Innlent

Gengur ekki að borga með erlendum föngum

Brjánn Jónasson skrifar
Ströng skilyrði eru um afplánun erlendra fanga í heimalandi.
Ströng skilyrði eru um afplánun erlendra fanga í heimalandi. Fréttablaðið/Vilhelm
Samningar sem Ísland hefur undirgengist gera ekki ráð fyrir því að greitt sé með erlendum föngum til að heimalönd þeirra fallist á að taka við þeim til afplánunar. Engin sparnaður yrði af því að taka upp slíkt fyrirkomulag.

Þetta kemur fram í svari Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra við fyrirspurn Silju Daggar Gunnarsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, á Alþingi.

Greiðslur með föngum tíðkast ekki í þeim ríkjum sem við berum okkur saman við, og engin ákvæði í þá veru eru í tvíhliða samningum Íslands við önnur ríki, segir í svarinu. Þá er bent á að önnur ríki glími við sama vanda og Íslendingar og nýtingarhlutfall fangelsa víða yfir 100%.

Í svarinu kemur fram að fjöldi erlendra ríkisborgara í fangelsum hér á landi sé svipaður og fjöldi íslenskra ríkisborgara sem sitja í fangelsum erlendis. Alls sitja sautján erlendir ríkisborgarar í íslenskum fangelsum, og sex til viðbótar eru nú í gæsluvarðhaldi. Íslensk stjórnvöld vita af 21 Íslendingi sem afplána dóm erlendis. Hlutfallið er því nokkuð jafnt.

Ekki hefur gengið að fá neinn af þeim sautján erlendu ríkisborgurum sem nú sitja í fangelsi hér á landi til að afplána í heimalandi sínu. Aðeins rúmur þriðjungur hefur hlotið svo þunga dóma að það komi til greina.

Af þeim sex sem hafa hlotið svo þunga dóma eru þrír frá Póllandi. Pólland tekur ekki við sínum ríkisborgurum gegn þeirra vilja, samkvæmt svari ráðherra. Af því má skilja að Pólverjarnir þrír hafi lítinn hug á því að afplána í heimalandinu frekar en hér á landi.

Einum erlendum fanga hefur þegar verið synjað um flutning af hálfu heimaríkis hans. Ekki reyndust öll skilyrði uppfylt fyrir því að framselja annan. Sá síðasti af sexmenningunum er frá ríki sem ekki er aðili að Evrópuráðssamningi um flutning fanga, og því kemur ekki til greina að hann fái að afplána í heimalandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×