Fleiri fréttir

McLaren P1 uppseldur

Það vefst ekki fyrir 375 kaupendum McLaren að reiða fram 141 milljónir króna fyrir nýjasta bíl McLaren, P1.

Rúta valt við Öxará - 49 manns um borð

Rúta með 49 manns innaborðs fór á hliðina við Öxará á Þingvöllum rétt í þessu. Samkvæmt skeyti frá neyðarlínunni urðu ekki mikil slys á fólki. Lögreglan er á leiðinni, bæði frá Selfossi og Reykjavík.

Íþróttamálaráðherra vonglaður í Zagreb

Illugi Gunnarsson íþróttamálaráðherra flaug til Zagreb í gær. Hann segir mikla stemmningu ríkja meðal Íslendinga sem mættir eru til að fylgjast með leiknum.

Mannfall við sendiráð Írana í Beirút

22 eru látnir hið minnsta eftir röð sprenginga við íranska sendiráð í Beirút, höfuðborg Líbanon í morgun. Íran er stór stuðningsaðili Hezbollah samtakanna í Líbanon, sem hafa sent hermenn til bardaga í Sýrlandi, til stuðnings stjórnarhers Bashar al-Assads forseta.

Mynd af líki unglingsdrengs á Google Maps

Google hefur ákveðið að fjarlægja loftmynd af vef sínum Google Maps þar sem lík 14 ára drengs, Kevin Barrea, sést liggjandi við járnbrautarteina.

Börðu mann sem stóð þá að innbroti

Tveir erlendir karlmenn, sem eru búsettir hér á landi, voru handteknir á Suðurlandi í nótt eftir fólskulega árás á mann sem stóð þá að innbroti í sumarbústað. Annar mannanna á langan brotaferil að baki og stal meðal annars úr versluninni Geysi fyrir um tvær milljónir króna.

Hyundai efst í ánægjukönnun

Auk þess að vera hæsti framleiðandinn var mest ánægja með Hyundai Equus bílinn af öllum bílgerðum.

Illugi til Zagreb

Illugi Gunnarsson, ráðherra mennta-, menningar- og íþróttamála, verður meðal áhorfenda þegar Íslendingar keppa við Króata í kvöld

Mikil leit gerð að stúlku á Álftanesi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerði mikla leit að stúlku á norðanverðu Álftanesi upp úr miðnætti og naut meðal annars aðstoðar slökkviliðsins, sem sendi stigabíl á vettvang. Þá var lögreglubílum með ljóskösturum ekið um svæðið.

Fjórtán létust í fellibylnum Kleópötru á Sardiníu

Fjórtán eru látnir hið minnsta á ítölsku eyjunni Sardiníu eftir að fellibylurinn Kleopatra gekk þar á land í gærkvöldi. Nokkurra er enn saknað en hinar gríðarlegu rigningar sem fylgdu óveðrinu urðu til þess að ár á eyjunni flæddu yfir bakka sína þannig að bifreiðar fóru á kaf og brúarstólpar sópuðust burt.

Allt á suðupunkti í Miðafríkulýðveldinu

Það stefnir í borgarastríð í Miðafríkulýðveldinu, verði ekkert að gert. Þetta segir Ban Ki Moon framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sem vill að stofnunin sendi friðargæslulið til landsins til að koma í veg fyrir að ofbeldið fari algjörlega úr böndunum.

Tók kast þegar kona svínaði óvart á hann

Karlmaður brjálaðist þegar kona svínaði óvart fyrir hann á hringtorginu við Þjóðminjasafnið í gærkvöldi. Hann elti bíl konunnar vestur Hringbraut, inn á Bræðraborgarstíg, Vesturgötu og stöðvaði bíl sinn loks fyrir aftan hana á rauðu ljósi á mótum Ægisgötu og Geirsgötu.

Mikil leit gerð að byssumanni í París

Umfangsmikil leit er nú gerð að manni sem skaut á skrifstofur dagblaðsins Liberation og hleypti einnig af byssunni fyrir framan höfuðstöðvar stórbankans Societe Generale í París. Tuttugu og sjö ára gamall ljósmyndari slasaðist alvarlega í árásinni.

Rob Ford sviptur völdum í Toronto

Borgarstjórnin í Toronto í Kanada ákvað í gær að svipta borgarstjórann Rob Ford nær öllum völdum sínum. Ford hefur verið mikið í sviðsljósinu síðustu daga en hann hefur meðal annars viðurkennt að hafa reykt krakk í borgarstjóratíð sinni auk þess sem myndband birtist af honum þar sem hann hótar manni kvalarfullum dauðdaga.

Gefa bókasafnsbækur sem á að farga

Djúpavogsbúar geta nú eignast bækur og blöð frá bókasafni bæjarins sem er löngu sprungið. Afganginum af því sem var grisjað frá verður fargað - nema einhver vilji láta senda sér það, segir sveitarstjórinn sem sjálfur nældi í innbundinn Skírni.

Bandaríkjamenn skráðu 33 milljónir símtala í Noregi á einum mánuði

Bandaríska þjóðaröryggisstofnunin, NSA, skráði þrjátíu og þrjár milljónir símtala í Noregi á þrjátíu daga tímabili um áramótin 2012 til 2013. Þetta kemur fram í gögnum sem uppljóstrarinn Edward Snowden lak en hann er nú með tímabundið hæli í Rússlandi. Það er norska Dagbladet sem skýrir frá málinu sem hefur eðlilega vakið mikla athygli þar í landi.

Könnuðu bakgrunn tveggja mæðra barns

Þjóðskrá Íslands mátti leita til læknasetursins Art Medica til að staðfesta að barn sem verið var að skrá ætti í raun tvær mæður.

Héldu að drengur hefði lent undir bíl á Akureyri

Mikill viðbúnaður var í snarbrattri skógivaxinni hlíð ofan við Akureyrarkirkju á sjöunda tímanum í gærkvöldi, eftir að bíll hafði hafnað á trjám í miðri hlíðinni og óttast var að ungur drengur hefði orðið undir bílnum. Tildrög voru þau að þegar bíl var ekið eftir Eyrarlandsvegi, sá ökumaðurinn hvar ungur drengur stefndi á hann á snjósleða og fékk ekki við neitt ráðið.

Hreindýr éta fótboltavöll á Djúpavogi

"Þetta eru falleg dýr sem setja mikinn svip á bæinn,“ segir Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri á Djúpavogi, þar sem fjörtíu til fimmtíu hreindýr gerðu sig heimakomin á fótboltavelli bæjarins í gær.

Þarf viðhorfsbreytingu til drykkju framhaldsskólanema

Eftir góðan árangur af forvörnum í grunnskólum þarf að beina sjónum að áfengisneyslu í framhaldsskólum segir félagsfræðingur. Viðhorf foreldranna breytast þegar börn fara í framhaldsskóla. Tímapunktur sem allt breytist hjá krökkunum.

Flestir vilja fá slæmu fréttirnar fyrst

Þrír af hverjum fjórum vilja heldur fá slæmar fréttir fyrst og svo góðar fréttir, samkvæmt rannsókn sem vitnað er til á vef National Geographic. Ákvörðunin er þó í höndum þeirra sem færa fréttirnar, og þeir eru oft annarrar skoðunar.

Útvegsmenn hafa ekki skuldsett sig vegna kaupa á makrílkvóta

Að mati Vinstri grænna hvílir ekki lagaskylda á sjávarútvegsráðherra að kvótasetja makríl. Samfylkingin vill að hluti aflaheimilda í makríl verði boðinn upp á frjálsum markaði. Útvegsmenn fagna lagasetningu en smábátasjómenn eru á móti.

Gengur ekki að borga með erlendum föngum

Samningar sem Ísland hefur undirgengist gera ekki ráð fyrir því að greitt sé með erlendum föngum til að heimalönd þeirra fallist á að taka við þeim til afplánunar. Engin sparnaður yrði af því að taka upp slíkt fyrirkomulag.

Frosthörkur á leiðinni

Sannkallað vetrarveður hefur sett svip sinn á höfuðborgarsvæðið að undanförnu en töluverð snjókoma hefur gert vart við sig

Youtube: Error

Myndbandavefsíðan vinsæla Youtube lá niðri um nokkurn tíma í kvöld.

Rob Ford í fótspor Van Damme

Auglýsing bílaframleiðandans Volvo með leikaranum Jean-Claude Van Damme vakti töluverða athygli fyrir skömmu.

Sjá næstu 50 fréttir