Fleiri fréttir

Framtíðin ekki endilega á Hlemmi

Sólmundur Már Jónsson, framkvæmdastjóri rekstar- og þjónustusviðs lögreglunnar í Reykjavík, varpaði fram þeirri hugmynd á fundi um skipulagsmál við Hlemm í vikunni að lögreglustöðin gæti vel flutt sig um set ef þurfa þætti.

Mótmæltu seinagangi kerfisins

Átta flóttamenn frá fjölmörgum löndum mótmæltu á götum Reykjanesbæjar í dag. Þeir hafa dvalið á gistiheimili í bænum undanfarna mánuði og mótmæla seinagangi kerfisins; segja íslensk stjórnvöld ekki líta á sig sem mannverur.

Lögmaður borgi sex milljónir

Hæstaréttarlögmaður í Reykjavík þarf að greiða verðbréfafyrirtæki 6 milljónir króna, auk dráttarvaxta og 400 þúsund króna í málskostnað, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær.

Fimm hlutu dóm í Dettifossmáli

Fjórir voru fengu fangelsisdóma í seinni hluta svonefnds Dettifossmáls í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þyngstu dómarnir námu sex og hálfu og sex árum. Þá fékk maður hálfsársdóm, kona fjóra mánuði skilorðsbundna og einn fékk 40 þúsund króna sekt. Smyglararnir þurfa að borga fyrir efnarannsókn á eiturlyfjunum sem þeir voru gripnir með.

Borgin bætir stuld af fötluðum

Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að vísa til lögreglu meintum fjárdrætti starfsmanns borgarinnar úr heimilissjóði íbúa á heimili ætluðu fötluðum.

Söngur dans og leikur

Kirkjudagar þjóðkirkjunnar hófust í gær á Skólavörðuholti í Reykjavík og standa áfram með fjölbreyttri dagskrá í dag, frá hádegi fram til klukkan sex. Í boði er margvísleg skemmtan fyrir börn og unglinga, auk þess sem fjöldi hópa kynnir kirkjustarf sitt.

Grænar baunir og torfæra

Um þessar mundir standa nokkur bæjar- og sveitarfélög fyrir uppákomum um helgina sem laðað geta að ferðamenn. Til dæmis eru hátíðarhöld á Bíldudal og á Flúðum.

Bílstjórar sjá ekki merkin

Lögreglan í Ólafsvík tók tíu ökumenn fyrir of hraðan akstur, á vegaköflum þar sem vegaframkvæmdir stóðu yfir og búið að lækka hámarkshraða í 50 kílómetra á klukkustund, eftir kvöldmat á fimmtudag. Nokkuð var um að rúður brotnuðu í bílum vegna grjótkasts.

Fékk refsilækkun fyrir aðstoðina

64 ára gömul hollensk kona sem gripin var í Leifsstöð með 759 grömm af kókíni falin í sérsaumaðri hárkollu fékk refsingu mildaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, vegna þess hve hún var samvinnuþýð við lögreglu. Konan var dæmd í eins og hálfs árs fangelsi.

Kona lá í skurði fram á morgun

Um klukkan átta í gærmorgun fannst kona um fimmtugt sem horfið hafi heiman frá sér á bæ í nágrenni Blönduóss eftir miðnætti kvöldið áður. Konan, sem átt hefur við vanheilsu að stríða, gerði sjálf vart við sig þar sem hún lá í skurði um 150 metra frá heimili sínu.

Fylgi Framsóknar fimm prósent

Fylgi Framsóknarflokksins í Reykjavík er minna en fimm prósent samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup frá því í byrjun mánaðarins. Í könnuninni mældist fylgi flokksins í sögulegu lágmarki eða átta og hálfu prósenti á landsvísu sem er minna en helmingur af kjörfylgi flokksins í síðustu alþingiskosningum.

Vill kosningar um stækkun álvers

Alcan á að leggja til hliðar áform sín um að stækka álverið í Straumsvík. Þetta segir umhverfisnefnd Hafnarfjarðar. Stækkunin gæti orðið að pólitísku hitamáli, en fulltrúi í umhverfisnefnd vill að bæjarbúar kjósi um hana í haust.

Neyðast til að kveðja í kyrrþey

Kostnaður vegna jarðarfara og erfidrykkju er orðinn svo mikill að margir neyðast til að kveðja látna ástvini í kyrrþey. Kirkjan segir það óheillaþróun að jarðarfarir reynist mörgum fjárhagslegur baggi.

Hugsanlegt að áminna forstöðumenn

Fjármálaráðherra segir að til greina komi að áminna forstöðumenn stofnana, sem fara fram úr á fjárlögum, en ekki að frysta launagreiðslur til þeirra, eins og lagt er til í skýrslu Ríkisendurskoðanda.

Umferðaröryggi eykst með göngum

Umferðaröryggi á Suðausturlandi jókst til muna í dag þegar göng undir Almannaskarð voru opnuð. Verkið kostaði minna en gert var ráð fyrir og lauk rúmum þremur mánuðum á undan áætlun.

Flóttamenn mótmæla

Níu flóttamenn sem dvelja á tveimur gistiheimilum í Reykjanesbæ mótmæltu í gær meðferð íslenskra stjórnvalda á þeim. Flóttamennirnir, sem allir hafa sótt um atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi, segja aðbúnað sinn lélegan og undrast hversu hægt gangi að vinna úr þeirra málum.

Refaferðir á Vestfjörðum eftir ár

Skipulagðar refaferðir verða boðnar í fyrsta skipti á Íslandi næsta sumar. Áfangastaðurinn er Vestfirðir, þar sem þá flesta er að finna, um eitt hundrað talsins. Þessi spöku dýr sem kunna vel að meta þegar að þeim er réttur harðfiskur eða pylsur.

Eldur í húsi við Grettisgötu

Lið frá öllum slökkviliðsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu var kallað á vettvang eftir að mikill eldur gaus upp í tvílyftu bakhúsi við Grettisgötu laust fyrir klukkan eitt í nótt. Þegar slökkvilið kom á vettvang var húsið, sem er járnklætt timburhús, nær alelda.

Sama konan í tveimur ránum?

Flest bendir til að ein og sama unga og ljóshærða konan hafi staðið að tveimur ránum á höfuðborgarsvæinu seint í gærkvöldi. Fyrst ógnaði hún starfsstúlku á American Style í Kópavogi með steikarhnífi á tólfta tímanum í gærkvöldi og heimtaði peninga.

Gagnrýnir útboð Herjólfs

Grímur Gíslason, fyrrverandi formaður Herjólfs, gagnrýnir vinnubrögð Vegagerðarinnar vegna útboðs Herjólfs árið 2000. Vegagerðin neitaði honum sífellt um gögn um tilboð Samskipa og Herjólfs í reksturinn þar til úrskurðarnefnd um upplýsingamál skipaði henni að afhenda þau.

Meira en 10% af landsframleiðslu

Ísland er eitt sex ríkja innan OECD þar sem útgjöld til heilbrigðismála nema meira en tíu prósentum af landsframleiðslu. Meðalútgjöld til heilbrigðismála á hvern einstakling hér á landi eru um 200 þúsund krónur á ári og alls nema útgjöld til málaflokksins 10,5 prósentum af landsframleiðslu.

Aron Pálmi: Nefndinni sent erindi

Stuðningsnefnd Arons Pálma Ágústssonar hefur sent náðunar- og reynslulausnarnefnd Texasfylkis sérstakt erindi þar sem þess er farið á leit að fyrirtaka á máli Arons Pálma verði flýtt, honum veitt ferðafrelsi og leyft að fara til Íslands sem fyrst.

59% samþykktu kjarasamninginn

Starfsmannafélag Hafnarfjarðar hefur samþykkt kjarasamning félagsins við Hafnarfjarðarbæ með tæplega 60% greiddra atkvæða. Um 20 % félagsmanna, eða 113 manns, tóku þátt í atkvæðagreiðslu um samninginn. Atkvæði fóru þannig: Já sögðu 67 eða 59%, nei sögðu 45 eða 40%, einn seðill var auður eða 1%.

Friðarumleitanir efst á baugi

Friðarumleitanir í Miðausturlöndum verða efst á baugi á fundi utanríkisráðherra átta stærstu iðnríkja heims sem hófst í Lundúnum í morgun. Fundurinn fylgir í kjölfar heimsóknar Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Miðausturlanda en líklegt þykir að áform Ísraela um brottflutning frá Gaza-svæðinu verði aðallega rædd.

Enn óvíst um eldsupptök

Enn er allt á huldu um eldsupptök í bakhúsi við Grettisgötu sem stórskemmdist í eldi í nótt en rannsókn er haldið áfram.

Eitt tjald risið við Kárahnjúka

Aðeins eitt tjald virðist risið við Kárahnjúka þar sem mótælendur sögðust ætla að reisa tjaldbúðir. Kalt hefur verið á Kárahnjúkum undanfarna daga og hitinn þar var aðeins um tvær gráður í nótt.

Ágúst fagnar niðurstöðunni

Nýkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar fagnar niðurstöðu framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar um að ekkert hafi verið málum blandið varðandi kosningar á landsfundi flokksins. Hörð gagnrýni kom fram á varaformannskosningarnar á landsfundinum. 

Peningar hrannast upp hjá öðrum

Á sama tíma og rekstrarhalli margra ríkisstofnana hleðst upp ár frá ári vegna útgjalda umfram heimildir í fjárlögum hrannast upp peningar hjá öðrum ríkisstofnunum sem ár eftir ár fá fjárveitingar langt umfram fjárþörf. Þetta kemur meðal annars fram í skýrslu Ríkisendurskoðanda um framkvæmd fjárlaga.

Dæmdur til 300 þúsund króna sektar

Tuttugu og þriggja ára karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness í morgun dæmdur til 300 þúsund króna sektar fyrir að hafa í fórum sínum tæp þrjú grömm af kókaíni og ríflega hálft gramm af amfetamíni, auk þess að hafa ítrekað gerst sekur um umferðalagabrot. Þá var maðurinn einnig sviptur ökuleyfi í tvö ár.

Forkastanlegar ábendingar

Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir ábendingar Ríkisendurskoðunar um að breyta þurfi lögum um réttindi og skyldur, svo frysta megi launagreiðslur starfsmanna þeirra stofnana sem fari fram úr fjárlagaheimildum, vera forkastanlegar.

Konan fundin

Ung kona sem framdi tvö vopnuð rán um miðnæturbil í gærkvöldi er komin í leitirnar. Þá hefur lögreglan einnig haft hendur í hári manns sem hótaði starfsmanni Lyfs og heilsu við Háaleitisbraut fyrir helgi. Konan notaðist við sprautunál í öðru ráninu í gær líkt og maðurinn gerði.

Björgunarbátur kallaður út í Eyjum

Björgunarbáturinn Þór frá Vestmannaeyjum var kallaður út klukkan 12.37 til að aðstoða bát sem fengið hafði mikinn sjó um borð við Stóraörn. Þór var kominn að bátnum rúmum stundarfjórðungi síðar og dró hann til hafnar.

Þróunarsamvinna við Srí Lanka

Tvíhliða samningur um þróunarsamvinnu Íslands við Srí Lanka var undirritaður í Kólombó, höfuðborg Srí Lanka, í dag. Samningurinn er til fimm ára og nemur framlag Íslands til þróunarstarfs í landinu á þessu ári 75 milljónum króna.

Farþegum fjölgaði um 16,1%

Farþegum í millilandaflugi Icelandair fjölgaði um 16,1% í maí miðað við sama mánuð í fyrra. Á fyrstu fimm mánuðum ársins hefur farþegum Icelandair fjölgað um 11,5% á milli ára, eru nú 484 þúsund en voru 434 þúsund á sama tíma í fyrra.

Engin ástæða til að óttast skort

Lambakjötsbirgðir í landinu eru nægar til að anna eftirspurn þangað til ferskt kjöt kemur aftur á markaðinn í september að mati sérfræðinga hjá Bændasamtökunum og engin ástæða til að óttast skort í sumar.

Ahern og Davíð ræddust við

Davíð Oddsson utanríkisráðherra og Dermot Ahern, utanríkisráðherra Írlands og sérlegur fullrúi Kofi Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, hittust að máli í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu síðdegis. Ahern er staddur hér á landi til að ræða við íslensk stjórnvöld um fyrirhugaðar endurbætur á Sameinuðu þjóðunum.

Gæslumenn framtíðarinnar

Heppnir og áhugasamir tíundubekkingar um land allt eru nú sem fyrr varðskipsnemar hjá Landhelgisgæslunni. Á dögunum kom varðskipið Týr í höfn í Reykjavík með sex krakka sem dvalið höfðu um borð í fimmtán daga.

Gæsluvarðhaldið framlengt

Gæsluvarðhald yfir erlendu pari, sem er talið hafa flutt tvo bílaleigubíla úr landi með Norrænu og er auk þess grunað um fjárdrátt og skjalafals, hefur verið framlengt til 30. júní. Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi varðhaldið að kröfu lögreglunnar.

Esso lét undan þrýstingi

Olíufélagið Esso mun að öllum líkindum opna að nýju bensínsölu félagsins í Bjarkarlundi eftir ákafan þrýsting frá íbúum og samtökum á Vestfjörðum.

Samningur við kínverskan háskóla

Háskólinn á Akureyri hefur undirritað samstarfssamning við China University of Political Science and Law í Peking. Í tilkynningu frá Háskólanum á Akureyri segir að samningurinn taki fyrst og fremst til félagsvísinda- og lagadeildar skólans og kveði á um nemenda- og kennaraskipti á komandi misserum.

Mál F.f. þingfest í dag

Mál ríkislögreglustjóra gegn tíu stjórnendum Frjálsrar fjölmiðlunar og dótturfyrirtækja var í dag þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Frjáls fjölmiðlun fór á hausinn fyrir þremur árum og var gjaldþrotið eitt hið stærsta í íslenskri viðskiptasögu. Kröfur í þrotabúið námu um 2,2 milljörðum króna en aðeins fengust um 300 milljónir upp í kröfurnar.

Næstdýrast hér á landi

Það er næstdýrast að nota farsíma á Íslandi af Norðurlöndunum. Samkvæmt könnun sem breska greiningarfyrirtækið Teligen gerði nýlega er dýrast að nota farsíma í Noregi í norrænum samanburði en næstdýrast hér á landi.

Stefán Jón formaður borgarráðs

Stefán Jón Hafstein var í dag kjörinn formaður borgarráðs og mun hann gegna embættinu til loka kjörtímabilsins. Hann tekur við af Alfreð Þorsteinssyni sem hefur verið formaður ráðsins frá árinu 2003. Björk Vilhelmsdóttir var kjörinn varaformaður. Stefán Jón var kjörinn í borgarstjórn 2002 og er hann formaður Menntaráðs og Menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar.

Ný skattlagning á bíleigendur

Nýupptekin bílastæðisgjöld við Leifsstöð eru að mati Félags íslenskra bifreiðareigenda ekkert annað en nýr skattur á bíleigendur.

Sjá næstu 50 fréttir