Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fullyrðingar um sakfellingar á samfélagsmiðlum standist ekki Hæstaréttarlögmaðurinn Gunnar Ingi Jóhannsson segir því fara fjarri að ásökunum kvenna á hendur Ingólfi Þórarinssyni tónlistarmanni, um kynferðisofbeldi, og viðbrögðum almennings við því megi líkja við réttarfar miðalda og jafna við sakfellingar. Þetta segir hann í grein sem birtist hér á Vísi, og virðist ákveðið svar við grein sem lögfræðingurinn Helgi Áss Grétarsson birti fyrir viku síðan. 14.7.2021 07:26
Lewis Hamilton setur upp grasrótarverkefni Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton hefur sett upp grasrótarverkefni sem er ætlað að auka þátttöku svartra í tæknilegum störfum sérstaklega innan Formúlu 1. 14.7.2021 07:00
Segja kaldhæðnislegt að ritstjórinn birti ekki nöfnin á listanum Forvarnarhópurinn Bleiki fíllinn, Öfgar og fjöldi kvenna úr hópnum Aktívismi gegn nauðgunarmenningu skorar á Tryggva Má Sæmundsson, ritstjóra vefmiðilsins Eyjar.net, til þess að birta 1.660 manna undirskriftalista sem hann skilaði til Þjóðhátíðarnefndar í síðustu viku. 14.7.2021 06:40
Kínverskir feðgar sameinaðir 24 árum eftir að syninum var rænt Guo Gangtang hefur fundið son sinn Guo Xinzhen eftir 24 ára leit. Syninum var rænt fyrir utan fjölskylduheimilið árið 1997 þegar hann var aðeins tveggja ára gamall. 13.7.2021 23:45
Nöfn þeirra fimm sem Ingó krefur um bætur Ingólfur Þórarinsson, Ingó Veðurguð, hefur fengið Vilhjálm H. Vilhjálmsson lögmann sinn til þess að senda fimm einstaklingum kröfubréf, þar sem þess er farið á leit að þeir biðji hann afsökunar á ærumeiðandi ummælum í hans garð, dragi þau til baka og greiði honum miskabætur og lögfræðikostnað. 13.7.2021 23:43
Guðni kvaddi Ólympíufarana Forsetinn kvaddi í dag íslensku Ólympíufarana á Bessastöðum, áður en þeir héldu af stað til Tókýó í Japan, þar sem leikar hefjast eftir tíu daga. 13.7.2021 22:51
Á fimmta tug látinna í óeirðum í Suður-Afríku Minnst 45 hafa látist í óeirðum í Suður-Afríku. Óeirðirnar hófust eftir að fyrrum forseti landsins, Jakob Zuma, var fangelsaður. 13.7.2021 22:44
Borgar allan lögfræðikostnað fyrir þá sem Ingó lögsækir Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull sem hagnaðist verulega á sölu fyrirtækis síns til Twitter, hefur boðist til þess að greiða allan lögfræðikostnað þeirra sem Ingólfur Þórarinsson Veðurguð kann að lögsækja vegna ummæla á netinu um framkomu hans við konur. 13.7.2021 22:01
Mikið tekjutap að missa aðganginn Áhrifavaldur sem varð fyrir barðinu á erlendum tölvuþrjóti segir árásina gríðarlegt áfall. Netöryggissérfræðingur segir málið afar sérstakt og telur mögulegt að einhver hér á landi hafi greitt þrjótinum fyrir árásina. 13.7.2021 20:38
Biðla til fólks að fara varlega á stórum mannamótum fram undan Búist er við mikilli mannmergð á Austurlandi næstu tvær vikur enda fara þar fram þrjár stórar bæjarhátíðir. Aðgerðastjórn vegna Covid-19 á Austurlandi hefur því biðlað til fólks að fara varlega og huga að persónubundnum smitvörnum. 13.7.2021 20:02
Meðferðarkjarninn á stærð við tvo knattspyrnuvelli Heildarkostnaður við byggingu nýs Landspítala við Hringbraut hefur aukist um ríflega sextán milljarða króna. Húsnæðið verður eitt það stærsta sem byggt hefur verið hér á landi og mun kosta hartnær áttatíu milljarða króna. 13.7.2021 20:01
„Ótrúlega gaman“ að heyra íslenskuna niðri í bæ Íbúi á Amerísku ströndinni á Tenerife kveðst finna lítið fyrir kórónuveirufaraldrinum. Íslendingum hafi fjölgað mjög á svæðinu undanfarið. 13.7.2021 19:30
Hrottalegar netofsóknir gegn ungri konu: Auglýst og sögð vilja láta nauðga sér Ung kona segist hafa ítrekað lent í netofsóknum á síðustu árum. Meðal annars hefur auglýsing verið sett fram í hennar nafni þar sem kemur fram að hún bjóði uppá kynlífsþjónustu og er svo sögð vilja láta nauðga sér. Engin lög eru til um auðkennisþjófnað hér á landi. 13.7.2021 19:01
Setti upp myndavél í sameign vegna úrgangs nágrannahundsins Íslendingi, sem hefur um nokkra hríð haft eftirlitsmyndavél í sameign fjöleignarhúss síns, hefur verið gert að taka hana niður. Að hundur nágrannans geri þarfir sínar á sameiginlegri lóð þeirra er að mati Persónuverndar ekki fullnægjandi ástæða fyrir þörf á öryggismyndavél. 13.7.2021 18:26
Ingó Veðurguð fer í hart með hjálp Villa Vill Vilhjálmur H. Vilhjálmsson ætlar fyrir hönd Ingólfs Þórarinssonar Veðurguðs að kæra nafnlausar sögur sem birtar hafa verið um söngvarann á netinu. Kröfubréf verða send vegna ummæla sem fallið hafa á netinu undanfarnar vikur. 13.7.2021 18:23
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ung kona sem hefur síðustu þrjú ár verið ofsótt á netinu með skaðlegum lygum um hana og fölsuðum auglýsingum, þar sem hún er sögð veita gróft kynlíf, segist upplifa sig algjörlega varnarlausa. Berghildur Erla ræðir við konuna í kvöldfréttum Stöðvar 2 og einnig deildarstjóra kynferðisbrotadeildar sem segir afar erfitt að hafa upp á gerendum í svona málum. 13.7.2021 18:21
Talibanar skutu 22 hermenn sem gáfust upp Vígamenn Talibana tóku minnst 22 afganskra sérsveitarmenn af lífi eftir að þeir gáfust upp. Þetta var í bænum Dawlat Abad í síðasta mánuði en myndbönd af aftökunni hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. 13.7.2021 16:49
Hafna því að standa sig ekki í að finna fötluðu fólki heimili Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hafnar því að borgin standi sig ekki nægilega vel í uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk. Margir þeirra geðfötluðu einstaklinga sem borgin sinni hafi haft lögheimili í öðrum sveitarfélögum við komuna á geðdeild en breyti um lögheimili til að auka líkur á að fá viðeigandi húsnæði eða þjónustu sem fyrst. 13.7.2021 15:52
Demókratar flúðu Texas aftur Ríkisþingmenn Demókrataflokksins í Texas í Bandaríkjunum hafa flúið ríkið á nýjan leik til að reyna að koma í veg fyrir samþykkt umdeildra lagafrumvarpa í ríkinu. Athygli þeirra beinist sérstaklega að lagafrumvarpi sem mun gera fólki erfiðara að kjósa í Texas en einnig lögum um fósturrof og kennslu um rasisma í Bandaríkjunum. 13.7.2021 15:41
Fjöldi útlendinga hefur tafið bólusetningar í dag Ljúka átti bólusetningardeginum í dag klukkan tvö en aðsókn hefur verið nokkuð meiri en heilsugæslan gerði ráð fyrir að sögn Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjá heilsugæslunni. 13.7.2021 14:42
Færir sig frá New York til Ottawa Hlynur Guðjónsson, aðalræðismaður og viðskiptafulltrúi á Aðalræðisskrifstofu Íslands í New York í Bandaríkjunum, verður næsti sendiherra Íslands í Kanada, með aðsetur í Ottawa, höfuðborg Kanada. 13.7.2021 14:05
Obawy związane z podróżami za granicę Według informacji z biur podróży w ostatnich dniach Islandczycy bardzo licznie wybierali się do Hiszpanii gdzie rośnie liczba zakażonych koronawirusem. 13.7.2021 13:57
Tekinn með 27 kíló af grasi og 53 lítra af gambra Karlmaður nokkur hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Maðurinn var tekinn með mikið magn maríjúana, kannabisstangla, plöntur og tæpt kíló af amfetamíni. Þá bruggaði maðurinn sömuleiðis gambra. 13.7.2021 13:45
Óvægin umræða á samfélagsmiðlum þáttur í andlegri vanlíðan dýralækna Andleg vanlíðan og streita er algeng meðal dýralækna hér á landi og segjast 75% þeirra finna fyrir andlegum eða líkamlegum einkennum vegna mikils álags. Þetta er niðurstaða könnunar sem Dýralæknafélag Íslands lét gera á líðan dýralækna í starfi. 13.7.2021 13:42
Skortir mat og lyf og verðbólga komin í 500 prósent Fjöldi mótmælenda á Kúbu eru sagðir hafa verið handteknir í kjölfar umfangsmikilla mótmæla gegn ríkisstjórn landsins á sunnudaginn. Myndbönd hafa sýnt öryggissveitir handtaka og berja mótmælendur sem kallað hafa eftir umbótum í eyríkinu. 13.7.2021 13:34
Fjórir laumufarþegar fluttir í sóttvarnahús Fjórir laumufarþegar voru um borð í skipi sem kom til hafnar í Straumsvík þann 8. júlí síðastliðinn. Mennirnir dvelja nú í sóttvarnarhúsi en talið er að þeir hafi komið um borð í skipið í Senegal um mánaðamótin maí/júní. 13.7.2021 13:03
Áhyggjur af ferðalögum Íslendinga þar sem faraldurinn er í uppsveiflu Sóttvarnalæknir hefur áhyggjur af auknum ferðalögum Íslendinga til útlanda, einkum Spánar þar sem kórónuveirufaraldurinn hefur verið í miklum vexti. Hann hvetur Íslendinga erlendis til að fara varlega. Tveir greindust með veiruna innanlands í gær. 13.7.2021 12:47
Ástandsskoðun fasteigna ekki síður hagsmunir seljenda en kaupenda Formaður Matsmannafélags Íslands segir félagið hafa barist fyrir að ástandsskýrslur gerðar af fagfólki fylgi söluyfirlitum allra íbúðarfasteigna. Slíkt sé til hagsbóta fyrir alla. Þingsályktunartillaga þess efnis var lögð í fimmta sinn fyrir Alþingi í vor og ráðherra falið að undirbúa lagagfrumvarp. 13.7.2021 12:01
Smit rakið til Bankastræti Club Annað tveggja Covid-smita sem greindust utan sóttkvíar í gær er rekið til skemmtanalífsins, meðal annars til skemmtistaðarins Bankastræti Club. 13.7.2021 11:50
Ætla að blanda bóluefni eins og enginn sé morgundagurinn Um sjö þúsund skammtar af bóluefni Pfizer verða gefnir í endurbólusetningu, þar sem fólk fær seinni skammt af bóluefninu, í Laugardalshöll í dag. Þá er opið fyrir aðra í fyrri bólusetningu, og birgðastaðan góð þannig að auðvelt ætti að vera að anna eftirspurn. 13.7.2021 11:42
Læknar fordæma niðurfellingu aðgerða á Englandi Samtök breskra lækna segja þá ákvörðun Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, að fella niður allar sóttvarnaraðgerðir í Englandi vera óábyrga og hættulega. Johnson tilkynnti í síðustu viku að allar aðgerðir yrðu felldar niður þann 19. júlí og það þrátt fyrir að smituðum færi hratt fjölgandi á Englandi. 13.7.2021 11:38
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við sóttvarnalækni sem hefur áhyggjur af auknum ferðalögum Íslendinga til útlanda, einkum Spánar þar sem kórónuveirufaraldurinn hefur verið í miklum vexti. 13.7.2021 11:31
Tveir bólusettir greindust utan sóttkvíar Tveir greindust með kórónuveiruna utan sóttkvíar hér á landi í gær. Báðir voru bólusettir. 13.7.2021 11:12
Aldrei fleiri dáið í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi skráðu 780 dauðsföll vegna Covid-19 í gær. Það er mannskæðasti dagurinn frá upphafi faraldurs nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19. Alls greindust 24.702 smitaðir. 13.7.2021 10:50
Helmingur íbúa Evrópusambandsins fullbólusettur Meira en helmingur allra fullorðinna einstaklinga í Evrópusambandinu er nú fullbólusettur. Þetta tilkynnti Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á Twitter-reikningi sínum í morgun. 13.7.2021 08:53
Könnuðu virknina í gígnum með hjálp Landhelgisgæslunnar og dróna Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands birti í gær drónamyndband sem tekið var á gosstöðvunum í Geldingadölum á laugardag. 13.7.2021 08:37
Herða takmarkanir í Frakklandi en bara fyrir óbólusetta Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur kynnt hertar aðgerðir í landinu til að koma í veg fyrir aðra bylgju faraldursins. Þær munu einungis ná til þeirra sem ekki eru bólusettir. Hann ætlar einnig að skylda alla heilbrigðisstarfsmenn í landinu til að fara í bólusetningu. 13.7.2021 08:30
Græðgi ráði för hjá þeim sem vilja gefa þriðja skammtinn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) er ekki hrifin af áherslum lyfjaframleiðandans Pfizer á að fá leyfi fyrir því að gefa þriðja skammt bóluefnis síns gegn Covid-19. Yfirmaður stofnunarinnar segir að það sé græðgi bóluefnaframleiðenda að kenna hve mikil mismunun hefur orðið í dreifingu bóluefnaskammta. 13.7.2021 07:43
Banna hraða tónlist til að draga úr útbreiðslu veirunnar Líkamsræktarstöðvum í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, og nágrenni hefur verið bannað að spila hraða tónlist í húsakynnum sínum, til þess að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. 13.7.2021 07:38
Eldur á Covid-deild varð tugum að bana Fleiri en fimmtíu eru látin eftir að eldur blossaði upp inni á einangrunardeild fyrir Covid-sjúklinga á spítala í íröksku borginni Naririya. 13.7.2021 06:57
Ferðamenn fylgist með veðurspá næstu daga Suðlægar og suðvestlægar áttir munu ráða ríkjum hér á landi, og valda vætu á sunnan- og vestanverðu landinu í dag. Áfram má gera ráð fyrir ágætisveðri á Norður- og Austurlandi, þar sem verður úrkomulítið og talsvert sólskin með tilheyrandi hlýindum. 13.7.2021 06:37
Meirihluti vill nýju stjórnarskrána Rúmlega helmingur þjóðarinnar vill að breytingar verði gerðar á stjórnarskrá lýðveldisins í samræmi við tillögur stjórnlagaráðs frá 2011, ef marka má nýjan þjóðarpúls Gallup. Iðulega er vísað til þessara tillagna sem nýju stjórnarskrárinnar. 12.7.2021 23:36
Forseti Kúbu segir Bandaríkin ábyrg fyrir mótmælum Miguel Díaz-Canel, forseti Kúbu, ávarpaði þjóð sína í morgun og sagði mótmælin sem hófust um helgina vera skipulagða aðför að kúbverskum stjórnvöldum. Þá sagði hann mótmælin studd af bandarískum yfirvöldum og keyrð áfram á samfélagsmiðlum. 12.7.2021 23:31
Þetta er núna vinsælasti útsýnisstaðurinn á gosið Drónamyndir sem náðust af gosstöðvunum á Fagradalsfjalli um helgina sýna að hraunelfa flæddi úr eldgígnum um göng og þaðan í átt til Meradala. Slæmt skyggni hefur í dag byrgt sýn að eldgosinu en óróamælar sýna að það hefur haldið fullum dampi. 12.7.2021 22:56
Biðst afsökunar á afléttingum Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, hefur beðið þjóð sína afsökunar á dómgreindarbresti af sinni hálfu. Sá fólst í að aflétta sóttvarnatakmörkunum vegna Covid-19 of snemma. 12.7.2021 22:45