Börðu mann sem stóð þá að innbroti Gissur Sigurðsson skrifar 19. nóvember 2013 11:47 Sauma þurfti 13 spor til að loka skurðum á höfði hans, auk þess sem hann er rifbeinsbrotinn. mynd úr safni
Tveir erlendir karlmenn, sem eru búsettir hér á landi, voru handteknir á Suðurlandi í nótt eftir fólskulega árás á mann sem stóð þá að innbroti í sumarbústað. Lögreglan á Selfossi íhugar að krefjast gæsluvarðhalds yfir þeim en að minnsta kosti annar þeirra á langan afbrotaferil að baki hér á landi. Það var um níu leytið í gærkvöldi sem eigandi sumarbústaðar Reykjaskógi, skammt frá Úthlíð í Biskukpstungum, sá grunsamlegar mannaferðir í gegnum eftirlitskerfi í bústaðnum. Hann býr í Reykjavík og hringdi því í kunninga sinn í uppsveitum og bað hann að athuga hvað væri á seyði. Þegar hann kom á vettvang voru mennirnir búnir að brjóta upp útidyrnar. Maðurinn sagði að nú væri best að bíða eftir lögreglunni en þá réðust þeir á hann með barsmíðum og héldu svo á brott. Sauma þurfti 13 spor til að loka skurðum á höfði hans, auk þess sem hann er rifbeinsbrotinn. Maðurinn hringdi í lögregluna strax eftir árásina og gaf upp númer og lýsingu á bílnum sem þeir voru á. Tveir lögreglumenn frá Selfossi voru staddir á bíl á Flúðum, tveir til viðbótar voru ræstir út á Selfossi og óskað var eftir að sérsveitarmenn frá Ríkislögreglustjóra sendu þriðja bílinn til að umkringja mennina. Það tókst og voru mennirnir handteknir og vistaðir í fangageymslum á Selfossi. Þeir verða yfirheyrðir í dag vegna alvarlegrar líkamsárásar, akstur undir áhrifum fíkniefna og gruns um innbrot í nokkra sumarbústaði í uppsveitum Árnessýslu undanfarnar tvær vikur. Annar tók meðal annars þátt í að stela nýverið verðmætum úr versluninni við Geysi upp á tvær milljónir króna, og töluverðum verðmætum úr Hagkaupum og Tölvulistanum á Selfossi.
Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Erlent Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ Innlent Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Innlent „Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Innlent Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Erlent Rafmagn komið aftur á í miðbæ Reykjavíkur Innlent Fleiri fréttir Hyggjast stórbæta aðstöðu ferðamanna við Hvítserk „Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Jarðskjálftar í grennd við Húsafell en enginn órói „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Fluttur á slysadeild eftir að bifreið var ekið á rafskútu Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Rafmagn komið aftur á í miðbæ Reykjavíkur Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Facebook og Instagram liggi niðri vegna bilunar Allir umsækjendurnir metnir jafn hæfir Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ „Við erum eitt þeirra landa sem skilja fiskveiðarnar einna best“ Harpa verður fulltrúi Íslands á heimsmeistaramóti nuddara Sjálfstæðisflokkur á flugi og ríkisstjórnin aldrei mælst með minna fylgi Tíðindi í glænýrri Maskínukönnun, Samhjálp og HM í nuddi Opna nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum í Reykjanesbæ Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Myndir úr Hvalfirði: Langreyðar dregnar á land „Planið“ sé byrjað að virka Gjörbreytt staða ef Íslendingar ganga inn í ESB Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ „Úr penna þeirra manna streymir gamalt fullyrðingarusl“ Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Fjöldi tilvika af glæfralegum framúrakstri áhyggjuefni „Dýravernd er ekki öfgaskoðun“ Hvalirnir skornir og lögreglan með áhyggjur af hraðakstri Sjá meira
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent