Fleiri fréttir

Boða byltingu í meðferð geðsjúkra

Hópur geðsjúkra í Hugarafli boðar byltingu í meðferð geðsjúkra, eftir að hafa unnið verkefni á geðdeildum Landspítala. Sviðsstjóri á geðsviði leggur til að gengið verði í lagfæringar á atriðum sem bent er á í niðurstöðum verkefnisins. </font /></b />

Actavis mótmælir ásökunum

Actavis hefur vísað á bug fullyrðingum Starfsgreinasambands Íslands þess efnis að félagið kúgi starfsmenn sína í Búlgaríu og brjóti á þeim. Í tilkynningu frá Actavis segir að á síðasta ári hafi fyrirtækið þurft að segja upp starfsmönnum í Búlgaríu, en ekki hafi verið hafðar uppi neinar hótanir, eins og formaður Starfsgreinasambandsins lýsti yfir í fréttum Stöðvar 2 í gær.

Sóbakssamningurinn fyrir Félagsdóm

Framkvæmdastjórn Sjómannasambands Íslands ákvað í dag að fara með Sólbakssamninginn svokallaða fyrir Félagsdóm til að freista þess að fá ákvæði hans sem brjóta í bága við gildandi kjarasamning milli SSÍ og LÍÚ dæmd ógild.

Bara hluti framkvæmda stöðvaður

Byggingarfulltrúinn í Reykjavík gerði í dag framkvæmdaraðilum nýs hótels sem rísa á í gamla Eimskipahúsinu skylt að stöðva framkvæmdir við endurnýjun innveggja í húsinu. Að öðru leyti hafnaði Byggingarfulltrúinn kröfum nágranna hússins um stöðvun framkvæmda. töluvert er síðan byrjað var að bóka inn á hótelið og er gert ráð fyrir að það opni í mars á næsta ári.

Guðjón nýr framkvæmdastjóri

Guðjón Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sparisjóða og tekur hann við framkvæmdastjórastarfinu af Sigurði Hafstein 1. nóvember Þetta kom fram á aðalfundi Sambands íslenskra sparisjóða í dag, föstudaginn 15. október.

Of lágar greiðslur til Torfastaða

Félagsmálaráðuneytið telur hvorki raunhæft né ráðlegt að mæla með því að Barnaverndarstofa og meðferðarheimilið á Torfastöðum geri nýjan samning um áframhaldandi rekstur. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar fyrir Félagsmálaráðuneytið sem birt var í gær.

Brot olíufélaganna sögð fyrnd

Olíufélögin halda því fram að meint brot á samkeppnislögum á rúmlega sjö ára tímabili af níu sem Samkeppnisstofnun rannsakar séu fyrnd. Dómur hæstaréttar í grænmetismálinu svokallaða er sagður styðja staðhæfingu olíufélaganna. </font /></b />

Skilur ekki ráðningu þessa manns

Stúlkan sem sakaði föður sinn um kynferðisofbeldi í prófessorsmálinu svokallaða hvetur fórnarlömb í slíkum málum til að kæra þau ekki á meðan Jón Steinar Gunnlaugsson situr í Hæstarétti.

Sagðist vera systir sín

Tæplega þrítug kona var dæmd, í Héraðsdómi Reykjavíkur, í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að aka ölvuð og þykjast vera systir sín þegar lögreglan stöðvaði hana.

Hélt hnífi að hálsi konu

Rétt rúmlega tvítugur maður hefur verið ákærður af Ríkissaksóknara fyrir vopnað rán, ásamt óþekktum samverkamanni, í myndbandaleigu í mars 2002. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Ákærðir fyrir hasssmygl

22 ára maður er ákærður af Ríkissaksóknara fyrir innflutning á samtals fimmtán kílóum af hassi í þremur skipaferðum frá Danmörku frá júní í fyrra þar til í janúar á þessu ári. Þrír menn eru ákærðir fyrir að hafa staðið að innflutningnum að hluta með manninum. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Geðsjúkum fanga vísað á brott

Geðsjúkum kvenfanga var vísað frá geðdeild Landspítala eftir klukkustundardvöl þar, þrátt fyrir tvær alvarlegar sjálfsvígstilraunir. Landlæknir rannsakar málið. Sex til átta fangar í íslenskum fangelsum eru í raun ófærir um að afplána refsingu sína þar inni.

Haldið sofandi

Maður slasaðist alvarlega eftir að hafa ekið út af með þeim afleiðingum að bíll hans valt á Biskupstungnavegi í Þrastarskógi, rétt ofan við Þrastarlund, um hálf sjöleytið í gærmorgun.

Nýr flugrisi tekur til starfa

Nýr risi á alþjóðlegum flugmarkaði, Avion Group, tekur til starfa hér á landi um áramótin. Félagið mun eiga 63 breiðþotur. Áætluð heildarvelta er 72 milljarðar króna, sem er tvöfalt meira en velta Flugleiða, og er stefnt að skráningu félagsins í Kauphöll Íslands.

Jafnræðis ekki gætt

Fulltrúi launanefndar sveitarfélaga í undanþágunefnd vegna verkfalls grunnskólakennara, sakar fulltrúa kennara í nefndinni um að gæta ekki jafnræðis við afgreiðslu á undanþágum vegna fatlaðra barna. Digranesskóla var veitt undanþága í dag vegna sérdeildar fyrir einhverfa.

Barðist við samvisku sína og vann

"Ég reykti í átján mánuði. Ég er rétt rúmlega sextíu og tveggja ára og byrjaði að reykja þegar ég vann í tóbaksiðnaðinum," segir Jeffrey Wigand, prófessor og lífefnafræðingur. Hann berst nú geng fyrrum vinnuveitendum sínum og vill banna reykingar á veitingastöðum.

Skilur ekki doðann í fólki

Þjóðfélagið hefði farið á annan endann eftir nokkurra daga mjólkurskort segir Andri Snær Magnason, faðir grunnskóladrengs í Reykjavík. Hann skilur ekki hvers vegna fjögurra vikna verkfall grunnskólakennara veldur ekki meira uppnámi en raun ber vitni. Að hans mati hafa grunnskólabörn nú liðið andlegan næringarskort í mánuð.

26. dagur verkfalls

Ákveðið hefur verið að kennarar í sérdeild Digranesskóla fái full laun svo vandi fjölskyldna fatlaðra barna við skólann leysist.

Fá 14 milljónir í bætur

Félagsmálaráðherra ætlar að beita sér fyrir því að hjónin á Torfastöðum fái allt að því fjórtán milljónir króna í bætur þar sem meðferðarheimili þeirra hafi augljóslega fengið minna greitt frá ríkinu en önnur sambærileg heimili. Hann segir skarð fyrir skildi að samningi heimilisins við Barnaverndarstofu hafi verið sagt upp.

Góða skapið læknar

Það getur haft góð áhrif á heilsuna að vera í góðu skapi. Læknar og vísindamenn rannsaka nú í æ ríkari mæli tengsl skapferlis og líkamlegrar heilsu.

400 manna hverfi að rísa

Framkvæmdir við nýtt fjögur hundruð manna hverfi á Egilsstöðum hefjast um mánaðamótin. Fyrstu íbúðirnar verða tilbúnar næsta vor. Votihvammur, hverfið nýja er í nágranni Eyvindarár norðan núverandi byggðar á Egilsstöðum. Í hádeginu í dag voru undirritaðir samningar á milli Austur - Héraðs og Íslenskra aðalverktaka um byggingu þess.

Nýr línuhraðall tekinn í notkun

Nýr línuhraðall var tekinn í notkun á geislameðferðardeild krabbameinslækninga á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í dag. Tækið kostar hundrað og sjötíu milljónir króna og bætir árangur við geislameðferð til muna.Um það bil fjörtíu leggjast í þennan línuhraðall á degi hverjum. Á síðasta ári fóru 450 sjúklingar rúmlega níu þúsund heimsóknir í forvera þessa tækis.

Fjölmiðlanefnd láti RÚV eiga sig

Ekki á að leita þverpólitískrar sáttar um breytingar á RÚV. Nýja fjölmiðlanefnd Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur á að skoða stöðu RÚV í samhengi við aðra miðla en ekki gera tillögur um breytingar þar sem það sé verkefni stjórnarflokkanna einna. Nefndin á að gera tillögur um lagabreytingar á öðrum sviðum og er stefnt að sátt. Nánar í DV í dag.

Áræði og metnaður í alþjóðamálum

Á næstu fjórum árum munu íslensk stjórnvöld safna atkvæðum meðal aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna vegna framboðs Íslands til setu í Öryggisráðinu. Verkefnið er í senn umfangsmikið og metnaðarfullt en óvíst er hvort markmiðið náist. Ávinningur Íslands af setu í ráðinu yrði mikill.</font /></b />

Væntir svara um ferðalög geðlækna

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir boðsferðir lækna með lyfjafyrirtækjum vera varasamar, en hann telur læknum treystandi til að rugla ekki saman sölumennsku og þekkingaröflun. Hann segir eðlilegt að Jóhannes M. Gunnarsson, forstjóri Landspítalans, svari því nú í kjölfar umræðu hver staða þessar mála sé innan spítalans. Nánar í DV í dag.

Eftirlit með Rússaskipum stórhert

Landhelgisgæslan stóreykur eftirlit með rússnesku herskipunum. Háttsettur rússneskur herforningi segir "no comment" um hugsanlega bilun í Pétri Mikla. Rússneski hernaðarsérfæðingurinn Pavel Felgenhauer segir: "Guð hjálpi öllum ef eitthvað vesen er komið þarna upp." Ögmundur Jónasson segir skipin ógna öryggi okkar. Sjá DV í dag.

Kerry og brjálaður klikkhaus

  Vika er langur tími í pólítik. En ef smellt er á flipann "samþykkt lagafrumvörp" á 31. löggjafarþingi Íslendinga á Althingi.is kemur í ljós að eftir tveggja vikna löggjafarstarf liggur ekkert eftir Alþingi.

Einn enn handtekinn

Maður á fimmtugsaldri var handtekinn á fimmtudagsmorgun og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í gær. Handtakan var í tengslum við rannsókn á umfangsmiklu fíkniefnasmygli hingað til lands þar sem fíkniefnum var smyglað í tveimur sendingum með Dettifossi auk þess sem um tvö þúsund e-töflum var smyglað til landsins í pósti.

Fylgdu hrefnu að flæmska hattinum

Fjögur af sjö staðsetningamerkjum sem náðist að festa í bak hrefna, í vísindarannsóknum Hafrannsóknastofnunarinnar á vetursetu skíðishvala, hafa gefið frá sér upplýsingar.

Eldur í Þjóðleikhúsinu

Eldur kom upp í Þjóðleikhúsinu fyrir stundu. Allt tiltækt slökkvilið er á staðnum og hafa slökkviliðsmenn náð tökum á eldinum. Verið er að reykræsta húsið.

Barnastólar innkallaðir

IKEA hefur innkallað Färgglad barnastóla þar sem hætta er á að plasttappar á stólfótunum geti losnað af og það leitt til köfnunarhættu fyrir börn ef þau stinga töppunum upp í sig.

Efla menningu á landsbyggðinni

Efla á menningu á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt viljayfirlýsingu sem undirrituð var í vikunni.

Sólbakssamningur fyrir félagsdóm

Framkvæmdastjórn Sjómannasambands Íslands ákvað á fundi í gær að fara með Sólbakssamninginn svokallaða fyrir Félagsdóm.

Veiði dróst saman í september

Heildarafli íslenskra skipa í september var 62.800 tonn, sem er 32.000 tonnum minna en í september í fyrra samkvæmt Hagstofu Íslands.

Nítján undanþágubeiðnum hafnað

Aðeins ein undanþágubeiðni var samþykkt á fundi undanþágunefndar kennara og sveitarfélaga í gærkvöldi. Nítján var hafnað og afgreiðslu á einni var frestað vegna skorts á upplýsingum.

Hótaði lögreglu með hníf

Innbrotsþjófur í bíla dró upp hníf og hótaði lögreglumönnum þegar hann var kominn í sjálfheldu lögreglunnar í Bústaðahverfi í nótt. Ekki kom þó til þess að hann beitti hnífnum því þegar lögreglumenn dróu upp kylfur, og skipuðu honum að leggja frá sér hnífinn, gerði hann það.

Engin hreyfing á skipunum

Engin hreyfing var á rússnesku herskipunum sjö út af Þistilfirði í nótt svo vitað sé. Talsmenn flotans segjast ætla að halda á brott á sunnudag en frekari skýringar hafa þeir ekki gefið á ferðum sínum hér við land.

Veturinn minnir á sig

Veturinn minnti á sig á heiðum á Vestfjörðum í gærkvöldi með snjókomu og ófærð. Fólk sem átti leið um Hrafnseyrarheiði festi bíl sinn og var kallað á hjálparsveit frá Flateyri til að hjálpa fólkinu til byggða og gekk það vel. Slabb og krapi er á vegum á láglendi en þæfingur kann að vera sumstaðar á heiðum.

ASÍ ósamkvæmt sjálfu sér

Óskari Stefánssyni, formanni Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis, finnst sérkennilegt að Alþýðusambandið beiti sér gegn samningum Sólbaksmanna fyrst að sambandið aðhafðist ekki þegar samið var framhjá Sleipni á sínum tíma.

Hagnaður ríkissjóðs 1 milljarður

Óvæntur hagnaður ríkissjóðs af eldsneytishækkunum á heimsmarkaði á þessu ári gæti orðið allt að einn milljarður króna vegna innheimtu virðisaukaskatts af hverjum eldsneytislítra. Frá áramótum hefur bensínlítrinn hækkað um rúmar þrettán krónur og gasolíulítrinn um um það bil ellefu krónur.

Sorpfjallið of hátt

Óðum styttist í að Sorpstöð Suðurlands verði lokað, eins og staðan er í dag.

Grásleppuskúrarnir standi

Unnið er varðveislu gömlu grásleppuskúranna við Ægisíðu sem þar hafa staðið í áratugi. Sagnfræðingar og embættismenn borgarinnar eru sammála um gildi skúranna fyrir menningarsögu borgarinnar. Hætt var að róa frá Ægisíðunni fyrir fimm árum. </font /></b />

Sjöundi maðurinn handtekinn

Sjöundi maðurinn var handtekinn í gær vegna rannsóknar á umfangsmiklu smygli á kókaíni, amfetamíni og LSD með Dettifossi. Tveimur hefur verið sleppt úr haldi.

Hissa á fjárfestingum Símans

Landssíminn ræður nú rúmum helmingshlut í sjónvarpsstöðinni Skjá einum. Allt er enn óljóst um hvort Síminn verður seldur á næstunni. Þingflokksformaður Framsóknar segist enn sem fyrr hissa á fjárfestingum Símans. Formaður Samfylkingar segir Sjálfstæðisflokkinn misnota aðstöðu sína til að ná undirtökunum á fjölmiðlamarkaði.

Sjá næstu 50 fréttir