Fleiri fréttir

"Ég er mjög bjartsýn"

"Hljóðið er bara mjög gott. Þetta er bjartur og fallegur dagur. Það verður bara ánægjulegt að fá að heyra niðurstöðurnar á eftir," segir Ólafía B. Rafnsdóttir sem býður sig fram til formanns VR.

Laun hækkuðu um 7,4% í fyrra

Laun á íslenskum vinnumarkaði hækkuðu um 7,4% milli áranna 2011 og 2012. Þá hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 7,8% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna um 6,6%. Þetta kemur fram í nýju hefti Hagtíðinda um vísitölu launa. Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun skrifstofufólks mest á milli ára eða um 9,2% en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst eða um 6,7%.

"Púlsinn fer hækkandi"

"Púlsinn fer hækkandi. Ég get vottað það. Eðlilega, annars væri ekkert gaman að þessu," segir Stefán Einar Stefánsson, formaður VR.

Um 20% hafa kosið - Kosningu lýkur í dag

Allsherjaratkvæðagreiðslu til formanns og stjórnar VR fyrir kjörtímabilið 2013 - 2015 lýkur klukkan tólf á hádegi í dag. Klukkan hálftíu í morgun höfðu 5.790 félagsmenn greitt atkvæði af þeim 29.439, sem eru á kjörskrá. Það þýðir að kosningaþátttakan er um 20%. Tveir eru í framboði til formanns, þau Stefán Einar Stefánsson, núverandi formaður, og Ólafía B. Rafnsdóttir, sem meðal annars hefur verið kosningastjóri Árna Páls Árnasonar og starfsmannastjóri 365 miðla.

Segja aukin kvenréttindi geta tortímt samfélaginu

Bræðralag múslima í Egyptalandi varar við því að yfirlýsing Sameinuðu þjóðanna um aukin réttindi kvenna gætu tortímt samfélaginu. Þeim lýst ekkert á að konur haf rétt til þess að ferðast, stunda atvinnu eða nota getnaðarvarnir án samþykkis eiginmannsins.

Hekla sýnir Skoda Rapid

Er á milli Fabia og Octavia í stærð. Fjórar bensínvélar og ein dísilvél í boði, sem eyðir aðeins 4,2 lítrum.

Frans 1. páfi hefur mikinn áhuga á fótbolta

Erlendir fjölmiðlar hafa grafið upp ýmsar staðreyndir um líf hins nýja páfa, Frans 1. Þar á meðal að mjög litlu hafi munað að hann yrði páfi í stað Benedikts 16. við valið árið 2005.

Botndýr drepast í stórum stíl í Kolgrafarfirði

Lindýr og krabbadýr drepast nú í stórum stíl í Kolgrafafirði og má sjá dauð sjávardýr hvert sem litið er, eins og kræklinga, ígulker krabbadýr, kuðunga og jafnvel ný dauða síld um allar fjörur, segir á vef Skessuhorns.

Heiðlóan komin með fyrra fallinu

„Þetta er alltaf gleðiefni. Við skulum bara vona að vorið sé að koma,“ segir Guðmundur A. Guðmundsson hjá Náttúrufræðistofnun Íslands um þær fréttir að fyrsta lóa ársins hafi sést við Útskála í Garði í fyrrakvöld.

Reyndi tólf ára að svipta sig lífi

Maður á fimmtugsaldri var misnotaður af þremur gerendum sem barn; tveimur körlum og einni konu. Var nauðgað af frænda sínum á hverju sumri. Maðurinn burðaðist með þögnina í þrjátíu ár en öðlaðist nýtt líf með því að horfast í augu við ofbeldið.

Fékk Lapid og Bennett í stjórn

Benjamín Netanjahú hefur myndað ríkisstjórn með Jaír Lapid og Naftali Bennett, nærri tveimur mánuðum eftir þingkosningarnar.

Aðeins eitt fríblað fyrir Dani

Útgáfu danska fríblaðsins 24timer verður hætt í þessum mánuði. Eftir það verður aðeins eitt fríblað eftir á markaðnum, Metroxpress.

Tugmilljónatjón á togara

Tugmilljónatjón varð á togaranum Bylgju VE þegar gámaskipið Tetuan sigldi utan í skipið sem bundið var við bryggju í Vestmannaeyjahöfn.

Yfirvöldum ekki treyst fyrir uppljóstrunum

Innan við helmingur landsmanna treystir yfirvöldum til að bregðast við uppljóstrunum um alvarlega misbresti innan stjórnsýslunnar, fyrirtækja eða stofnana.

Frakkar boða vopnasendingar

Frakkar lýstu því yfir í gær að bæði þeir og Bretar vilji útvega sýrlenskum uppreisnarmönnum vopn, jafnvel þótt Evrópusambandið sé á móti því.

Sjónvarpsefni í gegnum 4G um allt land

Fjögur fyrirtæki fengu úthlutað tíðnisviði í uppboði Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) á tíðniheimildum fyrir 4G-farnetsþjónustu. Um er að ræða Símann, Fjarskipti (Vodafone) og Nova, auk 365 miðla sem gefa meðal annars út Fréttablaðið. PFS á enn eftir að afgreiða tilboðin endanlega en ef fram fer sem horfir munu fást 226 milljónir fyrir heimildirnar.

„Gott að fá að heyra í honum“

„Það var auðvitað rosalega gott að fá að heyra í honum,“ segir Þóra Björg Birgisdóttir, sambýliskona Davíðs Arnar Bjarnasonar, sem setið hefur í tyrknesku fangelsi frá því á síðasta föstudag.

Tása fannst á vappi við veginn

SlysBorder collie-tíkin Tása, sem stökk á flótta eftir bílveltu í Öxnadal á mánudagskvöld, er fundin. Hún var á vergangi í tvo sólarhringa þangað til hún fannst í fyrrakvöld.

Sérstakur vildi skoða símtöl Kjartans

Sérstakur saksóknari óskaði árið 2011 eftir dómsúrskurði til að fá afhenta skrá yfir öll símtöl Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi formanns bankaráðs Landsbankans, á mánaðartímabili þremur árum fyrr.

Frumvarp Ögmundar þrengir að lögreglu

Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir götuvændi, vasaþjófnað, gengjastríð, skipulögð rán og betl geta orðið að veruleika á Íslandi fái lögregla ekki auknar rannsóknarheimildir. Lögregla reki sig á veggi þegar kanna þurfi bakgrunn vafasamra manna.

Draga í efa að fylgt sé ákvæði virkjanaleyfis

Fljótsdalshérað kannar hvort vatnsmagnið í Lagarfljóti sé of mikið fyrir skilmála virkjanaleyfa Kárahnjúkavirkjunar og Lagarfljótsvirkjunar. Landsvirkjun segir ekki skilmála í virkjanaleyfinu um vatnsmagn. Fyrirtækið telji öll skilyrði uppfyllt.

Fólk noti páskafríið í að kemba börnum

Lúsasmit er yfir meðaltali í vetur að sögn Ásu Atladóttur, deildarstjóra í sýkingavörnum hjá Landlækni. Lús kemur ítrekað upp í grunnskólunum. Í gær biðlaði Vesturbæjarskóli til foreldra að leita lúsa vegna smits sem þar er aftur komið upp.

Minningarstund við tjörnina

Fjöldi kerta var tendraður við Reykjavíkurtjörn í kvöld þegar hópur fólks kom saman til að minnast barna sem látið hafa lífið í átökunum í Sýrlandi eða eiga um sárt að binda vegna þeirra.

„Hann er mjög hræddur“

Davíð Örn Bjarnason, sem hefur verið í varðhaldi í Tyrklandi síðan á föstudag, hefur verið látinn laus. Unnusta hans segir hann mjög óttasleginn eftir fangelsisvistina. Davíð er í farbanni og óvíst er hvenær mál hans verður tekið fyrir.

Reyndu að smygla 20 kílóum af amfetamíni til landsins

Þrír karlar voru í dag í héraðsdómi úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 28. mars í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli, og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir hafa kært úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar.

Í sjö ára fangelsi fyrir að ræna úrsmið

Hæstiréttur dæmdi í dag pólskan karlmann, Pawel Jerzy Podburaczynski, í sjö ára fangelsi fyrir að hafa ásamt öðrum mönnum ráðist með ofbeldi og hótunum á starfsfólk úra- og skartgripaverslunarinnar Michelsen og tekið þaðan 49 armbandsúr, auk þess að hafa tekið fjóra bíla í heimildarleysi til þess að nota við ránið. Pawel var dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur og því ljóst að Hæstiréttur þyngir dóminn um tvö ár.

Ólafur Skúlason tekur við af Elsu

Ólafur G. Skúlason var kjörinn formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga kjörtímabilið 2013-2015 með eins atkvæðis mun. Ólafur hlaut 29,86% atkvæða eða alls 565 atkvæði en Vigdís Hallgrímsdóttir hlaut 564 atkvæði eða 29,81%.

Sjá næstu 50 fréttir