Fleiri fréttir

Kallið barst frá bíl í byggð

Neyðarkall sem barst í síðustu viku um að tuttugu manna hópur Frakka væri í nauðum staddur á hálendinu barst úr bíl í byggð á Suðurlandi. Gabb sem þetta er refsivert og biður lögreglan hvern sem getur veitt upplýsingar að hafa samband.

Nefndarkóngar eru ríkisleyndarmál

DV fær ekki aðgang að lista sem fjársýsla ríkisins gerði um nefndakónga ríkisins. Einn þeirra sem sat í sjö nefndum árin 2000 til 2002 fékk 9,5 milljónir króna. Nafn hans er ríkisleyndarmál.

Húsbílaklósett tæmd í leyfisleysi

"Við viljum að þessu sé fylgt eftir í lögreglusamþykkt þannig að öllum geti verið ljóst að kjósi menn að leggja húsbíl eða tjalda innan bæjarmarkana verði þeir að greiða gjald. Vilji þeir ekki gera það verði þeir að fara út fyrir bæjarmörkin.

Kraftaverk að ekki fór verr

Vörubíll og Toyota Landcruiser jeppi skullu saman á brú yfir Laxá í Laxárdal í umdæmi lögreglunnar í Búðardal skömmu eftir klukkan 15 í gær.

Lík Sri Rhamawati fundið

Lík Sri Rahmawati fannst í djúpri og þröngri hraunsprungu í Almenningi fyrir sunnan Hafnarfjörð í dag. Hákon Eydal, sem hefur játað að hafa banað fyrrum sambýliskonu sinni og barnsmóður, Sri Rahmawati, vísaði lögreglu á réttan stað eftir að honum var sagt að rannsókn lögreglu sýndi að fyrri staðsetning sem hann gaf upp stæðist ekki. </font />

Ein líkamsárás á Akureyri

Tilkynnt var um eina líkamsárás á Akureyri í nótt að sögn lögreglu. Maður nefbrotnaði og missti nokkrar tennur, þegar hann var barinn með barefli. Þá komu upp 15 fíkniefnamál á Akureyri í nótt, mest minni háttar mál, þar sem lögregla gerði upptæk nokkur grömm af amfetamíni eða hassi til einkaneyslu.

Fullar fangageymslur í Eyjum

Fangageymslur lögreglunnar í Vestmannaeyjum eru fullar eftir síðasta kvöld Þjóðhátíðar í gærkvöldi. Lögreglan segir mikið hafa verið um ölvun og einnig að nokkur fíkniefnamál hafi komið upp, en þau nálgast nú fimmta tuginn sem er meira en áður hefur þekkst.

Náði að rekja sér leið til baka

Björgunarsveitir á Austurlandi voru kallaðar út um klukkan hálfellefu í gærkvöldi til að leita að konu sem hafði orðið viðskila við gönguhóp í þoku inn við Borgarfjörð Eystri. Konan náði að rekja sér leið til baka og kom í leitirnar tæpum klukkutíma síðar. Hópurinn var á göngu frá Borgarfirði Eystri yfir í Vatnsdal.

Bjargað úr sjónum við Vík

Björgunarsveit var kölluð út um áttaleytið í gærkvöldi til aðstoðar við erlendan ferðamann sem var í sjónum fyrir utan Vík í Mýrdal, en nærstaddir náðu að bjarga manninum áður en björgunarmenn komu á vettvang.

Skotmaður ekki fundinn enn

Maðurinn sem skaut með haglabyssu á tvö hús að Reykhólum í Barðastrandasýslu hefur ekki fundist enn. Lögregla veit hver var að verki en maðurinn hafði yfirgefið umdæmið þegar hún kom á staðinn, rúmlega átta klukkustundum síðar.

Bílvelta við Fitjar

Maður meiddist lítillega þegar hann velti bíl sínum við Fitjar rétt utan við Keflavík klukkan átta í morgun. Að sögn lögreglunnar í Keflavík eru meiðsl mannsins ekki alvarleg. Þá var einnig brotist inn í Verslunina Samhæfni í Keflavík í nótt og nokkrum stafrænum myndavélum stolið þaðan.

Lenti utan vegar við Klaustur

Ung kona missti stjórn á bíl sínum við Orrustuhól, rétt austan við Kirkjubæjarklaustur, um klukkan tíu í gærkvöldi og fór bíllinn eina 200 metra utan vegar áður en hann staðnæmdist. Konan tognaði á hálsi og baki og var flutt með sjúkrabíl á Heilsugæslustöðina á Klaustri.

Fíkniefnamál nálægt einu hundraði

Fíkniefnamálin á tveimur stærstu hátíðum helgarinnar eru að nálgast það að verða eitt hundrað talsins, og er það fyrst og fremst þakkað auknu eftirliti og þjálfuðum fíkniefnahundum. Fangageymslur í Vestmannaeyjum eru yfirfullar eftir nóttina, og tilraun til nauðgunar var tilkynnt á Akureyri.

Boðið að blása í áfengismæla

Lögregla víða um land býður ökumönnum sem búast til heimferðar eftir helgina að blása í áfengismæla. Umferð hefur verið mest fyrir norðan en minni á Suðurlandi, þaðan sem sumir sneru heim á leið í gær.

Rekald sett út í dag

Leitinni að líki Sri Rahmawati verður haldið áfram í dag. Rekald verður sett í sjóinn, þar sem Hákon Eydal hefur sagst hafa varpað líkinu fyrir kletta, í því skyni að líkja eftir reki þess í sjónum.

Vegakerfið þoli ekki aukningu

Bæjarstjórn Ísafjarðar lítur ákvörðun Eimskipafélagsins um að hætta strandflutningum alvarlegum augum. Hætt sé við að vegakerfi Ísafjarðar þoli ekki þá aukningu á landflutningum sem þessi ákvörðun gæti haft í för með sér.

Landshnitakerfið endurmælt

Rekið á Ameríku- og Evrópuflekunum auk jarðskorpuhreyfinga eins og á Suður- og Norðausturlandi knýja á að landshnitakerfið verði endurmælt. Landmælingar Íslands ráðast í verkið á fyrri hluta þessa mánaðar.

Skotmaður tekinn með hassplöntur

Lögreglan í Reykjavík handtók í morgun manninn sem skaut með haglabyssu á tvö hús að Reykhólum í Barðastrandasýslu. Maðurinn var handtekinn í austurhluta Reykjavíkur í húsnæði sem tilheyrir honum.

Tvísýnt með flug til Eyja

Tvísýnt er með flug til og frá Vestmannaeyjum í dag. Sem stendur er opið fyrir flug en það lá niðri um tvöleytið. Milli tvö og þrjú hundruð manns eru staddir á flugvelli Vestmannaeyja að sögn lögreglu en allir eru rólegir ennþá. Lögregla segir að bruðgðið geti til beggja átta með flug í dag.

Alvarlegt slys við Kotströnd

Alvarlegt bílslys varð við Kotströnd á Suðurlandsvegi síðdegis, þegar fólksbíll í framúrakstri lenti framan á jeppa. Kona sem ók fólksbílnum og karlmaður sem var farþegi í bílnum voru flutt alvarlega slösuð með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild í Reykjavík. Suðurlandsvegur var lokaður á tíma en hefur nú verið opnaður aftur fyrir umferð.

Sjö mótorcrosshjólum stolið

Sjö torfæruhjólum var stolið úr læstri geymslu í Ártúnsholtinu núna um helgina og búnaði sem notaður er við akstur þeirra í torfærum. Eitt hjólanna fannst í undirgöngum í Mjódd óskemmt og læst við staur eins og ætti að sækja það síðar.

Sláturúrgangur í gróðurmold

Sláturúrgangur úr stórgripum er tættur niður og verður að eðalgróðurmold norður á Akureyri. Fleiri þúsund tonn af slíkum úrgangi falla til á ári hverju en mest af því er grafið í jörð. Stærstur hluti þess úrgangs sem fellur til í sláturhúsum er einfaldlega urðaður.

Kostnaður við leit mikill

Kostnaður við leit að hópi ferðamanna sem sendu neyðarkall af hálendinu í vikunni nemur mörgum milljónum. Enn hefur ekkert spurst til hópsins. Enginn sem tengist málinu hefur gefið sig fram, svo enn er verið að grennslast fyrir um fólkið, en talsmaður þeirra sagði í neyðarkalli síðastliðinn fimmtudag að tuttugu manns væru veikir af matareitrun.

Óvíst um áhrif á verð hér

Ísland er í flokki ríkja sem búa við erfið framleiðsluskilyrði í landbúnaði. Verður þeim veitt svigrúm vegna tollalækkana sem Alþjóðaviðskiptastofnunin hefur lokið rammasamkomulagi um. Ekki er enn ljóst hver áhrifin verða á verð á varningi hér á landi. Samningurinn verður útfærður á næstu þrem til fjórum árum. </font /></font /></b /></b />

Forseti í þriðja sinn

Innsetningarathöfn forseta Íslands fór fram á sunnudag við hátíðlega athöfn í dómkirkju og alþingishúsi í viðurvist fjölda gesta. Í ávarpi sínu þakkaði forsetinn stuðning fólks um landið allt. Dorrit Moussaieff klæddist mesta viðhafnarbúningi íslenskra kvenna, skautbúningnum. </font /></b />

Lýðræðisandi er leiðarljósið

Ólafur Ragnar Grímsson var settur forseti Íslands í þriðja sinn við hátíðlega athöfn í Dómkirkjunni og á Alþingi á sunnudag. Í innsetningarræðu sinni sagði forsetinn meðal annars: "Þjóðin hefur nú í þriðja sinn falið mér að gegna embætti forseta Íslands og bera ábyrgð og skyldur sem traustinu fylgja." </font /></font /></b />

Fjölmennasta unglingalandsmótið

Fjölmennasta unglingalandsmóti UMFÍ til þessa var slitið í gærkvöld með flugeldasýningu. Talið er að um tíu þúsund manns hafi verið á landsmótinu á Sauðárkróki. Landsmót UMFÍ var haldið á Sauðarkróki fyrir þremur vikum.

Ein með öllu á enda

Lögreglu á Akureyri bárust tilkynningar um nauðgun og líkamsárás í nótt. Þá komu upp óvenju mörg fíkniefnamál eða 46 talsins. Að öðru leyti gekk helgin stórslysalaust fyrir sig á Akureyri, þar sem haldin var fjölskylduhátíðin Ein Með Öllu.

Metfjöldi fíkniefnamála upplýstur

Metfjöldi fíkniefnamála var upplýstur á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Þrjár líkamsárásir voru kærðar og ein nauðgun tilkynnt neyðarmóttöku. Tungl var fullt í gær og fangageymslur fullar, en þjóðhátíðin þykir samt sem áður hafa farið vel fram.

Póstpokinn lenti í fjörunni

Svo virðist sem líki Sri Ramawati hafi verið varpað af klettum ofan í fjöru áður en flæddi að. Björgunarsveitir settu út rekald í dag, til að líkja eftir reki líksins í sjónum, og lögðu sig í framkróka við að fylgja lýsingum Hákonar Eydals sem hefur viðurkennt að hafa myrt Sri.

170 kannabisplöntur í austurbænum

Hundrað og sjötíu kannabisplöntur fundust í morgun í húsnæði manns í Reykjavík, sem var eftirlýstur fyrir að skjóta úr haglabyssu á tvö hús á Reykhólum í Barðastrandasýslu. Hann var handtekinn ásamt ætluðum vitorðsmanni.

Prestssonur gekk berserksgang

Heimamenn á Reykhólum eru æfir út í Lögregluna á Patreksfirði vegna seinagangs um helgina þegar Benedikt Bragason, sonur prestsins á staðnum, skaut af haglabyssu á nokkur hús í bænum.

Skaut af haglabyssu á tvö hús

Maður vopnaður haglabyssu skaut á tvö hús á Reykhólum í Barðastrandasýslu í gærmorgun. Sérsveit Ríkislögrelustjóra var kölluð vestur, en maðurinn finnst hvergi. Þórólfur Halldórsson er sýslumaður á Patreksfirði. Hann upplýsti að maður sem talið var að væri í annarlegu ástandi hefði skotið á tvö hús.

Ísland fær svigrúm í samningum

Stefán Haukur Jóhannesson, formaður samninganefndar innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, segir vilja og svigrúm innan stofnunarinnar til að tryggja undanþágur fyrir Ísland og önnur ríki með viðkvæman landbúnað. Hann segir það létti að nú liggi markmið fyrir.

Skin og skúrir í Vestmannaeyjum

Komin sól í Vestmannaeyjum eftir slagviðri í nótt. Aðsóknarmet var sett í Fjölskyldu og húsdýragarðinum í gær og vinsælasta útihátíðin er á Akureyri.

Sæludagar í Vatnaskógi

Hátíðarhöld á Sæludögum í Vatnaskógi ganga vel að sögn mótshaldara. Reiknað er með að um 700-800 gestir hafi komið á svæðið frá föstudegi. Í gærkvöldi sóttu milli 300-400 manns kvöldvöku og svo tónleika þeirra systkina Kristjáns Kristjánssonar (KK) og Ellenar Kristjánsdóttur.

Ólafur settur inn í embætti

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var settur inn í embætti við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu laust eftir klukkan fjögur að lokinni helgistund í dómkirkjunni. Eiginkona forsetans, Dorrit Moussaieff, var íklædd íslenskum skautbúningi sem Jakobína Thorarensen saumaði árið 1938.

13 innbrot tilkynnt í Reykjavík

Lögreglan í Reykjavík hefur fengið tilkynningar um 13 innbrot um helgina. Fimm þeirra áttu sér stað í gærmorgun í Seljahverfi. Þar var litlu stolið en lögregla hefur haft uppi á hinum seka, sem að sögn hennar á við geðræn vandamál að stríða.

Kallar á uppbyggingu þjóðvega

Formaður samgöngunefndar Alþingis segir það mikið áhyggjuefni að Eimskip skuli hætta strandflutningum frá og með 1. desember næstkomandi. Það kalli á hraðari uppbyggingu á þjóðveginum. Skipulagsbreytingar eru fyrirhugaðar hjá Eimskipum til þess að bæta þjónustu félagsins og mæta auknum kröfum

Elsti prentstafur á Íslandi

Er b-ið úr Guðbrandsbiblíu fundið á Hólum í Hjaltadal? Fornleifafræðingar hafa grafið niður á elstu lög prenthúsanna þar sem fyrsta biblían á íslensku var prentuð í tíð Guðbrands biskups Þorlákssonar árið 1584.

Almenn ánægja með hátíðir

Vestmannaeyingar eru ánægðir með sína þjóðhátíð en Akureyringar. Þar voru fangageymslur tómar í morgun. Mikil eftirvænting er í Herjólfsdal eftir brekkusöng Árna Johnsens í kvöld.

Fjölmennasta útihátíðin friðsamleg

Lögreglan á Akureyri er í sjöunda himni yfir hátíðinni "Ein með öllu" sem haldin er í bænum. Ekki hefur verið tilkynnt um líkamsárásir, óspektir, nauðganir eða önnur ofbeldisverk til lögreglunnar um helgina þrátt fyrir að hátt í 15 þúsund gestir séu í bænum. Veðrið hefur leikið við hátíðargesti á Akureyri alla verslunarmannahelgina.

Orður og kjólföt við innsetningu

Er umgjörðin um embættistöku forsetans orðin hégómleg eða ber hún vott um valdabaráttu? Þessu veltu sumir fyrir sér á Austurvelli í dag. Athygli vakti að þegar Vigdís Finnbogadóttir var sett inn í embætti forseta árið 1988 sniðgekk Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi þingmaður, kröfur um klæðaburð.

Sjaldan jafn margir á embættistöku

Sjaldan hafa jafn margir lagt leið sína á Austurvöll til að fylgjast með embættistöku forseta Íslands eins og í dag. Talið er að um 700 manns hafi verið á staðnum.

Þriðji hver fjarverandi

Þriðji hver alþingismaður var fjarverandi þegar forseti Íslands sór embættiseið í dag. Nær allir þingmenn stjórnarandstöðunnar voru viðstaddir en meira en helmingur stjórnarþingmanna sá sér ekki fært að mæta. Einn af hverjum þremur þingmönnum hafði öðrum hnöppum að hneppa þegar forseti Íslands sór embættiseiða í dag

Sjá næstu 50 fréttir