Fleiri fréttir

Búbót af álaveiðum

Kjartan Halldórsson, fiskverkandi og fisksali í fiskbúðinni Sægreifanum í Reykjavík auglýsir eftir bændum til að veiða fyrir sig ál, að því er frá greinir í nýjasta tölublaði Bændablaðsins.

Atvinnulausum fækkar

2,6 prósent landsmanna voru atvinnulaus í september og hefur ekki lækkað meira milli mánaða mjög lengi. Atvinnulausir eru nú færri en á sama tíma fyrir ári.

Lögreglan afhendir ekki myndband

Barnaverndarstofa hefur óskað eftir umsögn Persónuverndar vegna tregðu Lögreglustjórans í Reykjavík við að afhenda myndbandsupptökur af skýrslutökum í kynferðisafbrotamálum.

Endurkjör Bush þýðir klofning

Franski blaðamaðurinn og stjórnmálaskýrandinn Jacques Julliard segir að mikið sé í húfi fyrir framtíðarsamskipti Evrópu og Bandaríkjanna í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Hann segist ekki hafa séð aðrar eins vinsældir og hjá John Kerry frá því Kennedy var og hét. </font /></b />

Borgarstjóri kannar mengun

Þórólfur Árnason, borgarstjóri, hefur falið Umhverfis- og heilbrigðisstofu borgarinnar að fjalla um opið bréf Odds Benediktssonar, prófessors, þar sem kemur fram að losun brennisteinstvíildis á höfuðborgarsvæðinu muni nær tvöfaldast á næstu árum.

Framsókn norður vill úr R-listanum

Félagar í Framsóknarflokknum í Reykjavík virðast í auknum mæli vilja framboð B-lista í næstu borgarstjórnarkosningum. Forystumaður vill ekki framboð undir merkjum Reykjavíkurlista.

Ábendingar um barnaklám hér

Fjórtán ábendingar um barnaklám, sem vistað er í tölvum á Íslandi, bárust Barnaheill á fyrstu sex mánuðum ársins. Tíu slíkar bárust á sama tíma í fyrra.

Sviðið seiðar

Börn fylltu Samkomuhúsið á Akureyri í gær þegar skráð var í áheyrnarprufur fyrir söngleikinn um Óliver Tvist sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir um jólin.

Orkan ætlar fyrir dómstóla

Orkan ætlar að leita réttar síns fyrir dómstólum, að sögn Gunnars Skaptasonar forstjóra, ef samkeppnisyfirvöld halda því til streitu að fyrirtækið hætti að auglýsa með þeim hætti sem það hefur gert.

Grænt ljós á rafskautaverksmiðju

Skipulagsstofnun hefur fallist á fyrirhugaða byggingu rafskautaverksmiðju í Hvalfirði með skilyrðum. Kapla hf. sótti um að reisa verksmiðjuna á Katanesi, austan við álver Norðuráls. Hún verður rúmir 17.000 fermetrar og um 50 metra há þar sem hún rís hæst.

Höfum verið illilega plataðir

Stjórnarformaður Sorpstöðvar Suðurlands segir stjórnina hafa verið allillilega plataða þegar hún var fengin til að draga til baka kæru vegna milljóna króna dagsekta á hendur stöðinni. Sveitarstjórn Ölfuss hefur hótað að segja sig úr Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.

Stálu fjölda DVD mynda

Brotist var inn í Bónusvideo við Geislagötu á Akureyri í fyrrinótt og þaðan stolið fjölda dvd mynda auk einhverra smámuna.

Tekjur ríkis af bensíni aukast

Tekjur ríkissjóðs hafa hækkað í réttu samhengi við tíðar bensínverðshækkanir á árinu. Greiddur er virðisaukaskattur af bensíni og dísílolíu og nemur hann 24,5 prósentum. Verð á bensínlítra hefur hækkað um 13 krónur frá áramótum og á dísílolíu um 11 krónur.

Einangrunarmúrinn rofinn

Þess eru dæmi að fólk hafi útskrifast úr háskóla með aðstoð samstarfsverkefnis Fjölmenntar og Geðhjálpar. Einn nemenda segir að námið sé sér svo mikils virði, að án þess væri hann kominn "sjö fet ofan í jörðina." </font /></b />

Aflinn minni en í fyrra

Íslensk skip veiddu 62.800 tonn í september sem er um þrjátíu og tveimur þúsundum minna en á sama tíma í fyrra. Verðmæti fiskaflans dróst saman um 8,8 prósent. Heildarverðmæti fiskafla það sem af er árinu hefur dregist saman um 1,1 prósent frá áramótum miðað við sama tímabil í fyrra.

Hörð átök um 65 fatlaða nemendur

Hörð átök hafa verið um undanþágubeiðir vegna 65 mikið fatlaðra barna, sem hefur verið synjað í kennaraverkfalli. Fulltrúi launanefndar sveitarfélaganna í undanþágunefnd segir að þar séu "einsleit mál afgreidd með mismunandi hætti á sérkennilegum forsendum." </font /></b />

Teymisvinna getur verið tímasóun

Teymisvinna í heilbrigðiskerfinu getur auðveldlega verið tímasóun, ef slíkar aðstæður eru fyrir hendi, segir Lárus Steinþór Guðmundsson, formaður Samtaka heilbrigðisstétta. </font />

Veikir ekki reknir á sjó

"Við höfum aldrei rekið mann út á sjó sem er með vottorð upp á veikindi og held við förum ekki að taka upp á því núna," segir Andrés Guðmundsson, útgerðarstjóri hjá Þorbirni-Fiskanesi.

Risastafur á Miklatúni

Settur verður upp 10 metra hár hvítur stafur á Miklatúni í Reykjavík í dag í tilefni af degi hvíta stafsins, alþjóðlegum baráttudegi blindra og sjónskertra, en hann er haldinn hátíðlegur 15. október ár hvert.

Vínveitingar leyfðar í Egilshöll

Borgarráð samþykkti í dag að veita Sportbitanum í Egilshöll vínveitingaleyfi til reynslu í eitt ár. Þrír borgarráðsmenn sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

Geislamælingaferð ekki í bígerð

Geislavarnir ríkisins hafa ekki uppi ráðagerðir um að mæla geislun á hafsvæðinu þar sem rússnesku herskipin halda sig, segir Guðlaugur Einarsson, aðstoðarforstjóri Geislavarna, en hann er yfir eftirlitssviði stofnunarinnar.

Lágtekjufólk greiðir tvo milljarða

Tuttugu og níu þúsund einstaklingar sem eru með hundrað þúsund krónur eða minna í tekjur á mánuði greiða rúma tvo milljarða í skatta á þessu ári, fyrir utan óbeina skatta. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir á heimasíðu sinni að þetta fólk fái lítið sem ekkert úr skattalækkun ríkisstjórnarinnar.

Eign í stað skulda

Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, leggur til að ungt fólk geti nýtt lífeyrissparnað sinn við 25 ára aldur til húsnæðiskaupa. Ekki er um skyldusparnað að ræða heldur lífeyrisgreiðslur sem þegar eru inntar af hendi. Samhliða leggur hann til að vaxtabótakerfið verði afnumið. </font /></b />

Útgjöld að aukast

Ríkissjóður stendur vel, í það minnsta mun betur en í fyrra. Ekki er þó hægt að þakka ríkisstjórninni fyrir aðhald í fjármálum því útgjöldin eru að aukast. Það sem gerir buddu Geirs Haarde fjármálaráðherra svo þunga eru skatttekjurnar sem aukast sífellt samfara meiri neyslu og vaxandi hagvexti. 

Verðstríð í bensíni skollið á

Bullandi verðstríð á eldsneyti er nú í gangi. Verðin hafa sveiflast upp og niður það sem af er þessum mánuði. Orkan breytti sínu verði í tvígang í gær. Stóru olíufélögin lækkuðu sitt verð og frekari breytingar ekki útilokaðar.

Aukin eignamyndun af hinu góða

Hugmyndin er mjög góð því hún leiðréttir þá mismunun sem námsmenn hafa búið við og felur í sér aukna eignamyndun hjá ungu fólki," segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, um þá hugmynd að ungt fólk muni geti nýtt lífeyrissparnað sinn við 25 ára aldur til íbúðakaupa.

Sendiráð ESB til Íslands

Lögð hefur verið fram þingsályktunartillaga á Alþingi um að utanríkisráðherra verði falið að óska eftir við Evrópusambandið að "sendiráð" þess verði flutt til Íslands.

Fagnar nýhugsun

Ég sé ekki betur en það sé verið að leggja til að dregið verði úr opinberum stuðningi með þessu móti en menn látnir styðja sjálfa sig þess í stað," segir Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri grænna um þær hugmyndir að ungt fólk geti notað lífeyrissparnað til húsnæðiskaupa og vaxtabótakerfið verði aflagt.

11 milljarðar af barnafólki

Hart var tekist á í umræðum á Alþingi í gær um barnabætur og frammistöðu Framsóknarflokksins í þeim málaflokki. Össur Skarphéðinsson, Samfylkingunni sagði að frá því Framsóknarflokkurinn settist í ríkisstjórn og til 2003 hefðu ellefu milljarðar verið "plokkaðir af

Geðdeildum fyrir hundruð lokað

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, alþingismaður Samfylkingarinnar sagði í utandagskrárumræðum um stöðu geðfatlaðra á Alþingi í gær að geðdeildum með á annað hundrað rúmum hefði verið lokað á Landspítalanum á síðustu átta árum: "Ekkert hefur komið í staðinn til þess að mæta umönnunar- og þjónustuþörf mikið veikra sjúklinga."

Viljum aftur í skólann

Sex börn úr Lækjarskóla tóku sér stöðu við Alþingishúsið í gær með einfalda kröfu að vopni: "Við viljum aftur í skólann".

330 milljónir greiddar úr sjóðnum

Greitt verður öðru sinni úr verkfallssjóði kennara á morgun. Þá verður búið að greiða rúmar 330 milljónir króna úr sjóðnum. Formaður vinnudeilusjóðsins segir sjóðinn þola átta vikna verkfall grunnskólakennara og átta vikna verkfall leikskólakennara en trúir því varla að deilan dragist svo á langinn.

Samskráning í virðisaukaskattsskrá

Geir H. Haarde fjármálaráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi í gær um breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Frumvarpið heimilar skattstjóra að samskrá tvö eða fleiri skráningarskyld hlutafélög og einkahlutafélög á virðisaukaskattsskrá.

Nýtt ráðuneyti

Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram á Alþingi frumvarp sem gerir ráð fyrir að stofna nýtt atvinnumálaráðuneyti sem komi í stað þriggja annara, það er sjávarútvegs landbúnaðar-, sjávarútvegs-, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta.

Skattur úr 10 í 19%

Ögmundur Jónasson, vinstri-grænum mælti í fyrradag fyrir frumvarpi til laga sem gerir ráð fyrir að fjármagnstekjuskattur hækki úr tíu í átján prósent.

Útsvar hækki um 1%

Þingflokkur vinstri-grænna hefur lagt fram frumvarp sem felur í sér heimild til sveitarfélaga til að hækka útsvar um eitt prósentustig úr 13,03% í 14,03%.

Ekki slys eða bilun

Grunsemdir um að slys eða bilun hafi orðið um borð í einhverju rússnesku herskipanna sem eru norðaustur af landinu eru ekki á rökum reistar, samkvæmt upplýsingum frá rússneskum hermálayfirvöldum.

Ætluðu að vera í mánuð við æfingar

Rússnesku herskipin sem haldið hafa til hér við land síðustu daga eru hluti af skipum Norðurflotans sem héldu til æfinga undir stjórn Vladimírs Dobroskotsjenko, varaflotaforingja og aðstoðaraðmíráls í rússneska flotanum, að því er rússneska fréttastofan Itar-Tass greindi frá undir lok september.

Írar fram úr Íslendingum

Hve mikilvægt er að banna reykingar á veitingahúsum? Mjög, segir Jeffrey Wigand, pófessor og lífefnafræðingur. Wigand segir Íslendinga hafa staðið sig best í tóbaksvörnum undanfarin ár en ekki megi slá slöku við.

Agaleysi og eltingaleikur

Börn eru í reiðuleysi og sýna agaleysi í verkfalli kennara, segir Hjörleifur Helgason, vaktstjóri í Egilsshöll. Hann segir aðsóknina að íþróttamiðstöðinni hafi aukist mikið.

Dregið úr samkeppnishæfni Íslands

Dregið hefur úr samkeppnishæfni Íslands. Landið er nú í tíunda sæti yfir samkeppnishæfustu ríki heims og hefur fallið um tvö sæti síðan í fyrra. Þetta kemur fram í árlegu yfirliti <em>World Economic Forum</em> um samkeppnishæfi rúmlega 100 ríkja í heiminum.

Lögreglan bendluð við dópsalalista

Annar tveggja lögreglumanna, sem nefndur er á vefsíðu þar sem talin eru upp nöfn dópsala, hefur óskað eftir að rannsakað verði af hverju hans nafn sé á síðunni. Ingimundur Einarsson, aðstoðarlögreglustjóri í Reykjavík segist ekki hress með að lögreglan sé bendluð við eitthvað misjafn og rannsókn muni hefjast eins fljótt og verða megi.

Barði annan með bjórflösku

Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um sex mánaða skilorðsbundið fangelsi yfir manni sem sló annan mann með glerflösku í höfuðið.

Þarf að ákæra á ný

Hæstiréttur vísaði líkamsárásarmáli frá héraðsdómi þar sem talið var að ákæran í málinu væri ekki í samræmi við þau gögn sem lágu fyrir þegar hún var gefin út. Þarf því að hefja málsmeðferð að nýju með nýrri ákæru.

Dæmdur til greiðslu bóta

Hæstiréttur hefur dæmt mann til að greiða öðrum manni tíu milljónir króna í bætur vegna viðbótarúthlutunar til krókabáta sem hann fékk út á aflareynslu hins mannsins. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður sýknað manninn af skaðabótakröfum.

Sjá næstu 50 fréttir