kosningar um tvær sameiningartillögur sveitarfélaga fara fram á morgun. Í Aðaldælahreppi, Kelduneshreppi, Skútustaðahreppi og Tjörneshreppi verður kosið um sameiningu þessara sveitarfélaga við Húsavíkurbæ, Raufarhafnarhrepp og Öxarfjarðarhrepp, og í Reykhólahreppi verður kosið um sameiningu við Dalabyggð og Saurbæjarhrepp. 4.11.2005 14:05
Formaður hvetur KR-inga til að kjósa Guðjón Guðmundsson, formaður KR, hvetur KR-inga til að kjósa í prófkjöri sjálfstæðismanna tvo tiltekna frambjóðendur sem bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem hóst í dag. 4.11.2005 13:35
Rannsókn á lokastigi Rannsókn á fíkniefnasmygli með póstsendingum er á lokastigi. Karli og konu sem dæmd voru í gæsluvarðhald nýverið hefur verið sleppt. Búist er við að ákæra verði lögð fram um leið og rannsókn málsins lýkur. 4.11.2005 13:30
Vísað tvisvar út sama kvöldið Lögreglan í Keflavík vísaði sömu fimmtán ára stúlkunni út af tveimur vínveitingastöðum í bænum í nótt. Á einum staðnum voru þrjú ungmenni undir 18 ára aldri og þeirra á meðal stúlkan. Þeim var vísað út en þegar lögreglan kom á næsta stað mætti hún stúlkunni þar galvaskri, og var henni aftur vísað út. 4.11.2005 13:23
Starfsmannaleigan Inter-Galaxy á leið til Íslands Hollenska starfsmannaleigan Inter-Galaxy hefur hafið undirbúning að stofnun útibús hér á landi. Forstjóri fyrirtækisins, Charles Ezedi, hefur staðfest þetta við fréttastofu. 4.11.2005 13:00
Stúlka féll af hestbaki Stúlka féll af hestbaki í Hrunamannahreppi nú eftir hádegið og lenti á höfðinu. Ástæða þótti til að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja stúlkuna á sjúkrahús. Ekki er meira vitað um málið að svo stöddu. 4.11.2005 12:54
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja taki að sér sjúkrahússþjónustu fyrir Varnarliðið Verið er að kanna möguleika á því að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja taki að sér sjúkrahússþjónustu fyrir Varnarliðið þegar flugherinn tekur við herstöðinni af sjóhernum. Nú þegar er samstarf á milli sjúkrahússins í Keflavík og á Vellinum á vissum sviðum og gæti það aukist til muna á næstunni. 4.11.2005 12:16
Kanna hvort verktakar fari að lögum Forsvarsmenn Norðuráls á Grundartanga og fulltrúar þeirra stéttarfélaga sem eiga aðild að kjarasamningi við Norðurál funduðu í morgun um málefni þeirra erlendu starfsmanna sem vinna við stækkun Norðuráls hjá ýmsum verktökum á Grundartangasvæðinu. 4.11.2005 11:26
Ágreiningur um kjör í stjórn Framsóknarmenn í Reykjavík ætla að efna til opins prófkjörs vegna borgarstjórnarkosninganna í vor. Stuðningyfirlýsing við Framsóknarflokkinn dugir til að vera gjaldgengur í prófkjörinu. Fundur í kjördæmaráði Reykjavíkurkjördæmis-suður leystist upp í gær vegna ágreinings um kjör í stjórn. 4.11.2005 10:42
Bjórbruggverksmiðja rís á Litla Árskógssandi Reisa á bruggverksmiðju á Litla Árskógssandi við Eyjafjörð innan tíðar og framleiða þar áfengan bjór. Hjónin Agnes Sigurðardóttir og Ólafur Þröstur Ólafsson eru á förum til Tékklands til að kaupa áhöld til framleiðslunnar. Reist verður 300 fermetra stálgrindarhús yfir framleiðsluna og er stefnt að því að brugga 200 þúsund lítra af bjór á ári. 4.11.2005 10:39
Skulda mest á aldrinum 36-40 ára Hjón og sambýlisfólk á aldrinum 36 til 40 ára skulda að jafnaði mest samkvæmt samantekt Hagstofunnar, eða 13 milljónir króna að meðaltali. Af þeim skuldum eru rúm 68 prósent vegna húsnæðis. 4.11.2005 09:09
Hefur hlotið 25 dóma á 15 árum Síbrotamaður var dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir ítrekuð þjófnaðarbrot í Hæstarétti í gær. Braust maðurinn bæði inn í bíla og verslanir og stal þaðan verðmætum. Frá árinu 1990 til ársins 2004 hefur maðurinn samtals 25 sinnum hlotið refsidóma fyrir brot á hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. 4.11.2005 07:53
Ný tegund ökuréttinda vegna pallbíla Byrjað er að bjóða upp á nýja tegund ökuréttinda til þess að koma til móts við þá sem eiga pallbíla, en margir bílanna eru það þungir að almenn ökuréttindi duga ekki til. 4.11.2005 07:45
Útfæði erlends gjaldeyris frá landinu Talsvert útflæði erlends gjaldeyris var frá landinu í september síðastliðnum. Stafar það aðallega af erlendum verðbréfakaupum innlendra aðila. Einnig má gera ráð fyrir aukinni sölu íslenskra skuldabréfa til erlendra aðila á næstu misserum. 4.11.2005 07:30
KB banki hækki sjálfur vexti Búast má við að vextir á íbúðalánum Íbúðalánasjóðs hækki í árslok. Hallur Magnússon, sviðsstjóri þróunarsviðs hjá Íbúðalánasjóði, segir samt nær fyrir KB banka að hækka vexti á sínum lánum. Þenslan sé jú sprottin upp úr óheftum lánum bankanna. 4.11.2005 07:15
Bandarísk stjórnvöld hafi leyfi íslenskra til fangaflugs Össur Skarphéðinsson fullyrðir á heimasíðu sinni að bandarísk stjórnvöld hafi formlegt leyfi íslenskra stjórnvalda til að fljúga með meinta hermdarverkamenn í haldi um Ísland. Þetta megi lesa út úr yfirlýsingu Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra, frá 18. mars 2003, sem birt hafi verið á vef Hvíta Hússins 26. mars sama ár. 4.11.2005 07:15
Borgin krefst hærra verðs Mikið ber í milli í viðræðum fulltrúa ríkisins og Reykjavíkurborgar um sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun, en farið var yfir stöðu málsins á fundi borgarráðs í gær. 4.11.2005 07:00
Vill láta kæra hugverkastuld Framkvæmdastjóra Smáís er farið að lengja eftir niðurstöðu í rannsókn lögreglu á meintum ólöglegum skráaskiptum á netinu. Hann vill fá ákæru. 4.11.2005 07:00
Bóksalinn í Kabúl óskar eftir hæli í Noregi Bóksalinn í Kabúl, Shah Mohammad Rais, hefur óskað eftir pólitísku hæli í Noregi en norsk stjórnvöld eru treg til að veita honum það. 4.11.2005 07:00
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfaranda á Selfossi í gær. Stúlkan var til öryggis flutt á Landspítala háskólasjúkrahús í Fossvogi. 4.11.2005 07:00
Prófkjör hefst í dag í borginni Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hefst í dag og er búist við mikilli þátttöku. 4.11.2005 06:45