Fleiri fréttir

Þorláksmessa í miðborginni

Jólatónlist mun óma og jólasveinar heilsa upp á jólabörn. Tenóarnir þrír halda tónleika og jólavættirnar á sínum stað.

Hamfarirnar miklu áratug síðar

Flóðbylgjan mikla í Indlandshafi varð 230 þúsund manns að bana á annan dag jóla árið 2004. Áratugur er liðinn en hamfarirnar eru enn greyptar í huga þeirra sem upplifðu þær.

Nýjar reglur ferðaþjónustu fatlaðra skerða ferðafrelsið

Fatlaðir einstaklingar gagnrýna nýjar verklagsreglur við ferðaþjónustu fatlaðra. Ákvæði um hámarksferðir í mánuði mismuna fötluðum að þeirra mati. Eftir áttatíu ferðir í mánuði þarf fatlaður að bíða til mánaðamóta.

Tífalt dýrara að bíða en framkvæma

Þegar komið er að illa förnu landi vegna jarðvegs- og gróðureyðingar er endurheimt þess margfalt dýrari aðgerð en sú að koma í veg fyrir skaðann í tíma. Eyðingaröflin láta fátt ósnert, hvort sem það eru lífsskilyrði fugla eða fiskurinn í ánum. Þau hafa líka áhrif á veðurfarið.

Nornahraun nær yfir 80 ferkílómetra lands

Virknin á gosstöðvunum í Holuhrauni minnkar jafnt og þétt. Gæti þó haldið áfram næstu árin, segir eldfjallafræðingur. Smágos í Tungnafellsjökli er hugsanlegt en þar er aukin jarðskjálftavirkni. Nornahraun stækkar, en hægt núorðið.

Vegagerðin hefur áður fengið athugasemdir

Við fjárhagsskoðun vegna ársins 2013 gerði Ríkisendurskoðun fjölda athugasemda við verklag Vegagerðarinnar. Engin stofnun fer beinlínis með það hlutverk að vakta opinbera samninga þannig að farið sé að lögum, segir forstjóri Ríkiskaupa.

Segja óvissu fylgja framlaginu

Stjórn starfsendurhæfingarsjóðsins VIRK hefur ákveðið að afþakka 200 milljónir króna sem Alþingi veitti til starfsins í fjárlögum fyrir árið 2015.

Er sagt vera einn grænasti áfangastaðurinn

Snæfellsnes er einn af 100 grænustu áfangastöðum heims, samkvæmt nýbirtum lista samtakanna Green Destination. Um er að ræða verkefni sem kallað er Global Top 100. Þar er tekið saman yfirlit yfir þá hundrað staði í heiminum sem þykja skara fram úr á sviði umhverfismála.

Stjórnsýsluúttekt hafin á samningum ráðuneytis

Ríkisendurskoðun hefur ákveðið að hefja stjórnsýsluúttekt á samningum ríkisins við Rannsóknir og greiningu ehf. Forkönnun sögð gefa fullt tilefni til að skoða málin betur og kanna hvort gerðir samingar standist lög og reglur.

Vegir lokaðir vegna snjóflóðahættu

Súðavíkurvegi og Ólafsfjarðarvegi var lokað í gærkvöldi vegna snjólflóðahættu og Siglufjarðarvegur er líka lokaður vegna ófærðar og snjóflóðahættu. Ekki er vitað hvort flóð hafa fallið á þessa vegi í nótt, en það verður kannað strax í birtingu og staðan endurmetin.

Flugmaður neitar sök vegna brotlendingar við sumarhús

Marteinn Einarsson, sem ákærður er vegna brotlendingar flugvélar nærri Flúðum í apríl 2010, neitaði sök við þingfestingu málsins hjá Héraðsdómi Suðurlands. Farþegi sem slasaðist krefst einnar millljónar í miskabætur.

Þegar við húkkuðum far með halastjörnu

Uppgötvanirnar voru margar á árinu og afrekin fjölbreytt. Vonbrigðin voru einnig til staðar. Á ýmsum sviðum tóku vísindamenn höndum saman, á öðrum tókust þeir á. 2014 var ár framfara en við sáum vísindamenn einnig gera það sem þeir gera svo vel, að horfast í augu við óvæntar breytur og vonbrigði. Hér er það helsta í vísindum á árinu

Barack Obama fordæmdi morð á lögreglumönnum

Tveir lögreglumenn í New York voru myrtir á laugardagskvöld. Málið vekur óhug vestra. Obama forseti segir að lögreglumenn, sem hætti lífinu fyrir öryggi borgaranna, eigi að njóta virðingar hjá almenningi í hvívetna.

Hamborgarhryggurinn enn langvinsælastur

Um helmingur landsmanna ætlar að borða hamborgarhrygg í aðalrétt á aðfangadag samkvæmt nýrri könnun MMR. Aðrir algengir aðalréttir eru lambakjöt, rjúpur og kalkúnn.

Bæjarstjórn komi að ráðningu lögmanns

Tillaga M-lista Íbúahreyfingarinnar um að ráðning lögmanns bæjarins verði á borði bæjarstjórnar í stað bæjarstjóra var felld í bæjarráði Mosfellsbæjar.

Sjá næstu 50 fréttir